Morgunblaðið - 21.03.2019, Side 16

Morgunblaðið - 21.03.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019 Voltaren Gel er bæði verkjastilland og bólgueyðandi Vöðva eða liðverkir? Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. i va dlega upplýsingar á umbúðum . 15% afslátturaf 100g og 150gVoltaren Gel SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Þyrluforeldrar. Excel-foreldrar. Bómullarforeldrar. Þetta eru heiti yfir nútíma uppeldishætti sem felast m.a. í að foreldrar skipuleggja líf barna sinna í þaula. Nýjasta útgáf- an er snjóruðningsforeldrar, sem líka eru kallaðir sláttuvélaforeldrar eða jarðýtufor- eldrar. Byrjað var að tala um þyrlufor- eldra í kringum 1980 þegar upp- eldisfræðingar fóru að merkja breytingar á upp- eldisaðferðum foreldra. Þyrlu- foreldri hagar sér eins og eftirlits- þyrla sem sveimar yfir athöfnum barns síns og er með nefið ofan í öll- um samskiptum þess, bæði við börn og fullorðna. Afbrigði af þyrlufor- eldrinu er ákafaforeldrið (intensive), sem auk þess að ástunda linnulaust eftirlit með barninu sínu skipulegg- ur frítíma þess í þaula, að því er segir í grein sem birtist í The New York Times, NYT, um síðustu helgi þar sem fjallað er um breytingar á foreldrahlutverkinu á undanförnum áratugum undir fyrirsögninni „Hvernig foreldrar eru að ræna full- orðinsárunum af börnunum sínum“. „Þyrlu- og áköfu foreldrarnir til- heyra 20. öldinni,“ segir í greininni. „Megum við kynna snjóruðnings- tækin til sögunnar! Foreldrana sem ryðja öllum hindrunum úr vegi barna sinna þannig að þau þurfi hvorki að upplifa mistök, vonbrigði né að tækifæri gangi þeim úr greipum.“ Ýmsar birtingarmyndir Ýktasta afbrigði þess að vera snjóruðningsforeldri felur í sér að fremja glæpsamlegt athæfi, eins og nýlegt dæmi sýnir þegar upp komst um auðugt og valdamikið fólk í Bandaríkjunum. Meðal þeirra voru frægir leikarar, sem greiddu stórfé í mútur til að koma börnum sínum inn í eftirsóttustu háskóla heims. Vissulega á sumt af því sem fjallað er um í áðurnefndri grein NYT fyrst og fremst við um banda- rískt samfélag, þar sem sums staðar tíðkast að foreldrar skrái börn sín á biðlista fyrir eftirsóttustu ung- barnaleikskólanna löngu áður en þau fæðast og gríðarleg samkeppni er um að komast inn í þá háskóla sem taldir eru öðrum betri. En lík- lega eiga ýmsar aðrar birtingar- myndir snjóruðningsforeldranna við hér á landi, eins og t.d. það að segja kennara barnsins að það hafi verið veikt þegar það nennir ekki í skól- ann eða hefur svikist um að læra heima og að ætla sér að leysa úr öll- um ágreiningsmálum barnsins fyrir þess hönd. „Háskólamútumálið varpar dapurlegu ljósi á það sem á síðustu árum er farið að teljast sem eðli- legir uppeldishættir. Uppeldi þar sem aðalinntakið er að barnið njóti alls hins besta, að það njóti allra bestu kostanna sem lífið hefur upp á að bjóða án þess að leiða hugann að því hversu slæm áhrif það getur haft á fólk að vera sífellt í slíkri stöðu,“ segir Madeline Levine, bandarískur sálfræðingur sem hefur skrifað vinsælar uppeldisbækur, í samtali við NYT. Hætti í háskóla út af rottu Hún segir að til sín leiti ung- menni sem hafi flutt að heiman til að fara í háskólanám en gefist upp vegna þess að þau búi ekki yfir þeirri lágmarksfærni sem þarf til að geta lifað sjálfstæðu lífi og nefnir dæmi: Einn hætti í háskóla vegna þess að það var rotta á heimavist- inni. Aðrir hætta vegna þess að þeim líkar ekki við herbergisfélag- ann sinn og kunna ekki að leysa úr samskiptavanda. Julie Lythcott-Haims, fyrrver- andi deildarforseti við Stanford- háskóla, segir í samtali við NYT að algengt sé að háskólanemendur reiði sig á að foreldrar þeirra skipu- leggi félagslíf þeirra og að þeir leggi fram kvartanir fyrir þeirra hönd bæði í skóla og í vinnu. Hún segir að það dragi ekki úr þessari hegðun foreldra eftir því sem afkvæmið verður eldra. „Ef þau koma svona fram við barnið sitt þegar það er í mennta- skóla, þá munu þau einnig gera það þegar það er komið í háskóla. Og líka þegar það er komið út á vinnu- markaðinn. Foreldrarnir hafa tekið að sér hlutverk sem í felst að sjá um allt fyrir barnið sitt og þegar það verður eldra og þarf að fást við fleiri og flóknari verkefni, þá eykst þetta hlutverk foreldranna í samræmi við það.