Morgunblaðið - 21.03.2019, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 1. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 68. tölublað 107. árgangur
EVRÓPA
ÖLL ER
UNDIR SÚPERSKÖRP STÚDÍA
ÍSLENSKUR
IÐNAÐUR Í
BRENNIDEPLI
55 16 SÍÐNA SÉRBLAÐARCTIC TRUCKS 28
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
360° snúningur | Innbyggður fótaskemill
Hallanlegt bak | Stillanlegur höfuðpúðiWizar
HÆGINDASTÓLL
Fyrir lífsins ljúfu stundir.
Efni: Leður/tau
20% AFSLÁTTUR
Verð: 159.920
Fullt verð: 199.900
Sólarhringsverkföll ríflega tvö þús-
und félaga í VR og Eflingar sem
beinast að 40 hótelum og hópbif-
reiðafyrirtækjum skella á að
óbreyttu á miðnætti í kvöld. Sátta-
fundur hefur verið boðaður í kjara-
deilu félaganna og SA kl. 10 í dag.
Vaxandi óvissa er í kjaradeilunum
eftir að Guðbrandur Einarsson, for-
maður Landssambands íslenskra
verslunarmanna, sagði af sér í gær
og viðræðum sambandsins við SA
var slitið. Guðbrandur segir að
fulltrúar VR við samningsgerðina
hafi horft til samstöðu með öðrum
verkalýðsfélögum í stað þess að
reyna til þrautar að ljúka samning-
um, en góður gangur hafi verið í
samningaviðræðum. „Ég álít að
þetta bandalag fjórmenninganna sé
það sterkt að það sé á þessum tíma-
punkti ekki hægt að rjúfa það. Ég
tel að það sem var á borðinu í síð-
ustu viku sé leið til lausnar. Það að
vilja ekki fara þá leið sýnir að menn
eru tilbúnir að beita öðrum vinnu-
brögðum til að ná því fram sem þeir
telja ásættanlegt,“ segir hann. „Ég
er að upplifa eitthvað nýtt þessa
dagana. Ég hef ekki vanist því að
landssambandið og stærsta félagið
fari sitt í hvora áttina í samnings-
gerð.“
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson,
dósent við Háskóla Íslands, segir
forvitnilegt að sjá þann klofning sem
orðið hafi innan verkalýðshreyf-
ingarinnar, þar sem fræðin séu á því
að einhuga og samstiga hreyfing
eigi betra með að ná árangri. Gylfi
bætir við að samstarf verkalýðs-
félaganna fjögurra hafi í raun riðlað
fyrri háttum, þar sem Flóabanda-
lagið hafi dregið vagninn og hin fé-
lögin svo fylgt á eftir. „Þetta er allt
öðruvísi bandalag,“ segir Gylfi og
bendir á að félögin fjögur séu ólík og
sameiginlegu snertifletirnir séu því í
grunnhagsmunum eins og hús-
næðismálum og verðtryggingu.
Verkföll að skella á í kvöld
Viðræðum LÍV og SA slitið Fráfarandi formaður LÍV ómyrkur í máli
Sáttafundur í kjaradeilu VR, Eflingar, VLFG og VLFA við SA kl 10 í dag
MSegir fulltrúa VR hafa … »6
Þessir fallegu hestar létu útsynninginn í gær
ekki á sig fá heldur stóðu á beit og biðu betri
tíðar á meðan útsýnið í Mosfellsdalnum kallaði.
Enda styttist í sumarið og vonast eflaust bæði
hestar og menn eftir að það verði bæði gróður-
sælt og að veðurblíðan muni leika við landið.
Íslensk sumartíð hefur þó ekki alltaf staðist þær
væntingar og er þá um fátt annað að ræða en að
sitja við sinn keip og halda áfram að bíta.
Morgunblaðið/Eggert
Útsynningurinn bítur ekki á hesta á beit
„Það er auðvitað markmiðið að fara
með þau mál og mál þeim tengd fyrir
þann frest,“ sagði Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra við
mbl.is í gærkvöldi spurður hvort
ríkisstjórnin hygðist leggja fram
frumvarp um þriðja orkupakka Evr-
ópusambandsins áður en frestur til
þess rynni út 30. mars næstkomandi.
Þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna
funduðu í ráðherrabústaðnum í gær
þar sem þriðji orkupakkinn og tengd
mál voru rædd og var það framhald af
fundi flokkanna um sama mál í
nóvember, að sögn ráðherrans. Sagði
hann að hann og Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir iðnaðarráðherra hefðu
farið yfir þessi mál með þingflokkun-
um þremur.
Spurður hvað í þeim fælist sagðist
hann ekki geta upplýst á þessu stigi
nákvæmlega hvert eðli þeirra mála
væri. „Við tókum þessa gagnrýni sem
kom fram mjög alvarlega og við höf-
um verið að nýta tímann til þess að
skoða þau mál og meta það. Á þessu
stigi er ekki mikið meira um það að
segja, annað en það að við frestuðum
málinu og höfum verið að skoða það
ofan í kjölinn, meðal annars með þeim
sem hafa gagnrýnt það harðast.“
Orkupakk-
inn fyrir
lok mars
Þingflokkar fund-
uðu saman um málið
Fyrirtækið
Arctic Trucks
stefnir á að verða
leiðandi í breyt-
ingum á fjór-
hjóladrifnum bíl-
um í Evrópu á
næsta ári.
Dótturfélagið í
Noregi, Arctic
Trucks Norge,
flutti nýverið í
nýjar höfuðstöðvar í Solbergsmoen.
Þegar Morgunblaðið kom þar við
síðasta föstudag var tæp vika frá
því höfuðstöðvarnar voru vígðar.
Örn Thomsen, framkvæmda-
stjóri Arctic Trucks Norge, segir
nýju höfuðstöðvarnar „stærstu mið-
stöð fyrir fjórhjóladrifna bíla í
Skandinavíu“. Félagið sé farið að
breyta Toyota Hilux-pallbílum í
rafbíla. baldura@mbl.is »28-29
Hyggjast vera leið-
andi í Evrópu 2020
Örn
Thomsen