Morgunblaðið - 01.04.2019, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. APRÍL 2019 21
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur Ramma hf
Aðalfundur Ramma hf. verður haldinn í
Pálshúsi, Strandgötu 4, Ólafsfirði,
föstudaginn 8. mars 2019 og hefst fundurinn
kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa
eigin bréf skv. 55. gr. laga um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins og tillögur stjórnar
Ramma hf. til aðalfundar munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins á Siglufirði viku
fyrir aðalfund hluthöfum til sýnis.
Fundargögn verða afhent á fundarstað á
fundardegi.
Siglufirði 26. febrúar 2019.
Stjórn Ramma hf.
Nauðungarsala
Lausafjáruppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Uppboð mun byrja á Stillholt 16-18, 300 Akranesi á eftirfar-
andi eignum föstudaginn 8. mars kl. 13:00, sem hér segir:
NU453 NG265 NH649 OS822
Ísey SH-554, sknr. 9055.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
28. febrúar 2019
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Efnistaka í Rauðamel á Reykjanesi
Íslenskir aðalverktakar hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar
frummatsskýrslu um efnistöku í Rauðamel á Reykjanesi, Grindavíkurbæ
og Reykjanesbæ.
Kynning á frummatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 1. mars til 15. apríl á eftirtöldum stöðum: á bæjarskrifstofu Grinda-
víkurbæjar, á bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og
hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipu-
lagsstofnunar www.skipulag.is.
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Efnistaka í Súlum og Stapafelli á Reykjanesi
Íslenskir aðalverktakar hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar
frummatsskýrslu um efnistöku í Súlum og Stapafelli á Reykjanesi,
Grindavíkurbæ og Reykjanesbæ.
Kynning á frummatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 1. mars til 15. apríl á eftirtöldum stöðum: á bæjarskrifstofu Grinda-
víkurbæjar, á bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og
hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipu-
lagsstofnunar www.skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30. Zumba 60+ kl. 10.30.
BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 kr. Veglegir vinningar. Kaffi kl.
14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Regínu kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við
Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-
12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Velkomin. S. 535-2700.
Boðinn Félagsmiðstöðinni lokað kl. 14. vegna skipulagsdags starfs-
manna, vöfflukaffi fellur niður en hugvekja og línudans verða á sínum
stað.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl.10.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. kaffisopi
og blöðin. Frjáls listasmiðja kl. 9-12. Thai chi kl. 9-10. Botsía kl. 10.15-
11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarhópur hjá Margréti Zóphon-
íasd. kl. 12.30-15. Zumbaleikfimi kl. 13-13.50. Hæðargarðsbíó kl. 14.
Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í
síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Heilsuefling á Vitatorgi kl. 10-11.15,
þjálfun / ganga / botsía / æfingatæki, föstudagshópurinn kl. 10-11.30,
Handaband, vinnustofa í skapandi handverki ókeypis og öllum opið
kl. 13-15.30, BINGÓ kl. 13.30-14.30, spjaldið kostar aðeins 250 kr.
Vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59,
síminn er 411-9450.
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13–16. Velkomin!
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
14 er húsinu lokað vegna vettvangsferðar starfsmanna. Tréskurður
fellur niður (færðist fram). Munið á morgun, laugardaginn 2. mars,
verður FEBK með opið hús í Gjábakka kl. 14.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10, félagsmiðstöðinni
Gullsmára verður lokað kl. 14 vegna fræðsludags.
Harmonikufélag Reykjavíkur heldur dansleik í Danshöllinni,
Drafnarfelli 2 í Breiðholti, kl. 20.30. Húsið opnað kl. 20. Vitatorgsband-
ið, Smárinn, Sigurður Alfonsson, Einar Friðgeir og Léttsveit HR. spila.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–12. Útskurður kl. 9. verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13,
sýnd verður myndin Kona fer í stríð.
Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika, kl. 10.30 línudans, kl. 13 brids,
kl. 13.30 botsía, kl. 11.30 leikfimi í Bjarkarhúsi.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, kaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga með Ingibjörgu kl. 9, sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug kl. 9, brids í Borgum kl. 12.30 og hannyrðahópur
Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum. Tréútskurður í umsjón Davíðs kl. 13 í dag
í Borgum. Hið vinsæla vöfflukaffi kl. 14.30 til 15.30 í dag í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið upp úr blöðum kl. 10.15,
trésmiðja kl. 9-12, opin listasmiðja kl. 9-12, upplestur kl. 11-11.30,
föstudagsskemmtun kl. 14, bókasafnshópur kl. 15.30.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln-
um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13.
Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Nk. miðvikudag,
öskudag verður nikku og skemmtikvöld í salnum á Skólabraut kl.
