Morgunblaðið - 01.04.2019, Side 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. APRÍL 2019
✝ Helgi Sigurðs-son fæddist á
Akranesi 22. sept-
ember 1945. Hann
andaðist á líkn-
ardeild Landspít-
alans 24. mars.
2019.
Foreldrar Helga
voru hjónin Sig-
urður Helgason f.
6. mars 1907, d. 9.
júní 1996, og Helga
Gunnarsdóttir, f. 23. ágúst 1916,
d. 19. maí 1996.
Systir Helga var Sigrún Erla
Sigurðardóttir, f. 30. júlí 1937,
d. 24. desember 2015.
12. október 1969 giftist Helgi
Stefaníu Sigmarsdóttur, f. 21.
Helgi nam málaraiðn við Iðn-
skólann á Akranesi og lauk
sveinsprófi árið 1966 og fékk
meistararéttindi árið 1969.
Hann fór til Århus haustið 1968
til að vinna sem málari síðan til
Odense þar sem að hann eyddi
vorönninni í fagskóla fyrir mál-
ara. Helgi átti og rak ásamt Jóni
Sigurðssyni frænda sínum og
Þórði Árnasyni Málningarþjón-
ustuna á Akranesi og starfaði
þar til ársins 1999. Málning-
arþjónustan var bygginga-
vöruverslun og verktakafyr-
irtæki. Eftir að fjölskyldan flutti
í Kópavog starfaði hann fyrst
um stuttan tíma í málning-
arvöruverslun Sjafnar á Snorra-
braut en síðan í Byko til starfs-
loka.
Útför Helga fer fram frá Hall-
grímskirkju í dag, 1. apríl 2019,
klukkan 13.
nóvember 1945.
Börn Helga og Stef-
aníu eru: 1) Guð-
ríður Helgadóttir,
f. 11. september
1969, maki Mikael
R. Ólafsson, f. 11.
apríl 1965, þeirra
börn eru: a) Helga
Mikaelsdóttir, f. 13.
mars 1998, b)
Ágústa Mikaels-
dóttir, f. 23. ágúst
2000, c) Ólafur Mikaelsson, f. 1.
mars 2004. 2) Helga Helgadótt-
ir, f. 19. júní 1972, d. 20. maí
1993. 3) Sigurður Helgason, f. 4.
ágúst 1978, sambýliskona Snæ-
dís Xyza Mai Jónsdóttir
Ocampo, f. 1. nóvember 1989.
Afi Helgi var einn af þeim
sem hafa haft hvað mest áhrif á
hver ég er í dag. Hann hvatti
mig áfram í öllu sem ég tók mér
fyrir hendur, hafði gífurlega
þægilega nærveru, laðaði að sér
fólk hvert sem hann fór og tók
öllum opnum örmum. Speki hans
fólst m.a. í að láta aldrei bíða eft-
ir sér, leggja alltaf metnað í allt
sem maður gerir og vera trúr
sjálfum sér og öðrum.
Undanfarna viku hafa margar
minningar komið upp í huga mér
samhliða því að smátt og smátt
er ég að átta mig á að næst þeg-
ar ég kem við í Lundi verður
hann ekki þar. Stundirnar í bíl-
skúrnum í Brekkuhjalla þar sem
ég sat við hefilbekkinn og horfði
á hann taka til og fékk, ef ég var
heppin, súkkulaðimola úr gamla
ísskápnum. Allar samræðurnar
sem við áttum í göngunum fjöl-
mörgu á Hrafnabjörgum og
prófatarnirnar í Lundi þar sem
afi sá til þess að mig vantaði
aldrei kaffi. Mér er þó sérstak-
lega minnisstætt þegar hann að-
stoðaði mig við að kaupa minn
fyrsta bíl. Alveg sama hvaða
bílasölu við fórum á; alls staðar
var hann búinn að fá sértilboð.
Ekki nóg með að aðstoða mig við
að velja bílinn þá hjálpaði hann
mér líka við að fá bestu kjörin
hjá tryggingafélaginu. Það var
nefnilega afi, hann klárarði öll
verkefni sem hann tók að sér og
leysti þau alltaf vel.
Elsku afi, lífið verður aldrei
eins án þín enda snertir þú
hjörtu svo ótrúlega margra í
kringum þig. Ég trúi að einhvers
staðar að ofan fylgist þú með
okkur. Hver veit nema þú njótir
núna náttúrufegurðar Hrafna-
bjarga með Helgu þinni frá öðru
sjónarhorni þar sem ekki varð
úr páskaferðinni sem við öll
hlökkuðum svo mikið til að fara
í. Minning þín mun alltaf lifa í
hjarta mér.
