Morgunblaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019 Vegna veikinda hleypur sænska mezzósópransöngkonan Charlotte Hellekant í skarðið fyrir Anne Sofie von Otter á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19.30 og verður efnisskrá tónleikanna óbreytt. „Fluttar verða heillandi útsetn- ingar Josephs Canteloube á frönskum þjóðlögum sem eru hans kunnasta verk og hefur náð miklum vinsældum. Tónleikarnir hefjast með fjörugri útsetningu Atla Heimis Sveinssonar fyrir klarínett og hljómsveit á hinu vinsæla Rondo alla Turca eftir Mozart,“ segir í tilkynningu, en einleikari er Einar Jóhannesson. „Eftir hlé hljómar eina sinfónía Bizets, meistaraverk sem hann samdi aðeins 17 ára gamall. Enn í dag er þetta ein frægasta sin- fónía fransks tónskálds og vitnis- burður um ótvíræða snilligáfu hans.“ Upphaflega stóð til að Yan Pascal Tortelier, aðalstjórnandi SÍ, stjórnaði tónleikunum en hann forfallaðist líka og tekur Bjarni Frímann Bjarnason, aðstoðarhljómsveitar SÍ, við tón- sprotanum. „Hellekant er meðal fremstu söngkvenna Norðurlanda og hef- ur um áratuga skeið komið fram víða um heim. Hún hefur m.a. sungið við Metropolitan-óperuna í New York, Parísaróperuna og komið fram á Glyndebourne- óperuhátíðinni í Englandi. Meðal helstu hlutverka hennar eru Charlotte í Werther, sem hún hefur sungið m.a. við Deutsche Oper í Berlín, og Carmen sem hún hefur sungið við Konunglegu óperuna í Stokkhólmi,“ segir í til- kynningu. Þar kemur fram að Hellekant hafi einu sinni áður sungið á tónleikum á Íslandi, þeg- ar hún kom fram í óratoríunni Draumur Gerontiusar eftir Elgar með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói árið 2002, undir stjórn Vladimirs Ashkenazy. Charlotte Hellekant leysir von Otter af Fær Charlotte Hellekant er meðal fremstu söngkvenna Norðurlanda. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ein þeirra kvikmynda sem kynntar voru sem verk í vinnslu á Stockfish- kvikmyndahátíðinni nefnist Valhalla og byggist á sögum norrænnar goðafræði og túlkunum danska myndasagnahöfundarins Peters Madsen á þeim í bókasyrpunni Goðheimum sem ætti að vera okk- ur Íslendingum að góðu kunn. Kvikmynd þessi er stórmynd á norrænan mæli- kvarða enda hvorki einfalt né ódýrt að færa þennan magnaða heim upp á hvíta tjaldið. Munu tölvubrellumeistarar nú sitja sveitt- ir við sína vandasömu iðju og af- raksturinn verður frumsýndur bæði í Danmörku og hér á landi 10. októ- ber næstkomandi. Söguþræði myndarinnar er lýst svo í stuttu máli: „Víkingabörnin Röskva og Þjálfi koma í Goðheima með þrumuguðinum Þór og Loka hinum lævísa. Goðheimar eru að hruni komnir og eingöngu krakk- arnir geta komið til bjargar.“ Nokkrir Íslendingar koma að gerð myndarinnar sem sögð er dönsk því aðalframleiðendur eru danskir sem og helstu aðstand- endur, leikstjóri, leikarar og aðrir í tökuliði. Íslendingarnir eru fram- leiðandinn Grímar Jónsson hjá Netop Films en fyrirtækið er með- framleiðandi myndarinnar, leikkon- urnar Salóme Gunnarsdóttir sem leikur Freyju og Lára Jóhanna Jónsdóttir sem leikur Sif, búninga- hönnuðurinn Margrét Einarsdóttir og gervahönnuðurinn Kristín Krist- jánsdóttir. Þá var Ísland líka einn af tökustöðum myndarinnar. Með hlut- verk Þórs, Týs og Óðins fara dönsku leikararnir Roland Møller, Jacob Lohmann og Asbjørn Krogh Nissen. Krakkarnir bjarga málunum Grímar segist meðframleiða kvik- myndina í samstarfi við Profile Pict- ures í Danmörku en einnig koma Svíar að framleiðslunni. „Þetta er fjórða myndin sem við gerum saman en þetta er í fyrsta sinn sem ég er meðframleiðandi, þeir eru aðalfram- leiðendur,“ útskýrir hann en mynd- irnar fjórar sem Grímar nefnir eru Hrútar, Undir trénu, Héraðið og Valhalla. Kvikmyndin var tekin upp í Dan- mörku, á Íslandi, í Noregi og Sví- þjóð og verður með dönsku tali en Grímar segir að myndin verði líka talsett á íslensku þar sem hún sé fjölskyldumynd. „Hún er um Þjálfa og Röskvu, krakka úr mannheimum sem flækjast með guðunum, Þór og „Þetta er klassík“  Kvikmynd byggð á myndasagnabókum Peter Madsen, Goðheimum, verður frumsýnd 10. október  Íslendingar í hópi framleiðenda, leikara og hönnuða búninga og gerva Grímar Jónsson Salóme Gunnarsdóttir Lára Jóhanna Jónsdóttir Hugrökk Cecilia Loffredo leikur hina hugrökku Röskvu. Bandaríski rithöfundurinnog blaðamaðurinn JamesM. Cain (1892 – 1977) ereinn kunnasti höfundur þeirrar senu bandarískra glæpa- bókmennta frá miðri síðustu öld sem kallaðar hafa verið harðsoðnar og líka verið kenndar við rökkrið – roman noir. Þetta eru sögur um svala gaura, oft einkaspæjara, sem klædd- ust rykfrökkum, gengu um með gæjalega hatta, höfðu svör á reiðum höndum og sneru kynþokkafullum dömum í kringum sig. Meðal annarra þekktra höfunda þessa geira banda- rískra spennusagna má nefna Ray- mond Chandler og Dashiell Ham- mett. Margrar sagna þessara höfunda voru kvikmyndaðar og hafa ekki síð- ur náð langlífi á hvíta tjaldinu, enda eru þessar sögur í knöppu og meitl- uðu forminu, drifnar af svölum sam- tölum og skýrri sögumannsröddu, ekki svo langt frá handritsformi kvik- myndanna og var tiltölulega auðvelt að færa þær í myndræna frásögn. Eftir að hafa starfað við skrif fyrir bandaríska herinn í fyrri heimsstyrj- öldinni gerðist James M. Cain blaðamaður auk þessa að skrifa stöku ljóð og leik- rit. Fyrsta skáldsaga hans, The Postman Always Rings Twice, kom svo út árið 1934 og sló í gegn; Cain sendi frá sér 18 skáldsögur og nóvell- ur meðan hann lifði og nokkrar til komu út eftir hans dag. Double Indemnity, sem nefnist Tvöfaldar tjónabætur á ís- lensku, kom fyrst á prent sem fram- haldssaga í tímariti árið 1936. Þetta er stutt skáldsaga, eða nóvella, og kom fyrst út í bók árið 1936 með tveimur öðrum nóvellum höfund- arins. Kvikmynd var gerð eftir sög- unni á stríðsárunum seinni og frum- sýnd árið 1944. Chandler kom að handritsgerðinni en Billy Wilder leikstýrði, í aðalhlutverkum voru Fred MacMurray, Barbara Stan- wyck, og Edward G. Robinson. Sögumaðurinn Walter Huff er lunkinn og séður tryggingasölu- maður og frásögnin fer strax á flug þegar hann heimsækir heimili í Hollywood með það fyrir augum að fá húsbóndann, herra Nirdlinger, til að endurnýja bílatryggingu. Mað- urinn er ekki heima en ung og glæsi- leg eiginkona hans er það og þegar þau hafa rætt um tryggingar býðst hún til að tala máli Huff við eiginmanninn. Og þegar Huff er aftur boðið í heim- sókn nokkrum dögum síðar er húsbóndinn ekki heima og tryggingasölumaðurinn endar í fanginu á eiginkon- unni ungu. Frú Nirdlinger er ekki öll þar sem hún er séð, er sem sagt enn eitt sögu- flagðið undir fögru skinni, og hefur hug á að kaupa slysatrygg- ingu fyrir eiginmanninn. Sem hún vill gjarnan að verði síðan fyrir slysi. Og það er Huff sem tekur að sér að ganga frá tryggingunni fyrir frúna, og jafnframt að ganga frá eiginmann- inum fullorðna – hann er reyndar ekki nema 44 ára gamall – þegar hann hefur fundið leið til að setja upp morð sem ekki á mögulega að vera hægt að rekja til þeirra skötuhjúa. Inn í söguna blandast dóttir herra Nirdlinger af fyrra hjónabandi og dularfullur unnusti hennar – eða er hann unnusti einhverrar annarrar í fjölskyldunni? Þá vinna með Huff reyndir rannsakendur trygginga- Tryggingasvik með morði Spennusaga Tvöfaldar tjónabætur bbbmn Eftir James M. Cain. Þórdís Bachmann þýddi. Ugla, 2019. Kilja, 176 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Verð frá 99.999 25% afsláttur af aukakönnum Vitamix blandararnir eiga sér engan jafningja. Mylja nánast hvað sem er. Búa til heita súpu og ís. Hraðastillir, prógrömm og pulse rofi sjá til þess að blandan verður ávallt fullkomin og fersk! Byrjaðu árið með stæl Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Ascent serían frá Vitamix
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.