Morgunblaðið - 13.04.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019
Hefur þú prófað nýju
kjúklingasteikurnar?
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOLT
A
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Morgunblaðið/Eggert
Kjaraviðræður Fulltrúar iðnaðarmanna á fundi í húsi ríkissáttasemjara.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Fundir samflots iðnaðarmanna og
Samtaka atvinnulífsins hjá ríkis-
sáttasemjara halda áfram eftir
helgi.
„Það er skipulagður fundur á
mánudaginn. Það verður vinnuhelgi
framundan til að vinna í málum í
hvorum hópi fyrir sig,“ segir Krist-
ján Þórður Snæbjarnarson, formað-
ur Rafiðnaðarsambandsins. Hann
vildi lítið gefa upp um stöðuna í við-
ræðunum.
„Það er svo sem ekki mikið að
frétta, við erum búin að vera að tala
saman og fara yfir málin,“ sagði
Kristján sem vildi heldur ekki segja
til um hvort búið væri að komast að
samkomulagi um einhver deilumál.
Verið að reyna að finna leiðir
Spurður hvort deiluaðilar séu eitt-
hvað að þokast nær hvor öðrum seg-
ir hann ekki tímabært að segja til
um það. „Það sem er jákvætt er að
það er verið að tala saman og auðvit-
að að verið sé að reyna að finna ein-
hverjar leiðir,“ segir Kristján.
Samflot iðnaðarmanna saman-
stendur af Rafiðnaðarsambandi Ís-
lands, Samiðn, Grafíu (áður Félag
bókagerðarmanna), Matvís, Félagi
hársnyrtisveina og VM, sem er félag
vélstjóra og málmtæknimanna.
Fundað á ný eftir helgina
Viðræður samflots iðnaðarmanna og Samtaka atvinnulífsins halda áfram
„Jákvætt að það er verið að tala saman,“ segir formaður Rafiðnaðarsambandsins
Ákvörðun var tekin í gær um að
fresta komu tveggja mjaldra til Vest-
mannaeyja, sem áttu að koma hingað
með sérútbúinni flutningavél Cargo-
lux næstkomandi þriðjudag. Ástæðan
er veðurspáin og sú staðreynd að
Landeyjahöfn hefur verið lokuð að
undanförnu.
Aðstandendur verkefnisins, Merlin
Entertainment og góðgerðar-
samtökin Sealife Trust, treysta
mjöldrunum ekki til að þola flutning
með Herjólfi frá Þorlákshöfn til Eyja,
en sú sigling getur tekið þrjá tíma en
sigling úr Landeyjahöfn tekur að
jafnaði um hálftíma.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
verður staðan næst metin á mánu-
dag, hvenær af flutningnum frá Kína
getur orðið. Mjaldrarnir hafa verið í
sædýrasafni í Sjanghæ.
„Það er í forgangi hjá okkur að
tryggja velferð og öryggi mjaldranna
og flutningarnir miðast við það. Við
munum halda áfram að fylgjast með
veðurspám og stöðunni á Íslandi og
tökum ákvörðun um framhaldið í
samráði við okkar sérfræðinga,“ seg-
ir í tölvupósti til Morgunblaðsins frá
einum af talsmönnum verkefnisins.
Komu mjaldranna frestað
Veðurspá og
lokun Landeyja-
hafnar hindra för
Ljósmynd/Sealife Trust
Mjaldrar Systurnar Litla-Hvít og Litla-Grá þurfa að bíða aðeins lengur.
Bankastjóri
Arion segir
upp störfum
Höskuldur H.
Ólafsson, banka-
stjóri Arion
banka, hefur sagt
starfi sínu lausu.
Þetta kemur fram
í tilkynningu frá
bankanum í gær-
kvöldi. Þar segir
að stjórn bankans
og Höskuldur hafi
komist að samkomulagi um að hann
sinni starfi bankastjóra fram til
næstu mánaðamóta.
Haft er eftir Höskuldi í tilkynning-
unni að hann telji þetta vera rétta
tímann til að fela öðrum að taka við
keflinu.
