Morgunblaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Aðstaða björgunarsveitarinnar
Brákar í Borgarnesi tekur stakka-
skiptum þegar nýtt björgunarsveit-
arhús kemst í gagnið. Fyrsta
skóflustungan verður tekin á
morgun, á 70 ára afmæli slysa-
varnadeildarinnar Þjóðbjargar, en
stofnun hennar markaði upphaf
björgunar- og slysavarnastarfs í
Borgarfirði.
Björgunarsveitin Brák er með
aðstöðu í Brákarey í húsnæði sem
upphaflega tilheyrði Bifreiða- og
trésmiðju Borgarness. „Húsið er
sprungið utan af starfseminni,“
segir Þórir Indriðason, félagi í
Brák. „Við þurfum að koma dótinu
okkar fyrir,“ bætir Erlendur B.
Magnússon við. Einar G. Pálsson
nefnir að þegar unnið er að flug-
eldasölu og annarri fjáröflun þurfi
að rýma húsnæðið og endurinnrétta
að hluta til þess að geta sinnt þeirri
starfsemi. Tækin séu á vergangi á
meðan.
Kominn er tími til breytinga. Á
hátíðarfundi sveitarstjórnar
Borgarbyggðar vegna 150 ára
verslunarafmælis Borgarness var
ákveðið af því tilefni að afhenda
björgunarsveitinni án gatnagerð-
argjalda lóð á Fitjum skammt frá
gatnamótum Snæfellsnessvegar og
Norðurlandsvegar. „Með þessu
framlagi vill sveitarstjórn þakka
björgunarsveitinni og öllum þeim
sjálfboðaliðum sem að starfi hennar
koma og hafa komið fyrir ómetan-
legt framlag og stuðning við sam-
félagið,“ segir í samþykktinni.
Bíða eftir frumvarpi
Björgunarsveitarmenn hyggjast
hefjast handa við bygginguna með
vorinu og koma mannvirkinu upp
úr jörðinni áður en farið er að huga
að framhaldinu. Pétur Guðmunds-
son björgunarsveitarmaður segir
að þeir séu að bíða eftir afdrifum
frumvarps Jóns Gunnarssonar og
þingmanna úr flestum þingflokkum
um endurgreiðslu virðisaukaskatts
vegna mannvirkjagerðar og ann-
arra framkvæmda félagasamtaka til
almannaheilla sem miðar að því að
efla starfsemi eða bæta aðstöðu
samtakanna. Pétur segir að það
myndi skipta miklu máli fyrir þessa
framkvæmd ef frumvarpið næði
fram að ganga á þinginu. Áætlað er
að húsið kosti eitthvað yfir 100
milljónir kr. og endurgreiðsla
vasksins myndi lækka byggingar-
kostnað um 20-30 milljónir.
Björgunarsveitin fjármagnar
hluta framkvæmdarinnar með sölu
á gamla húsinu en félagsmenn vilja
ekki setja það á sölu fyrr en fram-
kvæmdir við nýja húsið eru komnar
vel af stað.
Einar segir að húsið verði tví-
skipt. Í öðrum hlutanum verði
tækjageymsla en starfsmanna- og
fundaraðstaða í hinum hlutanum.
Ekki þurfi að rýma húsið þegar
unnið er að fjáröflun. Þá verði hægt
að koma þar upp fjöldahjálparstöð,
ef á þurfi að halda, auk almenns
fræðslu- og félagsstarfs.
Einn af aðalkostunum við stað-
setninguna er að ekki þarf að fara í
gegnum Borgarnes þegar farið er í
útköll. Komið hefur fyrir að tæki
björgunarsveitarinnar hafa lokast
inni í Brákarey í slæmum veðrum.
Stundum hefur verið gripið til þess
ráðs að geyma tækin ofar í bænum
til að hafa þau tiltæk í slæmum
veðrum.
Vinnum sem ein heild
„Við þurfum að vera með bland í
poka,“ segir Pétur Guðmundsson
þegar spurt er um sérhæfingu
sveitarinnar. Þess vegna þurfi hún
að vera með bíla, báta og fjórhjól.
Aðrar sveitir í héraðinu séu með
snjóbíla og snjósleða.
Starfssvæðið er á milli Hítarár og
Gljúfurár. Útifyrir er mikil og
hættuleg strönd þannig að sveitin
þarf að vera búin til að sinna útköll-
um þar. Í Borgarbyggð eru tvær
aðrar björgunarsveitir, Heiðar og
Ok í uppsveitum Borgarfjarðar.
