Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 14
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Uppgjör Hagnaður Orkuveitunnar
lækkaði um 10 milljarða á milli ára.
Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) dróst saman um 63% og nam
tæpum 6 milljörðum króna saman-
borið við 16 milljarða króna árið
2017. Rekstrarhagnaður OR fyrir
fjármagnsliði, afskriftir og skatta
(EBITDA) nam 28,6 milljörðum
króna og hækkaði um 8,5% á milli
ára. Eignir fyrirtækisins námu sam-
tals 340 milljörðum króna í árslok
2018 samanborið við 311 milljarða í
lok árs 2017.
1,5 milljarðar í arð
Eigið fé fyrirtækisins nam 161
milljarði króna í lok árs 2018 sam-
anborið við 143 milljarða króna í lok
árs 2017. Eiginfjárhlutfall samstæðu
OR nam 47,3%. Rekstrartekjur OR
námu 46 milljörðum króna og jukust
um 5,2% á milli ára. Rekstrarkostn-
aður nam 17,3 milljörðum króna og
jókst um 0,1% á milli ára. Stjórn OR
samþykkti að greiða eigendum fyrir-
tækisins, Reykjavíkurborg, Akra-
neskaupstað og Borgarbyggð arð
sem nemur 1,5 milljörðum króna
vegna rekstrarársins 2018.
Hagnaður
dregst saman
Hagnaður Orkuveit-
unnar 6 milljarðar
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Umsvifamikil í Evrópu
Hann segir aðspurður að fjölskyld-
an, sem er með höfuðstöðvar í Móna-
kó, hafi þónokkur umsvif í Evrópu,
meðal annars í ferðaþjónustu og fast-
eignaverkefnum. „Við höfum fjárfest
mikið í hótelum og veitingastöðum,
meðal annars í Frakklandi, Ítalíu,
Austurríki og í Tékklandi.“
Þá segir Jerome að fjölskyldan
ferðist reglulega til Norðurlandanna,
þar á meðal til Íslands. „Samkvæmt
okkar markaðsrannsóknum þá er
skortur á ferðamannastöðum á al-
þjóðlegan mælikvarða í Skandinavíu
og á Íslandi. Markaðurinn hefur ver-
ið sterkur síðustu ár. Hann hefur
róast aðeins, en er samt ennþá
traustur. Ísland er mikilvægt fyrir
okkur, en okkar hugmynd er að
byggja hágæða dvalarstað fyrir fólk
sem er tilbúið að dvelja nokkra daga í
einu á sama stað.“
Jerome segist hafa hitt yfirvöld í
Fjarðabyggð fyrir þremur vikum síð-
an og haldið sérstaka kynningu á
verkefninu. Mikil ánægja hafi verið
með fundinn.
Hann segir að búið sé að ákveða
byggingarefnið, krosslímt timbur.
Það falli vel að umhverfinu, sé létt og
gott í meðförum, og henti vel fyrir
þessa staðsetningu. Miklu máli skipti
að valda sem minnstu raski í nátt-
úrunni. „Við höfum kynnt okkur vel
þessa byggingaraðferð og heimsótt-
um verksmiðjuna í Austurríki til að
mynda. Það er búið að byggja um 25
þúsund byggingar í Evrópu með
þessu byggingarefni, og sömuleiðis
eitthvað á Íslandi. Við höfum lengi
verið spennt fyrir að nota þetta efni,
en það er nýmæli að það sé notað í
byggingar eins og þær sem við erum
að skipuleggja.“
Þyrluskíðaferðir og jóga
Spurður að því hvaða afþreyingu
hótelgestum verði boðið upp á þegar
hótelið opnar, segir Jerome að af-
þreyingarmöguleikar verði unnir
með fólki í sveitinni. „Við viljum
bjóða upp á fjallgöngur, hjólaferðir,
jóga, snjósleðaferðir, þyrluskíðaferð-
ir, og margt fleira. Við viljum að gest-
ir geti haft nóg fyrir stafni og dvalið
hjá okkur sem lengst.“
Sú staðreynd að Heyklif er í aðeins
um klukkutíma fjarlægð frá alþjóð-
legum flugvelli á Egilsstöðum skiptir
miklu máli að sögn Jerome. „Það frá-
bæra við þetta verkefni er að þarna
er fólk algjörlega útaf fyrir sig úti í
náttúrunni, en á sama tíma stutt frá
flugvelli. Fólk getur verið komið á
Heyklif vel innan við klukkustund frá
því það lendir á Íslandi.“
Lúxus á Heyklifi 2021
Fegurð Mikil náttúrufegurð er þar sem TP Investments hyggst byggja.
Fjölskyldufyrirtæki frá Mónakó hyggst byggja hágæða dvalarstað með fjöl-
mörgum afþreyingarmöguleikum Fjöldi íslenskra aðila kemur að málinu
Ferðaþjónusta
» Staðsetning nálægt flugvelli
á Egilsstöðum er mikill kostur.
» Afþreyingarmöguleikar
verða fjölbreyttir, og skipu-
lagðir í samstarfi við fólkið í
byggðarlaginu.