„Eftir vel heppnað alþjóðlegt
hlutafjárútboð á síðasta ári var bank-
inn skráður á markað í kauphallir á
Íslandi og í Svíþjóð og er eignarhald
bankans í dag vel dreift og hluthafar
bæði innlendir og erlendir fjárfestar.
Bankinn er fjárhagslega sterkur
með traustan grunnrekstur og vel í
stakk búinn fyrir það sem framtíðin
ber í skauti sér,“ segir Höskuldur.
Þá þakkar Brynjólfur Bjarnason,
stjórnarformaður Arion banka,
Höskuldi fyrir vel unnin störf en
hann hefur starfað hjá Arion banka
síðustu níu ár.
Höskuldur H.
Ólafsson
Höskuldur kveður
eftir 9 ára starf
Landsréttur hefur þyngt dóm yfir
Kjartani Adolfssyni, sem Héraðs-
dómur Austurlands dæmdi í fjög-
urra ára fangelsi fyrir gróf kyn-
ferðisbrot gegn tveimur barn-
ungum dætrum sínum.
Niðurstaða Landsréttar er að
hann skuli sæta 7 ára fangelsivist.
Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu
til Landsréttar og krafðist refsi-
þyngingar og þess að maðurinn
yrði sakfelldur fyrir fleiri ákæru-
liði. Hann hefur áður hlotið tíu
mánaða fangelsisdóm fyrir kyn-
ferðisbrot gegn eldri hálfsystur
stelpnanna tveggja, en það var árið
1991. Í þessu máli var hann einnig
dæmdur fyrir að hafa tvívegis brot-
ið nálgunarbann gegn henni.
Kjartan var í Héraðsdómi Aust-
urlands sýknaður af nokkrum
ákæruliða sem lutu að grófum brot-
um hans gegn eldri stúlkunni, en
Landsréttur sneri sýknunni við í
tveimur ákæruliðum. Stúlkan gaf
viðbótarskýrslu fyrir Landsrétti og
lýsti því þar að faðir hennar hefði
ekki sjaldnar en í 10 skipti haft við
hana samræði.
Dætur Kjartans hafa stigið fram
opinberlega og rætt brot föður síns.
Sjö ára dómur
fyrir nauðganir
Fimm umferðir eru að baki í GAMMA Reykjavíkur-
skákmótinu, sem fram fer í Hörpu þessa dagana. Efstu
menn eru með 4 ½ vinning og síðan koma nokkrir
keppendur með 4 vinninga. Nokkrir íslenskir stór-
meistarar og skákmeistarar eru jafnir með 3 ½ vinn-
ing, þeir Jóhann Hjartarson, sem hér er í þungum
þönkum, Hannes Hlífar Stefánsson, Bragi Þorfinnsson,
Sigurbjörn Björnsson, Björn Þorfinnsson og Dagur
Ragnarsson. Sjötta umferðin verður tefld í dag en
mótinu lýkur næstkomandi þriðjudag. »27
Íslensku skákmeistararnir hnífjafnir
Reykjavíkurskákmótið í fullum gangi í Hörpu
Morgunblaðið/Ómar
Ekki er komin lausn í deilur Vega-
gerðarinnar og pólsku skipasmíða-
stöðvarinnar Crist um lokauppgjör
vegna smíði nýju Vestmannaeyja-
ferjunnar Herjólfs. Ferjan bíður
fullbúin í Gdansk eftir niðurstöðu
málsins.
Viðræðunum er stýrt af danskri
lögfræðistofu sem sérhæfir sig í
málum er snúa að skipasmíðum.
Samkvæmt upplýsingum G. Pét-
urs Matthíassonar, upplýsingafull-
trúa Vegagerðarinnar, hafa fulltrúar
fyrirtækjanna verið í lauslegum við-
ræðum. Staðfestir hann að forstjóri
Vegagerðarinnar muni eiga fund í
Póllandi næsta þriðjudag með
fulltrúum skipasmíðastöðvarinnar.
helgi@mbl.is
Ljósmynd/Vegagerðin
Deilur Tafir hafa orðið á afhend-
ingu nýja Herjólfs í Póllandi.
Til Póllands
að funda um
nýja Herjólf