Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Blár vinur í stofunni,
yndislegur litur sem nýtur
sín vel í flestum rýmum.
Skoðaðu litaúrvalið
okkar á slippfelagid.is
Notalegur
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Við viljum hafa eitthvað um Land-
eyjahöfn að segja og kanna aukna
nýtingarmöguleika á henni sem leitt
gætu til umtalsverðrar atvinnu-
uppbyggingar í Rangárþingi
eystra,“ segir Anton Kári Hall-
dórsson, sveitarstjóri Rangárþings
eystra en markaðs- og atvinnu-
málanefnd hefur lagt það til við
sveitarstjórn að hún beiti sér fyrir
því.
„Höfnin er ríkishöfn með enga
hafnarstjórn og Rangárþing eystra
hefur nákvæmlega ekkert um
Landeyjahöfn að segja þrátt fyrir
að hún sé í okkar sveitarfélagi.
Okkur finnst grátlegt að höfnin sé
ekki nýtt í fleira en ferjusiglingar.
Við erum ekki að tala um að fara í
samkeppni við Herjólf eða Eyja-
menn. Það er hins vegar búið að
setja mikið fjármagn í höfnina og
það á enn eftir að setja meira.
Hvers vegna ekki að nýta höfnina
betur?“ spyr Anton Kári sem segir
að ferðaþjónustuaðilar vildu gjarn-
an geta boðið ferðamönnum að
leigja sæþotur eða fara í skemmti-
siglingar.
„Það mætti líka sjá fyrir sér, þeg-
ar framkvæmdum á innri höfninni
er lokið, smá trilluútgerð þar sem
Rangæingar gætu veitt sér í soðið.“
Vilja fá aðgang að Landeyjahöfn
Rangárþing eystra vill nýta Landeyjahöfn til uppbyggingar ferðaþjónustu
Morgunblaðið/RAX
Landeyjahöfn Mikil ónýtt tækifæri.
Fjöldi ungmenna mætti í Laug-
ardalshöllina í Reykjavík í gær á
Mín framtíð 2019 þar sem fram-
haldsskólarnir í landinu, 33 alls,
kynna námsframboð sitt. Jafnhliða
er þar haldið Íslandsmót iðn- og
verkgreina þar sem nærri 200 nem-
ar keppa í alls 28 fögum.
Von var á meira en 7.000 nem-
endum úr efstu bekkjum grunnskól-
anna í dag og í gær til að fylgjast
með keppni og kynna sér iðnir, en í
gær var í Laugardalshöllinni hægt
að fylgjast með rafvirkjum stilla og
tengja, kjötiðnaðarmönnum útbúa
ýmsar krásir, bökurum útbúa brauð
og trésmíðanemum með verkfæri
sín við hefilbekkinn. Einnig voru á
svæðinu nemendur í fataiðnum sem
sauma og gera alls konar kúnstir.
Á morgun, laugardag, verður svo
fjölskyldudagur á milli kl. 10 og 16 í
Laugardagshöllinni þar sem ungir
sem eldri geta kynnt sér mögu-
leikana sem í iðnnámi og -störfum
felast. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Húsverk Núna Guðrún Gunnlaugsdóttir nemi í fataiðn með straujárnið.
Bakarar og smiðir
Iðngreinar kynntar Fjölmennt í
Laugardalshöll Keppt í fögunum
Hrafnarnir Huginn og Muninntjá sig í Viðskiptablaðinu: „Um
fátt hefur verið rætt meira síðustu
daga en dóm Mannréttindadómstóls
Evrópu um skipan dómara við
Landsrétt, sem kann að kollvarpa
dómum um alla Evrópu ef minnstu
formlegu frávik þykja
á upphaflegri skipun
dómara.
Í dómnum kennirmargra grasa,
bæði í áliti meirihluta
og minnihluta, sem
lagarefir lærðir sem
leikir geta lengi velt
sér upp úr, enda
óvenjulangt á milli af-
stöðu meirihluta og
minnihluta. Sérstaka
athygli vekur þó sú
pilla, sem dómformað-
urinn Paul Lemmens
sendir í minnihlutaálitinu. Þar átelur
hann meirihlutann með óvenjuafger-
andi hætti fyrir að bergmála pólitískt
uppþot á Íslandi með langsóttum og
jafnvel röngum lögskýringum, svo
dómsorðið sé langt umfram tilefni.
Varla er neinum blöðum um þaðað fletta, að þeim orðum er
beint til Róberts Spanó, sem situr í
dómnum af Íslands hálfu og flestir
telja að hafi ritað dóm meirihlutans.
Þar er hins vegar ekki bent á hitt,sem sumum Íslendingum þykir
skipta máli, að Róbert og Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson, lögmaðurinn sig-
ursæli í þessu máli, eru æskuvinir.“
Hvað ætli Vilhjálmur hefði sagt efeini íslenski dómarinn í málinu
hefði verið náinn vinur einhvers
lykilmanns frá hinni hlið málsins?
Og hvað ætli þeim sem hæst hafalátið í þessu máli finnist um þau
tengsl?
STAKSTEINAR
Getur vinátta
valdið vanhæfi?
Róbert Spanó
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson