Morgunblaðið - 30.03.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARS 2019
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Á aukafundi bæjarráðs Mosfellsbæj-
ar í gær var samþykkt að veita bæj-
arstjóra umboð til að segja upp
samningum um rekstur hjúkrunar-
heimilisins Hamra á grundvelli van-
efnda og/eða ófullnægjandi greiðslna
til að standa undir kostnaði. Að sögn
Haraldar Sverrissonar bæjarstjóra
hafa, þrátt fyrir ítrekanir, engin við-
brögð fengist frá heilbrigðisráðu-
neytinu eftir fund með ráðherra fyr-
ir tíu dögum. Að óbreyttu taki
ráðuneytið innan skamms yfir þær
skyldur sem leiði af starfsemi hjúkr-
unarheimilisins Hamra.
Í samþykkt bæjarráðs er ítrekuð
áskorun til heilbrigðisráðherra um
að tryggja rekstrargrundvöllinn í
samræmi við gerða samninga og
raunverulegan kostnað við veitingu
þeirrar þjónustu sem ríkið geri kröfu
um og beri ábyrgð á að veitt sé.
„Eins og staðan er núna er ekki
rekstrargrundvöllur fyrir heimilinu,
segir Haraldur. „Til að auka á
rekstrarvandann er fallinn úr gildi
rammasamningur Félags forstöðu-
manna fyrirtækja í velferðarþjón-
ustu og ráðuneytisins. Þá ákvað
ráðuneytið að fella úr gildi svokallað
RAI-mat, sem er ákvörðunargrunn-
ur fyrir umönnunarþyngd sem og
smæðarálag, sem kemur sér illa fyr-
ir reksturinn á Hömrum.“
Haraldur segir að stjórn Hamra
hafi tilkynnt bæjarfélaginu að heim-
ilið sé ekki rekstrarhæft nema til
komi frekari fjármunir frá bæ eða
ríki. Heimilið var vígt í lok júní 2013
og nú eru þar 33 rými, en samið hef-
ur verið um að stækka heimilið og að
þar verði 74 rými. Haraldur segir að
stækkunin muni laga rekstrargrund-
völlinn, en því miður séu nokkur ár
þangað til að hún verði að veruleika.
Framlög duga ekki
„Það er miður að sú staða sé nú
komin upp að Mosfellsbæ sé nauð-
ugur sá einn kostur að rifta samn-
ingum við heilbrigðisráðuneytið um
rekstur Hamra. Við höfum um langt
skeið haldið því að ráðuneytinu að
framlög þess til starfseminnar duga
ekki til að standa undir þeim kostn-
aði sem starfsemin kallar á til að
unnt sé að mæta þeim kröfum sem
ríkið sjálft gerir til þeirrar þjónustu
sem inna þarf að hendi á hjúkrunar-
heimilinu Hömrum,“ er haft eftir
Haraldi í fréttatilkynningu.
Fulltrúi M-lista í bæjarráði ítrek-
aði bókun sína í gær þess efnis að
Mosfellsbær ætti að láta meta hvort
stefna ætti ríkinu vegna vanefnda á
samningi aðila.
Vanefndir af hálfu ríkisins
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar með heimild til að segja upp
samningum um rekstur Hamra Skyldur til ráðuneytis
Ljósmynd/Mosfellingur
Hamrar Bæjaryfirvöld skora á ráðherra að tryggja rekstrargrundvöll
hjúkrunarheimilisins í samræmi við gerða samninga og kröfur ríkisins.
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
Hugsaðu vel um
húðina þína – alltaf
Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir
andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan.
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Rýmum fyrir
nýjum vörum!
30%afsláttur af völdum fatnaði og skóm
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Blússur
Kr. 7.900
Str. M-XXXL
Fylgið okkur á facebook
Skipholti 29b • S. 551 4422
Kjólar fyrir
vorveislurnar
Upplýsingar og pantanir astjorn.is eða í síma 462 3980
facebook.com/astjorn – youtube.com/astjorn
Stofnaðar 1946ristile ar sumarbúðir
Einstakar
sumarbúðir
í stórkostlegri
náttúru
Verð innan
við 6500 kr.
á sólarhring