Morgunblaðið - 13.04.2019, Side 24

Morgunblaðið - 13.04.2019, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er nötur-legt að lesalýsingu Sigurðar Sig- mannssonar á þrautagöngu sinn í heilbrigðiskerfinu í Sunnudagsblaði helgarinnar. Þar lýsir hann tveggja ára bið eftir aðgerð á hné. Á meðan á biðinni stóð versnaði ástandið á hnénu til muna, sem kallaði á stærri aðgerð. Hann fékk loks vilyrði fyrir því að fara til Svíþjóðar í að- gerðina, en vegna þess að hann hafði fengið blóðtappa var talið að hann mætti ekki við ferðalaginu og því vildu Svíarnir ekki taka hann. Sá hann fram á slíka bið sár- kvalinn eftir aðgerð hér heima að hann ákvað að borga sjálfur fyrir að fara undir hnífinn á Klíníkinni. Sú aðgerð var helmingi ódýrari en sú sænska hefði verið, en ekki er við það komandi að hún verði endurgreidd. Í baráttu sinni fyrir að kom- ast í aðgerð hefur Sigurður átt í miklum samskiptum við heil- brigðiskerfið. „Ástandið hjá mér versnar bara og versnar,“ segir hann í einum tölvupóst- inum. „Mér finnst þetta mjög óréttlátt og er mjög ósáttur við þetta ömurlega kerfi.“ Í umfjöllun Morgunblaðsins tvo sunnudaga í röð um þessi mál hafa ýmsar brotalamir komið fram. Í blaðinu nú um helgina lýsir Yngvi Ólafsson, yfirlæknir á bæklunar- skurðdeild Landspítalans, ástandinu og dregur ekkert undan. Hann bendir á að uppbygg- ing heilbrigðisþjónustunnar sé ekki í neinu samræmi við fjölgun íbúa í landinu og hin löngu tímabæra sjúkrahús- bygging, sem nú sé að skríða af stað, verði sennilega of lítil þegar hún verður fullbyggð. Hvað biðlistana snertir bendir hann sérstaklega á hinn svokallaða fráflæðis- vanda, sem lýsi sér í því að sjúklingar festist á legudeild spítalans og taki upp rúm sem annars yrðu nýtt undir sjúk- linga, sem þurfi að leggjast inn í styttri tíma, eins og eftir liðskiptaaðgerðir. Einnig vantar hjúkrunar- fræðinga og svæfingarlækna, sem til dæmis sést á því að nýting bráðaskurðstofu, sem búin var til, er innan við 50%. Yngvi segir að sér finnist sorglegt að ekki hafi tekist að byggja upp þessa starfsemi hér heima og segir að þrátt fyrir allt sé ódýrasti kosturinn að gera þessar aðgerðir innan spítalans. „En ég skil vel fólk sem fer út, það á rétt á því og það þarf að gera það upp við sjálft sig. Sama gildir um Klíník- ina. Sá hluti sem hefur farið út og farið á Klíníkina hefði annars verið á biðlista hér,“ segir hann og bætir við aðspurður að sér finnist „eig- inlega skrítið“ að Sjúkra- tryggingar Íslands vilji ekki semja við Klíníkina vegna lið- skiptaaðgerða, þó ekki væri nema tímabundið. „Það eru þúsund manns á biðlista með sínar þjáningar,“ segir hann. „Mér finnst sjálfsagt að reyna að koma þeim til hjálpar á ein- hvern hátt.“ Þessar þjáningar mælast vitaskuld hvergi í hagtölum, en kostnaður þeirra í vinnu- tapi og lyfjakostnaði kemur hins vegar fram auk þess sem líkurnar á að endurheimta fyrri heilsu minnka eftir því sem biðin lengist. Sigurður Sigurmannsson lýsti sinni reynslu í bréfi til Sjúkratrygginga Íslands: „Þessi bið hefur kostað mig miklar kvalir og tekið frá mér mikil lífsgæði í nær tvö ár; vinnuna, áhugamálin og ýmis- legt annað.“ Sigurður hefur fengið sér lögfræðing til að sækja rétt sinn, þótt Sjúkratryggingar Íslands hafni alfarið að taka þátt í greiðslu kostnaðar. Gildir þar einu þótt sú aðgerð hafi verið ódýrari, en aðgerð- in, sem þó hafði verið sam- þykkt að greiða. Finnst Sig- urði það vera „mannréttinda- brot að hann þurfi að gjalda fyrir erjur milli einstakra að- ila í heilbrigðis- og ríkisgeir- anum“, eins og segir í kæru hans. Þar kemur enn fremur fram: „Umbjóðandi minn tel- ur að hér sé um að ræða brot á jafnræðisreglu og að ekki séu málefnalegar ástæður að baki þessari ákvörðun. Hans tilvik er í engu frábrugðið tilviki þar sem sjúkratryggður ákveður að fara í dýrari meðferð er- lendis.