Morgunblaðið - 15.03.2019, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
✝ Eyþór Þórissonfæddist 17.
desember 1938 á
Ytra-Krossanesi
við Eyjafjörð. Hann
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 7. mars
2019.
Foreldrar hans
voru Þórir Þor-
steinsson, verk-
stjóri í Hvalveiði-
stöðinni Hvalfirði,
f. 20.7. 1901, d. 13.8. 1970, og Jó-
hanna Þórey Daníelsdóttir hús-
móðir, f. 26.7. 1901, d. 23.11.
1995. Eyþór Jón var sjötta barn
foreldra sinna en systkini hans
eru: Hulda, f. 29.12. 1924, d.
7.12. 2012, Sigurborg, f. 14.2.
1927, d. 8.1. 1968, Þorsteinn, f.
19.9. 1929, d. 6.8. 2012, Jón
Skúli, f. 16.7. 1931, d. 31.8. 2018,
Jónatan, f. 14.10. 1933, og Kári,
f. 24.4. 1942.
Eyþór giftist Guðríði Jóns-
dóttur 24. júlí 1961, þau slitu
samvistum árið 1970. Börn
þeirra eru: 1) Jón Þór viðskipta-
lögfræðingur, f. 29.5. 1962 í
Reykjavík, maki Olga J. Stef-
ánsdóttir. Börn þeirra eru Ívar
Örn, f. 9.12. 1984, sonur hans er
Daníel Myrkvi, f. 15.12. 2015,
Kristófer Fannar, f. 11.5. 1988,
d. 14.5. 1988, Guðríður Ósk, f.
1948 í Hvalstöðina í Hvalfirði.
Frá 17 ára að aldri stjórnaði
hann sjoppurekstrinum í Hval-
firði, auk þess að reka svínabú.
Eyþór giftist eiginkonu sinni
Gurrý árið 1961, stofnuðu þau
og ráku saman veitinga- og sölu-
skálann á Geithálsi uppi við
Rauðavatn og Ferstiklu í Hval-
firði, eða þar til fjölskyldan
fluttist til Danmerkur 1968, þar
sem hann starfaði sem þjónn á
hótelum og veitingahúsum. Ey-
þór hóf sambúð með Annie árið
1971. Hann vann eftir það sem
yfirþjónn á stórum skemmti-
ferðaskipum, eða þar til hann
fluttist einn til Noregs árið
1979, þar sem hann starfaði sem
þjónn á veitingahúsinu Mölla og
síðar rak hann matsölustaðinn
Elsa Andersen. Árið 1990 flutt-
ist svo Eyþór aftur til Íslands, til
Vestmannaeyja þar sem hann
starfaði bæði í frystihúsi og á
sjónum sem kokkur og rak
verslunina Fatabónus. Árið 1994
opnaði hann ásamt Kára bróðir
sínum veitingahúsið Caruso í
Reykjavík. Um áramótin 95-96
flutt Eyþór til Seyðisfjarðar þar
sem hann keypti Hótel Sæfell og
síðar stofnaði hann Kaffi Láru
með Jón Þór syni sínum, ásamt
því að hefja bjórframleiðslu á El
Grillo.
Útför Eyþórs fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
15. mars 2019, og hefst athöfnin
klukkan 13.
12.7. 1990, dóttir
hennar er Rakel
Dís, f. 10.2. 2007,
Ásta Fanney, f.
25.6. 1991, dóttir
hennar er Sophia
Máney, f. 3.12.
2017, og Stefán
Fannar, f. 28.3.
1996. 2) Daníel
stjórnsýslufræð-
ingur, f. 25. apríl
1964 í Reykjavík,
maki Sigurlaug Kr. Gunnars-
dóttir. Börn þeirra eru Ást-
hildur Ása, f. 13.2. 1986, Veigar
Freyr, f. 24.10. 1987, dóttir hans
er Vigdís Birta, f. 13.3. 2013,
Unnar Helgi, f. 7.1. 1990, og
Tanja Mist, f. 28.7. 1993, sonur
hennar er Daníel Logi, f. 4.9.
