Morgunblaðið - 21.03.2019, Síða 26
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Nýlega var greint frá því að sér-
fræðingum um borð í leitar- og
rannsóknarskipinu Petrel hefði
tekist að staðsetja flak bandaríska
flugmóðurskipsins USS Wasp í
Kóralhafinu. Skipinu var grandað
af japönskum kafbáti haustið 1942
og fórst stór hluti skipverja, 166
manns, en nokkrum var bjargað
um borð í önnur bandarísk herskip
á svæðinu. Wasp tengist íslenskri
sögu því það var hér við land um
tíma á stríðsárunum í flotadeild
sem gætti kaupskipa er sigldu um
Norður-Atlantshafið á milli Bret-
lands og Bandaríkjanna. Mynd-
irnar hér á síðunni eru af skipinu
og hluta af áhöfn þess í Hvalfirði í
byrjun október 1941.
Leitar skipsflaka um heim all-
an
R/V Petrel er í eigu sjóðs sem
Paul heitinn Allen, stofnandi
Microsoft, setti á laggirnar fyrir
nokkrum árum til að standa straum
af ýmsum dýrum rannsóknarverk-
efnum. Eitt meginhlutverk skipsins
er að leita að sögufrægum skips-
flökum víðs vegar um heim og er
það sérbúið rannsóknartækjum og
tölvum til að ráða við erfiðar að-
stæður, svo sem mikla dýpt. Mark-
miðið er að kortleggja staðina þar
sem skipin eru og ástand þeirra.
Samkvæmt fyrirmælum Allen er
litið á staðina sem grafreiti sem
beri að virða og aðeins stjórnvöld
og söfn fá upplýsingar um ná-
kvæma staðsetningu flakanna. R/V
Petrel sinnir einnig ýmsum öðrum
vísindalegum verkefnum.
Liggur á 4 km dýpi
Það var um miðjan janúar síðast-
liðinn sem tókst að staðsetja flak
Wasp á rúmlega fjögurra kílómetra
dýpi. Þegar því var sökkt í septem-
ber 1942 var það á siglingu á Kór-
alhafinu á leið til Guadalcanal,
einnar Salómonseyjanna í Kyrra-
hafinu, með liðsauka vegna bar-
daga þar í grennd. Nokkrum dög-
um áður en Wasp var staðsett fann
Petrel annað bandarískt flug-
móðurskip, USS Hornet, á hafs-
botni á sömu slóðum.
Það kom Jim Forester, sem lík-
lega er eini eftirlifandi skipverji
Wasp, ekki á óvart að gamla skipið
hans skyldi finnast í kjölfarið á
Hornet. Skipin fórust nær sam-
tímis. Þótt hann sé orðinn 98 ára
gamall kvaðst hann í blaðaviðtali á
dögunum enn muna skýrt þegar
tundurskeytin frá japanska kaf-
bátnum hittu flugmóðurskipið og
það varð á svipstundu alelda. Hon-
um var bjargað úr sjónum en
margir góðir vinir hans fórust.
Kom til Íslands
Vikið er að komu Wasp til Ís-
lands í bók Friðþórs Eydals Víg-
drekar og vopnagnýr - Hvalfjörður
og þáttur Íslands í orrustunni um
Atlantshafið (1997). Fram kemur
að skipið, sem var tiltölulega ný-
byggt í upphafi seinni heimsstyrj-
aldar, var hluti flotadeildar sem
Bandaríkjamenn sendu til liðsinnis
Bretum haustið 1941 (áður en þeir
urðu formlega þátttakendur í styrj-
öldinni). Hlutverk flotadeildar-
innar, Task Force 39, var að hjálpa
Bretum við að hindra Þjóðverja í
að senda hin stóru herskip sín út á
Norður-Atlantshaf til höfuðs skipa-
lestum sem sigldu milli Bandaríkj-
anna og Bretlands. Þær skipalestir
höfðu oft viðkomu á Íslandi.
Bandaríkjamenn réttlætu þetta
með því að þeir væru að vernda sín
eigin kaupskip. Í bókinni segir að
Wasp hafi nokkrum sinnum komið
til Íslands. Í ágúst 1941 flutti það
alls 30 bandarískar orrustuflug-
vélar af gerðinni P-40 og þrjár æf-
ingaflugvélar 33. flugsveitarinnar
til Íslands. Þá voru Bandaríkja-
menn að taka við hervernd landsins
úr höndum Breta. Þessar flugvélar
tóku á loft frá flugmóðurskipinu
undan Reykjanesi og lentu á hinum
nýbyggða Reykjavíkurflugvelli.
Í stríðsfréttum á Íslandi
USS Wasp er nokkrum sinnum
nefnt á nafn og myndir birtar af
því í stríðsfréttum íslenskra blaða
árið 1942. Ekkert er sagt frá veru
þess hér við land og ekki víst að
mönnum hafi verið kunnugt um
það. Sagt er frá því þegar skipið
flytur flugvélar til Möltu og tekur
þátt í stríðsátökum á Miðjarðar-
hafi. Þá er sagt frá sorglegum ör-
lögum skipsins í Kóralhafi haustið
1941.
Ljósmynd/NARA
Í Hvalfirði Herskipalægið undan Hvítanesi og Hvammsvík í október 1941. USS Wasp er hægra megin
við miðju myndarinnar og ber það við Þyrilsnes. Orrustuskip eru með í för ásamt olíuskipum.
Ljósmynd/IWM
Vígdrekar Bandaríska orrustuskipið USS Idaho er nær en fjær sést flugmóðurskipið
USS Wasp. Myndin er tekin í Hvalfirði í október 1941. Reynivallaháls í baksýn.
Flak USS Wasp fundið í Kóralhafinu
Bandaríska flugmóðurskipið var skotið niður af japönskum kafbáti fyrir 77 árum Var í flota-
deild við Ísland Ekki upplýst um nákvæma staðsetningu flaksins Er friðhelgur grafreitur
Ljósmynd/NARA
Í Hvammsvík Yfirmenn í áhöfn USS Wasp glaðir og reifir við veisluborð í fjörunni haustið 1941. Við hlið þeirra eru
líklega skipverjar af flutningaskipi. Konur voru ekki um borð í bandarískum herskipum á þessum tíma.
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019
Veldu Panodil®
sem hentar þér!
Verkjastillandi og hitalækkandi
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi.
Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.