Morgunblaðið - 01.04.2019, Page 29
Þriðja til-
raunakvöldið
Eilíf sjálfsfróun
Í samkvæmi í Mos-
fellsbæ á dögunum
stakk einhver upp
á hljómsveit-
arnafninu Eilíf
sjálfsfróun og
þeim Halldóri Ív-
ari Stefánssyni,
Árna Hauki Árnasyni og Þorsteini Jónssyni fannst það svo gott
að þeir ákváðu að stofna pönkhljómsveit. Halldór syngur og spil-
ar á málmgjall, Árni leikur á bassa og Þorsteinn á trommur.
Þeir eru 19 og 20 ára gamlir og hyggjast sigra heiminn.
Appolló
Hljómsveitin Appolló er ættuð úr Hafnarfirði og
varð til er Eiríkur Kúld Viktorsson og Árni Dag-
ur Andrésson hittust á Grunnskólahátíðinni árið
2018. Þeir fengu svo til liðs við sig Guðrúnu Mar-
gréti Bjarnadóttur og Gabríel Dag Kárason, en
þannig skipuð hefur hljómsveitin verið síðustu
tvo mánuði. Eiríkur leikur á gítar, Árni á bassa,
Guðrún á píanó og Gabríel á trommur. Þau eru á
aldrinum 16 til 17 ára.
Silent Sounds
Silent Sounds er
hljómsveit úr
Reykjavík. Liðs-
menn eru Heim-
ir Steinn Vigfús-
son gitarleikari
og söngvari,
Sölvi Steinn
Jónsson
trommuleikari,
Orri Starrason
bassaleikari Vilhjálmur Jakob Jónsson gítarleikari og Birta
Birgis söngkona. Þau eru á aldrinum frá 18 ára upp í 26 ára.
Stefan Thormar
KópavogssveitiniStefan Thormar hefur nafn sitt frá Stefáni
Þormar, söngvara og gítarleikara. Með honum í sveitinni eru
bassaleikarinn Snorri Örn og trommuleikarinn Georg Ingi.
Stefán er að ljúka við sína fyrstu breiðskífu og fékk þá Snorra
og Georg til liðs við sig til að taka þátt í Músíktilraunum þar
sem 2019 er síðasta árið sem hann hefur þáttökurétt.
Músíktilraunum fram haldið í Hörpu
Níu hljómsveitir keppa um sæti í úrslitum
Rós
Söngkonan Melkorka Rós Hjartardóttir og gítar- og píanóleik-
arinn Fannar Pálsson stofnuðu hljómsveitina Rós fyrir tveim-
ur mánuðum og fengu til liðs við sig bassaleikarann Ásþór
Bjarna Guðmundsson og trommuleikarann Kristján Jónsson.
Þau eru öll úr Reykjavík, ríflega tvítug og leika rólyndilegt
popp.
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Músíktilraunir hófust í Hörpu sl.
laugardagskvöld og var svo fram
haldið sunnudagskvöld. Alls hafa
átján hljómsveitir því keppt um að
komast í úrslit og fjórar náð þeim
áfanga. Í kvöld keppa svo níu hljóm-
sveitir til: Appolló, Davið Rist, Eilíf
sjálfsfróun, Kokonutbae, Konfekt,
Merkúr, Rós, Silent Sounds og Stef-
an Thormar. Keppnin hefst kl. 19.30 í
kvöld líkt og önnur undankvöld. Úr-
slitin verða svo haldin á sama stað
laugardaginn 6. apríl.
Verðlaun á Músíktilraunum eru
veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti, en einnig
eru veitt verðlaun fyrir hljóðfæra-
slátt, söng og íslenska texta. Hljóm-
sveit fólksins er valin í símakosningu.
Einnig eru veitt verðlaun fyrir Raf-
heila Músíktilrauna. Nýjung þetta ár
er svonefndur Hitakassi, sem stendur
þeim hljómsveitum til boða sem kom-
ast í úrslit, en það er nýliðanámskeið í
hljómsveitaiðju haldið í samvinnu við
Útón og Tónlistarborgina Reykjavík.
Kokonutbae
Drengur Arnar Krist-
jánsson kemur fram
undir listamannsnafn-
inu Kokonutbae, spilar
á MIDI-hljómborð og
rappar. Hann er tví-
tugur Reykvíkingur
sem byrjaði að semja
tónlist og texta á síð-
asta ári.
Merkúr
Eyjamennirnir Arnar Júlíusson, Trausti Már Sigurðarson,
Mikael Magnússon og Birgir Þór Bjarnason kalla sig Merkúr.
Arnar og Trausti spila á gítara og syngja, Arnar aðalrödd,
Mikael spilar á trommur og Birgir á bassa. Arnar og Birgir
eru 19 ára, en Trausti og Mikael 16 ára. 1. desember sl. gáfu
þeir út plötuna Apocalypse Rising.
Konfekt
Tríóið Konfekt er frá Seltjarnarnesi
skipað þeim Evu Kolbrúnu Kolbeins
trommuleikara, Önnu Ingibjörgu
Þorgeirsdóttur hljómborðs- og gít-
arleikara og söngkonu og Stefaníu
Helgu Sigurðardóttur gítar og pí-
anóleikara og bakraddarsöngkonu.
Þær eru allar tvítugar og hafa spilað
með ýmsum hljómsveitum áður en
þær stofnuðu Konfekt.
Davíð Rist
Ísfirðingurinn Davíð Sighvatsson,
sem notar listmannsnafnið Davíð
Rist, snýr nú aftur í Músíktil-
raunir, en hann tók þátt 2016 og
2018. Davíð, sem er 24 ára gam-
all, leikur á gítar og syngur.
Hann er nú á síðustu önn sinni við
Listaháskóla Íslands þar sem
hann hefur síðustu tvö ár lagt
stund á laga- og textasmíði.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. APRÍL 2019
» Megi þá helvítis bylt-ingin lifa nefnist
myndlistarsýning Stein-
gríms Eyfjörð sem opn-
uð var í fyrradag í
Hverfisgalleríi. Er það
önnur einkasýning
Steingríms í galleríinu
og eru verkin einkum
unnin á álplötur og fjalla
mörg um hugtök á borð
við kommúnisma og kap-
ítalisma sem hann segir
orðin merkingarlaus.
Sýning Steingríms Eyfjörð, Megi þá helvítis byltingin lifa, var opnuð í Hverfisgalleríi um helgina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Félagar Einar Már Guðmundsson rithöfundur með listamanninum Steingrími Eyfjörð.
Á opnun Snorri Ásmundsson. Dagný Gísladóttir og Páll Haukur Björnsson. Listunnendur Jóhanna Karlsdótir og Guðlaugur Leóson.
Forvitnileg Gestir virða fyrir sér forvitniileg verk Steingríms í Hverfisgalleríi.