Morgunblaðið - 15.03.2019, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Áætlanir sem tengjast ferðalögum
eða menntun taka allan þinn tíma um
þessar mundir. Láttu vera að kvarta yfir
aðstæðum þínum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú lætur þig dreyma um ferðalög til
fjarlægra landa. Reyndu að sjá það já-
kvæða í öllu, þannig heldurðu í bjartsýn-
ina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ástaramband þitt er krefjandi en
þú ert fullfær um að standa með sjálfri/
sjálfum þér. Láttu sem ekkert sé þó þú
heyrir kjaftasögu sem snertir vin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu að bregða út af vananum,
það er gott fyrir sálina. Taktu til hendinni
heima fyrir sem best þú getur. Allt hefur
sinn tíma.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gerðu það besta sem þú getur í
hverju verkefni. Sýndu vígtennurnar ef þú
þarft. Sníddu þér líka stakk eftir vexti.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eitthvað sem var í lagi í gær, virðist
núna ófullnægjandi, hvort sem um er að
ræða íbúðina eða bílinn sem farinn er að
eldast. Það eru breytingar í vændum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhverjum liggur verulega á í dag og
er fullur óþolinmæði í garð þeirra sem ekki
ná að fylgja eftir. Alls konar rannsókn-
arstörf einkenna daginn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Lánið leikur við þig þessa
dagana og þú ert alsæl/l. Vertu óhrædd/
ur við að njóta lífsins og leyfa þér að
blómstra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Mikilvægar samræður eiga sér
stað. Taktu eftir persónunni sem glóir í ná-
vist þinni – og taktu eitt skref í áttina til
hennar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Allt það sem þú gerir til að
bæta heilsu þína í dag mun skila góðum
árangri. Semdu um vopnahlé í deilu við
nágranna.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Varðandi samning sem þú ert
að spá í segir lágvær rödd í höfði þínu þér
að hlaupa sem fætur toga. Þú kemur við
kvikuna í einhverjum þér nákomnum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt þú vitir betur en viðmælandi
þinn skaltu varast allan oflátungshátt.
Hvettu alla til þess að taka höndum saman
til að ná markmiði eða skipuleggja uppá-
komu.
Víkverji hefur gaman af tónlist ogtaldi sig nokkuð fróðan um
strauma og stefnur í íslenskri tónlist.
Þá skoðun hafði Víkverji byggt á
aldri, áhuga og upplifunum.
x x x
Víkverji varð fyrir hálfgerðu áfalliþegar hann settist niður og
horfði á afhendingu Íslensku tónlist-
arverðlaunanna á RÚV á miðviku-
dagskvöld. Víkverji kannaðist því
miður við minnihluta þeirra sem
hlutu verðlaun í hinum ýmsu flokk-
um.
x x x
Eins og Víkverja er siður settisthann niður og krufði málið til
mergjar. Eins og svo oft áður komst
hann ekki að einhlítri niðurstöðu en
uppgötvaði fleira jákvætt en neikvætt
á rannsóknarferðalagi sínu.
x x x
Það neikvæða fyrir Víkverja var aðuppgötva enn á ný kyn-
slóðaskipti og nú í tónlistinni. Vík-
verji er alltaf meira og meira að reka
sig hvað hann er orðinn þroskaður.
Víkverja finnst hann alls ekki gamall
eða gömul eftir því hvernig á það er
litið. Víkverja finnst hann rétt orðin
miðaldra og varla það.
x x x
Það jákvæða við Íslensku tónlistar-verðlaunin er allt unga og hæfi-
leikaríka tónlistarfólkið okkar í bland
við þá þroskuðu. Það gladdi Víkverja
mjög að sjá kvenþjóðina sækja í sig
veðrið. Það gladdi Víkverja líka að sjá
hversu sjálfsöruggt og hæfileikaríkt
unga fólkið er. Það fer beint af aug-
um, að því er virðist óttalaust. Leyfir
sér að dreyma stóra drauma og, það
sem betra er, lætur þá rætast.
x x x
Þegar horft er á ungt tónlistarfólk ídag er fjölbreytni það fyrsta sem
Víkverja dettur í hug. Það er allt
leyfilegt í tónlistarheiminum. Það er
kannski ekki skrýtið að Víkverji sem
vaknaði á sunnudagsmorgnum til
þess að hlusta á lög Unga fólksins á
einu útvarpsrásinni sem var í boði,
nái ekki að fylgjast með allri tónlist
sem flæðir í ljósvakamiðlum og á net-
inu. vikverji@mbl.is
Víkverji
En öllum þeim sem tóku við honum
gaf hann rétt til að verða Guðs börn,
þeim sem trúa á nafn hans.
(Jóh: 1.12)
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Lang-
vinsælastur
hollusta í hverjum bita
Fía á Sandi birtir á Leirnum„Staglkvennarímu með
nokkrum kvenkenningum“. Hátt-
urinn er stafhenda en orðið „stagl“
vísar til þess að einstök orð, oft
rímorð, eru endurtekin. Sömuleiðis
kvenkenningar, jafnvel svo, að í
einni vísunni er kvenkenning í
hverju vísuorði, sumar nýstárlegar
eins og styttubandastorð.
Það er mikil músík þessum vís-
um enda eru þær leikur að orðum
og hljómum og því rétt að söngla
þær eða kveða.
Vörn gegn leiða er ljóðamál,
ljóðamálið auðgar sál,
sál sem þarf sitt ljós og loft,
lofnartróðu gleður oft.
Oft hún byrjar stuðla stag,
staghent rímnatróðu fag,
fag og tryggir gæðin góð,
góð svo náttsól finnist ljóð.
Ljóðatróða er stundar stagl,
stagl, er úti dynur hagl
hagl er lemur glugga gátt,
gáttaskjökt ei pirra þrátt.
Láttu ei, knarrarbringan björt,
björt þó nóttin gerist svört,
svart þó myrkrið fari um flet
flet þitt kæla ei nokkurt hret.
Í hreti er næs að baka brauð,
brauðgraut hringabrúin sauð,
sauð svo mættu borða brátt,
brátt svo yrði liljan sátt.
Sátt vertu ullarsokkalín,
saknar nálaskorðan þín,
þín, styttubandastorðin rjóð,
stoppunálarsniftin góð.
Óðinn sendir tölvutróð,
trafaróðu á vefsins slóð,
hákarlsgrútarliljan ljós,
ljóssins nælonsokkadrós.
Síra Helgi Sigurðsson kallar það
„klifað“ eða „stagað“ þegar stagast
er á sama eða sömu orðum tvisvar
eða oftar. Nafnið á hættinum verð-
ur því staghenda. Hér er gamall
húsgangur:
Narri! Ef þú narrar mig,
narri skaltu heita;
narrar allir narri þig,
narrinn allra sveita.
Úr Odds rímum sterka eftir Örn
Arnarson:
Snauður, þjáður bað um brauð,
brauði ráða hróðug gauð,
gauð, sem dáðu aðeins auð,
auð sem smáði þjóðar nauð.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Skemmtilega ort
Staglkvennaríma
Í klípu
EF ÞETTA ERU KOSTAKJÖR SKALTU
ALDREI SPYRJA HVERS VEGNA. ÞÚ VILT
EKKI VITA ÞAÐ.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EKKI HAFA FYRIR ÞVÍ AÐ REDDA
BARNAPÍU, ÉG ÆTLA ÚT SJÁLFUR.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... bætt sýn á heiminn.
ÉG DÁIST AÐ
HEIÐARLEGU FÓLKI
HEIÐARLEIKA? ÉG ER
STÁLHEIÐARLEGUR!
Í ALVÖRU? JAMM, ÉG STAL
ÞVÍ
HELGA MÍN, MÉR LEIÐIST
AÐ SJÁ ÞIG
ÞUNGBRÝNDA! ÞÚ ÆTTIR
KANNSKI
AÐ
HJÁLPA
MÉR!
SJÁLFSAGT! HVERNIG VÆRI
AÐ ÉG SEGÐI ÞÉR NOKKRAR
SKRÍTLUR Á MEÐAN ÞÚ VINNUR?
SÍÐASTI LEIGJANDI ÁTTI SNÁKA. ÉG
VONA BARA AÐ HANN HAFI FUNDIÐ ÞÁ
ALLA ÁÐUR EN HANN FLUTTI ÚT.