Morgunblaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019 Njóttu þess að hlakka til Afbragðs þjónusta og frábær verð Lúxuslíf með VITA 5 stjörnu hótel á Bodrum 2. júní, 8 nætur – hálft fæði frá169.900 kr. á mann miðað við tvo í tvíbýli Salmakis Resort ★★★★★ „Við gerum okkar plön með bankanum“ Veður víða um heim 15.3., kl. 18.00 Reykjavík 2 alskýjað Hólar í Dýrafirði 3 alskýjað Akureyri 3 alskýjað Egilsstaðir 2 skýjað Vatnsskarðshólar 2 slydda Nuuk -9 skýjað Þórshöfn 4 skúrir Ósló 1 skýjað Kaupmannahöfn 4 skúrir Stokkhólmur 3 rigning Helsinki 1 rigning Lúxemborg 10 súld Brussel 11 súld Dublin 9 skúrir Glasgow 6 rigning London 12 skúrir París 13 súld Amsterdam 10 skúrir Hamborg 8 skýjað Berlín 8 skýjað Vín 8 rigning Moskva 1 léttskýjað Algarve 21 heiðskírt Madríd 22 heiðskírt Barcelona 17 heiðskírt Mallorca 21 heiðskírt Róm 15 heiðskírt Aþena 10 rigning Winnipeg -4 skýjað Montreal 8 skýjað New York 19 alskýjað Chicago 1 rigning  16. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:43 19:31 ÍSAFJÖRÐUR 7:49 19:35 SIGLUFJÖRÐUR 7:32 19:18 DJÚPIVOGUR 7:13 18:59 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag Suðvestlæg átt og snjókoma eða slydda með köflum, en þurrt NA-lands. Á mánudag Hægt vaxandi suðvestanátt, 8-13 m/s síðdegis. Talsverð rigning, en þurrt NA-til. Austlæg átt, 5-13 m/s, hvassast austantil, en 8-15 við suðausturströndina. Slydda eða snjókoma með köflum austanlands en stöku él eða skúrir í öðrum landshlutum. Léttir víða til í kvöld. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Við erum ekki að gagnrýna daglega þjónustu sem Útlendingastofnun veitir heldur erum við að gagnrýna fyrirkomulagið við að koma úrræð- um á fót,“ segir Halldóra Fríða Þor- valdsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjanesbæjar, en velferðarráðið boðaði fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga á fund ráðsins. Vel- ferðarráð sendi einnig frá sér álykt- un þar sem fram kemur að það telji fyrirkomulagið sem ríkið viðhefur í dag við að koma á fót úrræðum í þjónustu við umsækjendur um al- þjóðlega vernd óásættanlegt og það skorti verulega á samráð við sveitar- félögin. Að sögn Halldóru er Reykjanes- bær með samning um að þjónusta 70 umsækjendur sem sótt hafa um al- þjóðlega vernd. Það geri sveitarfé- lagið vel að eigin mati og þeirra sem nýta sér þjónustuna. „Það eru aðrir 90 einstaklingar sem búa í Reykjanesbæ sem fá þjón- ustu frá Útlendingastofnun. Við vilj- um helst að ríki og sveitarfélög fari að tala saman af alvöru og fari í stefnumótun um þessi málefni til að fá fleiri sveitarfélög til þess að taka þátt,“ segir Halldóra. Allir fá sömu þjónustu Þórhildur Hagalín, upplýsinga- fullrúi Útlendingastofnunar, segir rétt að Útlendingastofnun sjái um málefni 90 umsækjenda um alþjóð- lega vernd sem búi í Reykjanesbæ. Upphaflega hafi verið samið við Reykjanesbæ en síðar hafi bæst við samningar við Hafnarfjarðarbæ og Reykjavík. „Þessi þrjú sveitarfélög þjónusta 330 umsækjendur. Vegna þess fjölda umsækjenda sem komið hafa til landsins þjónustar Útlendinga- stofnun nú 270 manns og eru íbúar Reykjanesbæjar inni í þeirri tölu,“ segir Þórhildur sem bendir á að þeir einstaklingar sem Útlendingastofn- un þjóni fái sömu þjónustu og veitt er í áðurnefndum sveitarfélögum. Þórhildur segir fleiri umsækjendur hafa sótt um á þessu ári en á sama tíma í fyrra. Í lok febrúar voru um- sækjendur orðnir 146 og 154 mál höfðu fengið afgreiðslu. Vilja samráð um þjónustu við umsækjendur Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Dóttir okkar fékk loksins nafn sitt samþykkt. Þetta er mikill sigur fyrir okkur, enda var ekki bara úrskurður mannanafnanefndar felldur úr gildi heldur er henni nú einnig leyft að bera nafnið sitt,“ segir Nanna Þórdís Árnadóttir, móðir stúlku á sjötta ári, Alexar Emmu Ómarsdóttur, í sam- tali við Morgunblaðið, en það var Héraðsdómur Reykjavíkur sem felldi úrskurð nefndarinnar úr gildi. Þegar Morgunblaðið náði tali af Nönnu Þórdísi um miðjan dag í gær var hún nýbúin að fá tíðindin. Gleðin var því mikil hjá fjölskyldunni. „Núna getur hún loksins fengið vegabréf og við farið til útlanda í langþráð sumarfrí,“ segir Nanna Þórdís og hlær við, en að sögn henn- ar mun fjölskyldan sækja annað hvort Danmörku eða Svíþjóð heim á næstunni. „Okkur langar að fara eitthvað kósí. Svo verður Alex Emma sex ára í ágúst og verður komin með nafn þegar hún byrjar í skóla – sem er alveg frábært!“ Hefð kom í veg fyrir nafnið Morgunblaðið ræddi við Nönnu Þórdísi í febrúar 2018 þar sem farið var yfir málið. Var dóttir hennar þá skráð sem Stúlka Ómarsdóttir í Þjóð- skrá þar sem mannanafnanefnd vildi ekki samþykkja eiginnafnið Alex sem kvenmannsnafn. Höfðu foreldrar Alexar Emmu, þau Nanna Þórdís og Ómar Örn Hauksson, þá tvisvar sinn- um fengið neitun frá mannanafna- nefnd vegna nafnsins. Í sama viðtali benti Nanna Þórdís á að í öðrum löndum væri Alex bæði karl- og kvenmannsnafn auk þess sem margar konur sem bera nafnið Alex- andra hér á landi væru kallaðar Alex. Þá fellur nafnið einnig að íslensku málkerfi, en vegna hefðar sagði mannanafnanefnd það ótækt fyrir stúlkur að bera þetta eiginnafn. Fær nú loksins að heita Alex Emma  Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti úrskurð mannanafnanefndar í máli ungrar stúlku  Þetta er mikill sigur fyrir okkur, segir móðir stúlkunnar  Fær nú vegabréf og fjölskyldan stefnir á frí í útlöndum Morgunblaðið/Þorkell Héraðsdómur Alex Emma á sjötta ári fékk nafn sitt samþykkt þar í gær. Úrslit kosninga til stjórnar VR lágu fyrir í gær en kosið var í sjö sæti til tveggja ára. Kosning- unum lauk kl. tólf í gær. Alls greiddu 2.806 atkvæði og voru 35.614 á kjörskrá. Kosningaþátt- taka var því 7,88%, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá VR. Þau sem hlutu kjör voru: Svanhildur Ólöf Þórsteins- dóttir, Ólafur Reimar Gunnars- son, Selma Árnadóttir, Sigurður Sigfússon, Harpa Sævarsdóttir, Björn Kristjánsson og Helga Ing- ólfsdóttir. 7,88% kusu til stjórnar VR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.