Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 19
UMRÆÐAN 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé
hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og
sérfræðingar í heimilistækjum keppast
við að hanna hágæða eldhús sem
standast tímans tönn, með virkni, gæði
og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið
er fjárfesting til framtíðar - tryggðu þér
raunveruleg gæði á hagstæðu verði.
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Sendiherra Spánar
réttlætti nýlega fang-
elsun, handtökur og
handtökuskipanir á
lýðræðislega kjörnum
þingmönnum og for-
mönnum félagasam-
taka, sem og fangelsun
þingforseta þjóðþings
Katalóníu ásamt því að
réttlæta ákærur gegn
embættismönnum þar
í landi. Hún vísaði á
sama tíma til þess að enginn skyldi
velkjast vafa um að Spánn væri enn
lýðræðisríki og óþarfi að skipta sér
af framgöngu stjórnvalda þar gagn-
vart stjórnmálamönnum og borg-
urum sem berjast fyrir pólitískum
skoðunum sínum. Margt sem fram
kemur í grein hennar ætti að
hringja viðvörunarbjöllum hjá lýð-
ræðissinnum. Mikilvægt er að sam-
hengið sé útskýrt fyrir lesendum og
Íslendingum öllum, því við getum
haft áhrif með afstöðu okkar á al-
þjóðavettvangi og skiptir þá miklu
máli að við þekkjum málavöxtu.
Vilja ekki opna umræðu
Það er ekki tilviljun að sendiherr-
ann birtist hér með starfslið sitt eft-
ir að lýðræðis- og mannréttinda-
áttavitar íslenskra þingmanna
sýndu norður og niður þegar litið
var til Spánar. Nú óttast spænsk
yfirvöld að Íslendingar hafi á þessu
„ranga“ skoðun og muni tjá hana á
alþjóðavettvangi. Þeim er meira
annt um að kaffæra opna umræðu
um brot þeirra á alþjóðlegum sátt-
málum og afskræmingu á lýðræðis-
rétti heillar þjóðar heldur en að
leyfa lýðræðinu að
hafa sinn gang heima-
fyrir.
Í fangelsi fyrir að
vinna í lýðræðis-
legu umboði
Staðreyndin er sú að
sex þingmenn og ráð-
herrar af katalónska
þinginu hafa setið í
fangelsi á Spáni við
ómannúðlegar aðstæð-
ur í 4-500 daga, ásamt
þingforseta og for-
mönnum félagasam-
taka. Þau sitja í fangelsi fyrir að
vinna að pólitískum markmiðum
sínum og með umboð frá þjóðinni til
að vinna að viðurkenningu á sjálfs-
ákvörðunarréttinum. Katalónska
þingið lét ekki nægja að fá umboð
ítrekað í þingkosningum heldur hélt
þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta
kosningamál árið 2014 og í október
2017. Fyrir það hefur fólk verið
fangelsað og fjöldi flúið í útlegð til
Evrópulanda þar sem meiri virðing
er borin fyrir alþjóðasáttmálum er
varða lýðræði og mannréttindi.
Pólitískir fangar
Sendiherrann segir að „fólk sé
ekki fangelsað fyrir stjórnmála-
skoðanir sínar“. Þrátt fyrir að ríkis-
stjórnir á Spáni hafi ítrekað verið
dæmdar af stjórnlagadómstólnum
án minnstu ávirðingar þá ver sendi-
herrann að þjóðkjörnir fulltrúar
þjóðar sem hefur barist fyrir sjálf-
stæði í tvær aldir séu fangelsaðir
fyrir að virkja lýðræðislegt umboð
sitt í trássi við álit dómstólsins. Það
er óumdeilt að katalónskir sakborn-
ingar í hæstarétti Spánar eru þar
fyrir skoðanir sínar og pólitíska
stefnu og þar með pólitískir fangar
og réttarhöldin pólitísk.
Skömm og hneyksli
Sendiherrann skýrir lengd varð-
haldsins með umfangi málsins og
vandasamri útfærslu þess. Ásýndin
er trúverðug, en hinsvegar taka
sakborningarnir spænskt réttar- og
stjórnkerfi í kennslustund í hverri
varnarræðu. Ítrekað verður til-
komumikil þögn í salnum þegar
sakborningar gera ákæruefnin að
engu með svörum sínum. Málatil-
búnaður ákæruvaldsins heldur engu
vatni og sönnunargögnin væru
hlægileg ef ekki væri fyrir hve al-
varleg örlög sakborningum eru bú-
in. „Réttarhöldin eru óásættanleg
og hneyksli fyrir evrópsk lýðræð-
isríki að binda trúss sitt við“, að
mati fulltrúa á Evrópuþinginu sem
fylgdust með réttarhöldunum fyrir
skömmu.
En hver er veruleikinn?
Sendiherrann segir að aðskiln-
aðarferlinu hafi verið hrundið ný-
lega af stað af katalónskum stjórn-
málamönnum höldnum „ískyggi-
legri yfirburðakennd“ sem keyri
fram með „aðgreiningarstefnu“.
Þvílík öfugmæli að túlka sjálfstæð-
isbaráttu Katalóna á þennan veg því
raunveruleikinn er sá að Spánverjar
hafa reynt að kaffæra sjálfsmynd
Katalóna í tæpar þrjár aldir og
troðið upp á þá eigin menningu og
sjálfsmynd. Katalónar hafa staðið
vörð um eigin menningararf og var-
ist eyðileggingarstefnu Spánverja,
en átt við ofurefli að etja. Frá því að
stjórnarskrá Spánar var samþykkt
1979, hafa Katalónar unnið að viður-
kenningu á þjóðareinkennum sín-
um, s.s. tungumáli, stofnunum,
menningararfi, þjóðerni og sjálfs-
ákvörðunarrétti. Það virtist hafa
tekist árið 2004 þegar samningur
um stöðu Katalóníu innan Spánar
leit dagsins ljós eftir 20 ára samn-
ingagerð.
Málamiðlun til að verja það
sem dýrmætast var
Þrátt fyrir lýðveldisbaráttu í
tvær aldir voru Katalónar sáttir við
að gefa eftir sjálfstæði sitt fyrir áð-
urnefndan samning. Samningurinn
sem var í meðferð spænska þingsins
í tvö ár, áður en honum var skilað til
atkvæðis í Katalóníu, þá útþynntum
svo að Katalónar gátu varla þekkt
hann. Samningurinn var samt sett-
ur í þjóðaratkvæði undir skilyrðum
spænska þingsins, og samþykktur,
því að hinn dýrmætasti fjársjóður
Katalóna, tungumálið, fékk viður-
kenningu og þeir leyfi til að kalla
sig þjóð. Samningurinn var í kjöl-
farið kærður af afturhaldsöflunum
sem telja sig eiga Spán og dæmdur
ólöglegur af stjórnlagadómstólnum
árið 2010. Það er sú niðurstaða og
fullkomin niðurlæging Katalóna
sem markar hinn endurnýjaða
þunga í kröfu þeirra um sjálfstæði.
Það er hvorki „aðgreiningarhyggja“
né „ískyggileg yfirburðakennd“
Katalóna sem knýr þá áfram, sú
hyggja og þær kenndir koma að ut-
an.
Sendiherra ver fangelsun á stjórnmálamönnum
Eftir Guðmund
Hrafn Arngrímsson »Katalónskir stjórn-
málamenn sitja á
sakamannabekk á
Spáni, ákærðir fyrir
uppreisn. Unnu eftir
lýðræðislegu umboði
sínu að réttinum til
sjálfsákvörðunar
Guðmundur Hrafn
Arngrímsson
Höfundur er landslags- og leiksvæða-
hönnuður og fylgist með hræringum
og fréttum frá Katalóníu.
gudmundur.arngrimsson@gmail.com
Ósköp vorum við óheppin
núna. Lagið sem varð í öðru
sæti átti að vinna finnst mér.
Friðrik Ómar kom með gull-
fallegt lag, það átti að fara í
keppnina til Ísraels. Langar
okkur bara ekkert að komast í
keppnina sjálfa? Ég bara
spyr. Ég bið þig að skoða mál-
ið, útvarpsstjóri.
Sjónvarpsáhorfandi.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Nokkur orð um Söngvakeppnina
Söngvakeppnin Hatari bar sigur úr býtum.