2016. Eyþór hóf sambúð með
Annie Nilsen árið 1971, þau slitu
samvistum árið 1985. Börn
þeirra eru: 1) Kent fram-
kvæmdastjóri, f. 23.6. 1971 í
Danmörku, maki Ásthildur Stef-
ánsdóttir Tórisson. Börn þeirra
eru Isabella Ásta, f. 10.9. 1998,
d. 31.8. 2015, og Celina Dís, f.
25.12. 2003.
Eyþór ólst upp á Ytra-
Krossanesi fram að fimm ára
aldri en fluttist þá með for-
eldrum sínum í Kópavog, síðan á
Býlu á Akranesi, og þaðan árið
með Grand Marnier-sósu, og
alla vega aðrar kúnstir. En
ótrúlegt en satt þá komst ég í
gegnum þetta og þú kenndir
mér smátt og smátt það sem
var mikilvægt í þessu fagi,
enda kunnir þú þetta allt sjálf-
ur upp á tíu, ásamt því að töfra
gestina upp úr skónum, sem af
sér leiddi mikið þjórfé og
skemmtilegar stundir með þér í
Noregi eftir það. En ég kom til
þín á hverju sumri næstu árin
og við unnum á sama stað.
Seinna þegar þú fluttir aftur
til Íslands áttum við meiri sam-
skipti en nokkurn tímann áður,
og þá helst eftir að ég flutti frá
Danmörku eftir háskólanám
mitt og þú vildir að ég stofnaði
stjórnmálaflokk fyrir þig á
Seyðisfirði, sem var gert undir
nafninu Þ-listinn, listi óháðra
Seyðfirðinga. Það var skemmti-
leg að vinna að því með þér
þótt það væri nú stundum erf-
itt, þar sem þú vildir nú oft
ekki blanda þér í pólitíkina sem
Þegar ég lít til baka verður
mér fyrst og fremst hugsað til
þín þar sem ég fór sem 17 ára
drengur til Noregs, þar sem þú
hafðir skaffað mér sumarvinnu
með skóla á veitingahúsinu
Mölla í Osló. Þar var mér mikil
og skemmtileg lífsreynsla, þar
sem þú varst þá léttur og
skemmtilegur að umgangast,
þó að þú værir nú ekki sá besti
í að segja mönnum til. Gleymi
ég því aldrei fyrsta vinnudeg-
inum, þar sem ég kom til þín og
þú sagðir mér að ég ætti að sjá
um þessi sjö borð hér í horninu
á þessum veitingastað, og það
ætti bara að gera það svona og
svona, og varst svo hlaupinn á
annan stað í húsinu. En ég
hafði aldrei þjónað til borðs áð-
ur, hvað þá á svona fínum stað
þar sem kóngafólk og aðallinn
sótti, og ég þurfti að eldsteikja
risahumarinn og steikurnar og
skera út fyrir framan gestina,
hita sósurnar á pönnunni og
eldsteikja franskar pönnukökur
þú komst af stað, þar sem þú
áttir nú svo marga vini í öllum
hinum flokkunum.
Þú varst alltaf mikill lífs-
orkubolti, skemmtilegur og við-
skiptahugmyndir þínar voru
endalausar, en þú áttir þó þína
erfiðu daga þar sem Bakkus
stjórnaði ferðum þínum. En
ákvaðst þó sjálfur fyrir níu ár-
um að hætta alveg og gerðir
það, sem varð nú til þess að þú
eignaðist gott samband við mig
og fjölskyldu mína, þar sem við
áttum margar góðar hátíðar-
stundir saman, auk þess sem
börnin mín, afabörnin þín, hafa
unnið með þér á Kaffi Láru á
Seyðisfirði, og þið átt góðar
stundir saman.
Sakna þín, þinn sonur,
Jón Þór.
Jæja, elsku pabbi minn, núna
ertu farinn frá okkur og ég veit
að þín bíður enn eitt ævintýrið.
Þú hafðir glímt við veikindi,
pabbi minn, síðustu ár en tókst
á við þau með æðruleysi og
vilja líkt og þér var tamt og ég
veit að núna ertu í faðmi þinna
nánustu í draumalandinu og líð-
ur vel.
