Morgunblaðið - 01.04.2019, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. APRÍL 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Örfá sæti laus vegna forfalla
Frá kr.
84.095
18. apríl í 4 nætur
Búdapest Veður víða um heim 31.3., kl. 18.00Reykjavík 3 alskýjað
Hólar í Dýrafirði 3 skýjað
Akureyri 6 alskýjað
Egilsstaðir 5 alskýjað
Vatnsskarðshólar 4 rigning
Nuuk -5 snjóél
Þórshöfn 6 rigning
Ósló 5 heiðskírt
Kaupmannahöfn 6 heiðskírt
Stokkhólmur 6 slydduél
Helsinki 3 skúrir
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 13 heiðskírt
Dublin 9 skýjað
Glasgow 9 alskýjað
London 11 léttskýjað
París 19 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 9 heiðskírt
Berlín 11 heiðskírt
Vín 18 heiðskírt
Moskva 12 heiðskírt
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 11 súld
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 16 rigning
Róm 17 heiðskírt
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg 0 léttskýjað
Montreal 0 snjókoma
New York 14 rigning
Chicago 0 léttskýjað
Orlando 26 léttskýjað
1. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:46 20:18
ÍSAFJÖRÐUR 6:47 20:27
SIGLUFJÖRÐUR 6:30 20:10
DJÚPIVOGUR 6:15 19:49
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á þriðjudag Norðan 8-13 m/s, en 13-20 suðaustan
til á landinu. Léttskýjað sunnan- og vestanlands,
annars dálítil él. Frost 0 til 5 stig. Lægir seinnipart-
inn, styttir upp og kólnar.
Fremur hæg breytileg átt og úrkomuminna, en vaxandi norðanátt seint í dag, 10-18 m/s um
landið norðvestanvert og éljagangur, en annars hægari og úrkomulítið. Frost 0 til 5 stig.
Erlendar ráðningarstofur sem sérhæfa sig í ráðningu
flugmanna og flugfreyja hafa haft samband við stétt-
arfélög flugmanna og flugfreyja/flugþjóna sem störf-
uðu hjá WOW air. Íslenska flugmannafélagið hyggst
hafa milligöngu um slíkar kynningar í þessari viku.
Flugmenn og flugfreyjur sem hafa látið vita af sér fá
einnig fyrirspurnir beint.
Vignir Örn Guðnason, formaður Íslenska flug-
mannafélagsins, segir að flest flugfélög séu búin að
ráða fyrir sumarið og því sé hætt við að bestu bitarnir
séu farnir. Hann veit ekki til þess að vinnu sé að hafa
hér innanlands. Þeir sem taki tilboðum um vinnu er-
lendis þurfi að flytja úr landi og verði ríkið af skatt-
tekjum við það. 178 flugmenn voru hjá WOW air þegar
félagið hætti.
Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags
Íslands, segir að flugfreyjur og flugþjónar séu að líta í
kringum sig eftir vinnu en tekur fram að fólkið sé enn
að ná áttum. Hún vonar að það fái fljótt vinnu. Nefnir
að menntunarstig sé almennt gott, meðal annars séu í
stéttinni hjúkrunarfræðingar og kennarar og fólk með
aðra sértæka menntun. Það ætti að geta hjálpað.
Landspítalinn hefur fengið fyrirspurnir frá hjúkr-
unarfræðingum sem voru flugfreyjur hjá WOW og
Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra,
segir að spítalinn hafi einnig haft samband til að minna
á sig. Reiknar hún með að mál skýrist eftir helgina.
ASÍ lánar fyrir marslaunum
ASÍ hefur ákveðið að hlaupa undir bagga með Flug-
freyjufélagi Íslands þannig að hægt verði að greiða
flugfreyjum og flugþjónum hluta af launum marsmán-
aðar á meðan starfsfólkið bíður eftir greiðslum úr
þrotabúi fyrirtækisins eða Ábyrgðasjóði launa, á sama
hátt og VR og Verkalýðsfélag Keflavíkur og nágrennis
gera fyrir sína félagsmenn. Flugfreyjufélagið býðst til
að lýsa kröfum félagsmanna í þrotabúið.