Þín afastelpa,
Helga.
Helgi Sigurðsson, mágur
minn, hefur verið einn af fjöl-
skyldunni frá því að ég var ung-
lingur eða frá því að hann kom á
sjöunda áratugnum á heimili for-
eldra minna til að mála nýbyggt
hús. Hann sagði stundum frá því
að hann hefði kynnst verðandi
tengdaforeldrum sínum á undan
konunni, honum hefur greinilega
litist vel á þau því að skömmu
síðar kynntist hann Stefaníu
systur minni, þau tóku saman og
giftust heima á Skeggjastöðum
haustið 1969. Þau hófu búskap á
Akranesi í húsi sem Helgi
byggði þar, af snyrtimennsku og
smekkvísi, með aðstoð föður síns
húsasmíðameistarans.
Sem unglingur í Reykjavík
fór ég ófáar ferðir um helgar
með gömlu Akraborginni til að
heimsækja þau Helga og Stef-
aníu á Akranesi og þar var mér
ævinlega tekið með kostum og
kynjum og frábærum veitingum.
Á Akranesi bjuggu þau hjón
til 1997, þar eignuðust þau þrjú
börn en misstu eitt þeirra, tví-
tuga dóttur, af slysförum. Við
viljum trúa því að nú hafi þau
feðginin hist aftur á öðrum stað.
Frá Akranesi fluttu Helgi og
Stefanía í Kópavog og bjuggu
þar fyrst í Brekkuhjalla en síð-
ustu ár í Lundi.
Helgi var afskaplega dugleg-
ur og iðjusamur maður og hafði
yndi af að hafa fínt og snyrtilegt
í kringum sig bæði innan húss
og utan, fyrst á Akranesi, síðar í
Kópavogi og jafnframt í sum-
arhúsi þeirra hjóna að Hrafna-
björgum. Þar er einstakur sælu-
reitur sem ber verkum og
handbragði Helga hvarvetna
vitni. Þar mun fjölskylda hans
áfram njóta þeirrar þrotlausu
vinnu sem hann innti af hendi,
fyrst fullfrískur en hin síðari ár
meira og minna kvalinn af sínum
sjúkdómi. Helgi talaði opinskátt
um flesta hluti og þar á meðal
sjúkdóm sinn sem hann kallaði
gjarnan kvikindið. Hann hafði
betur í þeirri baráttu lengur en
nokkur þorði að vona, en þurfti
nú að lúta í lægra haldi og lést
þann 24. mars s.l. eftir stutta
legu. Í þessu síðasta verkefni
var hann röskur til verka eins og
ævinlega á lífsleiðinni.
Við Bjössi, börnin okkar og
fjölskyldur þeirra þökkum fyrir
allar góðu samverustundirnar
með Helga og allt það sem hann
hefur verið okkur. Við eigum
eftir að sakna vinar í stað í sveit-
inni, það skarð er vandfyllt, en
við minnumst Helga með hlýhug
og þakklæti og þær minningar
lifa áfram.
Aðalbjörg Sigmarsdóttir
og fjölskylda.
Í dag kveðjum við hinsta sinni
okkar kæra vin Helga Sigurðs-
son málarameistara. Erfiðri bar-
áttu við ólæknandi sjúkdóm er
lokið. Svo er endar ógn og stríð-
in, en upp mun renna sigurtíðin,
Oss þá kallar heim til hallar
Himna Guð er lúður gjallar.
Kristur hefur kallað vin sinn
heim, eins og segir í Lúk 23.43:
„í dag skaltu vera með mér í
Paradís“. Þessi orð eru ennþá í
fullu gildi og eiga við alla sem
gefist hafa Kristi og tilheyra
honum. Að lifa í trú felur einnig í
sér að ganga í ljósinu.
Leiðir okkar Helga lágu sam-
an fyrir um hálfri öld, þegar
Helgi og félagar hans Jón og
Þórður hófu rekstur Málningar-
þjónustunnar á Akranesi. Það
tók okkur ekki langan tíma ná
samkomulagi um viðskipti eftir
að ég stofnaði Þýsk-íslenska hf.
