Morgunblaðið - 01.04.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.04.2019, Blaðsíða 32
Sigrún Pálmadótt- ir sópran kemur ásamt Antoníu He- vesi píanóleikara fram á hádegis- tónleikum í Hafn- arborg á morgun, þriðjudag, kl. 12. Á efnisskránni eru aríur eftir Künneke, Lehár, Siezynski og Strauss. Sigrún nam við bæði óperu- og ljóðadeild Tónlistar- háskólans í Stuttgart og var fastráð- in við óperuhúsið í Bonn 2001-12. Vorið 2008 söng hún hlutverk Víólettu Valéry í La traviata eftir Verdi hjá Íslensku óperunni og hlaut í kjölfarið Grímuna sem söngvari ársins. Síðan 2013 hefur Sigrún starfað sem söng- og tónlistarkenn- ari í Tónlistarskóla Ísafjarðar. Sigrún á hádegistón- leikum í Hafnarborg MÁNUDAGUR 1. APRÍL 91. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. „Þetta er frábært tækifæri fyrir mig, svo að ég geti byggt mig upp að nýju og komist aftur á þann stað sem ég vil vera á. Félagið hefur sýnt mér mikinn áhuga og vill hjálpa mér þangað,“ segir landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson sem skrifað hefur undir samning við Svíþjóðar- meistara AIK í fótbolta. Samning- urinn gildir út árið 2021. »1 „Þetta er frábært tækifæri fyrir mig“ ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Valsmenn náðu fram ákveðnum hefndum gegn FH í gær eftir tapið í bikarúrslitaleiknum fyrir þremur vikum, þegar þeir unnu 28:26-sigur í Kaplakrika í gærkvöld. Þá lauk þriðju síðustu umferð Olís-deildar karla í handbolta. Haukar eru einu skrefi frá því að verða deildarmeist- arar en Selfoss og Valur koma næst á eftir. FH hefur ekki unnið í síð- ustu fjórum leikjum í deildinni og gæti misst heimavall- arrétt í úr- slitakeppn- inni til ÍBV sem er á miklu flugi. »4 Bikarmeistarar FH hafa gefið eftir Góð þjónusta í tæpa öld Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 1-4 manneskjur 15.500 kr. 5-8manneskjur 19.500 kr. Verð aðra leið Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Börn verða að vita að þau mega al- veg hafa skoðanir og hafa rödd og ef þau eru bara sniðug þá geta þau oft náð sínu fram með því að láta full- orðna hlæja því þau eru svo snjöll,“ segir Katrín Oddsdóttir sem stóð fyrir smiðjunni „Brandarar og prakkarastrik“ ásamt uppistand- aranum Sögu Garðarsdóttur í Borg- arbókasafninu í Grófinni í gær. Tvíeykið hélt tvær smiðjur, eina fyrir fimm til átta ára börn og aðra fyrir níu til tólf ára börn en færri komust að en vildu. Óþekkir prakkarar Áhersla var lögð á að það væri ekkert vit í því að stríða þeim sem ekki vildu láta stríða sér en það mætti alveg grínast í fullorðnum og þeim sem vildu láta stríða sér. „Við erum auðvitað hérna vegna þess að nú er að koma fyrsti apríl og við viljum kenna þeim hvernig þau geta platað fullorðna, verið meiri prakkarar og verið óþekkari. Ég held að það sé bara mjög gott fyrir þau,“ segir Katrín. Hún og Saga sögðu börnunum frá borgaralegri óhlýðni og útskýrðu hana sem það „þegar maður notar óþekkt til að mótmæla því sem manni finnst óréttlátt“. Börnin vildu flest kannast við að hafa stundað borgaralega óhlýðni á einhverjum tímapunkti. „Til dæmis þegar mamma skipar mér að greiða mér,“ sagði ein stúlk- an. „Þegar ég fór með pabba mínum að mótmæla einhverju,“ sagði einn drengurinn. Aðspurð segir Katrín að það mætti vera meira um það í sam- félaginu að börn væru hvött til þess að segja það sem þeim fyndist, jafn- vel væri litið á það sem óþekkt. „Það er auðvitað hluti af barnasátt- málanum að börn eiga rétt á að tjá sig um þau málefni sem þau varða. Ég er sjálf foreldri og maður er auðvitað oft að kenna börnunum sínum hvað þau eiga ekki að gera en þetta er eitt af því sem þau eiga að læra, að segja hvað þeim finnst jafn- óðum og mótmæla því sem þeim finnst óréttlátt.“ Þörfin aldrei meiri Katrín bendir á að það sé sér- staklega mikilvægt á þeim tímum sem við lifum nú að börnin í sam- félaginu okkar kunni að hefja upp raust sína. „Líka vegna þess að það þarf eitt- hvað að fara að gerast, þau eru næsta kynslóð, þau þurfa að bjarga heiminum svo það er eins gott að þau fari strax að hugsa að þau séu þess megnug.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Brandarar Katrín útskýrir hvaða prakkarastrik geti verið skemmtileg frammi fyrir áhugasömum áhorfendum. Grín, prakkarastrik og brandarar til mótmæla  Katrín Oddsdóttir og Saga Garðars með brandarasmiðju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.