Morgunblaðið - 15.03.2019, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2017 RAM 3500 Limited
Litur: Perluhvítur, svartur að innan.
Ekinn 9600 km. Einn með öllu: Loftpúðafjöðrun, Aisin
sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti,
hiti í stýri, sóllúga, RAM-box. 6,7L Cummins.
VERÐ
9.180.000 m.vsk
2019 Chrysler Pacifica
Hybrid Limited
Glæsilegur 7 manna bíll.
Einn með öllu, t.d. hita/kæling í sætum, glerþak,
leðursæti, bakkmyndavél, Dvd spilari, Harman Kardon
hljómflutningskerfi o.fl. o.fl.
3,6 L Hybrid.
VERÐ
8.490.000 m.vsk
2018 Ford F-150 Lariat
Litur: Hvítur og brúnn / brúnn að innan. Einnig
til í Ruby red. Mojave leður sæti, bakkmyndavél,
heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20” felgur o.fl.
3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra,
375 hestöfl, 470 lb-ft of torque.
VERÐ
10.990.000 m.vsk
2019 GMC Denali 3500
Litur: Silver, svartur að innan. 6.6L Duramax Diesel,
445 HÖ, 2019 módel. Vel útbúinn bíll t.d. upphitað
stýri, BOSE hátalarakerfi, dual alternators, upphituð
og loftkæld sæti, geymsla undir aftursæti, heithúðaður
pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira.
VERÐ
11.360.000 m.vsk
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Bandarísku leikkonurnar Felicity
Huffman og Lori Loughlin eru á
meðal fimmtíu Bandaríkjamanna
sem hafa verið ákærðir í tengslum við
rannsókn á stórfelldum mútu-
greiðslum og prófsvindli til að hjálpa
börnum auðugra Bandaríkjamanna
að fá inngöngu í virta háskóla.
Alls hafa 33 foreldrar verið ákærð-
ir í tengslum við rannsóknina, þeirra
á meðal forstjórar fyrirtækja, kaup-
sýslumenn og tískuhönnuður. Þeir
eru sakaðir um að hafa notfært sér
ólöglega þjónustu Williams Ricks
Singers, 58 ára Kaliforníubúa sem
hefur játað að hafa skipulagt svindlið.
Saksóknarar segja að foreldrar
hafi greitt Singer alls 25 milljónir
dollara, jafnvirði tæpra þriggja millj-
arða króna, á árunum 2011 til 2018
fyrir þjónustuna. Hún fólst einkum í
því að íþróttaþjálfurum og öðrum
starfsmönnum háskóla var mútað til
að tryggja að börn foreldranna
fengju inngöngu í háskóla á þeirri
forsendu að þau væru íþróttamenn,
þótt þau hefðu ekki stundað íþróttir.
Þau voru sögð hafa verið valin í há-
skólalið í íþróttum, m.a. knattspyrnu,
sundknattleik, blaki, tennis og ýms-
um frjálsíþróttagreinum. Ekkert
varð þó úr íþróttaiðkun þeirra eftir að
þau fengu inngöngu. Þau mættu ekki
á æfingar og sum báru við meiðslum.
Prófstjórum mútað
Sumir foreldranna greiddu Singer
fyrir að múta prófstjórum og öðrum
sem annast stöðluð inntökupróf há-
skóla, ACT og SAT. Börn þessara
foreldra tóku prófin en prófstjórarnir
leiðréttu oft villur þeirra án þess að
þau vissu af því, að sögn Singers.
Hann hefur einnig játað að hafa fals-
að skólaumsóknir meintra íþrótta-
manna með því að setja myndir af
andlitum þeirra á myndir af raun-
verulegum íþróttamönnum.
Flestir foreldranna sögðu ekki
börnum sínum frá prófsvindlinu.
Enginn nemanna hefur verið ákærð-
ur og flestir þeirra eru enn í háskól-
unum.
Þjálfari fékk 320 milljónir
Auk Singers hafa þrír aðstoðar-
menn hans verið ákærðir fyrir að
skipuleggja svindlið. Þrettán íþrótta-
þjálfarar og prófstjórar hafa einnig
verið ákærðir. Á meðal háskólanna
sem nemarnir fengu inngöngu í eru
Yale, Stanford, Georgetown og
Suður-Kaliforníuháskóli.