Þrátt fyrir að markaðurinn á
Akranesi væri ekki stór tókst
þeim samherjum að gera fyrir-
tækið sitt Málningarþjónustuna
á Akranesi að máttugu, fyrir-
myndar fyrirtæki með verslun-
arrekstur og verktakastarfsemi.
Margar viðskiptaferðir fórum
við Helgi saman til útlanda í
þeim tilgangi að skoða nýjar
vörur, verksmiðjur og framleið-
endur byggingarvara. Alltaf var
Helgi til fyrirmyndar í allri
framkomu. Margar kærar minn-
ingar koma upp í hugann.
Eftir að Helgi og Stefanía
fluttu búferlum á höfuðborgar-
svæðið gerðist Helgi sölustjóri í
BYKO. Þar tókst honum – á
sama hátt og á Akranesi – að
gera málningardeildina eftir-
sótta og vinsæla hjá fagmönnum
jafnt sem öðrum viðskiptavinum.
Stefanía og Helgi eignuðust
þrjú börn. Elst er Guðríður, sem
getið hefur sér afbragðsgott orð
fyrir fyrir störf og þjónustu í
viðskiptalífinu og nú hjá IKEA í
Reykjavík. Helga lést ung í um-
ferðarslysi en Sigurður starfar
sem veitingastjóri og fram-
leiðslustjóri hjá Hótel Sögu.
Hann hefur hlotið margar al-
þjóðlegar viðurkenningar í mat-
framleiðslukeppnum. Dóttirin
Helga, sem lést í umferðarslysi,
var afar glæsileg og efnileg
stúlka og yndi foreldra sinna.
Síðustu árin höfðum við Helgi
það sem venju að hittast reglu-
lega, spjalla saman og ræða okk-
ar mál, stöðu trúmála, þjóðmála,
dægurmálin og eiga stundum
bænastund saman. Ég minnist
óteljandi samtala okkar um lífið
og tilveruna, sem lyftu upp and-
anum og auðguðu ímyndunar-
aflið.
Helga fylgdi ævinlega ein-
stakur hlýhugur og góðvild. Það
var eins og honum tækist alltaf
að móta þægilegt andrúmloft í
kringum sig. Trúin var í lífi
hans. Enginn vafi er á því, að
trúin og bænin var það sterka
afl sem hjálpaði honum í gegn
síðustu árin. Mér er líka ljóst að
hið nána og ástríka samband
hans við sína einstöku og fram-
úrskarandi góðu eignkonu –
Stefaníu – og börnin – mótaði
viðhorf hans og tilveru og gaf
honum andlegan styrk, lífsþrótt,
glaðværð og jákvætt viðhorf til
lífsins. Starfs- og æviferill hans
sýnir glöggt hversu mikils
trausts hann naut og hversu víða
hann lét gott af sér leiða. Eftir
lifir minningin um vandaðan
mann og leiðtoga, sem átti fram-
úrskarandi elskulega eiginkonu
Saman voru þau nærgætin, um-
hyggjusöm og heiðarleg í öllum
samskiptum.
Við Kolbrún kveðjum Helga
með virðingu og þakklæti fyrir
að eiga vináttu hans og fjöl-
skyldunnar í marga áratugi.
Megi algóður Guð blessa og
varðveita Stefaníu, börnin,
barnabörnin og fjölskylduna
alla.
„Fræð hinn unga um veginn sem hann
á að halda og á gamals aldri mun
hann ekki af honum víkja.“
Orðskviðirnir 22.6
Kolbrún og
Ómar Kristjánsson.
Í dag kveðjum við góðan
dreng. Ekki er hægt að hugsa
sér betri vinnufélaga og vin en
Helga málara, eins og hann var
alltaf kallaður í BYKO. Hann
var fagmaður fram í fingurgóma
við allt það sem hann tók sér
fyrir hendur. Alltaf var hægt að
leita til Helga með öll heimsins
vandamál. Hann leysti þau með
okkur með sinni stóísku ró og yf-
irvegun, fór vel yfir allar hliðar
vandamálsins og þau voru hugs-
uð upp á nýtt og leyst í samein-
ingu. Þetta kallaði Helgi sýslu-
mannsaðferðina því svona hafði
sýslumaðurinn heima á Akranesi
leyst málin. Helgi lá ekki á skoð-
unum sínum og var ófeiminn að
láta þær í ljós, en ávallt með fag-
legum hætti, vel ígrundaðar og
rökstuddar. Skipti þá ekki máli
hvort það var við viðskiptavini
eða samstarfsfólk. Hann var allt-
af búinn að hugsa hlutina vel og
vandlega og kom með lausnir
um hvað mætti betur fara og
hvernig ætti að standa að málum
og var svo ekkert að erfa það
þótt menn tækju ekki tilsögn.
