Morgunblaðið - 15.03.2019, Page 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Fögur skepna Þessi tignarlegi fálki horfði haukfránum augum þar sem
hann hvíldi sig um stund á ljósastaur við Grafarvog á dögunum.
Kristinn Magnússon
Greinarhöfundi hef-
ur alltaf gramist ójöfn-
uður í einkunnagjöf í
skólum. Þannig situr
það enn í greinarhöf-
undi að hafa aðeins
fengið 3,7 í lestri þegar
hann tók sitt fyrsta
lestrarpróf 7 ára gam-
all. Það situr einnig í
greinarhöfundi að hafa
aðeins fengið 3,8 í nátt-
úrufræði í landsprófi.
Þessi próf eru greinarhöfundi ljóslif-
andi dæmi um ójöfnuð. Það voru
margir, sem fengu miklu hærri ein-
kunnir.
Eftir sem áður hef ég reynt að
bera ábyrgð á eigin lífi.
Nú þykir það móðgun í háskólum
þegar stúdentar fá lægri einkunn en
8,5. Einkunnin 9,0, sem er ágætis-
einkunn, er hin almenna viðmiðun
fyrir venjulegan nemanda. Að öðrum
kosti er krafist prófdómara eða ann-
ars konar andmælaréttar.
Tekjujöfnuður
Í þeim kjaradeilum, sem nú
standa, er útgangspunkturinn
„ójöfnuður“. Það eru til heilir stjórn-
málaflokkar, sem telja að þeir eigi að
leggja sitt af mörkum til að draga úr
„ójöfnuði“. Það er ekki alveg ljóst
hvert er upphaf ójafnaðar. Fulltrúar
þessara flokka telja að nota eigi
tekjuskattkerfið til að „auka jöfnuð“.
Það er ekki auðvelt að finna miklar
bókmenntir í hagfræði, sem leið-
beina um „aukinn jöfnuð“ með tekju-
skatti. Tekjuskattur er í eðli sínu
tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga.
Vissulega hefur stighækkandi tekju-
skattur áhrif til þess að lækka há
laun.
Venjulega er velferðarkerfi til
hliðar við skattkerfi til
að tryggja þeim, sem
verða utanveltu á
vinnumarkaði, lág-
marks tryggingu. Á Ís-
landi er velferðarkerfið
svo harðdrægt að allt,
sem gert er til að kom-
ast út úr gildrum, vinn-
ur gegn bótaþega,
vegna jöfnuðar.
Þetta leiðir hugann
að grundvallarspurn-
ingu: Hvenær verður
skattlagning eignar-
nám? Þegar meira en
helmingur af tekjum er tekinn í
skatt, er það eignarnám? Það má
svara á móti að öll skattlagning sé
eignarnám. Jafnvel skattlagning á
veltu, þar sem skattborgari fær þjón-
ustu á móti, án þess að þjónustan sé
skilgreind nákvæmlega.
Þá er einnig grundvallarspurning
um sameignarfélagsfyrirkomulag,
sem nefnist hjónaband. Á að ástunda
sérsköttun eða samsköttun hjóna?
Femínískir fasistar telja að það beri
að sérskatta hjón, vegna þess að
karlmaðurinn í hjónabandi hefur oft-
ar hærri tekjur en konan. Leiðir slík-
ur jöfnuður til réttlætis? Er það hlut-
verk femínista að úrskurða um það á
hvern veg hjón ákveða að haga
tekjuöflun heimilis?
Eiga femínistar alltaf að bera
ábyrgð á lífi annarra?
Hvursu langt á fjármálaráðu-
neytið að ganga í kynjaðri hagstjórn
til að láta eftir duttlungum fem-
ínista?
Jöfnuður og hjónaband
Þegar gagnmerkir en mjög mis-
gáfaðir stjórnmálamenn tala um það
eins og að drekka vatn, að auka eigi
jöfnuð, þá vakna óneitanlega spurn-
ingar um háttalag frjáls fólks. Hvað
gerist þegar flugstjóri giftist lækni?
