Morgunblaðið - 30.03.2019, Qupperneq 33
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Við leitum að metnaðarfullum og framsæknum stjórnanda til að leiða þjónustu- og þróunarsvið Hafnarfjarðarbæjar. Um er að ræða
nýtt stoðsvið innan sveitarfélagsins sem ber ábyrgð á þjónustuferlum og þróun þeirra, stafrænum umbreytingum og rafrænni
stjórnsýslu. Sviðsstjóri heyrir beint undir bæjarstjóra. Undir sviðið heyra þróunar- og tölvudeild, þjónustuver, rafræn stjórnsýsla,
samskiptamál, menningar- og markaðsmál og söfn bæjarins. Á sviðinu munu starfa um 30 starfsmenn. Sviðsstjóri ber ábyrgð á
rekstri og stýringu sviðsins ásamt þróun rafrænnar þjónustu.
Um er að ræða spennandi starf þar sem viðkomandi gefst tækifæri til að þróa nýtt svið þjónustu- og þróunar, innleiða nýja ferla og
hagnýta upplýsingatækni við innri og ytri þjónustu Hafnarfjarðarbæjar.
SVIÐSSTJÓRI ÞJÓNUSTU- OG ÞRÓUNARSVIÐS
Hafnarfjörður er þriðji stærsti bær landsins með tæplega 30.000 íbúa og 1800 starfsmenn. Framsækið sveitarfélag sem
byggir á fjölskylduvænu umhverfi, fyrirmyndarþjónustu og öflugu atvinnulífi.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun kostur
• Reynsla af stjórnun með mannaforráð er skilyrði
Helstu verkefni
• Stefnumótun í þjónustuveitingu
Hafnarfjarðarbæjar
• Innleiðing þjónustuþróunar og notendamiðaðrar
hönnunar
• Þróun og efling stafrænna þjónustuleiða
• Daglegur rekstur, skipulag og umsjón með
starfsemi sviðsins
• Samstarf við önnur svið sveitarfélagsins
Nánari upplýsingar veitir:
Áslaug Kristinsdóttir,
aslaug@hagvangur.is
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um
starfið. Við kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni,
sköpunargleði og hraða í vinnubrögðum.
Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt gildandi
kjarasamningi. Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl
2019.
Umsóknum skulu fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2019.
Sækja skal um starfið á vef Hafnarfjarðar
https://radningar.hafnarfjordur.is
• Haldgóð reynsla af þjónustustýringu og mótun
þjónustumarkmiða
• Reynsla og þekking á stafrænum lausnum
• Reynsla af samstarfi þvert á ólíkar
skipulagseiningar
• Reynsla af þjónustuþróun og notendamiðaðri
hönnun
• Reynsla af þróun og innleiðingu nýrra ferla
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og góð
félagsleg færni
• Leiðtogafærni, skipulagshæfileikar og drifkraftur
í starfi
• Rík þjónustulund, áhugi og metnaður til að veita
framúrskarandi þjónustu
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391
www.sidferdisgattin.is
SIÐFERÐISGÁTTIN
Eflir vellíðan á vinnustað