Helgi hélt áfram að koma til
okkar í BYKO eftir að hann
hætti störfum. Hann fékk sér
kaffi, ræddi málin og var alltaf
með einhverjar áætlanir í gangi
og eitthvað á prjónunum. Nú
síðast fyrir þremur vikum sagði
hann okkur hvað hann hafði ver-
ið að dunda sér í vetur, hann var
byrjaður að mála aftur, en sagði
svo glottandi „á striga“. Þar var
sannarlega sami fagmaðurinn að
verki, stórkostleg listaverk.
Kæri Helgi, takk kærlega fyrir
samstarfið og allar heimsóknirn-
ar. Hvíl í friði. Hver minning er
dýrmæt perla.
Fyrir hönd starfsfólks BYKO,
Andrés Eyberg Jóhannsson.
Helgi Sigurðsson
Mér finnst eins og
gerst hafi í gær, að
ég sat fimm ára í
fangi Diddu minnar.
Næstum eins og að sitja í fangi
minnar eigin mömmu. Hann var
hlýr faðmurinn hennar Diddu.
Didda var konan hans Víðis
Finnboga, bróður hans Kalla
Finnboga pabba míns. Bæði voru
þau hjón mér undurgóð alla tíð.
Ég varði ófáum stundum, jafnvel
dögum og vikum á þeirra heimili
sem barn og unglingur. Einu sinni
vegna nokkurra vikna ferðar for-
eldra minna til útlanda og svo
bara af því mig langaði svo, mig
langaði svo að vera hjá þeim, en
auðvitað voru það stelpurnar
þeirra, Anna Jóna, Stella og svo
Berglind, síðar, aðalaðdráttarafl-
ið. Þær voru mér sem systur og
eru allar enn. Við vorum allar á
sama aldri og baukuðum ýmislegt
í Laugarneshverfinu fyrir margt
löngu. Ærslagangur hlýtur að
hafa fylgt okkur en ég minnist
þess ekki að Didda hafi nokkurn
tíma skipt skapi.
Stundum bar við að söknuður
sótti að mér, þegar ég var í langri
dvöl hjá Diddu og Víði, en þá var
Karen Júlía
Magnúsdóttir
✝ Karen JúlíaMagnúsdóttir
fæddist 4. apríl
1931. Hún lést 19.
mars 2019.
Útför Karenar
fór fram 29. mars
2019.
ljúfi faðmurinn
hennar Diddu, hún
þurrkaði blóð og
þerraði tár.
Á morgnana bauð
Didda upp á fram-
andi morgunverð,
góðgæti sem var
ekki hægt að fá í
búðum á Íslandi
þess tíma, en Víðir
var í siglingum og sá
okkur hinum fyrir
alls kyns framandi og spennandi
mat, fötum, dóti og alltaf fékk
Didda eitthvað fallegt frá Víði sín-
um þegar hann kom heim eftir
langa fjarveru á sjónum.
Vinskapur okkar hélst óbreytt-
ur þó ég eltist og eignaðist mína
fjölskyldu. Hún hafði yndi af börn-
unum mínum og þau fóru oft með
mér til Diddu í kaffi og auðvitað
voru kökur á borðum
Minnisstæð er hlýja hennar,
þegar mótdrægni lífsins fór ham-
förum yfir mína tilveru. Fyrir það
þakka ég eilíflega. Þar var
mömmufaðmurinn kominn aftur.
Mér þótti óskaplega vænt um
Karenu Júlíu eins og hún hún hét
fullu nafni, hana Diddu mína, sem
var hálfur Færeyingur og bar
þess merki með svo skemmtileg-
um hætti.
Didda fór stundum í færeyska
gírinn og reytti af sér brandara á
blandaðri færeysku, hæfileiki sem
dætur hennar hafa fengið í arf og
er gjarnan flaggað á góðum stund-
um. Hún hafði einhvern meðfædd-
an hæfileika til að skemmta öðrum
og væri eflaust uppistandari í dag
hefði hún fæðst áratugum síðar.
En mikið þótti henni vænt um
Færeyjarnar sínar og oft fórum
við öll saman á skemmtanir í fær-
eyska sjómannaheimilinu. Hún
hélt í ræturnar sínar og Önnu
móður hennar sem var færeysk.
