Morgunblaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019
Krummaskuð kallar Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari
sýninguna sem hann opnar í sýningarsalnum Ramsk-
ram á Njálsgötu 49 í dag, laugardag, klukkan 17.
Í tilkynningu segir Bragi Þór að orðið krummaskuð
sé stórfenglega myndrænt þó að orðabókin segi það
standa fyrir lítilfjörlega og fámenna byggð.
„Ég hef alltaf heillast af þorpum á landsbyggðinni,
sérstaklega stöðum þar sem hrikaleg náttúran rammar
inn drauma genginna kynslóða: Stöðum sem við borg-
arbúar köllum stundum krummaskuð í hroka okkar og
þröngsýni – en þorpin okkar eru þjóðargersemi.“
Og hann bætir við: „Nú standa mörg þeirra auð og
yfirgefin, fáir sjást á ferli og mávagarg hefur komið í
stað iðandi bæjarlífs“ og fyrir ljósmyndara séu þorpin
myndrænn fjársjóður sem tengir saman nútíð og fortíð.
Krummaskuð Braga Þórs
Jósefssonar í Ramskram
Ljósmynd/Bragi Þór Jósefsson
Krummaskuð Hluti verks á sýningu Braga Þórs. Hann
segir þorp landsins vera myndrænan fjársjóð.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Bjarni Ómar Haraldsson, eðaBjarni Ómar eins og hannkallar sig, er tónlistar-
maður sem fellur kirfilega í flokk
íslenskra alþýðu/popptónlistar-
manna sem iðka sína sköpun svona
tiltölulega utan alfaraleiðar. Síðan
ég byrjaði að skrifa um tónlist fyrir
Morgunblaðið fyrir meira en tutt-
ugu árum hefur plötum sem þess-
um skolað til mín reglubundið.
Þetta eru iðulega karlmenn á
miðjum aldri, sumir með einhvern
tónlistarlegan bakgrunn (voru
kannski í hljómsveitum á unglings-
aldri) en sinna tónlistargyðjunni í
dag meðfram öðrum störfum. Það
sem er hvað áhugaverðast við þess-
ar plötur er að oftar en ekki fylgir
þeim heilnæmur heiðarleiki og viss
sköpunargleði, sem er a.m.k. með
öðrum hætti en það sem maður
nemur frá tónlistarmönnum sem
eru atvinnumenn eða eru að keyra
eitthvað sem hægt væri að kalla
feril. Það er engu að tapa, allt að
vinna, og á því græðir maður sem
hlustandi, svona oftast nær a.m.k.
En hver er þessi Bjarni? Hann
fæddist á Akureyri en bjó svo á
Raufarhöfn óslitið til ársins 2003
þegar hann fluttist til Hólmavíkur
(þess má geta að Raufarhafnar-
skáldið, Jónas Friðrik, á texta á
plötunni sem hér er til umfjöll-
unar). Í dag býr hann á mölinni og
starfar hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga. Bjarni hefur síðan á
unglingsárum komið fram sem
Vefst ekki tunga um tönn
Alþýðutónlist Tónlistarmaðurinn Bjarni Ómar og uppbyggingin allt í kring um hann.
trúbador og söngvari, og hefur ver-
ið gítarleikari hljómsveita eins og
Kokkteil, Antik, Sífrera og Nostal,
auk þess að taka þátt í ýmiss konar
tónlistarverkefnum. Hann starfaði
m.a. sem tónlistarkennari um skeið.
Fyrir um þrjátíu árum setti hann
sér það markmið að gefa út plötu
með frumsömdu efni á tíu ára fresti
og kom fyrsta plata hans, Annað líf,
út árið 1998.
Fyrirheit hét
næsta breiðskífa
og kom út 2008
og nú er komið að
þeirri þriðju en
hún er gefin út á
geisladiska- og
vínylplötuformi
(fyrri plötur má
m.a. nálgast á
Spotify).
Engir auk-
visar koma að sjálfri plötugerðinni.
