Morgunblaðið - 15.03.2019, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mónakó er þéttbýlasta ríkiveraldarinnar og þaðannað minnsta að flatar-máli. Alls 38 þúsund
manns búa á tveimur ferkílómetrum,
svæði sem nær úr miðri fjallshlíð nið-
ur að sjó. Byggt hefur verið á hverj-
um kletti og á þeim liggja göturnar,
þar sem Formúlukeppnir eru oft
haldnar. Víða hafa
svo verið boruð
jarðgöng svo
hamrarnir gætu
minnt á músétinn
ost.
Hér gildir
það sem hér
heima á Íslandi er
kallað „þétting
byggðar“. Hver
einasti fermetri
og í raun lófastór
blettur er nýttur fyrir mannvirki.
Himinhá fjölbýlishús eru áberandi á
Mónakó og fasteignaverðið gríðar-
hátt. Aðeins er á færi efnafólks að
eiga þar íbúðir, og þeirra á meðal eru
til dæmis rússneskir ólígarkar.
Mónakó er furstadæmi innan
landamæra Frakklands og liggur að
Miðjarðarhafinu á frönsku rívíerunni.
Allt frá 1297 hefur Grimaldi-ættin
setið hér við völd, en eins og gengur
og gerist hafa þó ýmis átök verið um
yfirráð í landinu á þessum langa tíma.
Fram til ársins 1911 voru furstar
Mónakós einvaldir í ríkinu og þó
margt hafi breyst eru völd þeirra enn
í dag býsna mikil. Embættið hefur
gengið að erfðum mann fram af
manni; frá 1949 til 2005 ríkti í Móna-
kó Rainier 3. sem árið 2005, þá á
banabeðnum, fól veldisprotann Al-
bert öðrum syni sínum og konu sinn-
ar Grace Kelly, sem á sinni tíð var
margverðlaunuð leikkona í Banda-
ríkjunum.
Mónakó skiptist í fernt og eitt
hverfanna er Monte Carlo. Þar er
spilavítið, Monte Carlo Casino, sem
var sett var á laggirnar árið 1856 þeg-
ar efnahagsvandi steðjaði að í kjölfar
þess að Grimaldi-ættin tapaði megin-
hluta lendna sinna. Spilavítið hefur
um langa hríð verið gullnáma og pen-
ingaprentsmiðja ef svo mætti segja.
Það er aðaltekjulind furstafjölskyld-
unnar enda er Albert einn af ríkustu
tignarmönnum heims. Eru heildar-
eignir hans sagðar nema um einum
milljarði Bandaríkjadala. Þá gilda
ýmis skattafríðindi í Mónakó, en stór
hluti íbúa þar sækir vinnu í Frakk-
landi og er ekki langt að fara.
Örríkið lokkar og laðar. Þar eru
tvær hafnir, báðar smekkfullar af
lystisnekkjum fína fólksins sem nýtur
lífsins í siglingum um Miðjarðarhafið.
Þá koma skemmtiferðaskip hér
gjarnan við og fer þá fólk í land og
spókar sig á götum í þessu litla landi,
þar sem er margt að sjá og upplifa.
Örríki prinsins
Þétting byggðar! Í Mónakó er hver lófastór blettur nýtt-
ur fyrir mannvirki. Spilavítið skilar miklu til þessa
litla lands, sem vaxandi fjöldi ferðafólks sækir heim.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Höfnin Hver blettur í ríkinu er byggður og í höfnunum tveimur eru lystisnekkjur auðfólks sem siglir um Miðjarð-
arhaf. Þá hafa skemmtiferðaskip gjarnan viðkomu í Mónakó, sem er afar vinsæll viðkomustaður ferðafólks.
Lífvarðaskipti Samræmt göngulag fyrir framan höllina. Gullnáman Spennandi spilavítið hér í sjálfum spegli tímans. Mónakó Hér búa um 38.000 manns á tveimur ferkílómetrum.
Íslendingar Hómfríður Bjarna-
dóttir fararstjóri Bændaferða.
Albert II
Mónakóprins
Mónakó
FRAKKLAND
ÍTALÍA
SVISS
MÓNAKÓ
Miðjarðar-
hafi ð
Tilkynnt hefur verið um tilnefningar
til FÍT-verðlaunanna 2019 sem eru
veitt af Félagi íslenskra teiknara.
Innsend verk í keppnina hafa aldrei
verið fleiri eða 370 talsins, sem
staðfestir að kraftur er meðal ís-
lenskra teiknara um þessara mundir.
Tilnefnt er í 21 flokki og ná þeir
yfir helstu undirflokka grafískrar
hönnunar. Má þar nefna skjágrafík,
vefhönnun, prentverk, hönnun aug-
lýsinga og myndlýsingar. Að auki
eru veitt sérstök verðlaun til þess
verks sem þótti skara fram úr á
meðal allra verðlaunaðra verka.
Þessi verðlaun eru valin af formönn-
um dómnefndanna, en formenn
dómnefnda í ár voru Arnar Ólafsson
sem fór fyrir nefnd sem dæmdi
skjáhönnun, Atli Hilmarsson leiddi
mörkunarhóp, Hildur Sigurðardóttir
prentflokk og Hjörvar Harðarsson
var formaður nefndar sem dæmi
auglýsingar.
Verðlaunin verða afhent miðviku-
daginn 27. mars nk. í Tjarnarbíói
klukkan 18:30. Viðburðurinn markar
upphaf HönnunarMars sem verður
haldinn 28. til 31. mars. Félag ís-
lenskra teiknara er félagsskapur
grafískra hönnuða og myndhöfunda
á Íslandi. Aðalmarkmið FÍT er að
efla starfsstéttina, kynna hana út á
við og auka samstöðu félagsmanna.
Tilnefningar til FÍT verðlauna birtar
Aldrei fleiri innsend verk borist
Ljósmynd/Aðsend
Teikningar Fáni fyrir nýja þjóð. Hugmyndaauðgin er hér allsráðandi.