Morgunblaðið - 01.04.2019, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. APRÍL 2019
Ég verð að geta
unnið og lifað.
Laus við verki.
Fyrir góða líðan
nota ég Gold,
Active og gelið.
Erna Geirlaug Árnadóttir – innanhússarkitekt
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú vaknar við vondan draum, ætl-
arðu að hrökkva eða stökkva? Ekki mála
skrattann á vegginn strax, sjáðu hvað dag-
urinn ber í skauti sér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér finnst þú verða fyrir miklum
þrýstingi af samstarfsmanni þínum. Vertu
sá/sú sem rífur upp stemninguna. Þú
kaupir hlut sem þig hefur lengi langað í
21. maí - 20. júní
Tvíburar Oft sjá tveir hlutina í skýrara ljósi
en einn. Slepptu fram af þér beislinu svona
einu sinni. Þú greiddir götu vinar og færð
þakkir fyrir á skemmtilegan hátt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ástvinir vilja láta ljós sitt skína og
þú leyfir þeim það. Ekki taka afstöðu til
mála ef þú veist ekki forsöguna. Búðu
þannig um hnútana að þú komist í gott
sumarfrí.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er ágætt að eiga sér draum en
hann getur aldrei leyst veruleikann af
hólmi. Mótlæti er til þess að sigrast á. Þú
ert góð/ur í því og hefur gert það margoft.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að leita ráða hjá þér eldra
fólki sem hefur meiri reynslu á ákveðnu
sviði. Farðu varlega í umferðinni. Reyndu að
halda góða skapinu út daginn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
grípur til aðgerða, sérstaklega sem kosta
einhver fjárútlát. Þér verður boðið á
skemmtilega tónleika.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það gengur ekki lengur að sitja
með hendur í skauti og láta tímann líða án
þess að aðhafast nokkuð. Þú skapar þína
framtíð, enginn annar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Tilfinningar þínar eru svo sterk-
ar og vilji þinn til að fela þær svo lítill að þú
ert eiginlega eins opin bók. Láttu þig ganga
fyrir í dag.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt gaman sé að breyta til er
fáránlegt að gera það breytinganna vegna.
Láttu börnin hafa forgang í dag. Haltu þig
við fyrirfram ákveðna rútínu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það má vera að eitthvert ferða-
lag reki á fjörur þínar og það er sjálfsagt að
grípa tækifærið. Þú finnur draumaeignina
og ákveður að reyna að eignast hana.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er alltaf auðveldara að sjá eftir
á hvað fór úrskeiðis. Mundu að hvíla þig
öðru hverju til þess að ná fyrri orku. Lengi
lifir í gömlum glæðum.
Ein-stök“ er limra eftir Helga R.Einarsson:
Dugnaðarstúlkan hún Stína
stendur í löppina sína.
Hún hafði tvær
hérna í gær,
en hinni er búin að týna.
Og hér er önnur eftir Helga, –
„Stóð“:
Stóðið lagði’ af stað
um stórhættulegt vað.
Á lappir stóð,
strenginn óð
og stóð á sama’ um það.
Á miðvikudaginn skrifaði Davíð
Hjálmar Haraldsson í Davíðshaga í
Leirinn að nú hefði hann búið þar í
tæpar tvær vikur og glöggvað sig
nokkuð á aðstæðum:
Hérna er síbyljótt hávaðarok
og haginn á kafi í flóðum.
Töluvert væri um trampólínfok
ef trampólín fyndust á lóðum.
Sigmundur Benediktsson svaraði
og sagði: „Já, Davíð Hjálmar. Það
verður ekki bæði haldið og sleppt!“:
Útsýnið þó auki þor
allur glóðum sleginn.
Veðurbarinn veður for
og væri skjóli feginn.
Karl Friðriksson vegaverkstjóri
á Akureyri fæddist 1. apríl 1891.
Það sópaði að honum og hann var
skemmtilegur hagyrðingur:
Oft hef ég við armlög hlý
unað þinni hylli.
Skyldi það geta skeð á ný
ef skemmra væri á milli?
Bjarni Sigtryggsson yrkir um
heimaslátrun:
Af bræðrum var afi minn bestur,
á bæjunum aufúsugestur.
En nú er hann Rauður
reiddur fram dauður;
sem heimaslátraður hestur.
