Morgunblaðið - 01.04.2019, Side 1
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Skiptastjórar þrotabús WOW air
hafa fengið fjölda fyrirspurna um
kaup á eignum úr þrotabúinu með
það fyrir augum að nýta þær við nýj-
an flugrekstur. Þorsteinn Einarsson
skiptastjóri segir ekkert í hendi um
það og tekur fram að það sé flókið
mál að stofna nýtt flugfélag.
Hæstaréttarlögmennirnir Þor-
steinn og Sveinn Andri Sveinsson
voru skipaðir skiptastjórar vegna
gjaldþrots WOW air. Þorsteinn segir
að fyrstu verkin séu að ná utan um
eignir búsins og varðveita þær og
kanna leigusamninga. Ákveðið var
að tilkynna starfsfólki formlega að
þrotabúið tæki ekki yfir ráðningar-
samninga þess og voru stefnuvottar
á ferðinni alla helgina. Þorsteinn
segir að mikilvægt hafi verið að gera
þetta fyrir mánaðamótin. Þá hafi til-
kynning um innköllun skulda verið
send til Lögbirtingablaðsins.
Verðmætt bókunarkerfi
Varðandi sölu eigna til þeirra sem
áhuga kunna að hafa á að stofna til
flugrekstrar á þessum grunni bendir
Þorsteinn á að WOW air hafi skilað
flugrekstrarleyfi sínu áður en það
varð gjaldþrota. Flugrekstrarleyfi
skipti mestu máli þegar verið er að
hefja flugrekstur og annaðhvort
þurfi viðkomandi að vera með slíkt
leyfi eða afla þess. Þá má geta þess
að félagið átti engar flugvélar, held-
ur var með þær á leigu.
Þorsteinn bendir á að WOW hafi
átt bókunarkerfi og annan hugbúnað
sem mikið hafi verið kostað til. Verk-
efni skiptastjóra sé að gera verð-
mæti úr öllu sem hægt er og séu
skiptastjórarnir fúsir að selja eignir.
Segir hann óskandi að hægt væri að
nýta þær í flugrekstur.
Fyrrverandi starfsfólk WOW air
fær ekki laun nú um mánaðamótin
vegna þess að félagið varð gjaldþrota
og tíma tekur að sækja fjármunina
til þrotabúsins eða Ábyrgðasjóðs
launa. Stéttarfélög starfsfólksins
hlaupa undir bagga og lánar starfs-
fólki hluta launanna þar til tekist hef-
ur að innheimta kröfurnar.
Vilja selja eignirnar
Áhugamenn um flugrekstur hafa spurst fyrir um eignir þrotabús WOW air
Þrotabúið fékk hvorki flugrekstrarleyfið né þotur Flókið að stofna flugfélag
Leitað að vinnu
» Ekki eru mörg störf á lausu
á íslenskum vinnumarkaði fyrir
sérhæft starfsfólk WOW air.
» Erlendar ráðningarstofur
hafa haft samband við stétt-
arfélög flugmanna og flug-
freyja/flugþjóna. Kynningar
verða í þessari viku.
MGjaldþrot WOW air »4
Morgunblaðið/Hari
Airbus Önnur af tveimur þotum WOW air sem eigandinn á eftir að sækja.
M Á N U D A G U R 1. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 77. tölublað 107. árgangur
GUÐMUNDUR
VILL ÞJÓÐVEG
NÚMER TVÖ
ARON EINAR LÉK
400. DEILDAR-
LEIKINN
ÖGRANDI VERKEFNI
Í LANDBÚNAÐAR-
HÁSKÓLA ÍSLANDS
KNATTSPYRNA ÍÞRÓTTIR RAGNHEIÐUR NÝR REKTOR 12HINN HRINGVEGURINN 6
Fundur stóð yfir fram á ellefta tím-
ann í gærkvöldi í húsnæði Ríkissátta-
semjara en var þá frestað fram til
klukkan hálftíu í dag. Kjaraviðræður
Samtaka atvinnulífsins við Eflingu,
VR og samflot fjögurra annarra
verkalýðsfélaga hafa staðið yfir alla
helgina. Fundað var frá hádegi í gær
og héldu samningsaðilar þétt að sér
spilunum í allan gærdag.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, sagði við blaðið á níunda tíman-
um að haldið yrði áfram á meðan eitt-
hvað væri til þess að tala um. Þegar
fundi var frestað á ellefta tímanum
sagðist hann reikna með að staðan
myndi skýrast í dag en gat ekki tjáð
sig efnislega um viðræðurnar.
Verkfall hefst því í dag hjá bílstjór-
um Almenningsvagna Kynnisferða
sem hefur áhrif á tíu leiðir strætó inn-
an höfuðborgarsvæðisins. Leggja bíl-
stjórar viðkomandi leiða niður störf á
milli sjö og níu á morgnana og svo aft-
ur á milli fjögur og sex síðdegis, alla
virka daga í apríl. Bílstjórar áætla að
mynda kröfustöðu við stoppistöðvar.
Aðgerðirnar hafa áhrif á um 15 þús-
und farþega.
Kjarasamningar flestra stéttar-
félaga á opinberum markaði runnu
svo út á miðnætti. Ágæt sátt er sögð
um að bíða eftir því hvað kemur út úr
kjaraviðræðum almenna vinnumark-
aðarins áður en þær viðræður eru
settar á fullt. »2 og 11
Maraþon-
fundur í
Karphúsi
Morgunblaðið/Eggert
Ríkissáttasemjari Fundað var til
þrautar í kjaradeilunni í gærkvöld.
Hittast á ný
klukkan hálftíu
Heildar-
fjárhæð arfs á
árunum 2015-
2017 var rúm-
lega 121 millj-
arður króna. Af
því eru tæplega
8,8 milljarðar til
þeirra sem erfðu
yfir 100 millj-
ónir. Þetta kemur fram í svari fjár-
mála- og efnahagsráðherra á al-
þingi um skattskyldan arf
einstaklinga. Heildarfjárhæð arfs
fór hækkandi á þessum árum. Árið
2015 var heildarfjárhæðin 33,7
milljarðar, tæplega 40,5 milljarðar
árið 2016 og loks tæplega 47 millj-
arðar árið 2017. »8
121 milljarður í arf
á þremur árum
Ofurhjóladagurinn var haldinn hátíðlegur í
fyrsta skipti í Kringlunni í gær. Þar fór meðal
annars fram svokallað Kringlu-Brun þar sem
brunað var niður rúllustiga og stokkið á milli
hæða. Brunið er sambærilegt öðru bruni á fjalla-
hjólum fyrir utan það að fara fram í Kringlunni.
Eins og sést bersýnilega á þessari mynd safn-
aðist margmenni saman til þess að berja ofur-
hugana sem hættu sér í brunið augum.
Morgunblaðið/Hari
Stokkið á milli hæða Kringlunnar á fjallahjólum