Vex jöfnuður eða minnkar? Svarið er
augljóst. Það kann að vera að stig-
hækkandi tekjuskattur dragi að
nokkru úr ójöfnuði, sem fylgir slíku
hjónabandi.
Augljóslega minnkar jöfnuður
þegar tekjuháir einstaklingar maka
sig saman. Það er þá stjórnmála-
flokka að taka á slíkum ójöfnuði, og
sennilega koma í veg fyrir slík hjóna-
bönd með lagasetningu eða mjög
sérstökum sköttum.
Jöfnuður og menntun
Ef baráttumál Bandalags háskóla-
manna um að menntun verði metin
til launa, nær fram að ganga, þá vex
ójöfnuður. Til hvers er BHM að berj-
ast ef tekjuskattskerfi á að eyða
ávinningi kjarabaráttu og þess sem
vinnumarkaðurinn metur vinnu-
framlag. Það er misskilningur að
laun ráðist einungis af kjarasamn-
ingum. Laun ráðast af verðmæti
vinnuframlags.
Sama á við um sjálfvirknivæðingu
og tæknivæðingu. Þar sem vinnu-
höndin hefur horfið í framleiðsluferli
og vélar komið í stað vinnuafls hefur
komið fram annars konar vinnuafl.
Það vinnuafl leggur fram sérfræði-
þekkingu í vélfræði og tölvuþekk-
ingu. Þessar stéttir eru á mun hærri
launum en launum handaflsins. Þetta
vinnuafl áskilur sér hluta af þeim
ávinningi, sem vélvæðing hefur í för
með sér. Ný frystihús auka sér-
staklega á ójöfnuð, nema að tekið sé
á tæknivæðingu í fæðingu.
Nú er misjöfn spurn eftir vinnu-
afli. Þannig er heilbrigðisstarfsfólk
eftirsótt á vinnumörkuðum utan-
lands. Sennilega er rétt að reyna
ekki að halda í það til að draga úr
ójöfnuði.
Það er engin spurn eftir íslenskum
bankastjórum utanlands. Það er aug-
ljóst hvað á að gera í tilfellum þeirra.
Sama á við með afgreiðslufólk í
stórmörkuðum, það verður verr sett
en þeir, sem hafa sérfræðiþekkingu á
sjálfsafgreiðslukerfum í verslunum.
Það er því augljóst að aukin tækni-
væðing og sjálfvirkni, sem krefst
menntaðs vinnuafls, eykur ójöfnuð.
Hvernig ætla gáfaðir stjórnmála-
menn að taka á þeim ójöfnuði sem
fylgir aukinni menntun? Sennilega
er aðeins eitt ráð til þess, það er að
draga úr menntun.
Þegar fleiri konur en karlar út-
skrifast úr háskólum þurfa femínist-
ar að taka á því óréttlæti, sem kann
að fylgja í kjölfarið. Með hvaða hætti
verður sú kynjaða hagstjórn?
Réttlæti
Eitt af því sem fylgir atvinnuþátt-
töku er skylda til að greiða í lífeyris-
sjóði af launum, auk mótframlags
vinnuveitanda. Þessi framlög eru
forgangskröfur í þrotabú. Skyldu-
aðild er lögð á launþega vegna þess
að af launþeganum verður aldrei tek-
in ábyrgð á framfærslu eftir að
starfsævi lýkur.
Með tekjutryggingu ellilífeyris
fylgir að framlag almannatrygginga
minnkar á móti hverri krónu, sem
kemur úr lífeyrissjóðum. Hér verður
þó að hafa í huga að þegar lífeyris-
sjóðakerfinu var komið á fót um 1970
var því ætlað að verða meginstoðin
við greiðslu ellilífeyris. Almanna-
tryggingum var ætlað að styðja þá,
sem ekki nutu nægs lífeyris úr lífeyr-
iskerfinu, en hugsunin var ekki sú að
allir ættu að fá jafnt úr almanna-
tryggingum.
