Morgunblaðið - 15.03.2019, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ef við erum almennilegt fólk þá
tengjum við við börn og þau opna á
okkur hjörtun. Við finnum til
ábyrgðar gagnvart umkomuleysi
þeirra,“ segir Bergur Þór Ingólfs-
son, leikstjóri Matthildar sem frum-
sýnd er á Stóra sviði Borgarleik-
hússins í kvöld. Matthildur er fjórði
mannmargi söngleikurinn sem
Bergur Þór leik-
stýrir í Borgar-
leikhúsinu frá
2013, en fyrri
uppfærslur eru
Mary Poppins,
Billy Elliot og
Blái hnötturinn.
Samhliða hefur
hann einnig sett
upp eins manns
verkið Jólaflækju
og ungmennasýn-
inguna Hamlet litla. Spurður hvort
mikill munur sé á því að leikstýra
íburðarmiklum og fjölmennum sýn-
ingum eða fábrotnari og fámennari
sýningum svarar Bergur Þór því
neitandi. „Í grunninn snýst þetta
alltaf um að segja sögu og eiga er-
indi við áhorfendur. Í mínum huga
snýst leikhúsið um að eiga í sam-
bandi við þá sem hlusta og horfa,
sem aftur virkjar mennskuna í okk-
ur.
Af hverju fannst þér mikilvægt að
segja sögu Matthildar á núverandi
tímapunkti?
„Það að lítil stúlka standi uppi í
hárinu á yfirvaldinu og segi satt og
rétt frá og þrói með sér hæfileikann
til að sigrast á yfirvaldinu talar beint
inn í það sem hefur verið að gerast
hérlendis síðustu tvö árin og einnig
síðustu áratugina og árhundruðin
þegar horft er til femínismans. Ég
lít á Matthildi litlu sem dætur mínar
fjórar,“ segir Bergur Þór og bendir
á að í lok eins lagsins syngi Matt-
hildur: „Óveðrið sigrað hef ég“. „Ein
dóttir mín er með setninguna „Ég er
stormurinn“ tattúverað á bringunni
á sér. Þannig að verkið talar sterkt
til mín persónulega.
Ofan á það bætist hvað frásagnar-
gleði Roalds Dahl er ótrúlega mikil.
Honum finnst svo gaman að segja
sögur. Hann er líka hrekkjóttur höf-
undur og hlífir okkur ekkert við
grimmdinni, því það er rosaleg
grimmd í verkinu,“ segir Bergur Þór
og bendir sem dæmi á að heimilis-
aðstæður Matthildar séu barna-
verndarmál. „Það er allt í lagi að
segja svoleiðis lagað upphátt, það er
hvernig hlutirnir eiga ekki að vera,“
segir Bergur Þór og bendir á að
grínið og söngurinn sé meðal til þess
að segja frá hræðilegum hlutum.
Talandi um grimmd, þá hugsaði
ég oft við lestur bókarinnar hvernig
þið hygðust leysa yfirnáttúrulega
hæfileika Matthildar og grimmd
skólastýrunnar. Væntanlega eru
tæknilausnir þessa verks ekki erfið-
ari en það sem á reyndi í t.d. Mary
Poppins og Bláa hnettinum?
„Nei, við búum auðvitað að reynsl-
unni vegna fyrri sýninga. Við reyn-
um því að vera eins trú bókinni og
hægt er og því verður börnum kast-
að um sviðið og Matthildur hreyfir
hluti með huganum. Við pössum
okkur hins vegar alveg á því að fara
ekki á tæknifyllirí til að halda hjart-
anu og grunninum í sögunni, þó að
við séum auðvitað að stefna að því að
bjóða upp á veislu fyrir augu og
eyru.“
Leikhúsið síðasta skjólið
Hvað getur þú sagt mér um leik-
mynd Ilmar Stefánsdóttur. Lá alltaf
beint við að bækur yrðu jafn áber-
andi og raunin er í leikmyndinni?
