Morgunblaðið - 01.04.2019, Qupperneq 23
arinnar var að kanna algengi hjarta-
og æðasjúkdóma á Íslandi sem þá
voru í miklum vexti og finna helstu
áhættuþætti þeirra svo unnt yrði að
beita árangursríkum forvörnum.
Nikulás var yfirlæknir MONICA-
rannsóknarinnar sem var hóprann-
sókn á vegum Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar sem Íslendingar
tóku þátt í frá 1981 og er stærsta
faraldsfræðilega rannsókn sem gerð
hefur verið á heímsvísu. Með MO-
NICA-rannsókninni safnaði Hjarta-
vernd ómetanlegum upplýsingum
um tíðni kransæðastíflu meðal Ís-
lendinga á aldrinum 25-74 ára, um
áhættuþætti hjarta- og æða-
sjúkdóma og meðferð. Nikulás
stýrði einnig fleiri grundvallar-
rannsóknum Hjartaverndar eins og
Reykjavíkurrannsókninni, sem lagt
hafa grunninn að þekkingu á helstu
áhættuþáttum hjarta- og æða-
sjúkdóma á Íslandi og verið undir-
staða markvissra forvarna gegn
þessum sjúkdómum.
Meðfram læknisstörfunum hefur
Nikulás ávallt lagt stund á vatnslita-
málun og spannar málaraferillinn nú
rúmlega 70 ár en nýjustu verk hans
eru frá síðasta ári. Nikulás er að
mestu sjálfmenntaður í málara-
listinni en hann sótti Skóla frí-
stundamálara 1947-48 þar sem hann
naut leiðsagnar Kjartans Guðjóns-
sonar, auk þess sem hann sótti um
skeið einkatíma hjá nokkrum þekkt-
um vatnslitamálurum. Í gegnum tíð-
ina hefur hann haldið fjölda einka-
sýninga og einnig tekið þátt í
samsýningum. Verk eftir Nikulás
eru m.a. í eigu Seðlabanka Íslands,
sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi,
Hótels Sögu, SÍBS, Hjartaverndar
og Læknafélags Íslands, Noregs og
Finnlands. Einnig hefur hann mynd-
skreytt tímaritaforsíður og málað
frímerki fyrir Neistann. Í tilefni af
stórafmælinu opnaði um helgina yf-
irlitssýning á vatnslitamyndum
hans í Hannesarholti við Grund-
arstíg sem stendur til 7.apríl. Þar
má sjá sýnishorn frá öllum ferlinum
allt frá unglingsárum og fram til
2018.
Nikulás og Guðrún eiginkona
hans hafa ávallt haft mikið yndi af
ferðalögum innanlands og fóru á
hverju sumri vítt og breitt í tjald-
ferðalög með börnin fimm og nutu
útivistar í náttúrunni um leið og sótt
var myndefni og innblástur í list-
sköpunina. Fjölskyldan öll hefur
mikla ánægju af stangveiði og há-
punktur sumarsins eru árlegar fjöl-
skylduferðir í Veiðivötn sem eru án
efa uppáhaldsstaður Nikulásar á
landinu að öðrum ólöstuðum.
Fjölskylda
Eiginkona Nikulásar er Guðrún
Þórarinsdóttir, f. 12. 2. 1935, þýð-
andi og móttökuritari. Foreldrar
hennar voru Þórarinn Helgason, f.
14.10. 1885, d. 14.8. 1976, bóndi á
Látrum í Mjóafirði, N-Ís., og Hjálm-
fríður Lilja Bergsveinsdóttir, f. 1.2.
1910, d. 10.10. 1993, ljósmóðir, síðast
búsett í Kópavogi. Hún var seinni
kona Þórarins, en þau skildu.
Börn Nikulásar og Guðrúnar eru:
1) Sigfús Þór, f. 6.12. 1957, læknir,
sérfræðingur í meinafræði og lektor
við Háskóla Íslands; 2) Hjálmfríður
Lilja, f. 3.1. 1960, hjúkrunar-
fræðingur, gift Ara Harðarsyni
stjórnunarfræðingi; 3) Sigríður
Anna Elísabet, f. 24.12. 1963,
myndlistarmaður og kennari, gift
Jóni Herði Jónssyni flugstjóra; 4)
Sigrún, f. 17.9. 1967, fram-
kvæmdastjóri og leirlistarmaður; 5)
Sólveig, f. 5.12. 1972, verkefnastjóri
og kennari, gift Arnari Arnarssyni
verðbréfamiðlara. Nikulás og Guð-
rún eiga 16 barnabörn og 13 barna-
barnabörn.
Systkini Nikulásar: Kristín Guð-
ríður, f. 3.9. 1919, d. 26.10. 1982, hús-
móðir; Ragna Valgerður, f. 30.11.
1920, 10.4. 1998, snyrtifræðingur og
saumakona; Sigríður Hrefna, f. 4.12.