Segja má að eftir að þú og
mamma fluttuð til Danmerkur
með okkur bræður sem börn
hafi hið raunverulega ævintýri
hjá miklum ævintýramanni
byrjað en þá hafðirðu þegar
rekið sjoppuna á Geithálsi og
Ferstiklu. Í Danmörku eignað-
ist þú Kent bróður og þar
starfaðir þú lengi ásamt að
hafa starfað í Noregi. þú sigldir
sem þjónn um öll heimsins höf í
mörg ár og ég man sem krakki
þegar ég opnaði Mackintosh-
dolluna þína að hún var full af
peningaklinki frá öllum heims-
ins höfnum. Ég upplifði sjálfur
að þú söngst mikið undir léttu
glasi og hafðir gaman af að
þylja vísur um m.a. Tótu litlu
Tótu.
Um 1995 komstu aftur til Ís-
lands – fluttir til Vestmanna-
eyja og vannst lengi á skipum
sem kokkur. Ég elti þig þangað
með afabarnið Veigar Frey sem
þá var um tveggja ára og þar
ólum við hann upp saman í
töluverðan tíma og þú sást til
þess að nægur fiskur var alltaf
á boðstólum og stundum var
steikt síld ef illa áraði. Ég man
að þú sóttir strákinn oft í lok
dags á leikskólann í
Vestmannaeyjum og sagðir
greyið litla bara bíða uppi við
leikskólahliðið og jarma líkt og
lítið lamb.
Þú fluttist síðan til Seyðis-
fjarðar og opnaðir Hótel Seyð-
isfjörð. Ég man þegar við ókum
saman austur ásamt Lillu
frænku til að opna hótelið sem
þá hafði verið lokað tímabundið
og komum yfir þungfæra heið-
ina þá sást ekki í bæinn vegna
myrkurs/skyggnis og þá datt út
úr þér: „Eru engin ljós í bæn-
um?“ Þá fattaði ég auðvitað að
þú hafðir einungis komið í bæ-
inn áður á fiskitogurum frá
Vestmannaeyjum og farið beint
á hótelbarinn á hótelinu sem þú
ætlaðir nú sjálfur að endur-
opna. Unnar Helgi sonur minn
kom austur og var smá með
okkur á Seyðisfirði og laum-
aðist stundum í spilakassana í
sjoppunni og fékk fyrir það
skammir auðvitað frá mér en
afi Eyþór kannaðist við taktana
og sagði „ekki skamma hann
því hann er alveg eins og ég
var á þessum aldri“ – engin
lygi það. Oft fór ég aftur á
Seyðisfjörð með konu minni
Sigurlaugu og börnum mínum
bara til að hitta pabba –
tengdapabba og afa barna
minna – og minnast stelpurnar
mínar Tanja Mist og Ásthildur
Ása afa síns með mikilli gleði
enda fengu þær alltaf happa-
þrennur með sér heim sem
gjafir og þótt engin hafi unnið
meir en 200 þá var gleðin alltaf
til staðar.
Pabbi var frábær karakter í
okkar augum og við minnumst
hans þannig.
Megi guð blessa pabba um
alla eilífð og ég vona að við
hittumst aftur í draumaland-
inu.
Eyþór fjörðinn mætti í
og Hótel Seyðisfjörð opnaði á ný.
Enga miskunn hann sýndi því
að bjórinn bæinn vantaði í.
Hannaði flöskur El Grillo tvær
og fjörið í bænum það færðist nær.
Marga víkinga til kveður og í
veislu fær
þeir kveiktu elda og nóttin varð
skær.
Sungið var hástöfum jafnt menn
sem ein mær.
Mjöður-mjöður „El Grillo“ föður.
(DE)
„Enginn miskunn – nóttin er
ung og lífið er fagurt.“
Þinn sonur,
Daníel.
Elsku pabbi minn, eftir veik-
indi þín síðustu árin ert þú
kominn í Guðsríki þar sem
þjáningar þínar eru horfnar og
þú getur aftur byrjað að
skemmta þér og öðrum, en
engum hefur leiðst að umgang-
ast þig.
Framan af ævinni þekkti ég
ekki Eyþór frænda persónu-
lega af því að hann bjó í Dan-
mörku og Noregi. Ég heyrði
hins vegar ýmsar skrautlegar
sögur af honum og fannst hann
um margt spennandi. Mamma
þekkti hann auðvitað mjög vel
enda var hann aðeins níu árum
eldri en hún þó að hann væri
móðurbróðir hennar og þau ól-
ust upp að sumu leyti saman í
Olíustöðinni í Hvalfirði. Ég var
á þrítugsaldri þegar Eyþór
flutti heim til Íslands og eftir
það var auðvelt að kynnast
honum enda tók hann mér
ávallt vel og vildi allt fyrir mig
gera og mér þótti strax mjög
vænt um hann.
Eitt af því skemmtilega við
Eyþór voru hugmyndirnar
hans. Eitt sinn hringdi hann í
mig og sagðist ætla að gera
mig ríkan. Ég hváði og vildi
heyra meira og þá sagðist hann
ætla að veita mér einkarétt á
sögum um æsku hans í Hval-
firði og að ég ætti að búa til
sjónvarpsþætti. Þetta væri svo
gott efni að þættirnir myndu
seljast um allan heim og ég
yrði forríkur. Þetta varð
reyndar ekki að veruleika, en
varð kannski til þess að ég
hafði enn eina ástæðuna til að
fara austur og hitta hann og
alla hina skemmtilegu Seyð-
firðingana. Eitt sinn kallaði
hann reyndar á mig austur
með formlegri hætti til að
hjálpa til við skipulagningu á
jólahlaðborði og sagði heima-
fólki að hann hefði kallað á sér-
fræðing að sunnan til að
tryggja góða framkvæmd og
þegar ballið var byrjað eftir
jólahlaðborðið sagði hann:
„Einar, fáðu þér einn longdr-
inks og farðu svo að athuga
með stelpurnar hérna.“
Ég man líka að eitt sinn var
ég búinn að ákveða að ganga
frá Seyðisfirði til Borgarfjarð-
ar eystri og fékk að gista á sóf-
anum hjá Eyþóri. Fyrir brott-
för vildi hann gefa mér
hádegismat. Ég mætti því í há-
degismatinn á gönguskónum
og með bakpokann tilbúinn.
Sunnuholtsbræðurnir voru
mættir og auðvitað Eyþór og á
borðinu voru stór föt af grill-
uðum humri og tvær flöskur af
rauðvíni. Hann Eyþór hafði lag
á því að gera hlutina ólíkt öll-
um öðrum.
Eyþór átti sjálfur alltaf erf-
itt með áfengið og fór marg-
sinnis í meðferð. Túrarnir hans
enduðu oft með því að hann var
langt niðri og þurfti hjálp til að
komast á réttan kjöl. Hann átti
SÁÁ margt að þakka og edrú-
tímabilin hans voru sem betur
fer miklu lengri en túrarnir.
Hann átti hins vegar erfitt með
að halda sig fjarri áfenginu til
lengdar enda sagðist hann ekki
fá góðar hugmyndir nema und-
ir áhrifum og svo framkvæmdi
hann þær þegar hann var edrú.
Eyþór frændi var virkilega
góður maður og vildi öllum vel.
Hann var gjafmildur og margir
fengu að njóta þess í gegnum
tíðina í mat og drykk. Hann fór
auðvitað ekki nægilega vel með
sig og líklega fór heilsan að bila
af þeim sökum. Hann fékk svo
pláss á Hrafnistu og ég heim-
sótti hann öðru hvoru þar og
sagði sögur úr daglega lífinu.
Stundum var eins og hann væri
fjarlægur en ef talið barst að
víni og vífi þá stóð ekki á við-
brögðum. Og líklega mun ég
ávallt minnast hans í tengslum
við veislur og skemmtun og
hugsa um einstakan mann sem
fór ótrúlega fjölbreyttar og
óhefðbundnar leiðir í lífinu.
Einar Skúlason.
