Morgunblaðið - 30.03.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARS 2019
sp
ör
eh
f.
Sumar 20
Paradís Tatrafjallanna í Slóvakíu, Kraká í Póllandi og gullborgin
Prag í Tékklandi eru meðal hápunkta þessarar glæsilegu
ferðar. Menning, saga og náttúrufegurð fara hér saman og láta
engan ósnortinn.Við heimsækjum m.a.Vínarborg, sögufræga
landsvæðið Spiš, sem var mikilvægasta landnámssvæði
Þjóðverja á 14. öld, og að sjálfsögðu Tatra svæðið sem er að
mati margra með mikilfenglegustu svæðum Evrópu.
10. - 24. ágúst
Fararstjóri: Pavel Manásek
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 338.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Tatrafjöllin, Kraká&Prag
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég átti nú ekki von á því að enda í
Morgunblaðinu fyrir það eitt að lita
skeggið á mér fjólublátt,“ segir
Friðrik B. Kristjánsson, íbúi á
Skagaströnd, en hann brá sér til höf-
uðborgarinnar og fékk Hjálmar
Gauta Jónsson á rakarastofunni
Effect til að lita skeggið. Til þess að
fá rétta litinn tók Friðrik með sér
ljósmynd af Massey Ferguson-
traktor sem hann á.
„Ég er mikill húmoristi og hef
gaman af að ögra. Mér er sagt að
það nálgist guðlast og ég eigi vísa
vist í helvíti fyrir það að hafa trakt-
orinn fjólubláan. Menn hafa mis-
jafnar skoðanir á litnum og ef það
fer í taugarnar á þeim þá ögra ég
meira,“ segir Friðrik, sem lét lita á
sér skeggið vegna áskorunar frá
kunningja. Valið stóð um bleikt eða
fjólublátt.
„Ég er sáttur við útkomuna, þetta
er krúttlegt og æðislegt. Konan var
ekki hrifin af hugmyndinni en hún
fær að sjá þetta þegar ég kem
heim,“ segir Friðrik, sem er lífs-
glaður og notar húmorinn til að létta
sér lífið.
Vegna bæklunar er hann kominn
á hækjur og hann segir það halda
sér gangandi að sjá hlutina öðrum
augum en aðrir. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skegg í sama
lit og traktorinn
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Myndefni úr öryggismyndavélum er
sagt benda til þess að framganga
Báru Halldórsdóttur, sem tók upp
samtal sex þingmanna á Klaustri
Downtown bar hinn 20. nóvember
2018, hafi verið undirbúin. Hún hafi
því ekki komið á barinn fyrir tilviljun,
eins og hún hefur haldið fram.
Bergþór Ólason alþingismaður
sagði í samtali við Morgunblaðið að
lögmaður fjögurra þingmanna Mið-
flokksins sem voru á barnum, þeirra
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
Gunnars Braga Sveinssonar, Önnu
Kolbrúnar Árnadóttur og Bergþórs,
hefði skoðað myndefni sem Persónu-
vernd aflaði vegna málsins. Af því
mætti ýmislegt ráða um atburða-
rásina umrætt kvöld.
Á myndbandsupptöku sæist Bára
sitja í bíl sínum utan við Klaustur bar
klukkan 19.29 umrætt kvöld. Bílljósin
lýstu inn í veitingasal Klausturs og á
borðið þar sem þingmennirnir sátu.
Síðan slokknuðu bílljósin kl. 19.41 og
Bára gekk inn á barinn. Samkvæmt
þessu sat hún fyrir utan barinn og
virti fyrir sér aðstæður í að minnsta
kosti tólf mínútur áður en hún fór
inn.
Þegar hún steig út úr bílnum virð-
ist hún hafa tekið mynd inn um
glugga af þingmönnunum. Myndin
birtist síðan á vefmiðlum en Bára hef-
ur neitað því að hafa tekið myndina.
Þegar Bára kom inn á Klaustur
virðist hún fyrst hafa farið á salernið,
síðan inn á barinn kl. 19.48 og þaðan í
innri salinn mínútu síðar þar sem
þingmennirnir sátu. Þar settist hún
við borð kl. 19.49 og lagði frá sér
handtösku. Hún fór úr jakkanum og
sótti inn á sig svartan hlut og lagði við
handtöskuna. Svo sótti hún matseðil
af næsta borði og fékk sér aftur sæti.
Bára tók upp hvítan handfrjálsan
búnað, heyrnartól, og lagði á töskuna
kl. 19.50. Hún tók svo búnaðinn til
baka en þá virðist loða við hann svört
snúra sem datt. Hún tók snúruna og
stakk aftur fyrir töskuna. Síðan setti
hún handfrjálsa búnaðinn á sig og
tengdi við símann. Hún aftengdi
handfrjálsa búnaðinn frá símanum kl.
