Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 1
FERMINGAR 80 SÍÐUR
N, GREIÐSLAN,
ATURINN OG
GAR MINNINGAR
FÖTI
M
FALLE
MARÍN
FERMING
F Ö S T U D A G U R 1 5. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 63. tölublað 107. árgangur
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
c
ta
v
is
7
1
1
0
3
0
Betolvex
B-12
H
Fæst án
lyfseðils
Síðan stríðið í Sýrlandi braust út í
mars 2011 hefur Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna, UNICEF á Ís-
landi, safnað um 100 milljónum
króna í neyðaraðstoð fyrir sýrlensk
börn. Nánast allt þetta fé hefur
komið frá einstaklingum og Stein-
unn Jakobsdóttir, kynningarstjóri
UNICEF, segir að fénu hafi verið
varið til ýmissa þátta neyðaraðstoð-
arinnar, m.a. bólusetninga og
vatns. „Íslendingar vilja almennt
hjálpa til þegar þeir vita af neyð
sem þessari og láta sig málefnið
varða. Það er ljóst að börnin í Sýr-
landi eru ekki gleymd hér á landi,“
segir Steinunn.
Í dag eru átta ár síðan stríðið
hófst, áætlað er að a.m.k. 360.000
Sýrlendingar hafi fallið í átökunum
og óvíst er um afdrif um 200.000 til
viðbótar. Í fyrra voru staðfest rúm-
lega 1.100 dauðsföll barna í landinu
sem rekja má til átakanna, en Sam-
einuðu þjóðirnar telja að talan sé
mun hærri. Jarðsprengjur eru ein
helsta orsök dauðsfalla og meiðsla
hjá börnum, en vetrarhörkur og
takmarkað aðgengi lækna og hjálp-
arstofnana að sumum svæðum ógn-
ar einnig lífi barnanna.
annalilja@mbl.is »16
Ljósmynd/UNICEF
Sýrland Börnin í landinu líða fyrir
átökin og neyðaraðstoðar er þörf.
Börnin í
Sýrlandi
ekki gleymd
100 milljónir hafa
safnast hér frá 2011
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Formleg lyklaskipti fara fram í
dómsmálaráðuneytinu í dag þar sem
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir mun
taka við sem dómsmálaráðherra.
Hún tekur við embætti af Sigríði Á.
Andersen sem stígur til hliðar í kjöl-
far dóms Mannréttindadómstóls
Evrópu (MDE) þar sem meðal ann-
ars var fjallað um skipun dómara í
Landsrétt. Frá þessu var greint að
loknum þingfundi Sjálfstæðisflokks í
Alþingishúsinu í gær.
Í framhaldinu fór fram ríkisráðs-
fundur á Bessastöðum þar sem
gengið var formlega frá breyting-
unni. Þórdís segist þakklát fyrir það
traust sem henni hefur verið sýnt.
Hún mun sinna verkefnum dóms-
mála samhliða störfum sínum sem
ráðherra ferðamála, iðnaðar og ný-
sköpunar. „Ég hef trú á því að ég
muni leysa þetta verkefni vel og ætla
mér að þakka traustið. Ég er með
menntun á þessu sviði sem ég tel að
muni nýtast vel. Um tímabundna
ráðstöfun er að ræða en ljóst er að
hefjast þarf handa strax við að for-
gangsraða verkefnum með aðstoð
starfsfólks ráðuneytisins,“ segir
Þórdís.
Nýti tímann til uppstokkunar
Áður en haldið var inn á ríkisráðs-
fund á Bessastöðum í gær ræddi
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra við blaðamenn. Þar kvaðst hún
ánægð með skipun Þórdísar í emb-
ætti dómsmálaráðherra og telur að
málið muni leysast farsællega. Þá
finnist henni eðlilegt að til skoðunar
séu frekari uppstokkanir hjá Sjálf-
stæðisflokki. „Það er fullkomlega
eðlilegt ef Sjálfstæðisflokkurinn vill
nýta tímann núna fyrir einhverja
frekari uppstokkun,“ segir Katrín.
Skiptar skoðanir á dómnum
Mikil umræða hefur skapast um
hvaða leiðir séu færar í kjölfar dóms
MDE. Afar skiptar skoðanir eru á
málinu meðal lögmanna sem Morg-
unblaðið hefur rætt við. Sumir telja
að una beri niðurstöðu dómsins og
hugsanlegt sé að skipa verði fjóra
nýja dómara í embætti í stað þeirra
sem ekki áttu sæti á lista hæfis-
nefndar. Þá kemur til greina að
skipa þurfi alla fimmtán dómara
Landsréttar á ný.
Meðal hugmynda sem einnig hafa
verið viðraðar, er hvort hægt sé að
nýta sér undanþáguákvæði stjórnar-
skrár um skipun dómara. Slíkt
myndi fela í sér að Landsréttur yrði
lagður niður. Í framhaldinu yrði nýtt
millidómstig stofnað og skipun dóm-
ara endurtekin.
Þórdís tekur tímabundið
við sem dómsmálaráðherra
„Ætla mér að þakka traustið,“ segir Þórdís Skiptar skoðanir á dómi MDE
MMörg aðkallandi mál »2, 6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýr dómsmálaráðherra Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók við emb-
ættinu á fundi ríkisráðs á Bessastöðum. Hún mun gegna því tímabundið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ríkisstjórnarfundur Sigríður Á. Andersen og Guðlaugur Þór Þórðarson stungu saman nefjum á síðasta ríkisstjórnarfundi Sigríðar, í bili að minnsta kosti.