Morgunblaðið - 21.03.2019, Side 60
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
MJÚKIR
DAGAR
AF ÖLLUM
HANDKLÆÐUM, PÚÐUM, ÁBREIÐUM,
RÚMFÖTUM OG MOTTUM
21. MARS - 1. APRÍL
20-50%
Jazztríó Eddu Borg heldur tónleika
í kvöld kl. 21. Tríóið skipa, auk Eddu
Borg, Björn Thoroddsen gítarleikari
og kontrabassaleikarinn Bjarni
Sveinbjörnsson. Þau munu leika lög
úr djassbiblíunni góðu og gamla,
góða djassstandarda. Tríóið lék
fyrst árið 1990 og dustar nú rykið
af nærri 30 ára gamalli efnisskrá
auk þess að flytja valdar perlur.
Jazztríó Eddu Borg
í Petersen-svítunni
FIMMTUDAGUR 21. MARS 80. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Úrslitakeppni Íslandsmóts karla í
körfuknattleik hefst í kvöld þar sem
fyrstu leikir átta liða úrslitanna fara
fram. Benedikt Guðmundsson fer
yfir stöðuna í íþróttablaðinu í dag
og telur fleiri lið eiga möguleika á
að fara alla leið í ár en áður. Hann
spáir því að öll átta liðin vinni að
minnsta kosti einn leik og í tveimur
einvígjum þurfi oddaleik. »2-3
Fleiri lið eiga mögu-
leika en undanfarin ár
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Bergljót Arnalds söngkona, Birgir
Þórisson píanóleikari og Margrét
Arnar harmónikkuleikari halda tón-
leika í Hannesarholti í kvöld kl. 20
og má búast við Parísarstemningu.
Flutt verða lög sem Edith Piaf,
Jacques Brel, Josepth Kosma og
Charles Aznavour gerðu fræg á sín-
um tíma og mun Bergljót einnig
flytja lag eftir sjálfa sig á
frönsku. Bergljót bjó um
hríð í París, þar sem
hún stundaði
tónlistar-
nám. Þá bjó
hún einnig í hálft
ár í Austur-
Kongó og starf-
aði sem blaða-
maður á átaka-
svæðum.
Parísarstemning
í Hannesarholti
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Léttsveit Reykjavíkur, fjölmennasti
kvennakór landsins með um 120
söngvara, heldur árlega vortónleika í
Háskólabíói 9. maí nk. og að vanda
verður boðið upp á þétta dagskrá,
þar sem Sigga Beinteins, Jógvan
Hansen og Guðrún Gunnarsdóttir
koma fram sem gestasöngvarar.
Elísabet E. Guðmundsdóttir, eða
Lella eins og hún er gjarnan kölluð,
er 2. sópran og hefur verið í kórnum
frá byrjun. Léttsveit Kvennakórs
Reykjavíkur var stofnuð 1995 og
varð sjálfstæður kór 2000.
Söngurinn mikilvægur
Lella byrjaði snemma að syngja og
segir að foreldrarnir hafi stjórnað því
að hún fór í Sólskinskórinn, barnakór
sem söng í útvarpinu, þegar hún var í
barnakólanum Grænuborg. „Pabbi
var mjög söngelskur og þegar sumir
krakkar á mínum aldri fóru í sunnu-
dagaskóla fór ég á söngæfingar í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við
Lindargötu á sunnudagsmorgnum.“
Fljótlega fór Lella í Dansskóla
Rigmor Hanson. „Æfingarnar voru
fyrst í bragga við Snorrabraut og við
komum víða fram, meðal annars í
Þjóðleikhúsinu, þaðan lá leiðin í ball-
ett og svo fór ég að kenna líkams-
rækt í Kramhúsinu, þegar það hóf
starfsemi fyrir yfir 30 árum. Ég
kenni þar enn í forföllum, en söng-
urinn er samt aðalatriðið.“
Lella var lengi í sýningarhópi í
djassballett hjá Báru og einnig áber-
andi í tískusýningum á sjöunda og
áttunda áratug liðinnar aldar. „Það
var svo mikið um þessar tískusýn-
ingar á tímabili, til dæmis á ferða-
kynningum hjá Ingólfi í Útsýn á Hót-
el Sögu og svo voru það lopavöru-
kynningarnar í hádeginu á Hótel
Loftleiðum. Auk þess sá ég oft um
tískusýningar fyrir hin og þessi fyrir-
tæki.“
Samkvæmt framansögðu er ljóst
að Lella hefur varið drjúgum tíma á
sviði og undanfarna áratugi með
kórnum. „Við vorum í sérlega vel
heppnuðum æfingabúðum á Hótel
Hamri í Borgarfirði fyrir skömmu,
en á tónleikunum syngjum við vinsæl
lög frá sjötta og sjöunda áratugn-
um,“ segir hún og á vart til orð til að
lýsa því hvað kórastarfið sé gefandi.
„Þessu fylgir svo mikil vinátta og
gleði og það er alltaf gaman að fara á
kóræfingu.“
Þegar Léttsveitin syngur á tón-
leikum syngja konurnar aldrei eftir
nótum heldur læra öll lög utanbókar.
Jóhanna Þórhallsdóttir stjórnaði
kórnum fyrstu 17 árin og Gísli
Magna hefur stjórnað honum undan-
farin sjö ár. „Starfsemin er mjög
metnaðarfull og út frá kórnum hafa
sprottið ýmsir undirhópar. Við erum
til dæmis með öflugan gönguhóp á
sumrin og um 30 konur spila saman
golf. Við köllum okkur Léttsveifl-
urnar og förum í æfingaferð til Pól-
lands í lok maí,“ segir Lella.
Morgunblaðið/Hari
Kóræfing Elísabet E. Guðmundsdóttir fyrir framan kórfélagana í vikunni. Vortónleikarnir verða í maí.
Lella í Léttsveitinni
og Léttsveiflunum
Byrjaði söngæfingar í Íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar