Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 27
Akureyri, Hjalteyri, Kristnesi í
Eyjafirði, í Stykkishólmi og Fljóts-
hlíð og sem hjúkrunarfræðingur á
geðdeildum Landspítala við Hring-
braut, Kleppsspítala, barnageðdeild
Dalbraut, Hafnarbúðum og Hlað-
gerðarkoti.
Árið 1985, þá 26 ára gömul, fór
Guðrún ein síns liðs í árs langa
hnattferð sem átti eftir að gjör-
breyta lífi hennar. „Í hnattferðinni
fæddist hugsjón sem fékk farveg
þegar ABC-hjálparstarf var stofnað
árið 1988 en ég var einn af stofn-
endum þess starfs sem fékk síðar
nafnið ABC-barnahjálp og hefur
hjálpað tugþúsundum barna til
náms. Ég fór fyrir því starfi í 27 ár
en rétti keflið yfir árið 2015.
Í framhaldi af því tók ég áfanga-
nám í þróunarhjálp en í janúar 2016
ákvað ég að taka þátt í forsetakosn-
ingunum sem voru framundan. Eftir
að því ævintýri lauk dustaði ég tæp-
lega 30 ára ryk af hjúkrunarfræði-
menntuninni og réð mig sem hjúkr-
unarfræðing á Sólvangi í Hafnarfirði
þar sem núverandi starfsvettvangur
minn er. Í tilefni af 30 ára afmælisári
ABC-barnahjálpar hef ég einnig
hjálpað til við að finna styrktar-
foreldra fyrir börn sem þurfa stuðn-
ing til að komast í skóla en þúsundir
barna eru studd til náms í gegnum
ABC barnahjálp í dag.“
Guðrún er mjög virk í kristilegu
starfi og er að gefa út litla bók: Hver
er Jesús? sem kemur úr prentun í
dag og verður gefin þeim sem vilja
kynna sér málið. Hún hefur sinnt
stjórnar-, gjaldkera- og bókara-
störfum fyrir ýmis félög en helstu
áhugamálin tengjast því að láta gott
af sér leiða.
Guðrún var sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu af forseta
Íslands árið 2004 fyrir líknarstörf á
alþjóðavettvangi.
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar er Hannes
Lentz, f. 4. desember 1959, trygg-
ingaráðgjafi og skógarbóndi. For-
eldrar hans eru hjónin Walter
Lúðvík Lentz, f. 6. ágúst 1934,
sjóntækjafræðingur og Ragnheiður
Sigurðardóttir, f. 6. desember 1934,
húsmóðir. Þau eru búsett á Seltjarn-
arnesi. Fyrri eiginmaður Guðrúnar
var Jónas Skagfjörð Þorgeirsson, f.
18. apríl 1960, d. 28. maí 2012,
sjúkraþjálfari og ljóðskáld.
Börn Guðrúnar og Hannesar eru
1) Kristína Lentz, f. 26. apríl 1988,
alþjóðalögfræðingur í Reykjavík,
maki: Paul Roberts frá Ástralíu,
starfsmaður hjá Flugfélagi Íslands,
þau eiga von á dóttur í maí; 2)
Kristófer Páll Lentz, f. 30. ágúst
1990, viðskiptafræðingur í Reykja-
vík, maki: Inga Björg Jónasdóttir,
flugfreyja og háskólanemi, þau eiga
von á syni í apríl; 3) Davíð Walter
Lentz, f. 14. janúar 1998, nemi; 4)
Linda Ragnheiður Lentz, f. 24. júní
2002, nemi.
Systkini Guðrúnar: Halldór Páls-
son, f. 15. apríl 1948, útgefandi í
Hafnarfirði, og Páll Pálsson, f. 12.
febrúar 1951, d. 24. september 2016,
garðyrkjumaður í Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar voru hjónin
Páll Axelsson, f. 29. júní 1922, d. 15.
júlí 1988, strætisvagnastjóri í
Reykjavík, og Finnboga Sigríður
Halldórsdóttir, f. 30. júlí 1925, d. 27.
mars 2002, saumakona í Reykjavík.
Guðrún Margrét
Pálsdóttir
Sigríður Halldórsdóttir
saumakona í Reykjavík
Halldór Ólafsson
kaupfélagsritari á Borðeyri
og bóndi á Fögrubrekku
Elísabet Stefánsdóttir
húsfreyja á Kolbeinsá
Ólafur Björnsson
bóndi á Kolbeinsá í
Hrútafirði, Strand.
