Morgunblaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019 Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Ársfund Alþjóða-viðskiptaráðsins í Davosí Sviss í janúar sækjajafnan helstu frægðar- menn úr hópi forstjóra og stjórn- málaleiðtoga heimsins og ræða þar spaklega um efnahagsmál og peninga. En á síðasta fundi nú í janúar féllu þeir í skuggann fyrir Gretu Thunberg, 16 ára gamalli sænskri skólastúlku, sem sat, klædd bleikum buxum og með fléttur í hárinu milli jakkafata- klæddra karla uppi á sviði og þrumaði yfir salnum. „Húsið okkar brennur. Ég vil ekki að þið séuð vongóð, ég vil að þið verðið skelfingu lostin. Og síð- an vil ég að þið grípið til aðgerða,“ sagði Thunberg sem hefur vakið heimsathygli fyrir baráttu sína fyrir því, að brugðist verði án taf- ar við loftslagsbreytingum sem ógni framtíð jarðarbúa. Í vikunni tilnefndi hópur norska þingmanna Thunberg til friðarverðlauna Nób- els og einn þeirra, Freddy Andre Ovstegard, sagði að Thunberg hefði hrundið af stað fjöldahreyf- ingu, sem væri afar þýðingarmikið framlag til friðarmála. „Því ef við bregðumst ekki við loftslagsbreyt- ingunum munu þær valda stríðum, átökum og flóttamannastraumi,“ sagði hann. Mótmælastaða við þinghúsið Thunberg hóf baráttu sína á síðasta árið þegar hún tók sér stöðu fyrir utan sænska þinghúsið í Stokkhólmi með handskrifað spjald þar sem stóð: Skólaverkfall fyrir loftslagið. Á hverjum degi, frá 20. ágúst til 9. september, þeg- ar þingkosningar voru haldnar í Svíþjóð, stóð hún þar með skiltið sitt. Þessi mótmælastaða vakti at- hygli sænskra fjölmiðla og brátt vissu allir Svíar, að ung stúlka neitaði að mæta í skólann og vildi heldur berjast fyrir umhverfið. Skiptar skoðanir voru um þetta framtak, sumir sögðu, að skikka ætti hana til að fara í skólann, það er jú skólaskylda í Svíþjóð. En Greta hélt verkfallinu áfram, fleiri ungmenni bættust í hópinn framan við sænska þinghúsið og barátta þeirra tók flug á sam- skiptamiðum og barst til fleiri landa. Tunberg var boðið að sækja TEDxStockholm-ráðstefnuna í Svíþjóð í nóvember og loftslags- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Katowice í Póllandi í desember, síðan lá leiðin til Davos. Og í gær skrópuðu ungmenni um allan heim, þar á meðal hér á landi, í skólanum um hádegisbil og komu saman til að krefjast aðgerða í loftslagsmálum. Langt frá staðalímyndinni Þessi feimnislega stúlka er óralangt frá staðalímynd alþjóð- legra baráttumanna á borð við Bono og Jane Goodall, sem hún hefur þó verið borin saman við. Greta fæddist 3. janúar 2003. Móðir hennar, Malena Ernman, er þekkt óperusöngkona og tók m.a. þátt í Eurovision fyrir hönd Svía árið 2009. Faðir hennar, Svante Thunberg, er leikari. Afi hennar Olof Thunberg, var einnig þekktur leikari og leikstjóri. Fram hefur komið að Greta hefur verið greind með Asperger- heilkenni, áráttuhegðun og fleiri persónuleikaraskanir. Faðir henn- ar sagði í viðtali við danska ríkis- útvarpið í vetur, að Greta hefði lengi haft miklar áhyggjur af loftslags- málum og þjáðst af þunglyndi og ekki getað sótt skóla í heilt ár. En eftir að hún hóf baráttu sína liði henni betur. Í bók, sem Malena Ernman sendi frá sér í fyrra um fjölskyld- una lýsti hún því hvernig Greta hefði fengið þau til að hætta að fljúga, til að minnka kolefnis- sporið, og taka upp vegan-lífsstíl. Sjálf segist Greta vilja haga sér í samræmi við þann boðskap sem hún flytur. Í Davos sagði hún við blaða- menn, að henni þætti óþægilegt að tala við fólk. „Ég tala bara þegar ég þarf nauðsynlega að tala.“ En hún hefur náð eyrum margra og segist telja að ástæðan sé sú að hún er barn. „Þegar ég segi að þið hafið stolið framtíð minni og komandi kynslóða held ég að fullorðna fólk- ið skammist sín.“ „Ég vil að þið grípið til aðgerða“ Sextán ára gömul sænsk skólastúlka hefur hrund- ið af stað heimshreyfingu til að berjast fyrir aðgerð- um í loftslagsmálum. „Húsið okkar brennur,“ segir hún og milljónir ungmenna um allan heim taka undir. AFP Mótmæli Greta Thunberg hefur farið víða um Evrópu og ávarpað mótmælafundi. Hér er hún á fundi við ráðhúsið í Hamborg í Þýskalandi í byrjun mars. Í Davos Greta Thunberg flytur ávarp sitt á ársfundi Alþjóðaviðskiptaráðs- ins í janúar þar sem hún flutti fulltrúum stórfyrirtækja boðskap sinn. Jörðin þarfnast okkar Ungmenni á mótmælafundi í Aþenu í gær. AFP „Ég held að fullorðna fólkið skammist sín.“ Ég verð að geta unnið og lifað. Laus við verki. Fyrir góða líðan nota ég Gold, Active og gelið. Erna Geirlaug Árnadóttir – innanhússarkitekt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.