Morgunblaðið - 21.03.2019, Side 33

Morgunblaðið - 21.03.2019, Side 33
rýni sem Boeing lagði fyrir FAA hafi innihaldið „fjölda alvarlegra galla“. Þá mun hafa ríkt mikill skoðana- munur milli fulltrúa FAA í Seattle, þar sem Boeing-þoturnar eru smíð- aðar, og fulltrúa stofnunarinnar í höf- uðstöðvum FAA í Washington D.C., að sögn fréttaveitunnar AFP. Stofn- unin varði sig og sagði í tölvupósti til AFP að skráningarferlið hafi verið með hefðbundnum hætti og í einu og öllu samkvæmt reglum FAA. Þrátt fyrir verulegan mun á flug- vélunum hvað hreyfla og MCAS varð- ar fékk 737 MAX þotan lofthæfis- skírteini sem afbrigði af forveranum, 737 Next Generation, en var ekki skoðuð í heild sinni sem ný flugvél. Þar sem MCAS átti aðeins að fara í gang við afbrigðilegar kringum- stæður utan eðlilegs flugramma ákvað Boeing að flugmenn 737 flug- véla þyrftu á engri aukaþjálfun að halda vegna nýja kerfisins – og raun- ar að þeir þyrftu ekki að vita af því. Var ekki á það minnst í flughand- bókum þeirra, sem flugmannafélög hafa gagnrýnt mjög í framhaldi af slysunum. Þetta sjónarmið dugði til þess að þotan fékk sama tegundar- skírteini og eldri 737-þotumódel. Í því fólst að flugfélög gátu lágmarkað æf- ingatíma flugmanna sem færðust á MAX-þoturnar. Dennis Tajer, talsmaður flug- mannafélagsins Allied Pilots Associa- tion hjá American Airlines, segir að þjálfunin sem hann fékk við flutning af gamla 737 NG módelinu og uppi í stjórnklefa hinnar nýju 737 MAX hafi verið lítið meira en klukkustundar iPad tölvuæfing. Hafi hann ekki verið sendur í flughermi. Lágmörkun þjálf- unar flugmanna á MAX notaði Boeing sem beitu við markaðs- setningu þotunnar, hún fól í sér mikil- vægan fjárhagslegan sparnað fyrir flugfélögin. „Meðan þið byggið upp 737 MAX flota ykkar sparast millj- ónir dollara vegna sameiginlegra eiginleika við Next-Generation 737,“ segir í auglýsingu á heimasíðu Boeing. Eru nú rúmlega 5.000 MAX-8 þotur í pöntun. Snerist upp í andhverfu sína Í framhaldi af seinna slysinu var ákveðið að hefja nákvæma rannsókn á MCAS-búnaðinum. Núverandi og fyrrverandi verkfræðingar sem störf- uðu beint við þróun þess eða eru mál- inu mjög kunnugir hafa tjáð sig um öryggisrýni á kerfinu, að sögn Seattle Times. Þeir segja að minna hafi verið gert úr getu nýja stýrikerfisins í ör- yggisrýninni en ástæða var til. Það hafi verið hannað til að snúa hæðar- stýrinu þann veg að beina nefi flug- vélarinnar niður á við til að afstýra of- risi. Þegar MAX-8 þotan hafi svo verið tekin í notkun hafi MCAS getað hreyft stélflötinn rúmlega fjórum sinnum lengra en fram kom í öryggis- rýninni upphaflegu. Þá þykir henni ábótavant, að þar vantaði allar upp- lýsingar um hvernig MCAS gæti endurstillt sig í hvert sinn sem flug- maður svaraði fyrirmælum þess. Með því að minnast ekki á það hafi hugs- anleg áhrif öryggisbúnaðarins, sem knúði trjónuna niður á við, farið framhjá sérfræðingum loftferðaeftir- litsins (FAA). Talsmaður þess sagði að skortur á upplýsingum þessum gæti hafa ráðið úrslitum í Lion Air slysinu. Það hefur verið rakið til þess að sjálfvirkni í stjórnklefanum, sem átti að auka á öryggi flugvélar og far- þega, snerist upp í andhverfu sína. AFP Kyrrsettar Boeing 737-MAX flugvélar á flugvellinum í Renton í Washington-ríki í Bandaríkjunum þar sem verksmiðjur Boeing eru. Allar MAX-vélar hafa verið kyrrsettar tímabundið. 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019 Lyfja opnar á Garðatorgi 20% opnunarafsláttur dagana 21.–23. mars Lyfja hefur opnað nýtt og glæsilegt apótek á Garðatorgi. Komdu og kynntu þér ný snyrtivörumerki. Kynningar fimmtudag, föstudag og laugardag. 20% af öllum öðrum vörum. 10% af lausasölulyfjum*. *Tilboð gilda ekki fyrir lyfseðilsskyld lyf. Mánudaga til föstudaga 9–18. Lyfja Garðatorgi er opin: Laugardaga 11–16.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.