Singer er m.a. sagður hafa greitt
tennisþjálfara Georgetown-háskóla
alls 2,7 milljónir dollara, jafnvirði 320
milljóna króna, fyrir að ljúga því að
nemar tilheyrðu minnihlutahópum til
að greiða fyrir því að þeir fengju inn-
göngu í skólann, að sögn The Wall
Street Journal.
Á meðal annarra þjálfara sem voru
ákærðir eru þjálfari kvennaliðs Yale-
háskóla í knattspyrnu og þjálfari
siglingaliðs Stanford-háskóla. Þeir
fengu 200.000 til 400.000 dollara,
jafnvirði 24 til 48 milljóna króna, fyr-
ir að samþykkja nema í lið sitt, að
sögn saksóknarans Andrews Lell-
ings. Hann segir að enginn háskól-
anna hafi verið ákærður og ekki sé
talið að stjórnendur þeirra hafi vitað
af svindlinu.
Foreldrarnir lögðu peningana inn
á bankareikning gervigóðgerðar-
stofnunar sem Singer kom á fót und-
ir því yfirskini að hún ætti að hjálpa
börnum.
Á meðal foreldranna sem voru
ákærðir eru Felicity Huffman, sem
lék í sjónvarpsþáttunum Aðþrengd-
um eiginkonum, og Lori Loughlin,
sem lék í gamanþáttunum Full
House á árunum 1988 til 1995. Eigin-
maður Loughlin, tískuhönnuðurinn
Mossimo Giannulli, var einnig
ákærður og þau voru leyst úr varð-
haldi gegn tryggingu að andvirði
samtals tveggja milljóna dollara,
tæpra 240 milljóna króna.
Leikarinn William H. Macy, eigin-
maður Huffman, var ekki ákærður
þótt fram kæmi í ákærunni að hann
tók að einhverju leyti þátt í viðræð-
unum við Singer.
Stórfellt svindl- og mútumál afhjúpað
Auðugir foreldrar í Bandaríkjunum greiddu jafnvirði þriggja milljarða króna fyrir prófsvindl og
mútur til að tryggja börnum sínum inngöngu í virta háskóla Fimmtíu manns ákærð vegna málsins
AFP
Ákærður William Rick Singer (t.h.) gengur út úr dómhúsi í Boston eftir að
hann var ákærður fyrir svindl til að koma börnum auðugra foreldra í háskóla.
Felicity Huffman Lori Loughlin
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Neðri deild breska þingsins sam-
þykkti í gær tillögu um að óska eftir
því að útgöngu Bretlands úr Evrópu-
sambandinu yrði frestað, aðeins
tveimur vikum áður en hún á að taka
gildi. Tillagan var samþykkt með 412
atkvæðum gegn 202.
Áður hafnaði þingdeildin breyt-
ingartillögu um að útgöngunni yrði
aðeins frestað til 30. júní, með þriggja
atkvæða mun. Hún hafnaði einnig
breytingartillögu um að útgöngunni
yrði frestað til að hægt yrði að efna til
nýrrar þjóðaratkvæðagreiðslu um að-
ildina að ESB. Sú tillagan var felld
með miklum mun, 334 atkvæðum
gegn 85, eftir að forystumenn Verka-
mannaflokksins ákváðu að styðja
hana ekki og sögðu að þetta væri ekki
rétti tíminn til að knýja fram nýtt
þjóðaratkvæði. Tillaga um að þingið
tæki alveg við stjórn brexit-
umræðunnar af ríkisstjórninni var
felld mjög naumlega, með 314 at-
kvæðum gegn 312. Leiðtogi Verka-
mannaflokksins lagði fram breyt-
ingartillögu um að hafna brexit-
samningi stjórnarinnar, útiloka
útgöngu án samnings og óska eftir
frestun á brexit til að gefa neðri deild-
inni tíma til að finna annan kost, sem
nyti stuðnings meirihluta á þinginu,
en hún var felld með 318 atkvæðum
gegn 302.
Vill reyna í þriðja sinn
Þótt neðri deild þingsins hafi tvisv-
ar kolfellt brexitsamning stjórnarinn-
ar við ESB hefur Theresa May for-
sætisráðherra ekki gefist upp. Hún
boðar nú þriðju atkvæðagreiðsluna
um brexitsamninginn í næstu viku.
Hún segir að ef þingdeildin samþykki
samninginn eigi síðar en á miðviku-
daginn kemur ætli hún að óska eftir
því að útgöngunni verði frestað til 30.
júní. May varar hins vegar þingmenn-
ina við því að ef þeir felli samninginn í
þriðja skipti geti það orðið til þess að
fresta þurfi útgöngunni í miklu lengri
tíma og Bretar þurfi að taka þátt í
kosningum til Evrópuþingsins sem
eiga að fara fram í maí. Hún vonast til
þess að brexitsinnar úr röðum þing-
manna Íhaldsflokksins láti af and-
stöðu sinni við samninginn af ótta við
að ella verði útgangan úr ESB aldrei
að veruleika. Nokkrir brexitsinnanna
hafa þegar varað við því að haldi þeir
áfram andstöðu sinni við samninginn
geti það orðið til þess að Bretland
gangi ekki úr ESB. Samningurinn
geti þannig verið illskásti kosturinn í
stöðunni.
„Glundroði ríkir“
Daginn áður hafði May lagt fram
tillögu um að þingið hafnaði útgöngu
úr ESB án samnings 29. mars en
héldi opnum þeim möguleika að Bret-
land gengi úr sambandinu án samn-
ings síðar. Áður en tillagan var borin
undir atkvæði samþykkti deildin
breytingartillögu um að hafna því að
Bretland gengi nokkurn tíma úr Evr-
ópusambandinu án samnings. Breyt-
ingartillagan var samþykkt með fjög-
urra atkvæða mun og var sú niður-
staða álitin auðmýkjandi ósigur fyrir
May. Þessi samþykkt varð til þess að
setning um að Bretland gengi úr ESB
án samnings ef enginn samningur
yrði staðfestur var tekin úr tillögu-
textanum sem stjórnin lagði fram.
Hún skipaði þess vegna þingmönnum
Íhaldsflokksins að hafna tillögu sinni
en þeir virtu þau fyrirmæli að vettugi
og greiddu atkvæði með henni. Hún
var samþykkt með 43 atkvæða mun.
Þrettán ráðherrar og aðstoðarráð-
herrar sátu hjá en einn aðstoðarráð-
herra greiddi atkvæði með tillögunni
og sagði af sér.
Margir breskir stjórnmálaskýr-
endur töldu þessa niðurstöðu sýna að
May hefði misst stjórn á ráðherrum
sínum. „Glundroði ríkir,“ sagði t.a.m. í
flennifyrirsögn forsíðufréttar Daily
Mail um uppákomuna á þinginu.
Þótt niðurstaða atkvæðagreiðsl-
unnar í fyrrakvöld sé álitin ósigur fyr-
ir May er tillagan sem samþykkt var
ekki lagalega bindandi. Forsætisráð-
herrann lagði áherslu á þetta eftir at-
kvæðagreiðsluna og sagði að sam-
kvæmt gildandi lögum Bretlands og
Evrópusambandsins gengi landið úr
ESB án samnings „nema eitthvað
annað yrði ákveðið“. Talsmaður fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins tók í sama streng. „Það eru aðeins
tvær leiðir til að ganga úr Evrópu-
sambandinu: með samningi eða án
samnings. ESB er tilbúið í þær báð-
ar,“ sagði hann. „Ef þingið vill útiloka
útgöngu án samnings nægir ekki að
greiða atkvæði gegn þeirri leið – það
þarf að samþykkja samning.“
Öll hin aðildarríkin þurfa að sam-
þykkja beiðni Bretlands um að fresta
útgöngunni úr Evrópusambandinu.
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs
ESB, sagði í gær að sambandið myndi
samþykkja það að brexit yrði frestað í
langan tíma ef Bretar teldu það
„nauðsynlegt til að endurskoða
brexitstefnu sína og ná samstöðu um
hana“. Aðrir leiðtogar ESB hafa þó
varað við því að þeir geti ekki fallist á
beiðni um að fresta brexit nema Bret-
ar geri það upp við sig hvað þeir vilji.
Breska þingið óskar
eftir frestun á brexit
May boðar þriðju atkvæðagreiðsluna um brexitsamninginn
AFP
Deila Stuðningsmaður og andstæð-
ingur brexit við þinghúsið í London.