„Matthildur hefur allt sitt uppeldi
úr bókum. Eins og ég nefndi áðan
eru sögur mikilvægar til þess að við
könnumst við okkur sem mann-
eskjur. Bækur eru mjög sterkt tákn
fyrir sögur. Í leikmyndinni eru líka
sjónvörp. Þó að foreldrar Matthildar
fyrirlíti bækur og reyni að upphefja
sjónvörp, þá erum við alveg hrifin af
sjónvörpum, tölvum og símum með
snertiskjá sem miðli sé það notað
rétt og til samskipta,“ segir Bergur
Þór og bendir á að leikhúsið sé orðið
einn síðasti staður samtímans þar
sem fólk þurfi að slökkva á öllum
tækjum og vera tilbúið að mæta ann-
arri manneskju augliti til auglitis.
„Þannig má segja að leikhúsið sé
orðið síðasta skjólið í nútímanum.
Annað konsept í leikmyndinni er að
bókahillurnar snúa upp á sig eins og
erfðamengið. Vitað er að sögur og
lífsreynsla fólks, samanber áfalla-
sögu kvenna sem er verið að rann-
saka núna og þær rannsóknir sem
gerðar hafa verið á eftirlifendum
helfararinnar, fara inn í erfðamengið
og genin. Ég er amma mín. Um leið
erum við auðvitað að búa til leikrými
sem gaman er að horfa á, gott er að
vera í og gagnlegt er að segja sög-
una í.“
Jafnslæm og Ríkharður þriðji
Af hverju er farin sú leið í sýning-
unni að láta karlmann, þ.e. Björgvin
Franz Gíslason, leika hina hræðilegu
skólastýru Karítas Mínherfu? Geta
konur ekki leikið illmenni? Eða er
meðvitað verið að skapa ákveðna
fjarlægð?
„Auðvitað geta konur verið ill-
menni og til eru leikkonur á Íslandi
sem gætu leikið þetta hlutverk.
Enda geta allir góðir leikarar leikið
öll góð hlutverk. Að hluta til eru það
praktískar ástæður sem stjórna val-
inu á leikaranum enda er hlutverkið
skrifað sönglega séð fyrir barítón.
Með því að láta karlmann leika
skólastýruna fæst líka ákveðið leyfi
á illmennið. Karítas Mínherfa er
sem manneskja jafnslæm og Rík-
harður þriðji. Hún er morðingi sem
pyntar börn. Þegar við bjóðum fjöl-
skyldunni upp á slíka frásögn þurf-
um við ákveðna fjarlægð og hún fæst
meðal annars með því að láta karl-
mann leika konu. Og svo er Björgvin
bara kjörinn í hlutverkið.“
Í ljósi þess að skólastýran er á
pari við illmennið Ríkharð þriðja
liggur beint við að spyrja fyrir hvaða
aldur þið hugsið uppfærsluna?
„Við hugsum þetta fyrir alla fjöl-
skylduna og allan aldur. Ég myndi
segja að allir sem geta horft á Lion
King í fullum gæðum ættu að geta
horft á Matthildi, enda jafn skelfi-
legir hlutir sem gerast.“
Líkt og í Bláa hnettinum fara
börn með mikinn meirihluta hlut-
verkanna í Matthildi. Er mikill mun-
ur fyrir þig sem leikstjóra að leik-
stýra fullorðnum atvinnuleikurum
og börnum?
„Já, það er munur. Ég segi stund-
um að leiklistin og leikarastarfið sé
85% handverk. Þú þarft bara að
læra textann þinn, rekast ekki í hús-
gögnin, snúa í rétta átt, syngja rétta
tóna og vinna að grunni persón-
unnar og samskiptum hennar við
aðrar persónur. Allt er þetta hand-
verk. Síðan eru þessi 15% sem er allt
hið ósýnilega og listræna sem skiptir
þegar upp er staðið öllu máli.“
Tilbúin að játast hæfileikunum
Ertu þar að tala um sviðsnærveru,
sem er varla hægt að kenna?
„Jú, það er hægt að iðka og æfa
flest. Það tekur hins vegar mjög
mislangan tíma hjá fólki að ná ár-
angri. Ef hægt er að iðka og æfa
dyggðir þá er hægt að iðka og æfa
allt, en það gæti tekið suma 20 ár og
aðra 50 ár. Við höfum ekki svo lang-
an tíma í leikhúsinu,“ segir Bergur
Þór og áréttar að af þeim sökum sé
mikilvægt að velja réttu áhöfnina áð-
ur en lagt sé af stað.
Það er stundum sagt að 90% vinna
leikstjórans felist í því að skipa rétt í
hlutverkin, jafnt innan sem utan
sviðs. Ertu sammála því?
„Ég ætla ekki að telja það í pró-
sentum, en það skiptir alveg rosa-
lega miklu máli að velja, ekki bara
rétta fagfólkið í hlutverkin heldur
líka rétta hópinn til að segja söguna.
En munurinn á börnum og full-
orðnum er að börn eru auðvitað ekki
búin að fara í háskólanám. Ég þarf
að láta þau fara í gegnum háskóla-
nám á tíu vikum. Við þurfum að
kenna þeim, sem ekki áður hafa
starfað í leikhúsi, bæði hugtök og
vinnubrögð og allt sem gerist á svið-
inu. Börn eru að vísu ótrúlega opin í
dag. Reynslan mín af því að vinna
jafnmikið með börnum og ég hef
gert á síðustu misserum er sú að þau
búa yfir mun meira sjálfstrausti en
börn almennt gerðu fyrir 40 árum
þegar ég var lítill og eru mun til-
búnari að játast hæfileikum sínum
en í gamla daga þegar enginn átti að
vera að trana sér fram.
Beislun á hinu ósýnilega
Við tölum stundum um töfrabarn-
ið í listamanninum. Þegar verið er að
búa til leiksýningu þarf að ríkja
traust í hópnum því annars lokast
töfrabarnið inni og skilar bara hand-
verki. Börnin eru töfrabörn, þannig
að þau eru opin í sjálfu sér, en utan
um það þarf að búa til strúktúr.
Okkar hlutverk er að virkja þá fal-
legu lífsorku og vilja sem fylgir
börnum og beina þeim eiginleikum
inn í sýninguna,“ segir Bergur Þór
og rifjar upp að í byrjun æfingatím-
ans hafi honum orðið á þau mistök
að nefna orðið „aga“ þegar hann
ræddi við allan leikhópinn.
„Ég nefndi að nauðsynlegt væri
að hafa aga í vinnuferlinu og þá var
eins og slokknað hefði á hópnum.
Allur lífsviljinn, orkan, krafturinn og
leikgleðin, allur þessi dásamlegi
fjársjóður varð að ösku fyrir framan
mig. Ég sá því að ég þyrfti strax að
leiðrétta mig og útskýrði fyrir börn-
unum að agi væri ekki leiðinlegur.
Agi er leið til að gera það skemmti-
lega skemmtilegra, beisla orkuna og
beina henni í sameiningu í ákveðna
átt þannig að leikurinn fari ekki út
um allt. Í raun er agi bara samstill-
ing. Þau skildu þetta strax og það
kviknaði aftur á hópnum. Það er
ekki hægt að skikka fólk til árangurs
í listum. Það þarf að eiga samtal til
að beina hinu listræna eina leið með
þeim hætti að allir eigi hlutdeild í út-
komunni. Þetta er í raun beislun á
hinu ósýnilega. Og í því ferli verður
að vera gaman.“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
„Börn opna á okkur hjörtun“
Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir Matthildi sem Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld „Það er ekki
hægt að skikka fólk til árangurs í listum“ Leikstjórinn segir vinnuferlið verða að vera skemmtilegt
Bergur Þór
Ingólfsson
Ógnarstjórn Björgvin Franz
í hlutverki skólastýrunnar
ásamt hópi nemenda.