20.01 en var áfram með hann í eyr-
unum. Svo tengdi hún handfrjálsa
búnaðinn aftur við símann kl. 20.12.
Mínútu síðar tók hún í töskuna og
handlék snúru í eða við hana. Þá sjást
tveir svartir hlutir og snúrur undir
töskunni. Bára hagræddi töskunni kl.
20.35 og þá sjást svört stykki og snúr-
ur undir henni.
Bára tók í töskuna kl. 20.40 og tók
upp svarta snúru eða hlut, setti upp
gleraugu og leit undir bekkinn sem
hún sat á og skimaði í kringum sig.
Síðan stóð hún upp, tók svartan hlut
með sér og færði sig út fyrir mynd-
sviðið. Hún kom til baka mínútu síðar
án svarta hlutarins. Síðan tók hún
muni sína og tösku kl. 20.42 og þar
með tvö svört stykki og snúrur undan
henni. Svo flutti hún sig út fyrir
myndsviðið og kom ekki aftur inn í
það. Svo virðist sem Bára hafi setið
eftir það eins langt frá þingmönn-
unum og mögulegt var.
Bergþór sagði að á upptökunni sæ-
ist að Bára hefði gjarnan haldið á
símanum, horft á skjáinn og dregið
fingur yfir hann. Eftir kl. 20.40 hafi af
og til sést til ferða Báru fram á bar
eða í anddyri Kvosin Hotel sem er í
sama húsi. Þangað sótti hún tvívegis
ferðabæklinga. Svo sést þegar hún
yfirgaf staðinn kl. 23.39. Myndskeið-
inu sem lögmaður fjórmenninganna
hefur skoðað lauk kl. 23.52.
Myndband frá Klaustri bar skoðað
Morgunblaðið/Hari
Klaustur Bar Samtal sex alþingismanna var hljóðritað og ummælin birt.
Ólíklegt talið að Bára hafi verið á barnum fyrir tilviljun Sat drjúga stund í bíl fyrir utan barinn
Talin hafa tekið mynd inn um gluggann af þingmönnunum Flutti sig langt frá þingmönnunum
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er ekkert flókið að sigla skipi.
Þú þarft bara eina áhöfn og olíu.
Mestu vonbrigðin eru þau að við
séum að sigla öðru skipi en við áttum
að gera og getum ekki haldið þeirri
áætlun sem við ætluðum okkur,“
segir Guðbjartur Ellert Jónsson,
framkvæmdastjóri Vestmannaeyja-
ferjunnar Herjólfs ohf.
Félagið tekur við rekstri Herjólfs í
dag. Guðbrandur viðurkennir fús-
lega að aðstæður séu ekki ákjósan-
legar. Eins og fram hefur komið hafa
orðið tafir á smíði nýs Herjólfs í Pól-
landi og nú deila skipasmíðastöðin
og Vegagerðin um lokagreiðslur
vegna verksins. Óvíst er því hvenær
skipið fæst afhent.
„Samningurinn var gerður um að
félag í eigu Vestmannaeyjabæjar
tæki við rekstrinum þennan dag og í
leiðinni um nýja ferju. Þeirri dag-
setningu var ekkert breytt en niður-
staðan er aftur á móti sú að rekstr-
arfélagið er að hefja rekstur á eldri
ferju. Það varð ekki ljóst fyrr en
undir lok febrúar eða í byrjun mars
að nýja skipið kæmi ekki í tæka tíð.
Þá var búið að leggja mikla vinnu í
undirbúning nýrrar heimasíðu og
nýs bókunarkerfis. Við erum með
áætlun um að sigla sjö ferðir á dag
milli Vestmannaeyja og Landeyjar-
hafnar. Nú stöndum við frammi fyrir
því að vera ekki með skip og ekki
höfn og það er allt annað upplegg en
félagið og eigandinn ætluðu.“
Þar eð ekki hefur farið fram dýpk-
un í Landeyjahöfn vegna veðurskil-
yrða verður áfram siglt til Þorláks-
hafnar. Farnar verða tvær ferðir á
dag og verða þær á öðrum tíma en
verið hefur. Fyrsta ferð var áætluð
klukkan sjö í morgun.
Guðbjartur vill ekkert tjá sig um
stöðu mála varðandi afhendingu nýs
Herjólfs. Hann segir að Vegagerðin
sé eigandi og ábyrgðaraðili smíði
ferjunnar í Póllandi. „Ég hef sett
mig í þá stöðu að þeir tilkynni mér
hvenær eigi að sækja skipið. Að öðru
leyti er ég ekki aðili að því máli.“
Ekki ákjósanlegt að vera
hvorki með skip né höfn
Félag Vestmannaeyinga tekur við rekstri Herjólfs í dag
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Herjólfur Félag í eigu Vestmannaeyinga tekur við rekstri ferjunnar í dag.