Didda var fæddur fagurkeri.
Sjálf alltaf glæsileg til fara, jafnvel
í eldhúsinu með svuntur sem voru
hrein listaverk bjó hún Víði sínum
fimm stjörnu morgunverð. Hann
var svo sannarlega lukkunnar
pamfíll hann frændi minn.
Það er örstutt síðan Didda
missti Bóa bróður sinn og ég efa
ekki að það hafa orðið fagnaðar-
fundir með þeim, og ekki síður
með Diddu og mömmu minni, Lillu
svilkonu hennar. Þær voru nánar
og voru báðar límið í fjölskyldunni.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Guð geymi þig og minningu
þína.
Elsku Víðir frændi, Anna Jóna,
Stella, Berglind, Harpa og fjöl-
skyldur ykkar. Mikil er ykkar
missir og ákveðnum kafla í lífinu
lokið.
Hugur minn er hjá ykkur, elsku
fjölskylda mín.
Ykkar
Jóna Dóra.
Í dag kveðjum við kæra vin-
konu, Karen Júlíu Magnúsdóttur.
Didda, eins og Karen Júlía var
ætíð kölluð, og Víðir, eftirlifandi
eiginmaður hennar, hafa á lífsleið
minni verið tengd mér og eigin-
konu minni, Jónu Gróu Sigurðar-
dóttur, sem lést fyrir nokkrum ár-
um, órjúfanlegum vinaböndum –
kærleikstengslum, sem aldrei hef-
ur borið skugga á.
Ég finn til mikils söknuðar nú
þegar Didda kveður eftir góða
ævi.
Hamingjusöm ævi líður allt of
fljótt.
Gógó og Didda voru miklar vin-
konur og með þeim var margt líkt.
Fjölskyldan og velfarnaður henn-
ar, ættræknin og væntumþykja
fyrir öllum var þeim samofin.
Diddu fylgdi líka glens og gaman
og gamlir og góðir málshættir,
sem alltaf í lífinu eiga við. Það
hljóta að vera fagnaðarfundir með
þeim vinkonum í því himnaríki
sem allir eru kallaðir til. Þar munu
þær við alvöru, glens og gaman,
bíða og rækta fjölskyldu og vina-
hópinn.
Didda naut þeirrar gæfu að
fara fyrir fallegri og dugmikilli
fjölskyldu, þar sem hún stóð í
stafni með eiginmanni sínum og
börnum, sem eru af bestu gerð.
Metnaður fyrir heimilishaldi og
fjölskyldunni allri var mikill.
Didda og Víðir hafa verið okkur
Gógó samferða um flest. Við
kynntumst á unglingsárum við
skíðaiðkun og skemmtanir og
reistum okkur bústað fyrir fjöl-
skyldur okkar í Laugarnesi, við á
Laugarnesvegi og þau á Kepps-
vegi. Þar var stutt á milli vina. Við
höfum átt langa og góða ævi og
samveru sem er stór hluti míns
lífs. Við fórum saman í ferðalög
hér heima og á erlendri grund.
Siglingin okkar um Miðjarðarhaf-
ið er ógleymanleg ferð og verður
ætíð í minni höfð.
Elsku fjölskylda, Víðir, Anna
Jóna, Stella, Berglind, Harpa og
barnabörn. Fallin er frá kær vin-
kona og stórbrotin kona. Ég og
fjölskyldan mín færum ykkur
innilegar samúðarkveðjur.
Guðmundur Jónsson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og systir,
SVANHVÍT MAGNÚSDÓTTIR
ljósmóðir,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
26. mars.
Útför hennar fer fram frá Garðakirkju
miðvikudaginn 3. apríl klukkan 15.
Magnús Eðvald Kristjánsson Jónína Kristjánsdóttir
Halldór Kristjánsson Ingibjörg Herta Magnúsdóttir
Svanhvít Helga Magnúsdóttir, Steinn Örvar Bjarnarson
Alexander Eðvald Magnússon
Magnús Eðvald Halldórsson
Magnea Marín Halldórsdóttir
Elín G. Magnúsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁRNI GUÐMUNDSSON,
Fífuseli 2, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
sunnudaginn 24. mars.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík, 4. apríl klukkan
15.00.
Margrét Anna Þórðardóttir
Margrét Árnadóttir Jón Ingi Ríkharðsson
Anna Kristín Árnadóttir
Sara Patricie Jónsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar