Morgunblaðið - 04.03.2019, Side 26

Morgunblaðið - 04.03.2019, Side 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MARS 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Bætiefni • Bensín og dísel bætiefni í tankinn • Hreinsar bensíndælu, leiðslur og fl. • Minnkar eldsneytisnotkun • Lengir líftíma hvarfakúts og súrefnis- skynjara, kemur í veg fyrir stíflaða ventla • Minnkar losun út í umhverfið Vnr: 0893 73 Verð: 1.990 kr. Hrímeyðir • Þurftir þú að skafa í morgun? • Efninu er sprautað á frosna framrúðu og klakinn gufar upp Vnr: 0892 331 201 Verð: 1.200 kr. Fimmtán barna- og unglingabæk- ur, sem út komu á árinu 2018, voru í Gerðubergi um helgina tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavík- ur 2019 sem venju samkvæmt verða afhent í Höfða síðasta vetrardag, sem í ár er miðvikudagurinn 24. apríl. Fimm bækur eru tilnefndar í þremur flokkum, en veitt eru verð- laun fyrir bestu frumsömdu barna- og unglingabókina, best myndlýstu bókina og bestu þýðingu á barna- og unglingabók sem gefin var út 2018. Besta frumsamda bókin Í flokki frumsaminna barnabóka eru tilnefndar í stafrófsröð titla, bækurnar: Ljónið eftir Hildi Knúts- dóttur sem Forlagið gefur út, Rott- urnar eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur sem Forlagið gefur út, Silfurlykill- inn eftir Sigrúnu Eldjárn sem For- lagið gefur út, Svarthol – Hvað ger- ist ef ég dett ofan í? eftir Sævar Helga Bragason sem Forlagið gefur út og Sölvasaga Daníelssonar eftir Arnar Má Arngrímsson sem Sögur útgáfa gefur út. Besta myndlýsta bókin Í flokki myndlýstra bóka eru til- nefndar, í stafrófsröð titla, bæk- urnar: Ljóðpundari með myndlýs- ingum Sigrúnar Eldjárn og ljóðum eftir Þórarin Eldjárn sem Forlagið gefur út, Sagan um Skarphéðin Dungal sem setti fram nýjar kenn- ingar um eðli alheimsins myndlýst af Rán Flygenring við texta Hjörleifs Hjartarsonar sem Angústúra gefur út, Milli svefns og vöku með mynd- um Laufeyjar Jónsdóttur við texta Önnu Margrétar Björnsson sem Út- gáfuhúsið Verðandi gefur út, Sjúk- lega súr saga sem myndlýst er af Halldóri Baldurssyni með texta eftir Sif Sigmarsdóttur sem Forlagið gef- ur út og Snuðra og Tuðra eiga af- mæli myndlýst af Lóu Hlín Hjálm- týsdóttur við texta Iðunnar Steins- dóttur sem Útgáfuhúsið Verðandi gefur út. Best þýdda bókin Í flokki þýddra barna- og ung- lingabóka eru tilnefnd í stafrófsröð þýðenda þau: Aðalsteinn Ásberg 15 ólíkar bækur í þremur flokkum  Barnabókaverðlaun Reykjavíkur 2019 verða afhent síðasta vetrardag VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Herdís Anna Jónasdóttir er að von- um spennt að fá að fara með hlut- verk Víólettu í uppfærslu Íslensku óperunnar á La Traviata. Verdi kunni jú betur en flestir að flétta saman tónlist og drama og þurfa áhorfendur að hafa hjarta úr steini til að tárfella ekki þegar hin ólán- sama Víóletta syngur sinn síðasta söng og kveður bæði ástina og það nautnalíf sem hún hafði lifað í Par- ís. Herdís bendir á að Víóletta sé líka á margan hátt einstök í óp- erubókmenntunum: „Þar er oft hlutskipti kvenhetjanna að vera ein- hvers konar fórnarlamb eða þá verðlaunagripur fyrir karlhetjuna; þær eru ýmist ambáttir eða prins- essur. Víóletta sker sig frá öðrum hlutverkum því hún er sterk kona með mikinn persónuleika og er að reyna að berjast út úr þeim að- stæðum sem hún er í,“ útskýrir Herdís og bætir við að hlutverkið sé krefjandi bæði hvað snertir sjálf- an sönginn en ekki síður leikræna túlkun. „Hlutverkið kallar á tölu- verðan undirbúning og syngur Víó- letta mikinn texta en að auki þarf hún að fylgja henni í gegnum allan skala tilfinninganna; frá hæstu hæðum og gleði í veisluhöldum yfir í að bíða dauðans.“ La Traviata verður frumsýnd í Hörpu næstkomandi laugardag og samtals haldnar fimm sýningar á verkinu. Elmar Gilbertsson og Garðar Thor Cortes skiptast á að fara með hlutverk Alfredós, elsk- huga gleðikonunnar Víólettu, en að auki stíga á svið þau Hrólfur Sæ- mundsson, Sigríður Ósk Kristjáns- dóttir, Hrafnhildur Árnadóttir, Snorri Wium, Oddur Arnþór Jóns- son, Paul Carey Jones og Valdimar Hilmarsson. Bjarni Frímann Bjarnason er hljómsveitarstjóri og Oriol Tomas leikstjóri sýningar- innar. Ísafjarðarmær sem fékk óperubaktíeruna seint Þó að Herdís hafi verið nokkuð áberandi í íslensku menningarlífi upp á síðkastið er ekki úr vegi að kynna þessa ungu og efnilegu söng- konu betur fyrir lesendum. Und- anfarin ár hefur hennar aðal- bækistöð verið óperuhúsið í Saarbrücken í Þýskalandi, rétt við frönsku landamærin, en þar áður starfaði hún hjá óperunni í Zürich. Herdís fæddist á Ísafirði 1983, varð snemma áhugasöm um tónlist og leiklist, og undi sér hvergi betur en leikandi eða syngjandi á sviði. Tvítug hélt hún til Reykjavíkur til að stunda söngnám við Listaháskól- ann undir leiðsögn Elísabetar Erlingsdóttur. Óperubakterían kviknaði samt ekki fyrir alvöru fyrr en á þriðja ári námsins: „Það var þá sem ég fór, að áeggjan kennarans míns, í skiptinám til Austurríkis og uppgötvaði í þeirri ferð að óperu- söngur væri alvörustarf sem gæti átt við mig.“ Afréð Herdís að halda söngnám- inu áfram við Hanns Eisler- tónlistarakademíuna í Berlín, þar sem aðalkennarar hennar voru Brenda Mitchell og Anna Samuil. Hún útskrifaðist þaðan 2010 og lauk síðan konzertexamen-prófi 2013. Herdís hætti á dögunum störfum í Saarbrücken og hefur nú sest aft- ur að í Berlín þar sem hún hyggst freista gæfunnar í blómlegu tónlist- arlífi borgarinnar. Kvenhlutverkin færri Er vonandi að henni gangi þar allt í haginn, en því er ekki að neita að margir flinkir listamenn eru um hituna í óperuheiminum og sam- keppnin mest á meðal sópransöngv- ara. „Bæði útskrifa söngskólarnir fjölda sópransöngkvenna, en svo er raunin sú að í óperum eru kven- hlutverkin iðulega færri en karl- hlutverkin. Algeng formúla er að hafa tvö kvenhlutverk á móti tveim- ur stórum karlhlutverkum en síðan eru til viðbótar fjöldamörg minni hlutverk fyrir karlsöngvara sem gefst þar tækifæri til að koma sér á framfæri með nokkrum línum.“ Lesendur geta séð þessa skipt- ingu í La Traviata, þar sem þrjú kvenhlutverk eru á móti sex karl- hlutverkum. Ef aðrar óperur Verdís eru skoðaðar koma svipuð hlutföll í ljós: í Il Trovatore er skiptingin 3 á móti 6; í Aídu og Nabucco 3 á móti 5; en í Falstaff 3 á móti 7. Segir Herdís að sópransöngkonur þurfi að hafa alla anga úti bara til þess eins að ná athygli umboðs- manna. „Í Þýskalandi virðist hjálpa söngvurum mikið ef þeim tekst að vinna keppnir og geta þeir þá vænst einhverra atvinnutilboða í kjölfarið. Þá er mjög mikilvægt nú til dags að dreifa myndbands- upptökum sem víðast. Mestu skiptir samt að hafa þrautseigju og gefast ekki upp.“ Blaðamaður gantast með að Her- dís gæti kannski nýtt það sér til framdráttar að á Ísafirði á hún eitil- harðan hóp aðdáenda sem jafnvel fjölmenna á sýningar hennar er- lendis. „Það gerðist eitt sinn í Sa- arbrücen að 50 manna hópur Ísfirð- inga gerði sér sérstaka ferð á eina af sýningum mínum,“ segir hún og bætir við að yndislegt sé að fá þennan stuðning úr gamla heima- bænum á Vestfjörðum. Töfrar óperunnar hafa ekki dvínað En valdi Herdís örugglega réttan starfsvettvang? Er kannski hætta á að á tímum Netflix og YouTube verði listgreinar eins og óperan undir í harðri samkeppni um at- hygli og aura almennings? Gæti kannski verið hætta á að PewDie- Pie-kynslóðin hafi ekki úthald í að hlusta á heila óperu? Herdís segir „Alltaf hægt að uppgötva eitthvað  Víóletta er ólík öðrum kvenhetjum óperuheimsins og segir Herdís Anna hlutverkið krefjandi á margan hátt Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bakland Herdís Anna minnist þess þegar hópur fimmtíu Ísfirðinga gerði sér ferð alla leið til Saarbrücen til að hlusta á hana syngja. Þykir henni stuðningurinn frá heimaslóðum sínum á Vestfjörðum mikils virði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.