Ráðningarstofur kynna sig
Samkomulag Berglind Hafsteinsdóttir og Drífa Snæ-
dal skrifa undir samkomulag um greiðslur.
Landspítalinn vill hjúkr-
unarfræðinga til baka
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Til athugunar er hjá Suðurnesjabæ
að ráða nemendur framhaldsskóla
og háskóla til vinnu við verkefni hjá
bæjarfélaginu í sumar, ef þeir fá ekki
vinnu á Keflavíkurflugvelli vegna
gjaldþrots WOW air. Einar Jón
Pálsson, forseti bæjarstjórnar, segir
að þetta sé ein þeirra aðgerða sem til
umræðu sé og verði örugglega gripið
til hennar ef ekki verði vinnu að hafa
í sumar.
Fall WOW air er áfall fyrir íbúa
sveitarfélaganna á Suðurnesjum,
sérstaklega Reykjanesbæjar og Suð-
urnesjabæjar. Hluti starfsmanna
flugfélagsins sem misstu vinnuna við
gjaldþrotið og var sagt upp af þjón-
ustufyrirtækjum í kjölfarið er bú-
settur í þessum sveitarfélögum.
Sveitarfélögin vinna saman
Sveitarfélögin vinna saman að öfl-
un upplýsinga og samráði við stjórn-
völd vegna vandans. Kjartan Már
Kjartansson, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ, segir að enn liggi ekki fyrir
upplýsingar um fjölda atvinnulausra.
Á föstudag höfðu á annað hundrað
sótt um atvinnuleysisbætur hjá
svæðisskrifstofu Vinnumálastofnun-
ar í Reykjanesbæ. Kjartan Már telur
að fjölga muni á þeim lista í dag og
næstu daga. Þá sé ekki vitað hversu
margir starfsmenn Airport Associa-
tes sem þjónustaði WOW air, verði
endurráðnir. Þótt bæjarstjórinn hafi
ekki upplýsingar um heildarmynd-
ina telur hann óhætt að ræða um
högg fyrir sveitarfélagið.
Einar Jón segir ljóst að gjaldþrot
WOW air muni hafa áhrif á tekjur
sveitarfélagsins og útgjöld til
skamms tíma. Útsvar muni minnka,
atvinnuleysi geti aukist og verkefni
félagsþjónustunnar aukist í kjölfar-
ið.
Kjartan segir að fulltrúar sveitar-
félaganna fylgist með þróuninni dag
frá degi, meðal annars fjölda at-
vinnulausra og stöðunni hjá fyrir-
tækjum. „Við erum einnig að kort-
leggja það hvað gerist í íþrótta- og
tómstundamálum í bænum, í skólum
og frístundasókn barna þeirra for-
eldra sem missa vinnuna. Við viljum
fylgjast sérstaklega með börnun-
um,“ segir hann.
Aukin sókn í nám
Sveitarstjórnarfólk á Suðurnesj-
um, þingmenn Suðurkjördæmis og
fleiri komu saman á neyðarfundi á
föstudag að frumkvæði Ásmundar
Friðrikssonar alþingismanns. Einar
Jón segir að farið hafi verið yfir stöð-
una þannig að allir hefðu sem bestar
upplýsingar. Fundurinn hafi verið
gagnlegur.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra hefur boðað forystumenn
Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæj-
ar til fundar við sig fyrir hádegi í dag
til að fá yfirlit um stöðu mála. Lilja
Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráð-
herra hefur boðað komu sína til að
kanna málefni skólanna og Ásmund-
ur Einar Daðason félagsmálaráð-
herra fylgist daglega með þróun
mála.
„Það er fyrst og fremst að tryggja
starfsemi þeirra stofnana sem ríkið
ber ábyrgð á, Vinnumálastofnunar,
heilbrigðisstofnunar, lögreglu og
Fjölbrautaskólans. Búast má við því
að fleiri muni vilja sækja sér aukna
menntun í framhaldsskóla, Keili eða
Miðstöð símenntunar,“ segir Kjart-
an þegar hann er spurður um mögu-
lega aðstoð ríkisins.
Ráða skólafólkið í vinnu
Suðurnesjabær hugar að úrræðum fyrir nemendur sem ekki fá vinnu á
Keflavíkurflugvelli í sumar Forsætisráðherra fundar með forystufólki í dag
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Mikil aukning hefur orðið í starfsemi á Keflavíkurflugvelli á und-
anförnum árum, ekki síst vegna WOW air. Eitthvað gengur nú til baka.
Ljóst er að bílaleigur munu finna fyr-
ir falli WOW air með minni viðskipt-
um. Það kann þó að vera misjafnt á
milli fyrirtækja, eftir því hvaða mark-
hópa þau hafa sótt í. Forsvarsmenn
Bílaleigu Akureyrar og Hertz segjast
lítið hafa fundið fyrir þessu enn sem
komið er en búast við því síðar.
„Áhrifin eiga eftir að koma í ljós en
við höfum áhyggjur. Maður gerir sér
ekki grein fyrir þessu fyrr en eftir
viku til tíu daga, þegar bókanir og af-
bókanir fara að skýrast. Það veldur
síðan miklum áhyggjum ef verkföll
koma ofan í þetta,“ segir Bergþór
Karlsson, framkvæmdastjóri hjá
Bílaleigu Akureyrar og formaður
bílaleiguhóps Samtaka ferðaþjónust-
unnar. Hann segir að ferðaskipu-
leggjendur sem selji pakkaferðir til
Íslands í sumar reyni að finna aðrar
leiðir fyrir viðskiptavini sína. „Von-
andi eykst framboð frá öðrum þó að
erfitt sé að bæta við flugi með stuttum
fyrirvara. Þá verður hægt að nýta vél-
arnar betur,“ segir Bergþór.
Færri bílar keyptir
Sigfús B. Sigfússon, forstjóri bíla-
leigunnar Hertz, segir að sumarið hafi
litið ágætlega út, þar til nýlega. Þau
áföll sem orðið hafa muni bitna á bíla-
leigunum eins og öðrum fyrirtækjum í
ferðaþjónustu en ekki sé ljóst hversu
mikið. Sigfús segir að færri bílar hafi
verið keyptir í vetur en áður og ekki
verði ráðnir jafn margir starfsmenn í
sumar.
Áhrif á bílaleigur
ekki komin fram
Verkföll valda miklum áhyggjum
„Það er enginn hissa á því að
tveir miðaldra karlmenn séu
skipaður yfir þessu stóra búi, það
er bara það sem gengur og gerist
á hverjum einasta degi í okkar
bransa, því miður, okkur kon-
unum virðist ekki vera treyst fyr-
ir þessum stóru búum,“ segir
Kristrún Elsa Harðardóttir lög-
maður um skipan Sveins Andra
Sveinssonar og Þorsteins Ein-
arssonar sem skiptastjóra WOW
air. Hún og Saga Ýrr Jónsdóttir
gagnrýna sérstaklega skipan
Sveins Andra þar sem hann er nú
þegar skiptastjóri yfir stóru búi,
EK 1923, þar sem ágreiningur
um störf hans eru nú til með-
ferðar hjá Héraðsdómi Reykja-
víkur. Fjórir kröfuhafar telja að
hann hafi ekki upplýst um mikinn
áfallin kostnað.
Áslaug Björgvinsdóttir lögmað-
ur telur að svör dómstjóra Hér-
aðsdóms Reykjavíkur í fjöl-
miðlum við þessari gagnrýni séu
vísbending um að dómurinn taki
ekki alvarlega aðfinnslur kröfu-
hafa um störf Sveins Andra.
Ekki hefur náðst í Svein Andra
undanfarna daga til að leita eftir
sjónarmiðum hans.
erla@mbl.is, snorri@mbl.is
Gagnrýna
skipan
Sveins Andra
Telur ekki tekið
mark á aðfinnslum
Gjaldþrot WOW air