Morgunblaðið - 01.04.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. APRÍL 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Maraþonfundi í kjaraviðræðum
Samtaka atvinnulífsins við Eflingu,
VR og samflot fjögurra annarra
verkalýðsfélaga í húsnæði Ríkis-
sáttasemjara var frestað á ellefta
tímanum í gærkvöld. Fundur hafði
þá staðið frá hádegi en samningsað-
ilar höfðu ráðið ráðum sínum frá því
klukkan níu í gærmorgun.
„Ég reikna með að staðan muni
skýrast á morgun [í dag],“ sagði
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, við Morgunblaðið eftir að fund-
inum var frestað. Ragnar hafði þá
áður sagt, á níunda tímanum í gær-
kvöld, að á meðan eitthvað væri til
þess að tala um yrði haldið áfram.
„Það hlýtur að gefa auga leið að við
værum löngu hætt þessu ef ekki
væri verið að reyna til þrautar,“
sagði hann þá.
Samningsaðilar héldu annars þétt
að sér spilunum á meðan fundur
gærdagsins stóð yfir. Að honum
loknum vildu samningsaðilar virða
fjölmiðlabannið og þá ætlaði Bryndís
Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari
ekki að tjá sig um gang mála í við-
ræðunum.
Sjöundi fundardagurinn í röð
Stíft var fundað alla helgina. Á
laugardag var fundað frá klukkan tíu
og fram eftir degi áður en þráðurinn
var tekinn upp að nýju í hádeginu í
gær. Það var sjöundi dagurinn í röð
sem samninganefndirnar funda.
Nokkur skriður hefur verið á við-
ræðunum frá því um miðja síðustu
viku. Á miðvikudag var fyrirhuguð-
um verkföllum um tvö þúsund hót-
elstarfsmanna og rútubílstjóra sem
standa áttu í 48 klukkustundir aflýst.
Var það sagt til þess að skapa vinnu-
frið í viðræðum þar sem farið var að
sjást til sólar.
Launaliðurinn er sagður vera sá
þáttur sem enn er strandað á, en þó
að farið sé að sjá betur til lands. Á
laugardag hermdu heimildir mbl.is
að samningurinn sem var í kortunum
yrði til allt að fjögurra ára. Vilhjálm-
ur Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness, sagði áður en fund-
ur hófst í gær að staðan væri mjög
viðkvæm. Hann taldi ólíklegt að
samningar næðust á fundinum sem
framundan var, en hugsanlega fljót-
lega eftir helgi.
Skapar ekki aukna pressu
Auk þess sem fundað var stíft á
hinum almenna markaði þá runnu
kjarasamningar flestra stéttarfélaga
á opinberum markaði út á miðnætti.
Drífa Snædal, formaður ASÍ, býst
ekki við að það setji aukna pressu á
viðsemjendur á almenna markaðn-
um í sínum viðræðum.
„Nei, ég sé það ekki endilega.
Þetta eru sjálfstæðir samningar og
kjarasamningagerðin hefur ekki
verið að blandast saman. Það hefur
verið samstarf varðandi viðræður við
stjórnvöld varðandi upplýsingamiðl-
un, en ekki í kjarasamningum,“ sagði
Drífa við Morgunblaðið í gærkvöld
og beið þá sjálf eftir frekari fréttum
úr Karphúsinu. Hún sagði að við-
ræðurnar þyrftu að hafa sinn gang,
en á meðan fundað væri þá væri von
til þess að ná saman.
Fundur hefst á ný í Karphúsinu
klukkan hálftíu í dag sem fyrr segir
og verkfallsaðgerðir strætóbílstjóra
Almenningsvagna Kynnisferða hefj-
ast samkvæmt áætlun.
Morgunblaðið/Hari
Kjaraviðræður Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari mun taka upp þráðinn í viðræðunum klukkan hálftíu.
Búast við að viðræður
taki að skýrast í dag
„Værum löngu hætt ef ekki væri verið að reyna til þrautar“
Kjaraviðræður
» SA og verkalýðsfélögin sex
hafa fundað sjö daga í röð í
kjaraviðræðum sínum.
» Rætt var til þrautar alla
helgina áður en ákveðið var að
fresta fundi til hálftíu í dag.
» Fyrirhuguð verkföll hefjast í
dag og næstu aðgerðir eru
boðaðar á miðvikudag sem
eiga að standa í þrjá sólar-
hringa.
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Boðuð verkföll hófust í dag, 1. apríl,
hjá bílstjórum Almenningsvagna
Kynnisferða sem eru félagsmenn í
Eflingu. Verkfallið hefur áhrif á tíu
leiðir strætó innan höfuðborgar-
svæðisins, en um er að ræða leiðir
12, 14, 15, 16, 17, 21, 24, 28, 35 og 36.
Aðgerðirnar hafa ekki áhrif á aðrar
leiðir Strætó á höfuðborgarsvæðinu.
Aðgerðirnar felast í því að vinna
er lögð niður dag hvern á milli
klukkan sjö og níu að morgni og aft-
ur á milli klukkan fjögur og sex síð-
degis. Að frátöldum laugardögum og
sunnudögum er það gert dag hvern í
apríl, frá og með deginum í dag. Bú-
ast má við að aðgerðirnar muni hafa
áhrif á um 15 þúsund farþega. Jafn-
gildir það um þriðjungi allra farþega
strætó á höfuðborgarsvæðinu.
