Morgunblaðið - 15.03.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Miðlun nafna fermingar-
barna þarf að byggja á
fullnægjandi heimild þar
sem slík miðlun telst til
vinnslu viðkvæmra per-
sónuupplýsinga. Þetta
segir Brynja Dögg Guð-
mundsdóttir Briem, lög-
fræðingur og persónu-
verndarfulltrúi hjá
Biskupsstofu.
Árlegt fermingarblað
Morgunblaðsins kemur
út í dag. Þar er nú sú
breyting að nöfn fermingarbarna
vorsins eru ekki birt, eins og löng
hefð er fyrir. Hefur blaðið jafnan
fengið lista yfir fermingarbörnin
send frá prestum úti í sóknunum.
„Eldri lög gerðu ráð
fyrir því að afla þyrfti
samþykkis fyrir nafnbirt-
ingu. Í nýjum lögum er
hins vegar sú krafa gerð
að samþykkið sé útfært
rétt. Fólk má til dæmis
afturkalla samþykki sitt
og gera þarf viðkomandi
ljóst að slíkt sé ekki skil-
yrði þess að fá að ferm-
ast. Þar sem prestar hafa
ekki allir aflað samþykkis
skv. nýjum lögum var
ákveðið að nöfn fermingarbarna
yrðu að þessu sinni ekki send út til
birtingar,“ sagði Brynja Dögg í sam-
tali við Morgunblaðið.
Óvissa hefur verið um, að sögn
Brynju, hvort starfsmenn kirkj-
unnar hafi heimildir til að taka
myndir í kirkjulegu starfi. Kemur
þar til að þátttaka í kirkjulegu starfi
getur gefið til kynna trúarafstöðu
þeirra sem á myndum sjást.
„Ljóst er þó að myndatökur af
viðburðum eins og fermingu fela í
sér vinnslu viðkvæmra persónu-
upplýsinga og í þeim tilvikum gæt-
um við eingöngu byggt á fullnægj-
andi skriflegu afdráttarlausu
samþykki sem heimild fyrir vinnsl-
unni. Hins vegar er ekkert amast við
því að fólk taki myndir af börnunum
sínum eða fjöskyldunni í kirkjunni,
til dæmis við fermingar eða skírnar-
athafnir, enda séu myndirnar til
einkanota,“ segir Brynja.
Nöfn fermingarbarna aðeins
birt með réttu samþykki
Listar með nöfnum ekki í fermingarblaði Morgunblaðsins
MARÍN MANDA
OG ALBA MIST
FERMING
S K I P U L E G G J A F E R M I N G U A L DA R I N N A R
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það var leitað til mín og ég er þakk-
lát fyrir það traust sem mér er sýnt,“
segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
sem taka mun við sem dómsmálaráð-
herra í stað Sigríðar Á. Andersen
sem steig til hliðar í fyrradag. Engin
ákvörðun hefur enn verið tekin um
hvort eða hvenær Sigríður muni
snúa til baka í ráðuneytið. Ákvörð-
unin var tilkynnt að loknum þing-
flokksfundi Sjálfstæðisflokks í gær.
Þórdís mun áfram sinna starfi
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar-
ráðherra, en að hennar sögn er um
tímabundna ráðstöfun að ræða.
„Þetta er tímabundið verkefni sem
ég mun taka mjög alvarlega. Það eru
stór verkefni fram undan en ég
þekki þennan málaflokk vel. Ég hef
áður starfað sem aðstoðarmaður í
innanríkisráðuneytinu og er með
menntun sem mun nýtast í þessu
starfi,“ segir Þórdís sem kveðst
spennt fyrir komandi verkefni.
„Þetta var flókin staða sem upp
var komin en við leystum það. Ég
treysti mér vel til að leysa þetta
verkefni. Ég hef sett mig inn í málin
sitjandi í ríkisstjórn en mun nýta
tímann á næstunni til að kafa
dýpra,“ segir Þórdís og bætir við að
hún eigi ekki von á því að sinna emb-
ættinu í langan tíma. „Þetta er skip-
an til skamms tíma. Við erum ekki að
tala um margra mánaða skipun,“
segir Þórdís.
Ræðir við starfsfólk í dag
Mörg aðkallandi mál eru nú á
borði starfsfólks dómsmálaráðu-
neytisins. Að sögn Þórdísar munu
formleg lyklaskipti fara fram í ráðu-
neytinu í dag og í kjölfarið mun hún
setjast niður með starfsfólki ráðu-
neytisins. „Næstu skref eru þau að
lyklaskipti munu fara fram og strax í
framhaldinu mun ég funda með
starfsfólkinu. Við munum fara yfir
þau mál sem eru mest aðkallandi auk
þess að forgangsraða verkefnum. Þá
munum við skoða hvaða verkefni
kalla á mína aðkomu frekar en önn-
ur,“ segir Þórdís.