“ Sjá um fullorðin börn sín Í grein NYT er einnig rætt við Carolyn O’Laughlin, fyrrverandi framkvæmdastjóra heimavista Col- umbia og Sarah Lawrence, sem eru afar eftirsóttir og virtir háskólar vestanhafs. Hún nefnir dæmi um að móðir eins háskólanemans hafi eitt sinn hringt í hana og beðið um að fá lista yfir allt það sem var að finna í salatbar í matsal skólans. Móðirin vildi fá þessar upplýsingar svo hún gæti sagt dóttur sinni hvað hún ætti að borða á hverjum degi. Í skoðanakönnun sem kannana- fyrirtækið Morning Consult gerði fyrir NYT fyrr í þessum mánuði voru foreldrar ungs fólks á aldr- inum 18-28 ára spurðir um hvort þeir sæju um hina og þessa þætti í lífi barna sinna. Samkvæmt könnun- inni passa 76% foreldranna upp á að þau mæti á réttum tíma á viðburði og ýmis konar stefnumót. 74% pönt- uðu tíma fyrir þau hjá læknum eða hárgreiðslufólki, 16% foreldranna skrifuðu atvinnuumsókn fyrir þau að hluta eða í heild og 11% höfðu haft samband við vinnuveitanda þeirra vegna ýmissa mála. Þá sögð- ust 8% foreldra hafa haft samband við háskólakennara til að ræða við hann um einkunnir uppkominna barna sinna. Foreldrar vilja standa sig vel „Þessir foreldrar telja að þeir séu að gera börnum sínum gott með þessu,“ segir David McCullough menntaskólakennari í grein NYT. Hrefna Sigurjónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Heimilis og skóla, sem eru landsamtök foreldra, tekur undir þetta. Hún segir að hugsan- lega megi rekja snjóruðningsáhrifin til þess að við búum í upplýsinga- samfélagi þar sem gjarnan berist neikvæðar upplýsingar um allt það slæma sem hent geti börn. „Foreldrar, sem vilja vera góðir foreldrar, ætla að koma í veg fyrir að barnið þeirra lendi í hinu eða þessu og falla þá kannski í þá gryfju að vilja stýra of miklu í lífi barnanna sinna. Þeir ryðja öllum hindrunum úr vegi og taka í burtu allt sem gæti verið óþægilegt á einhvern hátt.“ Hún segir að innan samtakanna hafi snjóruðningsáhrifin verið rædd með tilliti til seiglu, en talsvert hef- ur verið rætt um að undanförnu hvernig efla megi seiglu barna þannig að þau byggi upp sterka sjálfsmynd. „Ef börn eiga að geta byggt upp sterka sjálfsmynd, þá þurfa þau að geta tekist á við áskor- anir. Það gerist ekki þegar öllu sem er óþægilegt er rutt í burtu,“ segir Hrefna. Gagnrýnin hugsun lykilatriði Veitt er net- og símaráðgjöf á vegum Heimilis og skóla og Hrefna nefnir dæmi um mál sem borist hafa samtökunum þar sem ósætti kom upp í vinahópi barna og foreldrar fóru strax í aðgerðir sem voru ekki í samræmi við umfang málsins. Mál þróuðust á þann veg að talsvert meira varð úr ósætti barnanna en ella hefði orðið. „Allir sem starfa í skólum og með börnum vita að það koma upp minniháttar árekstrar á hverjum degi. Það er sjálfsagt að fullorðnir bjóði upp á leiðir og leiðsögn í slík- um aðstæðum, en við megum ekki leysa öll mál fyrir þau. Við sjáum á sumum málum sem koma til okkar að það er augljóst að foreldrar hafa verið að haga sér eins og snjóruðn- ingstæki.“ Kvíði og þunglyndi meðal barna og unglinga hefur aukist undanfarin ár. Spurð hvort snjóruðningurinn hafi áhrif í þessum efnum segist Hrefna telja að líklega sé margt sem valdi. „Margir tengja þetta við tæknina og notkun samfélagsmiðla, en það er eiginlega ómögulegt að segja til um það. Það má ekki gleyma því að tæknin nýtist líka mörgum sem líður illa. Það sem skiptir miklu máli í þessu eins og svo mörgu öðru er að hjálpa krökk- unum að vera gagnrýnin í hugsun og greina kjarnann frá hisminu. Það gerist ekki með því að fjarlægja allt úr lífi þeirra sem gæti reynst erfitt.“ Haga sér eins og snjóruðningstæki  Snjóruðningsforeldrar ræna uppkomin börn sín fullorðinsárunum  Allt óþægilegt tekið í burtu  „Ef börn eiga að geta byggt upp sterka sjálfsmynd þurfa þau að geta tekist á við áskoranir“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Snjóruðningur Farið er að tala um snjóruðningsforeldra, en þar er átt við foreldra sem ryðja öllum hindrunum úr vegi fyrir börn sín og fjarlægja allt sem gæti reynst þeim óþægilegt í því skyni að auðvelda þeim lífið og tilveruna. Hrefna Sigurjónsdóttir Ljósmynd/MaxPixel Foreldrar Sumir falla í þá gryfju að vilja stýra of miklu í lífi barna sinna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.