Grettir Björnsson
harmónikkuleikari
Árni Arinbjarnarson fiðluleikari,
orgelleikari og kórstjóri
Ingibjörg Jóhannesdóttir
húsfreyja á Bjargi
Karl Ásgeir Sigurgeirsson
bóndi á Bjargi í Miðfirði
Margrét Jónína Karlsdóttir
kirkjuorganisti og húsmóðir
á Bjargi, síðar í Reykjavík
Axel Valdimar Vilhelmsson
verslunarstjóri á Akureyri
Sveinbjörg Anna Sigurðardóttir
verkakona á Akureyri
Wilhelm Marzilíus Jónsson
kaupmaður og bókhaldari á Siglufirði
Úr frændgarði Guðrúnar Margrétar Pálsdóttur
Páll Axelsson
strætisvagnastjóri í Reykjavík,
stjúpfaðir var Arinbjörn Árnason
Sigríður Ólafsdóttir
húsfreyja á Fögrubrekku
Guðrún Finnbogadóttir
húsfreyja á Fögrubrekku
Finnbogi Jakobsson
bóndi á Fögrubrekku í Hrútafirði, Strand.
Þorvaldur Jakobsson
prestur í Sauðlauksdal
Finnbogi Rútur Þorvaldsson
prófessor í verkfræði við HÍ
Vigdís Finnbogadóttir
fv. forseti Íslands
Hjónin Hannes og Guðrún, bæði
sextug á árinu.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
FOSSBERG
Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600
Úrval mælitækja frá
Bragi Reynir Friðriksson fædd-ist á Ísafirði 15. mars 1927.Foreldrar hans voru Ingi-
björg Bjarnadóttir, húsfreyja á Sól-
völlum í Mosfellssveit, f. 1901, d.
1979, og Friðrik Helgi Guðjónsson,
útgerðarmaður á Siglufirði, f. 1901, d.
1991. Stjúpfaðir Braga var Finnbogi
Helgason, bóndi á Sólvöllum, og
stjúpmóðir Braga var Ástríður Guð-
mundsdóttir, húsfreyja á Siglufirði.
Bragi lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1949 og
embættisprófi í guðfræði frá Háskóla
Íslands 1953. Sama ár var Bragi kall-
aður til prestsþjónustu í Lundar í
Manitoba í Kanada og vígðist það ár.
Hann var síðan prestur í Gimli 1955-
1956. Hann var framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs Reykjavíkur 1957-
1964 og var á sama árabili formaður
Æskulýðsnefndar þjóðkirkjunnar.
Árið 1966 tók Bragi við Garða-
prestakalli og árið 1977 var hann
skipaður prófastur í Kjalarnesspró-
fastsdæmi. Árið 1997 var honum veitt
lausn frá prests- og prófastsembætti.
Bragi sinnti ýmsum trúnaðar-og
félagsstörfum um ævina. Hann var
fulltrúi þjóðkirkjunnar í Alþjóða-
kirkjuráðinu 1954, meðstofnandi
Stjörnunnar í Garðabæ árið 1960 og
formaður Þjóðræknisfélags Reykvík-
inga 1974-1980. Hann starfaði einnig
að íþróttamálum og var m.a. formað-
ur Íþróttafélags stúdenta 1949-1951
og sat í stjórn Frjálsíþróttasambands
Íslands 1957-1961.
Braga var veitt Paul Harris
Fellow-viðurkenning Rótarýhreyf-
ingarinnar 1996. Árið 1997 varð hann
heiðursfélagi Rótarýklúbbsins Görð-
um og Skátafélagsins Vífils. Árið
2010 var hann kjörinn heiðursfélagi
Verndar fangahjálpar. Bragi var
kjörinn heiðursborgari Garðabæjar
2001.
Eiginkona Braga er Katrín Eyj-
ólfsdóttir, f. 6. ágúst 1928 á Eskifirði,
fv. ritari, bús. í Garðabæ. Börn Braga
og Katrínar: Ingibjörg, f. 1954, d.
2017, Eyjólfur, f. 1955, Auður, f. 1958,
og Oddur Helgi, f. 1963.
Bragi lést 27. maí 2010.
Merkir Íslendingar
Bragi
Friðriksson
95 ára
Benedikt Hermannsson
Guðmundur Valdimarsson
90 ára
Valgerður Björnsdóttir
85 ára
Gunnhildur S. Alfonsdóttir
Jón Guðmundsson
Kolbrún Kristjánsdóttir
Reynar Óskarsson
Sigrún Steinlaug Ólafsd.
80 ára
Guðmundur Olsen
Sigurður Kristinn Ásgrímss.
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
75 ára
Ásgeir Sigurðsson
Bjarni H. Geirsson
Björn Heiðar Garðarsson
Björn Þorgeir Másson
Halldór Gunnlaugsson
Hörður Haraldsson
Jón Ómar Möller
Magnús Magnússon
Margrét Herbertsdóttir
Mattína Sigurðardóttir
Snjólaug Pálsdóttir
Þóra Ólöf Óskarsdóttir
70 ára
Guðrún Pálsdóttir
Hafdís Alexandersdóttir
Jóhann Hákonarson
Judy Ásthildur Wesley
Marsibil Ólafsdóttir
Sigþór Sigurðsson
Torfi Hannesson
60 ára
Ástríður Sigþórsdóttir
Guðrún Margrét Pálsdóttir
Heimir Gunnarsson
Ingibjörg M. Guðmundsd.
Sigríður Guðrún Karlsdóttir
Þorsteinn Kröyer
Þórarinn Hjálmarsson
50 ára
Ásbjörn Kristinsson
Ásdís Heiðdal Gústavsd.
Egill Viðarsson
Guðfinna H. Steindórsdóttir
Ingibjörg Kristín Barðad.
Jón Ragnar Jónsson
Jón Viðar Edgarsson
Kristín Guðmundsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Marzena Ewa Dukarska
Perla Svandís Hilmarsdóttir
Sigrún Halldórsdóttir
Sigtryggur A. Magnússon
Stephanie Annie M. Smith
Þór Konráðsson
40 ára
Árni Pétur Veigarsson
Davíð Unnsteinsson
Garðar H. Jóhannesson
Henry Baltasar Henrysson
Herdís Elín Jónsdóttir
Íris Björk Júlíusdóttir
Jóhann Ingi Björnsson
Magnea Huld Ingólfsdóttir
Óðinn Árnason
Ólafía Lárusdóttir
Ólafur Pétursson
Tryggvi Lárusson
30 ára
Anna Lísa Kavanagh
Arna Guðnadóttir
Daníel Ingi Þórarinsson
Halldóra Stefánsdóttir
Hartmann Ingvarsson
Hildur Marín
Andrésdóttir
Ida Thorborg
Ludy Balucluc Flores
María Builien Jónsdóttir
Ragnar Hansen
Rósant Friðrik Skúlason
40 ára Berglind er Borg-
nesingur en býr í Hafnar-
firði. Hún er þroskaþjálfi.
Maki: Gústav Axel Gunn-
laugsson, f. 1987, eigandi
Sjávargrillsins og meðeig-
andi Íslenska barsins og
Matarkjallarans.
Börn. Alex Rafn, f. 2000,
Jakob Atli, f. 2011, og Óli-
ver Flóki, f. 2012.
Foreldrar: Hallgeir Sig-
marsson, f. 1954, og
Helga Jakobsdóttir, f.
1950, bús. í Rvík.
Berglind Þóra
Hallgeirsdóttir
40 ára Sigríður er Mos-
fellsbæingur og er sjálf-
stætt starfandi grafískur
hönnuður og teiknari.
Maki: Jóhannes Einar
Valberg, f. 1977, verk-
fræðingur hjá Bláa lóninu.
Börn: Hrafnkell Þór, f.
2007, og stjúpsonur er
Jón Ingvar, f. 1999.
Foreldrar: Kristinn Sig-
mundur Jónsson, f. 1947,
d. 2016, símvirki, og Ólöf
Friðriksdóttir, f. 1948, fv.
stuðningsfulltrúi.
Sigríður Rún
Kristinsdóttir
30 ára Örn Þór er Horn-
firðingur en býr í Hafnar-
firði. Hann hefur klárað 1.
stig af vélstjóra og er
steinsmiður hjá Figaró.
Maki: Margrét Ása Eð-
varðsdóttir, f. 1983, lög-
fræðingur hjá Íslands-
banka.
Börn: Tvíburarnir Natalía
Ósk og Aníta Ýr, f. 2003.
Foreldrar: Björn Gísli Arn-
arson, f. 1962, og Ragn-
heiður Sigríður Gests-
dóttir, f. 1963, bús. á Höfn.
Örn Þór
Björnsson
Til hamingju með daginn