Strætó setti saman viðbragðs-
áætlun á framangreindum leiðum til
þess að reyna að skerða þjónustu
sem minnst. Í áætluninni er lögð
áhersla á að hætta akstri á enda-
stöðvum eða á stórum biðstöðvum
þannig að farþegar hafi kost á því að
nýta aðrar leiðir kerfisins.
Guðmundur Heiðar Helgason,
upplýsingafulltrúi Strætó, sagði við
Morgunblaðið í gærkvöld að for-
svarsmenn fyrirtækisins fylgdust
grannt með kjaraviðræðum hjá Rík-
issáttasemjara. Ef svo færi að samið
yrði seint eða í nótt og verkfalli af-
lýst gæti Strætó brugðist við með
stuttum fyrirvara og haldið úti sínu
reglubundna leiðakerfi.
Aðgerðir bílstjóranna sem hófust í
dag eru fyrstu verkfallsaðgerðirnar í
þeirri hrinu sem búið er að boða til í
apríl ef ekki næst samkomulag í
kjaraviðræðum.
Þriggja daga verkföll taka við
Næstu fyrirhuguðu verkföll eru
hjá hótelstarfsfólki og hóp-
bifreiðastjórum hjá VR og Eflingu
sem leggja niður störf í þrjá daga frá
miðvikudegi ef ekki tekst að semja.
Fyrsta þriggja daga verkfall á
hótelum og hjá rútufyrirtækjum í
apríl er því boðað dagana 3.-5. apríl.
Þriggja daga verkföll hafa einnig
verið boðuð dagana 9.-11. apríl, 15.-
17. apríl og 23.-25. apríl. Ef ekki
næst að semja er svo ótímabundið
verkfall boðað frá og með 1. maí og
stendur það ótímabundið þar til
verkfallinu er aflýst.
Hefur áhrif á 15
þúsund farþega
Verkfallsaðgerðir hefjast á ný í dag
MorgunblaðiðHari
Strætó Um þriðjungur farþega mun
finna fyrir verkfallsaðgerðunum.
„Aðgerðahópur iðnaðarmannafélaganna er að störfum og hans fyrsta
verk er að planleggja hugsanlegar aðgerðir. Hópurinn er að meta hvaða
vinnustaðir og starfshópar innan okkar raða myndu hafa mest áhrif ef
til verkfalla kæmi. Matið liggur ekki fyrir en málin munu skýrast á næstu
dögum,“ segir í frétt á vef Samiðnar sem birt var undir lok vikunnar um
stöðuna í kjaradeilunni. Samflot iðnaðarmanna og Samtök atvinnulífs-
ins eru boðuð til sáttafundar hjá ríkissáttasemjara kl. 13 í dag.
Á vef Samiðnar segir að vendipunkturinn nálist. Takist VR. Eflingu og
félögunum sem eru í samfloti með þeim að fá hjólin til að snúast séu
vaxandi líkur á að fleiri komi að samningaborðinu „því það verður segj-
ast eins og er að þeir aðilar sem sátu við samningaborðið í febrúar og
byrjun mars, voru komnir vel áleiðis með samning án þess að hægt sé
að segja að samningur hafi legið á borðinu“.
Segja vendipunktinn nálgast
IÐNAÐARMENN OG SA Á SÁTTAFUNDI Í DAG
Fyrstu lóurnar sáust í Stokkseyr-
arfjöru hinn 28. mars, en jafnan er
koma lóunnar talinn einn helsti
vorboði hér á landi. Um 20 heiðló-
ur sáust svo í Fljótshlíð daginn
eftir.
Það má segja að lóan sé aðeins
á eftir áætlun í ár ef miðað er við
meðalkomutíma fyrstu lóunnar á
árunum 1996-2016, en það var 23.
mars. Hún er þó á svipuðum tíma
og í fyrra, en þá sást til fyrstu ló-
unnar í kringum 27. mars.
Farið er að sjást til fleiri far-
fugla ef miðað er við umfjöllun frá
Fuglaathugunarstöð Suðaust-
urlands. Fyrstu skógarþrestirnir
sáust á Höfn hinn 28. mars. Þar
hafa einnig fyrstu jaðrakanar árs-
ins sést og eins í fjörunni á Eyr-
arbakka. Tveir fuglar á hvorum
stað. Einnig hafa nokkrir hópar af
álftum og grágæsum sést á flugi
yfir Höfn. Um 100 blesgæsir og
tugur heiðagæsa sáust í Flóanum,
við Þjórsá. Tjaldar voru komnir á
grasflatir á Stokkseyri fyrir helgi.
Einnig berast ábendingar að
norðan, meðal annars um að svan-
irnir séu farnir að láta sjá sig í
Fjallabyggð. yrkill@mbl.is
Lóan aðeins á eftir áætlun
Farfuglarnir
farnir að sjást
einn af öðrum
Ljósmynd/Hjördís Davíðsdóttir
Vorboði Fyrsta lóan sem til sást í
Stokkseyrarfjöru fyrir helgi.
Ljósmynd/Sigurlaugur Oddur Jónsson
Sperrtir Svanir í Fjallabyggð í gær.
Vorið nálgast ekki síður nyrðra.