Pétur Stefánsson bregður á leik
á Leirnum:
Sé ég einn og yfirgefinn
alveg laus við þras og styr,
leik ég mér við ljóðastefin
líkt og skáldin áður fyr.
Sigmundur Benediktsson sagðist
„hvísla bara til að trufla þig ekki“:
Pétur viður stefin styður,
stækka grið í hjarta finnur,
kær og iðinn Sónar siður
sæld og frið í óðinn vinnur.
Reir Frá Drangsnesi reyndi að
bera sig vel í kuldakastinu í síðustu
viku:
Þó vindur næði og kali kinn
og kafald hylji sporið
og krapi stífli hverinn þinn
kannski birtist vorið
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af löppum og trampólíni
„Á SÍÐUSTU RÖNTGEN-MYND SJÁST 17
TENNUR. KANNSKI GLEYPTIR ÞÚ EINA?”
„SKO, ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ PABBI FÉKK
BARA HEILASHRISTING.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gefa honum
kaffivél.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVAÐA GAGN
ER AÐ ÞÉR?
AF HVERJU
ERTU HÉRNA?
ÞÚ ERT EINSKIS
VIRÐI!
AFTUR VERIÐ AÐ
ÖSKRA Á TÓMAR
NIÐURSUÐUDÓSIR?
ÉG ER
SVANGUR!
VIÐ HELGA EIGUM
OKKUR LANGA SÖGU!
SAGAN ER
GÓÐUR
HLUTUR!
ÉG HEF SAGT ÞÉR ÞÚSUND
SINNUM AÐ KOMA HEIM FYRIR
MIÐNÆTTI!
EKKI ÞEGAR HÚN
ENDURTEKUR
SIG!
Nokkuð á annað hundrað mannssat í salnum og hlustaði á boð-
skap dagsins sem ráðherra dagsins
flutti. Ræðan hans var skýr og grein-
argóð þó svo að þar væri engar stór-
kostlegar nýjar fréttir að finna.
Fáum mínútum eftir að hann sté úr
pontunni var pistill hans svo kominn
orðrétt inn á vefinn. Á eftir ráðherr-
anum kom svo röð af ræðum fólks
sem vissulega hafði góðar hug-
myndir fram að færa. Aftur á móti
lauk fundinum án niðurstöðu eða
veganestis til framtíðar nema á dag-
inn kom, eins og skáldið orti, fátt er
eins glatt og góðra vina fundur – og
gleðin skín á vonarhýrri brá!
x x x
Lýsingin hér að ofan vísar aðnokkru til fundar sem haldinn
var í síðustu viku og þar var Víkverji,
sem hallast að því að hefðbundið
fundaform eins og hér er lýst sé úr-
elt. Við munum eftir kennaranum í
barnaskóla sem stóð við krítartöflu,
talaði og skrifaði það sem nemendur
skyldu færa inn í glósubækurnar.
Slíkar kennsluaðferðir eru í dag á
undanhaldi og meira lagt upp úr til
dæmis hópstarfi og verkefnavinnu
þar sem fólki er mætt á þess eigin
forsendum. Reynslan af því er al-
mennt góð. Á Alþingi er ræðustólinn
mikilvægur en stærstur hluti löggjaf-
arstarfsins er þó tekinn í nefnda-
starfi. Enn tíðkast þó að prestar stígi
í stólinn og flytja predikun, en eru
margir að hlusta?
x x x
Undanfarið hefur Sjálfstæðisflokk-urinn haldið fundi víða um land
með því sniði að fólk situr við borð
sem þingmenn fara á milli. Ræða þar
við kjósendur beint og milliliðalaust
um álitaefni dagsins; kjaramálin,
húsnæðisvandann, stjórnarskrána,
atvinnustefnuna og lífshamingjuna
almennt. Þingmenn segja Víkverja
reynsluna af þessu fyrirkomulagi
góða, með þessu fái þeir betri innsýn
í viðhorf fólks en ef hefðbundnu
fundaformi væri fylgt. Slíkt þarf ekki
að koma á óvart; munum að tengsl
myndast, þekking verður til og
lausnir finnast helst í samskipum
sem eru maður á mann. Breyta verð-
ur fyrirkomulagi og sá á fund sem
finnur! vikverji@mbl.is
Víkverji
Andi Drottins fyllir alla heimsbyggð-
ina, hann heldur öllu í skorðum og
nemur hvert hljóð.
(Speki Salómons 1.7)