Morgunblaðið - 21.03.2019, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Škoda Kodiaq hefur slegið rækilega í gegn og Karoq litli bróðir
gefur honum lítið eftir. Komdu í reynsluakstur og finndu
hvernig er að vera á toppnum. Hlökkum til að sjá þig.
Tilboðsverð 4.550.000 kr.
Škoda Karoq
Ambition / 1.6 TDI / Sjálfskiptur
Listaverð 4.850.000 kr.
300.000 kr.
Afsláttur
Verð frá 5.790.000 kr.
Škoda Kodiaq 4x4
Tveir á toppnum frá Škoda
Hjörtur J. Guðmundsson
Freyr Bjarnason
Mestu skiptir í kjölfar dóms Mann-
réttindadómstóls Evrópu í síðustu
viku að Landsréttur fái að starfa
áfram af fullum þunga. Þetta var á
meðal þess sem kom fram í máli
Davíðs Þórs Björgvinssonar, vara-
forseta Landsréttar og fyrrverandi
dómara við Mannréttindadómstól-
inn á málþingi Lagastofnunar Há-
skóla Íslands um dóminn, sem haldið
var í Öskju í gær. Auk Davíðs Þórs
fluttu þau Björg Thorarensen pró-
fessor, Trausti Fannar Valsson dós-
ent, Kristín Benediktsdóttir dósent
og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, hér-
aðsdómari og formaður dómara-
félagsins, erindi á málþinginu.
Flækjan er í pólitíkinni
Davíð Þór sagði jafnframt að
dómurinn hefði komið sér á óvart,
enda virtist sér í fljótu bragði að
meirihluti dómsins beitti lögfimi sem
áður hefði ekki verið gert í málinu.
Kom fram í máli hans að málið
væri í raun ekki flókið frá þjóð-
réttarlegu sjónarmiði, heldur væri
flækjuna að finna í pólitíkinni innan-
lands, þar sem endanlegt mat á því
hvort farið hefði verið eftir dómnum
myndi vera á vettvangi ráðherra-
nefndarinnar sem starfar í tengslum
við Mannréttindadómstólinn. Það
væri því pólitísk vegferð að meta
hvort dóminum hefði verið fullnægt.
Davíð sagði að þegar svona mál
kæmu upp þyrfti að slökkva elda,
eins og til dæmis með því að setja
dómarana fjóra til hliðar, þótt þeir
hefðu ekkert gert af sér annað en að
sækja um starf. Þá gætu hins vegar
eldar blossað upp annars staðar sem
þyrfti að slökkva líka. Sagðist hann
telja að gefa ætti stjórnmálunum
svigrúm til að leysa málið.
Benti Davíð einnig á að dómstóll-
inn hefði áður fellt dóma sem hefði
reynst erfitt að framkvæma vegna
pólitískra ástæðna. Nefndi hann sem
dæmi að Bretar hafi hafnað því í
fjórtán ár að láta dæmda fanga fá
kosningarétt að nýju, þrátt fyrir til-
mæli dómstólsins þar um. Sagðist
Davíð ekki ætla sér að hvetja íslensk
stjórnvöld til óhlýðni, en benti á að
þau hefðu rúmt svigrúm til að
ákveða hvernig þau ætluðu sér að
koma til móts við dóminn. „Mín
skoðun er sú að sú vinna þurfi að
miða að því að það fólk sem hefur
verið skipað til starfa í Landsrétti
geti sinnt dómarastörfum eins og
það hefur verið skipað til,“ sagði
Davíð Þór.