1923, d. 27.1. 1991, kennari, Sig-
urður, f. 15.12. 1931, verkfræðingur,
og Eggert, f. 25.10. 1939, lyfjafræð-
ingur.
Foreldrar Nikulásar voru hjónin
Sigfús Sigurðsson, f. 24.1. 1892, d.
26.3. 1950, skólastjóri Hvolsskóla og
bóndi á Þórunúpi, og Sigríður Anna
Elísabet Nikulásdóttir, f. 3.10. 1897,
d. 12.7. 1963, húsfreyja á Þórunúpi.
Nikulás Þórir Sigfússon
Guðrún Magnúsdóttir
húsfreyja í Sogni í Kjós
Páll Einarsson
bóndi og gullsmiður
í Sogni í Kjós
Ragnhildur G. Pálsdóttir
húsfreyja á Kirkjulæk
Sigríður Anna Elísabet Nikulásdóttir
húsfreyja á Þórunúpi
Nikulás Þórðarson
bóndi og kennari á Kirkjulæk í
Fljótshlíð, stundaði lækningar
Sigríður Nikulásdóttir
húsfreyja í Tungu
Sigurður Sigfússon
erkfræðingur í Rvíkv
Ragna Sigurðardóttir
rithöfundur
Eggert Sigfússon
yfjafræðingur í Rvíkl
Kristján Eggertsson
arkitekt í Danmörku
Þórður Ívarsson
bóndi í Tungu og
Ormskoti í Fljótshlíð
Bogi Andersen
læknaprófessor í
Bandaríkjunum
Þorkell Þórðarson
verkamaður í
Eyjum
Húnbogi
Þorkelsson
verkstjóri í Eyjum
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja í Steinmóðarbæ
Þorsteinn Ólafsson
bóndi í Steinmóðarbæ
undir V-Eyjafjöllum
Guðríður Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Þórunúpi
Sigurður Sighvatsson
bóndi á Þórunúpi í Hvolhreppi, Rang.
Steinunn Ísleifsdóttir
húsfreyja í Eyvindarholti
undir V-Eyjafjöllum
Sighvatur Árnason
bóndi í Eyvindarholti og síðar
alþingismaður Rangæinga
Úr frændgarði Nikulásar Sigfússonar
Sigfús Sigurðsson
skólastjóri Hvolsskóla
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. APRÍL 2019
Gunnar Jónsson fæddist 1.apríl 1899 í Hléskógum íHöfðahverfi, S-Þing. For-
eldrar hans voru hjónin Jón
Þórarinsson, f. 1870, d. 1943, bú-
fræðingur, frá Litlu-Sigluvík á Sval-
barðsströnd, og Helga Kristjáns-
dóttir, f. 1869, d. 1952, húsmóðir frá
Végeirsstöðum í Fnjóskadal.
Gunnar ólst upp með foreldrum
sínum í Hvammi við Dýrafjörð fram
yfir fermingu og lærði skipasmíðar í
Reykjavík hjá Magnúsi Guðmunds-
syni á árunum 1916 til 1919. Hann
starfaði síðan hjá kennara sínum
fram til ársins 1921.
Á árunum 1921 til 1923 vann
Gunnar við smíðar og sjómennsku
við Dýrafjörð og skipasmíðar og
skipaviðgerðir á Akureyri frá 1923
til 1939, að frátöldum tveimur árum
sem hann starfaði á Siglufirði.
Gunnar varð yfirsmiður á skip-
smíðamiðstöð KEA á Akureyri árið
1939 til starfsloka árið 1952. Smíðaði
hann á þriðja tug skipa yfir 12 smá-
lestir að stærð og er Snæfell þeirra
stærst, 166 smálestir, smíðað á ár-
unum 1940-1943. Snæfell var á þeim
tíma stærsta skip smíðað á Íslandi.
Af stærri skipum Gunnars má nefna
Hilmi, sem var 87 smálestir og varð-
skipið Óðin, sem var 73 smálestir.
Auk þess smíðaði hann fjölda trillu-
og snurpunótabáta. Eftir Gunnar
liggja fjölmargar teikningar af bát-
um og skipum sem hann smíðaði.
Gunnar eignaðist sjö börn. Ólafur
var þeirra elstur, f. 1919, d. 2004, og
var móðir hans Gíslína Ólöf Ólafs-
dóttir. Gunnar kvæntist Ingibjörgu
Veróniku Ásbjörnsdóttur, f. 12.3.
1901, d. 1.1. 1932, og átti með henni
Tryggva, f. 1921, d. 2009, og Báru, f.
1925, d. 1999. Með síðari eiginkonu
sinni, Sólveigu Kristjönu Þórðar-
dóttur, f. 19.6. 1902 í Eiðhúsum,
Miklaholtshr., Hnapp., d. 12.3. 1975,
eignaðist hann Önnu Lísu, f. 1934, d.
2011, Halldóru, f. 1936, d. 2010,
Gunnar, f. 1940, og Helgu, f. 1945.
Gunnar var síðast búsettur í
Kópavogi. Hann lést 27. október
1960.
Merkir Íslendingar
Gunnar
Jónsson
90 ára
Nikulás Þórir Sigfússon
Thorgerd Elísa Mortensen
85 ára
Gunnþórunn Hvönn
Einarsdóttir
Reynir Hjörleifsson
80 ára
Margrét Stefanía
Pétursdóttir
75 ára
Ásdís Þorsteinsdóttir
Elínborg Þorsteinsdóttir
Hlín Daníelsdóttir
Margrét Cornette
Svanhildur Sigurjónsdóttir
70 ára
Aðalheiður K. Ingólfsdóttir
Ásbjörn Jóhannesson
Björn J. Guðmundsson
Eva María Gunnarsdóttir
Guðjón Guðmundsson
Helga Einarsdóttir
Hrefna Steinþórsdóttir
Ingimar Halldórsson
Ingólfur Magnússon
María Karlsdóttir
María Sigurðardóttir
Sigurður Friðriksson
Steingrímur Benediktsson
Xiuhui Chen
60 ára
Carlos Duarte M. Alves
Franca
Gísli Sigurðsson
Guðjón Stefánsson
Hrafnhildur Jóhannsdóttir
Hugrún Stefánsdóttir
Jóhanna Jakobsdóttir
Jón Ragnar Kristjánsson
Karl Kristinn Andersen
Margrét Elíasdóttir
Sigurður V. Dagbjartsson
Sólveig Jónsdóttir
Þórarinn B. Guðmundsson
50 ára
Andri Hrannar Einarsson
Anna Elísabet Sævarsdóttir
Brynja Ingólfsdóttir
Chiraphon Chotnok
Edda Lára Kaaber
Egill Jón Björnsson
Elísabet Pétursdóttir
Elva Björk Guðmundsdóttir
Grazyna Stefania Beben
Hafþór Freyr Sigmundsson
Hjördís Björg Pálmadóttir
Högni Harðarson
Inga Hrönn Sverrisdóttir
Ingibjörg Hauksdóttir
Ingibjörg Jónsdóttir
Jóna Hólmbergsdóttir
María Guðný Sigurgeirsd.
Nga Fan Cheung
Rakel Steinvör Hallgrímsd.
Sigrún Jónsdóttir
40 ára
Aðalheiður Ýr Thomas
Arna Grímsdóttir
Arnþór Magnússon
Brynja Björk Jónsdóttir
Edyta Jagusiak
Elías Þór Haraldsson
Hera Grímsdóttir
Jurijs Kosarenoks
Pratap Singh Negi
Steingrímur Friðgeirsson
30 ára
Dawid M. Lukaszewicz
Eyrún Ósk Elvarsdóttir
Guðrún Magnúsdóttir
Helga Guðbjarnardóttir
Hrafn Bjarnason
Mateja Anna Deigner
Natalia Trochym
40 ára Arna er úr Breið-
holti en býr í Kópavogi.
Hún er lögfr. og frkvstj.
lögfræðisviðs Reita fast-
eignaf. og stjórnarform.
UN Women á Íslandi.
Maki: Þorbjörn Sigur-
björnsson, f. 1978, kenn-
ari í Versló.
Börn: Hrafn, f. 2007,
Arnbjörn, f. 2009, og
Kolbeinn, f. 2014.
Foreldrar: Grímur Valdi-
marsson og Arnbjörg
Edda Guðbjörnsdóttir.
Arna
Grímsdóttir
40 ára Hera býr í Kópa-
vogi, hún er verkfræð-
ingur og forseti iðn- og
tæknifræðideildar HR.
Maki: Björn Traustason, f.
1967, framkvæmdastjóri
Bjargs íbúðafélags.
Börn: Herdís, f. 2007, og
Salka, f. 2009.
Foreldrar: Grímur Valdi-
marsson, f. 1943, og Arn-
björg Edda Guðbjörns-
dóttir, f. 1943, fyrrverandi
framkvæmdastjórar. Þau
eru búsett í Kópavogi.
Hera
Grímsdóttir
30 ára Eyrún Ósk er
Njarðvíkingur, hún er
fótaaðgerðafræðingur og
sjúkraliði og rekur Fóta-
aðgerðarstofu Eyrúnar.
Maki: Hafsteinn Sveins-
son, f. 1993, tollvörður.
Börn: Elvar Berg, f.
2010, og Dagný Eir, f.
2017.
Foreldrar: Elvar Gott-
skálksson, f. 1963, og
Hulda Örlygsdóttir, f.
1962, búsett í Reykja-
nesbæ.
Eyrún Ósk
Elvarsdóttir
Til hamingju með daginn
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU