Morgunblaðið - 21.03.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
60+
meðÖnnu Leu ogBróa
Frá kr.
144.900
13. maí í 15 nætur
Costa del Sol
NÝTT
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Andmæla því að launin verði fryst
Seðlabankinn segir laun seðlabankastjóra ekki hafa verið
lægri í samanburði við æðstu embættismenn í áratugi
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Seðlabankinn leggst gegn því að
laun aðstoðarseðlabankastjóra verði
lækkuð í 90% af núverandi launum
seðlabankastjóra og að laun seðla-
bankastjóra verði fryst fram til 1.
janúar 2020, líkt og lagt er til í
frumvarpi til laga um breytingu á
lögum vegna brottfalls laga um
kjararáð.
Er bent á í umsögn bankans sem
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
og Sigríður Logadóttir, aðallög-
fræðingur bankans, undirrita að
frysting launa seðlabankastjóra sé í
samræmi við frystingu launa ráð-
herra og æðstu embættismanna rík-
isins. Laun þeirra hafi hins vegar
verið hækkuð verulega árin 2015 og
2016 eftir að kjararáð hafði tekið
þau til skoðunar. Laun seðlabanka-
stjóra hafi hins vegar síðast verið
skoðuð hjá ráðinu árið 2012 og hafi
þá hækkað um 7%. Segir í umsögn-
inni að laun seðlabankastjóra hafi
„ekki verið lægri í samanburði við
laun ráðherra og æðstu embættis-
manna í a.m.k. áratugi en þau hafa
verið síðustu ár“.
Segir bankinn að laun aðstoðar-
seðlabankastjórans myndu verða
einu kjararáðsákvörðuðu launin sem
myndu lækka ef frumvarpið tæki
óbreytt gildi. Telur bankinn því
nauðsynlegt að hverfa frá þeirri
lækkun en leggur til að laun aðstoð-
arseðlabankastjóra haldist óbreytt
en að laun seðlabankastjóra hækki
um sem nemur lágmarks umsömd-
um launahækkunum á vinnumark-
aði frá því að kjararáð úrskurðaði
síðast um laun hans.
Þá bendir bankinn að lokum á að
„erfiðara gæti orðið að manna stöð-
ur bankastjóra ef laun þeirra drægj-
ust aftur úr launum sambærilegra
embættismanna og starfsmanna í
þeim atvinnugreinum sem bankinn
ætti í samkeppni við um starfsfólk“.
Launahækkanir og launavísitala
Föst heildarlaun skv. úrskurðum kjararáðs fyrir kjararáðshópa nema annað komi fram. Skrifstofustjóri 3 stýrir
skrifstofu, heyrir beint undir ráðuneytisstjóra og er staðgengill hans. Regluleg laun þingmanna eru þingfararkaup
auk fasts ferða- og starfskostnaðar. Meðalhækkun skv. rammasamkomulagi miðað við mat starfshóps um málefni
kjararáðs.Heimild: Seðlabanki Íslands
Hækkun á tímabili rammasamkomulags, nóv. 2013 til des. 2018
Seðlabankastjóri 27,4%
Þingmenn (regluleg laun) 47,7%
Ráðherrar 63,9%
Forsætisráðherra 64,0%
Hæstaréttardómarar 41,3%
Ráðuneytisstjóri i forsætisráðuneyti 52,1%
Aðrir ráðuneytisstjórar 52,9%
Skrifstofustjóri 3 55,3%
Launavísitala Hagstofunnar 44,5%
Meðalhækkun skv. rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðar 43-48%
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Allir í minnihluta studdu þetta, en
með því að vísa þessari tillögu frá
finnst mér borgarmeirihluti ekki
skilja mikilvægi þess að börn sem
þurfa á talmeinaþjónustu að halda
fái áframhaldandi þjónustu í grunn-
skóla,“ segir Kolbrún Baldursdóttir,
borgarfulltrúi Flokks fólksins.
Vísar Kolbrún í máli sínu til tillögu
sem hún lagði fyrir á fundi borgar-
stjórnar Reykjavíkur á þriðjudag
þess efnis að auka talmeinaþjónustu
í grunnskólum borgarinnar. Kolbrún
segir góðan málþroska vera undir-
stöðu bóklegs náms og áhrifavald
þegar kemur að tjáningu og almenn-
um félagslegum samskiptum.
„Undanfarin ár hefur fjölgað til-
vísunum til tal-
meinafræðinga
og til sérfræði-
teyma þjónustu-
miðstöðvanna.
Talið er að um
10% barna á
hverjum tíma
þurfi aðkomu tal-
meinafræðings
vegna vægari eða
alvarlegri vanda,“
segir í tillögunni.
Vill tryggja börnum þjónustu
Kolbrún segir þessi börn „falla á
milli skips og bryggju“ þegar þau
fara upp úr leikskólum og í grunn-
skóla. „Börn geta ekki beðið eftir
svona þjónustu. Í leikskólum geta
þau hitt talmeinafræðing í örfáa
tíma, sem er auðvitað allt of lítið, en
um leið og þau koma í grunnskóla þá
verða foreldrarnir að eiga peninga ef
barn þeirra þarf á frekari aðstoð að
halda,“ segir Kolbrún, en fram kem-
ur í greinargerð tillögunnar að ef
barn uppfyllir ekki viðmið sjúkra-
trygginga til þess að fá niðurgreiðslu
fyrir þjónustu talmeinafræðings
þurfa foreldrar að greiða fullt verð
fyrir barn í grunnskóla.
Að mati Kolbrúnar þurfa grunn-
skólar borgarinnar að búa yfir tal-
meinafræðingi eða hafa getu til að
kalla þá til eftir þörfum. Þannig megi
tryggja þjónustu við börn óháð efna-
hag foreldra.
Í bókun meirihluta kemur m.a.
fram að óábyrgt væri ef borgin tæki
einhliða ákvörðun um þessi mál án
þess að kostnaðarskipting lægi fyrir.
Tillögu um talmeinaþjón-
ustu í grunnskóla vísað frá
Minnihlutinn allur studdi tillöguna á fundi borgarstjórnar
Kolbrún
Baldursdóttir
Fátt benti til þess á höfuðborgarsvæðinu í gær að það væru
vorjafndægur en snjó kyngdi þar niður á gesti og gangandi.
Var einnig um tíma mikið haglél sem buldi á rúðum.
Fólk sem átti erindi á Austurvelli fór ekki varhluta af
veðurfarinu þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar þar að
garði og var víst vissara að vera vel klæddur. Samkvæmt
Veðurstofu Íslands má víða eiga von á suðvestanátt og éljum í
dag en skýjað verður með köflum og þurrt að kalla fyrir norð-
an og austan. Þá verður hitinn við frostmark.
Kuldaboli bítur menn enn á ný
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vorhret á vorjafndægri