Óþolandi og ólíðandi staða
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, for-
maður Dómarafélags Íslands, sagði í
erindi sínu að skoðanir dómara á
ástandinu væru afar skiptar. „Þetta
er staða sem er óþolandi, hún er
ólíðandi. Við hljótum að geta verið
sammála um að þetta viljum við ekki
að gerist,“ sagði hún og velti því fyr-
ir sér hvaða áhrif ástandið hafi á
áhuga fólks á að sækja um störf
dómara á næstunni. „Það mun skaða
dómskerfið ef þetta fælir hæf
dómaraefni frá því að sækja um
þessi störf,“ sagði Ingibjörg. Benti
hún á að dómur Mannréttinda-
dómstólsins hefði byggt að verulegu
leyti á niðurstöðu Hæstaréttar um
þá ágalla sem hafi verið á skipun
dómara í Landsrétt. Dómurinn yki
því líkurnar á að þeir sem færu með
skipunarvald dómara í framtíðinni
myndu fylgja lögum í hvívetna. Þá
sagði Ingibjörg að deilur og órói
hefðu skapast vegna skipunarinnar
og undirbúningurinn hefði því miður
varpað skugga á allt það jákvæða
sem fylgdi tilkomu Landsréttar. Þá
hefði dómskerfið í heild sinni skað-
ast af málinu. „Þetta er afar þung-
bært fyrir það fólk sem hefur ekkert
annað til saka unnið en að sækja um
starf,“ sagði hún og nefndi að dóm-
arar innan Dómarafélags Íslands
hafi ákveðið að taka ekki þátt í
dómsstörfum og einnig sé þar fólk
sem hafi orðið fyrir verulegum
miska vegna þess að gengið var fram
hjá því sem dómurum við Landsrétt.
Ummælin óskýr
Björg Thorarensen, prófessor við
Háskóla Íslands, sagði í erindi sínu
að túlka yrði niðurstöðu dómstólsins
þannig að hún gilti aðeins um þá
fjóra dómara Landsréttar þar sem
dómsmálaráðherra vék frá tillögum
hæfnisnefndar en ekki þannig að
dómstóllinn í heild sinni teljist ekki
skipaður lögum samkvæmt. Um-
mæli í dóminum um þetta væru hins
vegar óskýr.
Sagði Björg að einn af kostum
þess að skjóta málinu til yfirréttar
væri sá að leita eftir skýrri niður-
stöðu gagnvart „misvísandi ályktun“
dómstólsins um þetta atriði. Sagðist
Björg telja dóminn gefa það til
kynna að það sem öllu skiptir við
ummæli dómstólsins um galla á at-
kvæðagreiðslu Alþingis væri að
markmiðum um aðkomu þingsins
hafi ekki verið verið náð við skipun
umræddra fjögurra dómara og ein-
göngu þeirra. „Þar urðu mögulega
beinar efnislegar afleiðingar af
þeirri staðreynd að ekki var kosið
beinlínis um tillögur ráðherra að
víkja frá tillögum hæfnisnefndar,“
sagði Björg.
Hún nefndi að þungamiðjan í rök-
stuðningi í dómi dómstólsins hafi
verið að um geðþóttaákvörðun
dómsmálaráðherra hafi verið að
ræða þegar dómararnir fjórir voru
skipaðir í Landsrétt. Björg sagði
þann rökstuðning ekkert hafa að
gera með skipun hinna ellefu um-
sækjendanna.
Björg minntist á að umræða hafi
verið uppi um að ekki væri hafið yfir
vafa að Landsréttur væri lögmætt
skipaður. Hún sagðist skilja þá um-
ræðu og að því miður varpi staðan
sem er uppi ákveðnum skugga á
stöðu Landsréttar.
Gæti fælt fólk frá dómstörfum
Málþing Lagastofnunar HÍ um dóm Mannréttindadómstólsins í Landsréttarmálinu var haldið í gær
Dómurinn kom varaforseta Landsréttar á óvart Málið sagt hafa varpað skugga á dómskerfið
Morgunblaðið/Eggert
Málþing Fundurinn var vel sóttur og augljóst að margir hafa áhuga á afleiðingum dómsins á íslenskt réttarfar.
Erindi Þau Trausti Fannar Valsson dósent, Kristín Benediktsdóttir dósent, dómararnir Ingibjörg Þorsteinsdóttir og
Davíð Þór Björgvinsson og Björg Thorarensen prófessor fluttu erindi á málþinginu og sátu fyrir svörum í lokin.
MMeira á mbl.is