Engu að síður finnst mörgum það
nokkuð hart, sérstaklega þeim sem
fá lítinn lífeyri úr lífeyrissjóðum, að
sá lífeyrir skerði bætur almanna-
trygginga að fullu, þannig að ávinn-
ingurinn af þátttöku í lífeyrissjóði
hverfur. Spurningin verður því sú, til
hvers var greitt í lífeyrissjóði?
Sama á við um greiðsluþátttöku á
dvalar- og hjúkrunarheimilum. Þeir
sem hafa greitt í lífeyrissjóði, greiða
fyrir dvöl sína að hluta með lífeyr-
isgreiðslum, en þeir sem ekki hafa
greitt í lífeyrisjóði, fyrir þá er greitt
að fullu úr tryggingakerfi.
Nú kunna að vera mismunandi
ástæður fyrir því að fólk hefur ekki
greitt í lífeyrisjóði. Ein ástæðan er
hjá konum sem fóru seint á vinnu-
markað. Önnur ástæða er örorka,
stundum frá fæðingu.
Alvarlegasta ástæðan eru skatt-
svik. Þá hefur viðkomandi ekki greitt
fyrir þátttöku í samfélaginu með
sköttum og þar af leiðandi ekki greitt
í lífeyrisjóði. Sá fær svo greiddar
bætur almannatrygginga og situr
uppi með svipaða stöðu og þeir sem
hafa greitt í lífeyrisjóði af lágum
launum. Þetta réttlæti finnst fátæk-
um lífeyrisþegum jafn hlægilegt
réttlæti og að flá þá.
Þetta er kallað jöfnuður en þeim,
sem hafa greitt að fullu, finnst þetta
ekki réttlæti.
Skammdegi, sekt og réttlæti
Þegar skammdegið er að láta und-
an birtunni, sést að skammdegið og
réttlætið er af sama toga, maður skil-
ur það best á vorin þegar sólin skín,
að þau eru bæði vond.
Jóni Hreggviðssyni var sama
hvort hann var sekur eða saklaus,
hann vildi aðeins eitt réttlæti, en það
var að hafa bátinn sinn í friði, til þess
að geta borið ábyrgð á eigin lífi.
Eftir Vilhjálm
Bjarnason » Það er því augljóst
að aukin tæknivæð-
ing og sjálfvirkni, sem
krefst menntaðs vinnu-
afls, eykur ójöfnuð.
Vilhjálmur
Bjarnason
Höfundur var alþingismaður.
Um jöfnuð og réttlæti
Um þessar mundir
stendur Verkiðn fyrir
náms- og starfskynn-
ingu fyrir nemendur í
efri bekkjum grunn-
skóla í tengslum við
Íslandsmót iðn- og
verkgreina sem nú fer
fram í Laugardalshöll
undir yfirskriftinni
Mín framtíð. Þar
munu 33 skólar á
framhaldsskólastigi
kynna fjölbreytt námsframboð,
bæði verklegt og bóklegt, og svara
spurningum um námsframboð og
inntökuskilyrði. Þessi viðburður er
jafnan fjölsóttur enda gefst þar ein-
stakt tækifæri til þess að kynnast
námsframboði og starfstækifærum
sem standa til boða hér á landi.
Forgangsmál
Í stjórnarsáttamálanum er kveðið
á um mikilvægi þess að efla iðn-,
verk- og starfsnám og að því höfum
við unnið ötullega síðustu misseri.
Það er gleðilegt að sjá að vísbend-
ingar eru um að aðgerðir í þá veru
séu farnar að skila árangri, m.a.
með fjölgun umsókna í iðnnám.
Sem menntamálaráðherra hef ég
beitt mér fyrir betra samtali milli
menntakerfisins og atvinnulífsins
en ráðuneytið og hagsmunafélög á
þeim vettvangi standa sameiginlega
að ýmsum hvatningarverkefnum
sem þessu máli tengjast, t.d. Verk-
smiðjunni, nýrri hugmynda-
samkeppni fyrir nemendur í efstu
bekkjum grunnskóla, #Kvennastarf
sem miðar að því að fjölga konum í
iðn- og verkgreinum og GERT-
verkefnið sem tengir skóla og fyrir-
tæki með það að markmiði að auka
áhuga nemenda á
raunvísindum og
tækni. Þá höfum við
forgangsraðað fjár-
munum í þágu starfs-
og verknáms með því
að hækka reikniflokka
þess náms, afnumið
efnisgjöld og tryggt
framlög til að efla
kennsluinnviði fyrir
verk- og starfsnám,
t.d. með bættri verk-
námsaðstöðu í Fjöl-
brautaskólanum í
Breiðholti og Borgar-
holtsskóla.
Fjölgum iðn- og
verkmenntuðum
Forsenda velferðar og lífsgæða á
Íslandi er öflugt og fjölbreytt at-
vinnulíf þar sem til staðar eru störf
fyrir menntað fólk sem stuðlar að
nýsköpun og þróun. Fjórða iðnbylt-
ingin hefur hafið innreið sína og
hún felur í sér sjálfvirknivæðingu á
öllum sviðum atvinnulífs og sam-
félags sem leiðir af sér mikil tæki-
færi til að þróa starfsmenntun til
móts við nýjar kröfur. Stjórnvöld
leggja sérstaka áherslu á mikilvægi
starfs- og tæknináms enda mikils
að vænta af framlagi þess til verð-
mætasköpunar framtíðarinnar. Í al-
þjóðlegum samanburði er hlutfall
háskólamenntaðra hér á landi á
sviði tækni, vísinda, verk- og stærð-
fræði mjög lágt, aðeins 16%. Mikil-
vægt er að fjölga þeim sem eru
með menntun á þeim sviðum til
þess að við séum betur búin undir
að mæta áskorunum framtíðar-
innar.
Spennandi tímar
Námsframboð í starfs- og tækni-
námi hér á landi er afar fjölbreytt.
Þau tækifæri sem bjóðast að námi
loknu eru bæði mörg og spennandi
enda mikil spurn eftir slíkri mennt-
un í atvinnulífinu. Til marks um
gæði námsins sem í boði er má geta
þess að íslenskir keppendur náðu
sínum besta árangri í Evrópu-
keppni iðnnema á síðasta ári en
hópurinn hlaut þá þrjár viðurkenn-
ingar fyrir framúrskarandi árangur
auk silfurverðlauna Ásbjörns Eð-
valdssonar sem keppti þar í raf-
eindavirkjun.
Spreyttu þig
Alls taka um þrjátíu iðn-, verk-
og tæknigreinar þátt í kynningunni
Mín framtíð og á morgun, laugar-
dag, eru fjölskyldur sérstaklega
boðnar velkomnar. Hvatt er til þess
að gestir komi og prófi sem flestar
þeirra og spreyti sig t.d. á því að
teikna grafík í sýndarveruleika,
smíða, stýra vélmenni, splæsa net
eða krulla hár. Þessi kynning er
mikilvæg því það að sjá, upplifa og
taka þátt tendrar oft meiri áhuga
og innsýn en að lesa bæklinga eða
skoða heimasíður.
Ég hvet sem flesta til þess að
gera sér ferð í Laugardalshöll og
kynna sér nám og störf í iðn- og
tæknigreinum því margbreytileiki
þeirra mun án efa koma flestum á
óvart. Við lifum á spennandi tímum
þar sem störf eru að þróast og
breytast en nægt rými er fyrir
atorku og hugkvæmni ungs fólks.
Kynntu þér
framtíðina um helgina
Eftir Lilju Dögg
Alfreðsdóttur
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
» Við lifum á spenn-
andi tímum þar
sem störf eru að þróast
og breytas.
Höfundur er mennta- og menningar-
málaráðherra.