Morgunblaðið - 04.03.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 04.03.2019, Síða 32
Bergþór Pálsson barítónsöngvari kemur fram á hádegistónleikum í Hafnarborg í Hafnarfirði ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara á morgun, þriðjudag. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálftíma. Bergþór flytur þekktar aríur eftir frönsku tónskáldin Gou- not, Massenet og Bizet, sem voru uppi um og fyrir aldamótin 1900. Syngur aríur eftir frönsk tónskáld MÁNUDAGUR 4. MARS 63. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. „Þær eru sterkari núna en þegar við mættum þeim síðast,“ segir Ingi- björg Sigurðardóttir um landslið Skota sem Ísland mætir í dag í Al- garve-bikarnum í knattspyrnu. „Eins og staðan er núna eigum við góða möguleika á því að spila um verðlaunasæti og þess vegna er leikurinn mjög mikilvægur,“ segir Ingibjörg. »1 Von um verðlaun en Skotar sterkari núna ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Liverpool hefur fatast flugið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en liðið gerði sitt sjöunda jafntefli í deildinni í vetur gegn Everton í gær í barátt- unni um Bítlaborgina á Goodison Park. Gylfi Þór Sigurðsson var að vanda í liði Everton en hélt ekki áfram að bæta nýtt markamet sitt sem markahæsti Ís- lendingurinn í deildinni. Mohamed Salah fékk bestu tækifærin til að skora en brást bogalistin. Man- chester City er því komið upp fyrir Liver- pool á topp deildarinnar. »6 Manchester City komið á toppinn á Englandi Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þegar kemur að bollukaupum eru Íslendingar í raun ótrúlega íhalds- samir, en auðvitað eru þeir til í að prófa spennandi nýjungar í bland,“ segir Reynir Carl Þorleifsson, betur þekktur sem Reynir bakari, í samtali við Morgunblaðið. Bolludagur, einn af uppáhalds- dögum landsmanna, er í dag, en talið er að hátíð þessi hafi borist hingað til lands frá Noregi eða Danmörku á seinni hluta 19. aldar. Fljótlega upp úr því hófu reykvísk bakarí að aug- lýsa bolludagsbollur, landanum til mikillar ánægju. Algengt var á árum áður að börn byggju til bolluvendi, vektu heimilisfólk með flengingum og fengju fyrir vikið bollur að laun- um. Þessi siður virðist þó vera á miklu undanhaldi á sama tíma og vin- sældir bollunnar aukast ár frá ári. Reynir segir vatnsdeigsbollur í mikilli sókn en menn takast jafnan á um það hvorar bollurnar séu betri, vatnsdeigs- eða gerbollur. „Þær eru klassískar. Fólk vill samt auðvitað nýjungar í bland, en þegar allt kemur til alls þá velja flestir þetta gamla,“ segir Reynir. Allt gert frá grunni Henry Þór Reynisson bakari var önnum kafinn við að undirbúa bollu- daginn þegar Morgunblaðið náði af honum tali. Var hann meðal annars að gera tilraunir með alls kyns nýj- ungar sem kunna að rata í sölu, en hann sagðist í heildina baka um 15.000 bollur í ár. „Það verða eflaust í boði ein til tvær bollur sem eru alveg nýjar, en við verðum meðal annars með súkku- laði-, hindberja- og púnsbollur. Einn- ig verðum við með „Irish coffee“ og auðvitað þessar klassísku með rjóm- anum,“ segir Henry Þór og bætir við að allar þeirra bollur séu bakaðar á staðnum frá grunni. „Mörg bakarí eru farin að stytta sér leið með því að nota mix í boll- urnar. Okkur finnst samt best að gera deigið alveg frá grunni – það tryggir besta bragðið,“ segir hann. Ein af þeim nýjungum sem Reynir bakari hefur kynnt í gegnum tíðina eru svokallaðar cronuts-bollur. Eru þær blanda af croissant og doughnut, skornar í tvennt, með rommi og rjóma á milli. Þá líta bollurnar einnig út eins og venjulegur kleinuhringur með gati í miðjunni og glassúrskreyt- ingu á toppnum. Spurður hvort þessar sælgætis- bollur verði einnig í boði í ár svarar Henry Þór: „Heyrðu, já – er það ekki bara. Ég þyrfti þá bara að henda í þær fyrst þú minnist svona sér- staklega á þessar bollur,“ segir hann og hlær við. Morgunblaðið/Hari Ljúfmeti Hjá Reyni bakara var nóg um að vera þegar Morgunblaðið leit þar inn enda bolludagur þá á næsta leiti. Klassíkin vinsælust í bland við nýjungar  Um 15.000 bollur voru bakaðar hjá Reyni bakara ALMAR BAKARI BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari Opið alla daga kl. 7-18 BOLLU- dagurinn Þú færð bollurnar hjá okkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.