Morgunblaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 2
Samþykkt var bókun í stjórn dóm-
stólasýslunnar í gær þar sem þess er
farið á leit við dómsmálaráðuneytið
að það hlutist til um lagabreytingu
um að heimilt verði að fjölga dóm-
urum við Landsrétt. Var þetta sam-
þykkt í tilefni af dómi Mannrétt-
indadómstóls Evrópu frá 12. mars
sl.
Í fréttatilkynningu stjórnarinnar
segir að eftir að dómur Mannrétt-
indadómstólsins féll hafi dómstóla-
sýslan haft til meðferðar viðbrögð
við dóminum. „Í þeim efnum hefur
formaður stjórnar dómstólasýslunn-
ar og framkvæmdastjóri átt ítarleg-
ar viðræður við fulltrúa dómsmála-
ráðuneytisins og nokkra af
dómurum við Landsrétt, auk þess
sem haft hefur verið samráð við rétt-
arfarsnefnd,“ segir í tilkynningunni.
Mælst er til þess að dómurum verði
fjölgað eins og fyrr segir og er þá
tekið mið af því að fjórir dómarar við
réttinn geti að óbreyttu ekki tekið
þátt í dómstörfum. Án þess að gripið
verði til þessa úrræðis muni álagið
við réttinn aukast verulega með til-
heyrandi drætti á meðferð mála.
„Áður en endanleg ákvörðun
verður tekin um af Íslands hálfu að
óska eftir að málinu verði vísað til
yfirdeildar Mannréttindadómstóls-
ins leggur dómstólasýslan jafnframt
ríka áherslu á að áhrif slíks málskots
verði könnuð. Í því sambandi er mik-
ilvægt að hafa í huga þá óvissu sem
Landsréttur hefur mátt búa við allt
frá því að hann tók til starfa 1. jan-
úar 2018. Einnig telur dómstólasýsl-
an mikilvægt að traustum stoðum
verði skotið undir Landsrétt, svo
fljótt sem verða má, í stað þess að
lagalegur grundvöllur hans verði
áfram dreginn í efa. Dómstólasýslan
er reiðubúin til samráðs og að veita
alla aðstoð í þessu sambandi,“ segir í
tilkynningu dómstólasýslunnar.
Vilja að dómurunum við
Landsrétt verði fjölgað
Dómstólasýslan fjallar um viðbrögð við dómi MDE
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019
26. SEPTEMBER – 5. OKTÓBER
EGYPTALAND
KAÍRÓ OG SIGLING Á NÍL
VERÐ FRÁ 299.900 KR.
NÁNAR Á UU.IS
KRISTJÁN STEINSSON
FARARSTJÓRI
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
FYRRI
FERÐIN
SELDIST
UPP
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Dómnefnd Blaðamannverðlaunanna
hefur birt tilnefningar sínar til
blaðamannaverðlauna fyrir árið
2018. Greint verður frá vinnings-
höfum við hátíðlega athöfn í Pressu-
klúbbnum, félagsheimili blaða-
manna í Síðumúla 23, næstkomandi
föstudag.
Gætt að geðheilbrigði, greina-
flokkur Guðrúnar Hálfdánardóttur,
blaðamanns á mbl.is, er tilnefndur
sem „Umfjöllun ársins“. Þar fjallaði
Guðrún með ítarlegum og vönduðum
hætti um úrræði og úrræðaleysi
þegar kemur að því að hjálpa fólki
sem glímir við geðsjúkdóma og/eða
fíkn. Hægt er að nálgast greina-
flokkinn á mbl.is.
Aðrar tilnefn-
ingar fyrir „Um-
fjöllun ársins“ fá
Aðalheiður
Ámundadóttir á
Fréttablaðinu og
Hólmfríður
Helga Sigurðar-
dóttir á Stund-
inni.
Tilnefnd fyrir
„Viðtal ársins“
eru: Jóhann Páll Jóhannsson, Stund-
inni, fyrir viðtal við Báru Halldórs-
dóttur, Milla Ósk Magnúsdóttir,
RÚV, fyrir viðtal við hjónin Stefán
Þór Gunnarsson og Elísu Rós Jóns-
dóttur, Ragnheiður Linnet, Mann-
lífi, fyrir viðtal við Merhawit Barya-
mikael Tesfaslase, ekkju plastbarka-
þegans Andemariam Beyene.
Fyrir „Rannsóknarblaðamennsku
ársins“ eru tilnefndir Freyr Rögn-
valdsson og Steindór Grétar Jóns-
son, Stundinni, Helgi Seljan á RÚV
og Ingólfur Bjarni Sigfússon á RÚV.
Tilnefnd til Blaðamannaverðlauna
ársins eru Sigríður Halldórsdóttir á
RÚV, fyrir umfjöllun um óábyrga
notkun plasts, Viktoría Her-
mannsdóttir og Þórhildur Ólafs-
dóttir á RÚV, fyrir útvarpsþáttaröð-
ina Kverkatak, sem fjallaði um
heimilisofbeldi, og Þórður Snær Júl-
íusson, Kjarnanum, fyrir bókina
Kaupthinking.
Tilnefningar til blaðamanna-
verðlauna fyrir árið 2018 birtar
Greinar Guðrúnar Hálfdánardóttur á mbl.is tilnefndar
Guðrún
Hálfdánardóttir
Ingimundur Sig-
urpálsson, for-
stjóri Íslands-
pósts, hefur sagt
starfi sínu lausu
og tilkynnti það á
aðalfundi félags-
ins í gær. Í yfir-
lýsingu segir
hann að breyta
þurfi póstþjón-
ustu vegna nýrra
laga um póstþjónustu sem áformað
sé að taki gildi í byrjun næsta árs
Mikilvægt sé að nýr forstjóri móti
breytingar í starfseminni sem nýjum
lögum fylgi og hafi þá jafnframt
möguleika á að fylgja þeim eftir.
Ráðgert sé til dæmis að afnema
einkarétt ríkisins á bréfadreifingu.
Mikilvægt sé að tryggja grundvöll
rekstrar fyrirtækisins með póstlög-
unum nýju.
Rekstrartekjur Íslandspósts í
fyrra voru 8.700 milljónir. kr. sem er
um 5% lækkun frá árinu áður. Tap-
rekstur ársins var 293 millj. kr. sam-
anborið við 216 millj. kr. hagnað árið
2017.
Handbært fé frá rekstri Íslands-
pósts var 135 millj. kr. samanborið
við 582 millj. kr. árið 2017. Árituðum
bréfum fækkaði í fyrra um 14% milli
ára, en pakkasendingum innanlands
og frá útlöndum fjölgaði um 7-8%.
Ingimundur
hættir hjá
Póstinum
Tap og bréfasend-
ingunum fækkar
Ingimundur
Sigurpálsson
Fjöldi ungs fólks fór í gær frá Hallgrímskirkju í Reykjavík á Austurvöll og
lét þar í ljósi kröfur sínar til stjórnvalda um aðgerðir í loftslagsmálum.
Þetta var í fjórða sinn sem efnt var til loftslagsverkfalls á Íslandi, en það
helst í hendur við slíkar aðgerðir sem nú er efnt til víða erlendis. Aðstand-
endur aðgerðanna í Reykjavík segja að nú þegar þurfi að grípa til róttækra
aðgerða í loftslagsmálum og verja meiri fjármunum til málaflokksins. ef
halda eigi hnattrænni hlýnun innan við 1,5°C. Ef ekki, fari illa og þá þurfi
komandi kynslóðir – fólkið sem nú mótmælir – að taka afleiðingunum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Haldið verði aftur af hnattrænni hlýnun
Verkföll og aðgerðir ungs fólks vegna loftslagsmála halda áfram
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir tók í
gær við lyklum að dómsmálaráðu-
neyti, en henni hefur verið falið að
gegna tímabundið embætti dóms-
málaráðherra, sem Sigríður Á.
Andersen vék úr nú í vikunni. Þór-
dís vildi ekki tjá sig við lyklaskipt-
in, enda ætti hún eftir að funda með
ráðuneytisfólki um verkefnin sem
eru framundan.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýr ráðherra tók við lyklum