Nú er lífshlaupi Eyþórs Þór-
issonar v/v, eða vini vina sinna,
lokið. Hann var alla tíð sann-
arlega vinur vina sinna og
reyndist þeim vel sem áttu á
brattann að sækja í lífinu. Ég
varð þeirra gæfu aðnjótandi að
kynnast honum betur en flestir
meðan ég starfaði sem bæjar-
stjóri á Seyðisfirði og síðar
þegar ég tók að mér að skrifa
ævisögu hans. Það gekk á ýmsu
á lífsferli hans, hæðir og lægð-
ir, en ávallt stóð hann keikur
og kankvís uppi að lokum.
Hann gat alls ekki skilið hvað
hann lifið lengi miðað við líferni
og fyrri störf. Hann hefur nú
loks verið sigraður en minning
um góðan dreng mun lifa lengi.
Eyþór koma víða við á sinni
lífsleið. Hann fæddist á Ytra
Krossanesi við Eyjafjörð en
flutti ungur suður. Hans rætur
liggja hins vegar í Hvalfirðin-
um þar sem hann ólst upp að
mestu leyti frá fimm ára aldri
og fram á fullorðinsár. Um 17
ára aldur fór hann að vinna í
sjoppu Olíufélagsins í Hvalfirði
en átti eftir að fara víða og
vinna við hin margvíslegustu
störf. Veitinga- og verslunar-
störf áttu eftir að verða þunga-
miðjan í lífi hans eftir það.
Eyþór fékk fyrstur manna
nætursöluleyfi á Íslandi þegar
hann rak sjoppu á Geithálsi.
Bakkus reyndist honum alla tíð
erfiður og setti mark sitt á líf
hans. Hann átti eftir að vinna á
fínustu veitingastöðu Evrópu,
hótelum, krám og búllum, ferj-
um, skemmtiferðaskipum og
fiskiskipum. Hann bjó meðal
annars í Danmörku og Noregi
auk þess að vera týndur í Ástr-
alíu um tveggja ára skeið. Aldr-
ei fékk ég upp úr honum hvað á
daga hans dreif þau árin. Sein-
ustu árum starfsævi sinnar
varði hann á Seyðisfirði, átti
þar og rak hótel, kaffihús og
verslun. Þá lét hann framleiða
fyrir sig sitt eigið öl, El Grillo-
bjór.
Eyþór var orðinn heilsuveill
síðustu árin eftir skrautlegt líf-
erni. Það skiptust á skin og
skúrir í lífi hans. Svo langt var
hann leiddur á tímabili að hann
fleygði sér í höfnina í Ósló en
var fiskaður upp. Þá fór hann
til Íslands og náði sér á strik
aftur. Bakkus var þó aldrei
langt undan. En Eyþór var
gæðablóð. Þó að hann gæti ver-
ið viðskotaillur við þá sem
hærra þóttu settir var hann
maður alþýðunnar og stóð með
lítilmagnanum þegar á reyndi.
Ég vil þakka hér Eyþóri
dásamleg kynni en af honum
lærði ég margt og gott. Fjöl-
skyldu hans færi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur en veit
að minningin um góðan dreng
mun lengi lifa í hjörtum þeim
sem kynntust honum.
Tryggvi Harðarson.
Eyþór Þórisson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR GUÐMUNDSSON
húsasmíðameistari,
Suðurgötu 4a,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 11. mars.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 19. mars
klukkan 13.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins.
Kristín Helgadóttir
Helgi Gunnarsson
Ásdís Gunnarsdóttir Geirmundur Sigvaldason
Stefanía Gunnarsdóttir Eric Baker
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
SIGURLAUG J. JÓNSDÓTTIR
ökukennari,
lést á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 11. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Rúnar Ólafsson Linda Björk Magnúsdóttir
Elínborg J. Ólafsdóttir Guðmundur Kr. Tómasson
Kristín Ólafsdóttir Valur E. Valsson
Ólafur Erling Ólafsson Helma Ýr Helgadóttir
og fjölskyldur
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
sambýliskona,
JÓHANNA BJARNADÓTTIR,
áður Kleppsvegi 36,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund,
mánudaginn 11. mars.
Útför hennar auglýst síðar.
María Olgeirsdóttir Hreiðar Albertsson
Jóhanna Olga Hreiðarsdóttir
Sigurður Steindórsson