» Fjarðabyggð er mjög áfram
um verkefnið.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Jerome Bottari, framkvæmdastjóri
hjá fjárfestingafélaginu TP Invest-
ments, fjölskyldufyrirtæki í Mónakó
sem hyggst reisa hágæða dvalarstað
fyrir ferðamenn á Heyklifi við Stöðv-
arfjörð, og sagt var frá upphaflega í
Morgunblaðinu á síðasta ári, segir í
samtali við Morgunblaðið að verk-
efnið gangi samkvæmt áætlun.
Hann segir að verkefnið sé það
fyrsta sem fyrirtækið tekst á hendur
hér á landi, og því sé margt sem þurfi
að læra í ferlinu. Hann segir að fjöldi
íslenskra arkitekta og verktaka
muni koma að málinu. „Enn er
margt óljóst. Nú er unnið að deili-
skipulagi og undirbúningi að umsókn
byggingarleyfa, en yfirvöld í sveitar-
félaginu Fjarðabyggð eru áhuga-
söm. Allir aðilar eru áfram um að
koma verkefninu á skrið, “ segir Je-
rome.
Hann segir að fyrir tveimur vikum
hafi verið haldinn sérstakur byrjun-
arfundur með lykilaðilum sem koma
munu að verkefninu. Þar er að sögn
Jerome um fjölþjóðlegan hóp að
ræða frá Íslandi, Sviss, Frakklandi
og Mónakó. „Við fórum yfir allt sem
þarf að vera á hreinu hvað heildar-
verkefnið varðar.“
Jerome segir að stefnt sé að því að
opna staðinn eftir tvö ár, eða árið
2021. Kostnaður verkefnisins er enn
óljós að hans sögn, enda margir
óvissuþættir enn til staðar.
15. mars 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.06 119.62 119.34
Sterlingspund 156.56 157.32 156.94
Kanadadalur 89.07 89.59 89.33
Dönsk króna 18.017 18.123 18.07
Norsk króna 13.814 13.896 13.855
Sænsk króna 12.735 12.809 12.772
Svissn. franki 118.3 118.96 118.63
Japanskt jen 1.0689 1.0751 1.072
SDR 165.5 166.48 165.99
Evra 134.42 135.18 134.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.6744
Hrávöruverð
Gull 1308.4 ($/únsa)
Ál 1872.5 ($/tonn) LME
Hráolía 66.91 ($/fatið) Brent
● Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís,
var í gær kjörinn formaður Samtaka
verslunar og þjónustu á aðalfundi sam-
takanna. Hann tekur við embættinu af
Margréti Sanders sem gegnt hefur for-
mennsku í SVÞ frá
árinu 2014 en gaf
ekki kost á sér til
áframhaldandi
setu.
Jón Ólafur hefur
setið í stjórn SVÞ
síðustu tvö ár. Á
fundinum var einn-
ig kosið um fjögur
almenn stjórn-
arsæti af átta í
samtökunum. Sjö
einstaklingar buðu sig fram í sætin
fjögur. Kjörin voru þau Anna Katrín Hall-
dórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs-
og sölusviðs Íslandspósts, Ari Þórð-
arson, framkvæmdastjóri Hreint, Árni
Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar,
og Guðrún Jóhannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri Kokku. Andrés Magn-
ússon er framkvæmdastjóri SVÞ.
Jón Ólafur tekur við
formennskunni í SVÞ
Jón Ólafur
Halldórsson
Tillaga um töku hlutabréfa Heimavalla úr við-
skiptum hjá Nasdaq-kauphöllinni var samþykkt
með meirihluta atkvæða á aðalfundi félagsins í
gær.
Líkt og fram kom í ViðskiptaMogganum í gær
þýðir afskráning félagsins að sjóðir í stýringu
Eaton Vance fá greiddar 30 milljónir króna.
Sjóðirnir eru eigendur að skuldabréfinu HEIMA
18.1 sem gefið var út í apríl á síðasta ári, en í
skilmálum bréfsins kom fram að ekki megi af-
skrá bréf Heimavalla úr Kauphöll án samþykkis
kröfuhafa. Áður en afskráningin var samþykkt
leitaði stjórn Heimavalla samkomulags við Eaton
Vance um að sjóðurinn gengi ekki á gjaldfelling-
arheimild sína við afskráninguna. Samkomulag
náðist 8. mars sl. þar sem Heimavellir sam-
þykktu að greiða 30 milljónir króna gengi af-
skráningin eftir.
Hlutabréfin náðu aldrei neinu flugi
Auk þessa var ný stjórn Heimavalla kosin en
eftirtaldir aðilar hlutu stjórnarkjör: Árni Jón
Pálsson, Erlendur Magnússon, Halldór Krist-
jánsson, Hildur Árnadóttir og Rannveig Eir Ein-
arsdóttir.
Frá skráningu Heimavalla á markað hefur fé-
lagið ekki náð sér á strik og aldrei náð því flugi
sem vonast var eftir. Við lokun markaða í gær
nam markaðsvirði Heimavalla um 14,2 millj-
örðum króna og stóð gengi félagsins í 1,26. Það
er nokkru lægra en útboðsgengi félagsins var í
fyrra en það var 1,33.
aronthordur@mbl.is
Heimavellir úr Kauphöllinni
Tillaga um afskráningu af hlutabréfamarkaði samþykkt á aðalfundi í gær
STUTT