Mikilvægt að reyna á dóminn
Í kjölfar dóms Mannréttindadóm-
stóls Evrópu þar sem skipun dómara
í Landsrétt var sögð brot á mann-
réttindasáttmálanum hefur öllum
málum Landsréttar verið frestað
ótímabundið. Frekari ákvarðanir
hafa ekki verið teknar af hálfu
Landsréttar um framhaldið, en nota
átti þessa viku til að greina stöðuna.
Engin mál hafa því verið á dagskrá í
vikunni. Líkt og áður hefur verið
greint frá telja dómarar Landsréttar
dóm Mannréttindadómstólsins eiga
við þá alla en ekki einungis þá fjóra
sem skipaðir voru án þess að eiga
sæti á lista hæfisnefndar.
Spurð hvort ekki sé mikilvægt að
eyða óvissunni kveður Þórdís já við.
Hvort eða hver aðkoma hennar að
því muni vera segist Þórdís ekki geta
svarað. „Ég er auðvitað búin að vera
mjög stutt í embætti og því ekki haft
tækifæri til að setja mig inn í öll mál.
Ég hef ekki enn fengið tækifæri til
að fara niður í ráðuneyti en ætla mér
að gera það í dag og fara yfir stöðuna
með starfsfólkinu,“ segir Þórdís og
bætir við að mikilvægt sé að láta á
það reyna hvort yfirdeild Mannrétt-
indadómstóls Evrópu muni snúa
dómnum. „Það bjóst enginn við þess-
ari niðurstöðu. Ég á að öðru leyti eft-
ir að kanna málin nánar með starfs-
fólkinu og setjast yfir upplýsingar og
þessi mál í stóra samhenginu. Starfs-
fólkið hefur verið að vinna í þessum
málum frá því að niðurstaðan kom og
ég mun fá nánari skýringar og yfirlit
frá þeim,“ segir Þórdís.
Mörg aðkallandi mál á döfinni
Formleg lyklaskipti fara fram í dómsmálaráðuneytinu í dag Fram undan eru fundir með starfsfólki
og forgangsröðun verkefna Mikilvægt að óvissu sé eytt og reynt verði á dóm Mannréttindadómstóls
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ríkisráðsfundur Ákvörðun um skipan Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur í embætti dómsmálaráðherra í stað Sigríðar Á. Andersen var tekin í gær.
„Ég held að þetta hafi verið besta niðurstaðan og sátt
sé um hana,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála-
ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokks, um skipan
Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur í embætti dóms-
málaráðherra í stað Sigríðar Á. Andersen sem steig til
hliðar í fyrradag. Bjarni segir að Þórdís sé vel til þess
fallin að taka við embættinu.
„Þórdís er lögfræðingur og þekkir málaflokkana og
kemur þess vegna vel undirbúin í ráðuneytið,“ segir
Bjarni og bætir við að um tímabundna ráðstöfun sé að
ræða. Þá sé möguleiki á því að Sigríður komi inn sem
dómsmálaráðherra að nýju síðar á kjörtímabilinu. „Ég
sé ekki fram á að það gerist á næstu vikum, en síðar á
kjörtímabilinu get ég séð það fyrir mér eins og aðrar
breytingar. Hvort Sigríður Andersen fari aftur í ríkis-
stjórn síðar á kjörtímabilinu er mál sem ég get ekki
svarað núna, en það er allt opið fyrir það,“ sagði Bjarni
í viðtali við mbl.is.
Líkt og áður hefur komið fram ákvað Sigríður að
stíga til hliðar sem dómsmálaráðherra vegna dóms
Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem skipun dómara
í Landsrétt var sögð brot á mannréttindasáttmál-
anum. Í kjölfar dómsins ákvað Landsréttur að gera hlé
á málum dómstólsins. Aðspurður segir Bjarni að ríkis-
stjórnin muni kafa dýpra ofan í málið á næstunni.
„Vinnan er hafin í ráðuneytinu og við ræddum það á
ríkisstjórnarfundi hvaða atriði þurfa að komast til
skoðunar þar,“ segir Bjarni.
Sátt um skipan nýs dómsmálaráðherra
MÖGULEIKI Á AÐ SIGRÍÐUR KOMI AFTUR INN Í RÍKISSTJÓRNINA SÍÐAR Á KJÖRTÍMABILINU
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á Bessastöðum Bjarni Benediktsson síðdegis í gær.