Fjórða sveitin á svæði 4 er Björg-
unarfélag Akraness. Björgunar-
sveitarmennirnir segja að ákaflega
gott samstarf sé á milli allra sveit-
anna. Þær fari gjarnan saman í út-
köll. Fimmta sveitin í óformlegu
samstarfi er Elliði í Eyja- og Mikla-
holtshreppi þó hún tilheyri Snæ-
fellsnesi. „Við vinnum saman sem
ein heild,“ segir Erlendur.
Einar bendir á að björgunarstarf
sé mikið unnið á landsvísu. Í mikl-
um leitum komi sveitir víða að til
aðstoðar.
Geta bætt við mannskap
Um 40 félagar eru skráðir í
björgunarsveitina Brák en aðeins
helmingur er virkur í útköllum.
„Mér finnst að það sé frekar að lifna
yfir sveitinni og horfurnar ágætar
núna. Það fjölgar til dæmis konum í
sveitinni,“ segir Einar. Hann bætir
því við að æskilegt væri að hafa
meiri mannskap og betri tækjakost.
„Það þarf að leysa mörg verkefni
og þau byggjast á fáum ein-
staklingum. Því væri gott að hafa
fleiri liðsmenn,“ segir Þórir.
Störf í björgunarsveitum eru
sjálfboðaliðsstarf. Ekki nóg með
það, félagsmenn þurfa sjálfir að
kosta sinn persónulega búnað að
miklu leyti. Félagarnir úr Brák
segja að margt annað togi í fólk,
meðal annars íþróttir og önnur af-
þreying. Þeir horfa þó bjartsýnir
fram á veginn eins og húsbyggingin
gefur til kynna.
Aðstaða
Brákar tekur
stakkaskiptum
Björgunarsveitin Brák undirbýr
byggingu nýs björgunarsveitarhúss
„Þurfum að koma dótinu fyrir“
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Björgun Þórir Indriðason, Pétur Guðmundsson, Erlendur B. Magnússon og Einar G. Pálsson við bíl sveitarinnar. Um 40 félagar eru skráðr í sveitina.
Tölvuteikning
Aðstaða Nýja björgunarsveitarhúsið í Borgarnesi verður með félagsaðstöðu og tækjageymslu. Það verður nærri
tvöfalt stærra en núverandi húsnæði sveitarinnar í Brákarey. Vonast er til að bætt aðstaða efli starfið.
Fljótlega eftir að Slysavarnafélag
Íslands og heimamenn í Borgar-
nesi stofnuðu slysavarnadeildina
Þjóðbjörgu 22. mars 1949 varð til
hópur vaskra manna innan
deildarinnar sem starfaði undir
merkjum Björgunarsveitar
Borgarness. Þeir voru tilbúnir að
fara til hjálpar við þá sem rötuðu
í háska, innan héraðs og utan,
eins og fram kemur í söguyfirliti
á vef Björgunarsveitarinnar
Brákar. Tók sveitin í upphafi þátt í
umfangsmikilli leit að ungu barni
sem varð úti í uppsveitum
Borgarfjarðar og síðar í leit að
sjúkraflugvél sem fórst við fjall í
Hnappadal.
Seint á sjöunda áratugnum
varð vakning í björgunar- og
slysavarnamálum í Borgarnesi
sem leiddi til stofnunar Björg-
unarsveitarinnar Brákar. Þessi
vakning er rakin til Guðmundar S.
Finnssonar sem þá fluttist til
Borgarness. Fljótlega var farið að
huga að tækjakosti. Keyptur var
gamall Dodge Weapon og úr hon-
um smíðaður fyrsti björgunarbíll-
inn og nefndur Hrollur.
Síðan hefur félagið eignast
nokkra bíla, báta og önnur björg-
unartæki og komið sér upp hús-
næði.
Á afmælisdegi slysavarna-
deildarinnar Þjóðbjargar, föstu-
daginn 22. mars, verður afmælis-
dagskrá í Hótel Borgarnesi. Þá
verður jafnframt tekin fyrsta
skóflustunga að nýju húsi björg-
unarsveitarinnar að Fitjum ofan
við Borgarnes.
Björgunar-
starf í 70 ár
SLYSAVARNIR
Einstakar sumarbúðir í stórkostlegri náttúru
Upplýsingar og pantanir:
astjorn.is eða í síma 462 3980
facebook.com/astjorn
Stofnaðarristile ar sumarbúðir