Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Á heila tugnum hef ég jafnan haldið upp á afmælið en núna verð-ur breyting. Við hjónin ætlum að skreppa með góðum vinumtil Gdansk í Póllandi og vera þar yfir helgina. Borgin er falleg
og ferðin tilhlökkunarefni,“ segir Þórarinn Hjálmarsson, flugstjóri
hjá Icelandair, sem er sextugur í dag.
Þórarinn er Siglfirðingur að uppruna og bjó þar fram á unglingsár.
„Það voru forréttindi og afar þroskandi að alast upp í sjávarplássi úti
á landi. Taugin norður er sterk og mér finnst alltaf gaman að koma á
Sigló, ekki síst nú á síðari árum því bærinn hefur tekið algjörum
stakkaskiptum með tilkomu Héðinsfjarðarganga. Uppbyggingin á
staðnum hefur verið ævintýraleg,“ segir Þórarinn sem tæplega tví-
tugur byrjaði að vinna hjá Arnarflugi við ýmis tilfallandi störf. Var þá
byrjaður í flugnámi og munstraðist á vélar félagsins þegar því lauk.
Færði sig svo yfir til Flugleiða, nú Icelandair, í byrjun árs 1987.
„Mér finnst flugið sem eitt stórt ævintýri. Hef verið á ýmsum gerð-
um flugvéla; síðasta árið talsvert á Boeing 757 MAX 8 sem hafa verið
mikið í fréttum síðustu daga eftir flugslysið í Eþíópíu. Já, ég hef enn
fulla trú á því þeim vélum, en mikilvægast er samt að komast að því
hvað olli hinu hörmulega slysi,“ segir Þórarinn sem hefur mikið sinnt
þjálfunarmálum flugmanna hjá Icelandair.
„Áhugamálin eru mörg. Þar get ég meðal annars nefnt veiði, bæði á
stöng og byssu, og svo hef ég meðal annars gaman af jeppaferðum. Á
meðal annars Dogde RAM sem er á 54 tomma dekkjum; á honum höf-
um við farið margar stórkostlegar ferðir á hálendið og jöklana,“ segir
Þórarinn sem er kvæntur Báru Alexandersdóttur, sminku á Stöð 2, og
eiga þau þrjú börn. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugstjórinn Þórarinn í stjórnklefanum á Boeing-vél Icelandair.
Flugið er ævintýri
Þórarinn Hjálmarsson er sextugur í dag
G
uðrún Margrét Páls-
dóttir fæddist 15. mars
1959 í litlu bakhúsi á
Hverfisgötu 60a,
Reykjavík. „Ég fluttist
þaðan þriggja ára í Lönguhlíð 19 þar
sem fjölskylduræturnar voru í 40 ár
og voru æskuslóðirnar Hlíðarnar,
Klambratúnið og Öskjuhlíðin.“ Sum-
ardvöl Guðrúnar í sveit var hjá
frændfólki á Ytra-Bjargi í Miðfirði
og í sumarbúðum KFUK í
Vindáshlíð.
Guðrún gekk í Skóla Ísaks Jóns-
sonar, Æfinga- og tilraunadeild
Kennaraháskóla Íslands, Hlíða-
skóla, Vörðuskóla, Menntaskólann
við Hamrahlíð og Háskóla Íslands
þaðan sem hún brautskráðist með
BSc-gráðu í hjúkrunarfræði. Guð-
rún vann við ýmis störf á náms-
árunum; í Vestmannaeyjum, á
Guðrún Margrét Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur – 60 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afmælisbarnið Guðrún er mjög virk í kristilegu starfi og í dag kemur út litla bókin hennar: Hver er Jesús?
Hugsjón um hjálpar-
starf fæddist í hnattferð
Á Indlandi Guðrún stödd á heimili litlu ljósanna fyrir um tíu árum.
Kópavogur Anna Karen fædd-
ist 29. júní 2018 í Reykjavík.
Hún vó 2.960 g og var 47 cm.
löng. Foreldrar hennar eru
Hildur Sigfúsdóttir og Gunnar
Þór Tómasson.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is