Morgunblaðið - 30.03.2019, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARS 2019
á brauðið, pönnuna og í baksturinn
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Gísli Davíð Karlsson, sérfræð-
ingur hjá Vinnumálastofnun, segir
að Ábyrgðasjóður launa nái yfir
lífeyrissjóðskröfur í allt að 18
mánuði frá gjaldþroti fyrirtækja.
Í byrjun mars var greint frá því
í fjölmiðlum að WOW air hefði
ekki greitt mótframlag í lífeyris-
og séreignarsparnað frá því í
október á síðasta ári, en greiðslur
vegna nóvember-, desember- og
janúarmánaðar voru þá komnar
fram yfir eindaga.
„Það kemur skilagreinakrafa frá
lífeyrissjóðunum. Henni er oftast
nær skipt upp í framlag atvinnu-
rekenda og launþega og þá ætti
væntanlega launþegahlutinn að
vera núll,“ segir Gísli.
Í Fréttablaðinu í byrjun mán-
aðar var haft er eftir Svanhvíti
Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa
Wow air, í skriflegu svari að
vegna „skammtíma lausa-
fjárþrenginga flugfélagsins“ hafi
WOW air orðið að fresta mót-
framlagsgreiðslum í lífeyris- og
séreignarsparnað. Hlutur starfs-
manna hafi þó verið greiddur að
fullu.
Lífeyriskröfur háar
Að sögn Gísla tekur greiðslan
mið af launum. Segir hann
greiðslur Ábyrgðasjóðs launa
vegna lífeyrissjóða hafa und-
anfarin þrjú ár verið umtalsvert
hærri en vegna launakrafna.
Gísli segir að það fólk, sem
sagt var upp nú í lok mánaðar,
fái laun fyrir marsmánuð frá
Ábyrgðasjóði launa og svo upp-
sagnarfrestinn að þremur mán-
uðum.
„Vandinn er sá að það tekur
þrjá til sex mánuði að jafnaði að
afgreiða kröfur hjá Ábyrgða-
sjóðnum eftir gjaldþrot þannig að
þetta fólk fær ekki nein laun
núna um mánaðamótin og við
náum heldur ekki að borga þeim
atvinnuleysisbætur núna um
mánaðamótin heldur. Það tekur
einhverjar vikur að afgreiða þær
umsóknir þannig að það er þarna
hópur sem er alveg tekjulaus
núna.“ mhj@mbl.is
Ábyrgðasjóður launa greiðir
vangoldin mótframlög WOW
Tekur vikur að afgreiða umsóknir um atvinnuleysisbætur
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Yfir 720 einstaklingar skráðu sig at-
vinnulausa og sóttu um atvinnuleys-
isbætur hjá Vinnumálastofnun í gær
og fyrradag. Flestir eru fyrrverandi
starfsmenn WOW air sem misstu
vinnuna við fall flugfélagsins í gær-
morgun. Til viðbótar við þá 1.000
starfsmenn WOW air sem misstu
vinnuna við gjaldþrot félagsins hefur
nokkur hundruð starfsmönnum þjón-
ustufyrirtækja og ferðaþjónustufyr-
irtækja verið sagt upp störfum.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri
Vinnumálastofnunar, sagði í gær-
kvöldi að vel á annað hundrað manns
hefðu komið í afgreiðslur stofnunar-
innar í gær til að leita upplýsinga um
stöðu sína. Sumir hefðu komið með
hálfútfylltar umsóknir um atvinnu-
leysisbætur og klárað þær á staðn-
um. Þá spyrðu margir hvernig
Ábyrgðarsjóður launa kæmi að mál-
um vegna launa sem fólkið ætti inni
hjá flugfélaginu.
Náðu til 500 manns í gær
Unnur segir að flestir sem komið
hafi séu fyrrverandi starfsmenn
WOW air. Þeir séu launalausir frá
gjaldþroti félagsins. Þeir sem missi
vinnuna í hópuppsögnum annarra
fyrirtækja eigi sinn uppsagnarfrest
og sæki því ekki strax um atvinnu-
leysisbætur.
Mikilvægt er fyrir fólk að senda
strax inn umsókn um atvinnuleysis-
bætur því bæturnar reiknast frá
þeim tíma sem umsókn er skráð í
gagnagrunn Vinnumálastofnunar.
„Það gengur vonum framar að ná
til þessa fólks,“ segir Unnur. Auk
þeirra sem komu á skrifstofuna fóru
fulltrúar Vinnumálastofnunar á fundi
VR og Flugfreyjufélags Íslands með
starfsfólki WOW. Nokkur hundruð
manns komu á þessa fundi þannig að
starfsfólk stofnunarinnar náði að tala
við að minnsta kosti 500 fyrrverandi
starfsmenn félagsins í gær.
Vandi á Suðurnesjum
Ríkisstjórnin ákvað á fundi í gær,
að tillögu Ásmunar Einars Daðason-
ar félagsmálaráðherra, að veita
Vinnumálastofnun 80 milljóna króna
tímabundið framlag vegna þeirra
óvæntu verkefna sem blasa við stofn-
uninni vegna gjaldþrots WOW air.
Er talið að starfsemi Vinnumála-
stofnunar verði að miklu leyti helguð
þessu verkefni á komandi vikum og
mánuðum.
Gjaldþrot flugfélagsins kemur afar
illa við íbúa í sveitarfélögunum á Suð-
urnesjum vegna þess að margir
starfsmenn WOW og þjónustufyrir-
tækja eru búsettir þar. Bæjarstjórar
sveitarfélaganna á Suðurnesjum og
framkvæmdastjóri Sambands sveit-
arfélaga á Suðurnesjum koma saman
til fundar í dag að ósk Ásmundar
Friðrikssonar alþingismanns til að
ræða stöðuna í kjölfar gjaldþrots
WOW air og uppsagna.
Ásmundur Einar fór í gær til fund-
ar við forsvarsmenn þjónustuskrif-
stofu Vinnumálastofnunar í Reykja-
nesbæ til að ræða stöðuna. Á fundinn
komu einnig fulltrúar stéttarfélaga,
félagsmálastjórar og forsvarsmenn
sveitarfélaganna á svæðinu. Fram
kemur í tilkynningu ráðuneytisins að
það hafi verið niðurstaða fundarins
að stjórnvöld þurfi að gæta að því að
velferðarkerfið grípi þá íbúa sem á
þurfi að halda.
Unnur Sverrisdóttir segir að grip-
ið hafi verið til ráðstafana á þjónustu-
skrifstofunni í Reykjanesbæ. Starfs-
fólki verði fjölgað til að aðstoða fólk
við að sækja um atvinnuleysisbætur
og leita sér að starfi og útskýra rétt-
indi og hjálpa fólki að sækja þau.
Mæta ekki í gistingu
Kristófer Oliversson, formaður
FHG – fyrirtækja í hótel- og gisti-
þjónustu, segir hótelin hafa fengið
afbókanir vegna falls WOW air.
„Það eru afbókanir og sérstak-
lega næstu vikurnar. Við erum með
bókanir en vitum ekki hvernig far-
þegarnir koma til landsins. Annað-
hvort afbókar fólk eða það virðist
ekki mæta,“ segir Kristófer um
fyrstu birtingarmyndir þessara
áhrifa.
Við þetta bætist fyrirhuguð verk-
föll sem séu mikið áhyggjuefni.
„Menn hafa miklar áhyggjur af
stöðunni. Við mætum þessum verk-
föllum með því að draga úr bókun-
um. Þess vegna stöndum við þetta af
okkur. En bókanirnar færast í
skuggahagkerfið og þau hótel og
gistiheimili sem eru opin. Við verð-
um að muna að verkföllunum er að-
eins beint að 15 aðilum.“
720 sótt um atvinnuleysisbætur
Nokkur hundruð uppsagnir í kjölfar gjaldþrots WOW air Ríkisstjórnin veitir Vinnumálastofnun 80
milljóna kr. tímabundna fjárveitingu Áhyggjur af stöðu fólks á Suðurnesjum Afbókanir á hótelum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Upplýsingar Starfsmenn VR og Vinnumálastofnunar veittu starfsfólki hins fallna félags upplýsingar um rétt þess.
VR mun lána þeim félagsmönn-
um sínum sem störfuðu hjá
WOW air ákveðna fjárhæð upp í
laun vegna marsmánaðar. Félag-
ið mun gera kröfu í þrotabú
flugfélagsins fyrir útistandandi
launum, launum á uppsagn-
arfresti og áunnum réttindum
félagsmanna sinna, þegar þeir
hafa skilað gögnum vegna máls-
ins. Þegar kröfurnar fást greidd-
ar úr þrotabúinu eða Ábyrgð-
arsjóði launa fær VR lán sitt til
baka. Ábyrgðarsjóðurinn tryggir
laun upp að 633 þúsundum á
mánuði.
Kom þetta fram á fundi sem
forsvarsmenn VR héldu með
starfsfólki WOW air í gær. Þar
mættu einnig fulltrúar Vinnu-
málastofnunar. Um 240 fyrrver-
andi starfsmenn flugfélagsins
eru í VR og er áætlað að um
200 hafi mætt á fundinn í gær.
Einn af trúnaðarmönnum
starfsfólks segir í samtali við
Morgunblaðið að þetta sé vel
gert hjá VR. Fólkið verði þá ekki
algerlega launalaust nú um mán-
aðamótin. Atvinnuleysisbætur
taki síðan við eða vinna hjá öðr-
um. Hann vonast til að hin stétt-
arfélögin geri slíkt hið sama fyr-
ir sína félagsmenn.
Trúnaðarmaðurinn segist lítið
hafa komist í atvinnuleit á þeim
stutta tíma sem liðinn er frá
falli félagsins. „Þetta kemur allt
en búast má við því að róðurinn
verði erfiður þegar margir fara á
sama tíma út á vinnumark-
aðinn,“ segir starfsmaðurinn
sem vill ekki láta nafns síns get-
ið.
Á fundinum kom einnig fram
að kjaramálafulltrúar VR myndu
aðstoða þá sem óskuðu við at-
vinnuleit.
Trúnaðarmaður vonar að hin
félögin geri slíkt hið sama
VR LÁNAR FÉLAGSMÖNNUM UPP Í MARSLAUN
315
starfsmönnum Airport Associates
var sagt upp störfum í gær vegna
samdráttar í verkefnum. Hluta
þeirra verður boðin vinna áfram í
hlutastörfum og á öðrum vöktum.
59
af 420 starfsmönnum Kynnisferða
var sagt upp í fyrradag vegna sam-
dráttar í verkefnum, aðallega fyrir
Icelandair og WOW air.
40
starfsmönnum verktakans Bygg var
sagt upp, m.a. vegna óvissu með
verkefni á Suðurnesjum.
6
missa vinnuna hjá Fríhöfninni í kjöl-
far gjaldþrots WOW, hluta starfs-
manna Gaman ferða var sagt upp af
sömu ástæðum og Gray line sagði
upp þremur starfsmönnum.
UPPSAGNIR VEGNA WOW
»
Gjaldþrot WOW air