17.30. Skráningarblöð liggja frammi á Skólabraut og Eiðismýri,
mætum með hatt, slaufu eða annað skraut. Allir velkomnir.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða
bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Íslendingasögur / fornsagnanámskeiðið kl. 13, þar
sem sögusviðið er Ísafjarðardjúp. Kennari Baldur Hafstað. Dansað
sunnudagskvöld kl. 20.-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir
velkomnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
KRISTALS LJÓSAKRÓNUR
í Glæsibæ
Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir
falleg heimili. Handskornar kristals-
ljósakrónur, veggljós, matarstell,
kristalsglös til sölu.
BOHEMIA KRISTALL
Glæsibær
Sími 7730273
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur
og tek að mér
ýmis smærri
verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Færir þér
fréttirnar
mbl.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
anna, þann kærleika sem Fríða
deildi með okkur og þann kær-
leika sem mun að endingu vinna
bug á sorginni. Þannig viljum við
muna Fríðu og þannig munu ást-
vinirnir njóta hennar alla tíð.
Vinátta, er vatn á lífsins gróður
væntumþykja áburður og skjól.
Umhyggja, í ætt við blíða móður
ástin, þegar blómin kyssir sól.
Elsku Nonni, Helga Björg,
Addi, Bogga og fjölskyldur. Megi
Guð styrkja ykkur í sorginni og
blessa minningu Fríðu.
Fyrir hönd fjölskyldunnar á
Hrauni,
Gunnar Rögnvaldsson.
Elsku dýrmæta vinkona okkar.
Við getum ekki ímyndað okkur
hversu erfitt það er fyrir fjöl-
skylduna þína að kveðja þig og
reyna að sætta sig við það að þú
ert farin. Við vinkonur þínar,
stelpuhópurinn þinn, fermingar-
systur, bekkjarsystur þínar erum
slegnar yfir brottför þinni og okk-
ur er orða vant.
Við erum svo heppnar að hafa
haft þig í tilverunni okkar í sveit-
inni, á Fremstagili þegar við sum-
ar byrjuðum þar í skóla sjö ára; á
Húnavöllum við leik og störf og
nám og þar sem þú varst sællar
minningar valin ræðumaður
kvöldsins í JC-einvígi á milli skól-
anna á Húnavöllum og á Blöndu-
ósi. Þú slóst í gegn, samkvæm
sjálfri þér eins og alltaf. Svo lá
leiðin í Menntaskólann á Akureyri
þar sem þú fórst að læra allt um
félagsmál, réttlæti og jafnrétti og
þannig varst þú í kjarnanum þín-
um. Hugsaðir minnst um sjálfa
þig en mest um réttindi og gleði
annarra og að bæta veröldina með
öllum hætti – og svo þegar þú
fórst að kenna á Blönduósi, eftir
au pair-reynslu að loknum
menntaskólanum, meira nám í fé-
lagsfræðum og lifandi störf með
fólki hér og þar; þá elskuðu þig all-
ir nemendur enda tókst þér að
virkja krakkana svo þeir blómstr-
uðu í leikritauppfærslum og fleiru
skemmtilegu.
Við eigum endalausar góðar
minningar um þig. Góðar,
skemmtilegar, öðruvísi minning-
ar. Kraftmiklar og kjarnyrtar. Og
stundirnar okkar saman verða nú
enn dýrmætari í minningum okk-
ar og það var sannarlega mikil
blessun að okkur skyldi takast að
halda sambandi í gegnum öll árin,
stundum var það stopult á meðan
við vorum út um allt á sokka-
bandsárunum, en svo varð það
reglulegra og nokkrum sinnum á
ári tókst okkur að hittast, stund-
um allar saman og stundum færri,
en þráðurinn síðan í bernsku slitn-
aði aldrei en varð sífellt sterkari
og fallegri. Kveðjustundin er
óraunveruleg.
Okkur er orða vant. Elsku
Fríða, hafðu þökk fyrir allt. Takk
fyrir að vera sú sem þú varst,
heiðarleg, einlæg og sönn í öllu
sem þú tókst þér fyrir hendur.
Takk fyrir að kenna okkur öllum
hvernig góð manneskja á að vera.
Guð blessi og styrki fjölskyldu
þína í sorginni.
Frá himnum svífa herskarar í nótt
og hugga þá sem gráta ofurhljótt.
Þau sýna okkur veröld þá sem var
og vísa áfram veg til framtíðar.
(Jóhanna H. Halldórsdóttir)
Þínar elskandi vinkonur,
Soffía Pétursdóttir, Svala
Runólfsdóttir, Jóhanna Hall-
dórsdóttir og Kristín Blöndal.
Elsku Fríða. Þú varst elsta vin-
kona mín. Þú varst alltaf til staðar
fyrir mig, alltaf brosandi og ég er
rosalega þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast þér.
Fyrsta minningin mín um þig
er þegar við mamma og pabbi
komum í heimsókn til þín og Ár-
dísar. Ég faldi mig bak við
mömmu því ég var svo feimin við
þessa skrýtnu konu sem ég mundi
ekkert eftir að hafa hitt áður. Svo
kynntist ég þér betur. Þá komst
ég að því að það var frábært hvað
þú varst skrýtin. Þér tókst alltaf
að koma mér til að brosa.
Takk fyrir að leyfa mér að
þekkja þig Fríða. Takk fyrir alla
þolinmæðina, takk fyrir að kenna
mér svo margt, takk fyrir að opna
alltaf fyrir mér þegar ég kíkti í
heimsókn, takk fyrir að vera þú.
Ég veit að við hittumst aftur og
ég veit að þú gætir allra þeirra
sem ég þekki fyrir handan fyrir
mig þangað til.
Sunnefa.
Okkur langar að setja nokkur
orð á blað til minningar um góða
skólasystur okkar, Jófríði (Fríðu)
Jónsdóttur. Við vorum samtíma
henni við nám í félagsráðgjöf í Há-
skóla Íslands fyrir um aldarfjórð-
ungi. Í þá daga voru ekki margir
nemendur í hverjum árgangi. Við
vorum því fámennur og fjölbreytt-
ur hópur, á mismunandi aldri og
með ólíkan bakgrunn. Með okkur
tókst góð vinátta, einstök sam-
heldni og traust, sem hefur haldist
æ síðan. Enda var námið þess eðl-
is að það reyndi mikið á samvinnu
og nánd nemenda. Fræðin voru
ekki bara numin með því að lesa
bók, heldur þurfti að kryfja hlut-
ina til mergjar, spegla ólíkar skoð-
anir og upplifanir, deila innsæi og
reynslu. Eftir útskrift flögruðum
við hver í sína áttina og tókumst á
við ólík verkefni og störf en það
kom engum á óvart að hugur
Fríðu stefndi alltaf í heimahag-
ana. Hún var mikið náttúrubarn
og okkur er sérstaklega minnis-
stæð útskriftarferðin okkar, helg-
arferð út í sveit skammt fyrir utan
höfuðborgina. Þetta var í miðjum
sauðburði og virðing Fríðu fyrir
lífinu og náttúrunni leyndi sér
ekki enda ljómaði hún upp við að
sjá öll nýbornu lömbin og finna
ilm af vori og gróanda.
Útskriftarhópurinn hefur alltaf
haldið sambandi eftir að námi
lauk en í seinni tíð höfum við líka
fylgst hver með annarri í gegnum
samfélagsmiðlana. Þar var gaman
að sjá fréttir af Fríðu, myndir af
henni og fjölskyldunni við gleði og
störf. Nú hefur verið höggvið
stórt skarð í hópinn okkar og eftir
sitjum við hinar, slegnar yfir
ótímabæru andláti Fríðu. Við
sendum manni hennar, börnum
og fjölskyldunni allri innilegar
samúðarkveðjur. Hvíl í friði, elsku
Fríða.
Fyrir hönd útskriftarhóps í fé-
lagsráðgjöf 1996,
Guðrún Þorsteinsdóttir.
Það er bylur úti, skólastjórinn
búinn að „taka veðrið“ með því að
ösla snjóinn heiman að frá sér og
út í skóla. Einhverjir foreldrar og
starfsmenn búnir að hringja;
„ætlar skólastjórinn ekki að aflýsa
skóla í þessu veðri“ og skólastjór-
inn ákveður að hringja á næstu
bæi til að kanna stöðuna. Hringir í
Jófríði og hún svarar: „Er eitt-
hvað að veðri? Ég er rétt að koma
niður Klaufina, Nonni minn vildi
að ég færi á jeppanum en mér
finnst nú alltaf best að vera á mín-
um bíl.“ Þetta var þegar Jófríður
átti litla græna bílinn sinn og áður
en hún uppfærði í Suzuki Swift.
Við minnumst Jófríðar með
hlýhug. Hún var stundum svolítið
utan við sig, en ávallt hjartahlý,
ósérhlífin og tilbúin að rétta hjálp-
arhönd.
Við kveðjum góða samstarfs-
konu okkar í dag og þökkum
henni áralanga samfylgd. Mið-
vikudagurinn 20. mars mun seint
líða okkur úr minni en jafnframt
minna okkur á að allt er í heim-
inum hverfult, við vitum aldrei að
morgni hvað dagurinn ber í skauti
sér og hvaða áskoranir við þurfum
að takast á við, en það sakar ekki
að hafa jákvæðni og æðruleysi
með í för.
Við starfsfólk Blönduskóla
sendum Jóni, Helgu Björgu og
Jóni Árna, Boggu og öllum öðrum
aðstandendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Fyrir hönd starfsfólks Blöndu-
skóla,
Þórhalla Guðbjartsdóttir.