Vignir Snær Vigfússon annaðist
upptökustjórn og auk Bjarna og
Vignis leika á henni Þorvaldur Þór
Þorvaldsson á trommur, Helgi
Reynir Jónsson á hljómborð og Ró-
bert Þórhallsson á bassa. Anna Sig-
ríður Snorradóttir og Ragna Björg
Ársælsdóttir annast röddun, Troy
Engle og Daniel Flam leika á ýmis
strengja- og málmblásturshljóðfæri
og þá er hér strengjasveit sem ber
nafnið Supreme track. Tónlistin er
nokk hefðbundið popprokk. Maður
heyrir í Bubba, Bjarna Tryggva og
fleiri alþýðuskáldum íslenskrar
dægurtónlistarsögu. Lögin eru mis-
spennandi, „Þegar draumarnir
svíkja“ er gott, með melankólískum
brag og vel sömdu viðlagi. „Ég ligg
á leiði“ er eitt af þessum lögum sem
lýtur engum lögmálum en þar leik-
ur blásturssveitin skemmtilega
rullu, minnir helst á mexíkóska
mariachi sveit. Á milli eru svo lög
sem sigla um hefðbundnari mið, en
það er aldrei svo að Bjarni detti of-
an í einhvern slappleika. Laga-
smíðataugin er í honum. Undir-
leikur er fagmannlegur í alla staði
og skyggir aldrei á tónsmíðarnar.
Það er helst að
söngrödd Bjarna
sé til trafala,
raddsterkur er
hann ekki og það
veldur misfellum
hér og hvar. Á
móti liggur rödd-
in nokkuð hátt og
það er knýjandi
þrá í henni, sem
Bjarni nær að
hagnýta. Ástríð-
una vantar ekki, ég þarf varla að
taka það fram, og hann brúkar
hana eins vel og hægt er. Vel er í
lagt á nýju plötunni, hér áður fyrr
fékk maður stundum ræfilslega
geisladiska frá viðlíka listamönnum
en Bjarni Ómar sparar ekkert við
sig og fylgir verkefninu rækilega
úr hlaði, eins og maður hefur orðið
var við á samfélagsmiðlum. Auk
þess mun hann halda tónleika fyrir
sunnan sem norðan til að fylgja
henni eftir. M.a. gefur hann plötuna
út sem forláta vínylplötu, og það
tvöfalda. Umslagið er „opnanlegt“
(„gatefold“) og pappinn þykkur.
Um þrjú lög eru á hverri hlið, og
skurður því djúpur og víður, sem
magnar upp góðan hljóm. Þykktin
er þá góð, slagar upp í 180 g hið
minnsta.
» „Ég ligg á leiði“ ereitt af þessum lögum
sem lúta engum lög-
málum en þar leikur
blásturssveitin
skemmtilega rullu,
minnir helst á mexí-
kóska mariachi sveit.
Tónlistarmaðurinn Bjarni Ómar Haraldsson gaf á dögunum út plötuna
Enginn vafi. Innihaldið er alíslensk popptónlist eins og hún gerist sönnust.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn
Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn
Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 60.sýn
Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 61.sýn
Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn Sun 26/5 kl. 13:00 Auka
Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn Sun 2/6 kl. 13:00 Auka
Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn Lau 8/6 kl. 13:00 Auka
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn Lau 4/5 kl. 19:30 22.sýn
Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn Lau 13/4 kl. 19:30 21.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fös 3/5 kl. 19:30 9.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn
Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn
Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn
Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn Lau 13/4 kl. 17:00 27.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas.
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn
Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas.
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Loddarinn (Stóra Sviðið)
Lau 27/4 kl. 19:30 Frums. Fim 2/5 kl. 19:30 3.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Þri 30/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 10/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn
Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00
Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið)
Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn
Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn
Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 21/3 kl. 21:00 Fös 22/3 kl. 22:00 Lau 23/3 kl. 22:00
Fös 22/3 kl. 19:30 Lau 23/3 kl. 19:30 Fim 28/3 kl. 21:00
Di lileikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s
Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s
Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Mið 15/5 kl. 19:00 31. s
Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Fim 16/5 kl. 19:00 32. s
Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Frumsýning 15. mars.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Lau 16/3 kl. 20:00 53. s Sun 17/3 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Lau 23/3 kl. 20:00 44. s Lau 30/3 kl. 20:00 45. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Lau 16/3 kl. 20:00 5. s Fös 22/3 kl. 20:00 6. s Fim 28/3 kl. 20:00 7. s
Hvað varð um konuna?
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s
Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s
Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s
Alltof mikið testósterón
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!