“ Þetta er kjarni málsins og tímabært að látið yrði reyna á þetta með þeim hætti, sem Sigurður hyggst gera. Biðlist- arnir eru síðan annað mál og sérstaklega þar sem sennilega hefði verið unnt að ganga verulega á listana í liðskipta- aðgerðum hefði verið gengið til samninga við Klíníkina. Það er með ólíkindum hvað biðlistarnir ætla að verða líf- seigir í íslensku heilbrigðis- kerfi. „Þessi bið hefur kostað mig miklar kvalir og tekið frá mér mikil lífsgæði í nær tvö ár; vinnuna, áhugamálin og ým- islegt annað“ } „Þetta ömurlega kerfi“ Þ egar verðbólgan var að sækja í sig veðrið, mjakaði sér úr tíu prósent- um yfir hundraðið á rúmum ára- tug, var ég sannfærður um að léleg efnahagsstjórn á Íslandi væri lé- legum hagfræðingum að kenna. Í raun var það fyrst þegar hagfræðin seytlaði inn í huga stjórnmálamanna að von vaknaði um árangur. Vinstri stjórn innleiddi verðtryggingu árið 1979, en hún varð grundvöllur að því að hægt væri að byggja upp lífeyriskerfi lands- manna. Önnur vinstri stjórn festi kvótakerfi og framsal kvóta í sessi árið 1990, en með því var lagður grunnur að arðbærri útgerð. Verkalýðshreyfingin tók hagfræðina líka í sína þjónustu við lok níunda áratugar síðustu aldar. Hún stóð að samningum, sem ýttu undir kaupmáttaraukningu sem á engan sinn líka, í stað krónutöluhækkana sem sífellt eltu óðaverðbólguna. Um aldamót var Seðlabankanum svo falið það hlutverk að hemja verðbólguna. Bankinn nýtir einkum vaxtavopnið sem beit ekki vel þegar flest lán voru annað hvort í erlend- um gjaldeyri eða verðtryggð. Síðustu ár hefur bankinn náð markmiðum sínum, en vextir á Íslandi eru enn miklu hærri en í nágrannalöndunum, sem skaðar samkeppnishæfni fyrirtækja og þrengir hag ungs fólks. Fyrir nokkrum árum kom fram merkilegt hagstjórnar- tæki, fjármálastefna til fimm ára með samsvarandi fjár- málaáætlunum. Í lögum eru sett fram skýr markmið um afkomu og skuldir ríkisins og kveðið á um að fylgt skuli fimm stefnumiðum: Sjálfbærni, varfærni, stöð- ugleiki, festu og gagnsæi. Fjármálaráð er óháð stjórnvöldum og fer yf- ir fjármálastefnu og –áætlanir. Það hefur skil- að skýrslu um fjármálaáætlunina sem nú ligg- ur fyrir Alþingi. Ráðinu verður tíðrætt um að stjórnvöld geti „lent í spennitreyju eigin stefnu“ þó að aðstæður kalli á annað. Það er ekki sagt berum orðum, en ráðið virðist telja að stjórnvöld hafi, ein og sér, bætt sjötta stefnu- miðinu við þau fimm sem í lögunum standa: Bjartsýni. Aftur á móti sé sjaldan er minnst á varfærni en „það verður að teljast óheppilegt miðað við þær aðstæður sem efnahagslífið býr við um þessar mundir.“ Ráðið bætir við: „Var- færni í ákvörðunartöku er nauðsynleg, mikil- vægt er að sýna festu til að minnka óvissu og á sama tíma þarf að gæta fulls gagnsæis svo að hagsmunaaðilar geti rýnt áætlunina.“ Ráðið bendir á að „í áætlunum sé almennt gefið eftir í aðhaldi til skamms tíma en til lengri tíma sé aðhaldið auk- ið.“ Aðhaldið er sem sé fært næstu stjórnvöldum í vöggu- gjöf. Fjármálaráð óttast greinilega um að framhaldið: „Þegar stefnumið setja ákvörðunum stjórnvalda skorður er mikilvægt að gagnsæi sé viðhaft varðandi áform stjórn- valda í hagstjórn og að óvænt framvinda leiði ekki til þess að festu í stefnu og áætlunum sé kastað fyrir róða.“ Sem sé: Raunsæi væri líka gott stefnumið. Benedikt Jóhannesson Pistill Stjórnvöld í spennitreyju Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Hrein skattbyrði ein-staklings með meðal-laun sem er í sambúðeða hjónabandi og með tvö börn á framfæri sínu lækkaði hér á landi á síðasta ári frá árinu á undan. Þetta má lesa út úr árleg- um skattasamanburði OECD á skattlagningu launa sem er nýkom- inn út. Í þessum samanburði á skattbyrðinni hefur verið tekið tillit til bótagreiðslna og endurgreiðslna í gegnum skattkerfið sem barna- fjölskyldur njóta, s.s. barnabóta. Lækkaði skatthlutfall þessara ein- staklinga með börn á framfæri í fyrra úr 18,6% á árinu 2017 í 16,2%. Hlutfallið er það sextánda hæsta í samanburði aðildarlanda OECD en meðaltalið þar var 14,2% á seinasta ári. Hefur Ísland lækkað úr 12. sæti frá árinu á undan. OECD bendir á í umfjöllun um þennan samanburð að fyrir Ísland þýði þetta að meðallaunamaður hér á landi með tvö börn á framfæri sínu haldi eftir 83,8% af heildar- launum sínum eftir skatta og vegna bótagreiðslna samanborið við 85,8% meðaltal í ríkjum OECD. Meiri skattbyrði barnlausra Skattbyrði barnlausra laun- þega hér á landi, sem eru með meðallaun, mældist mun hærri eða 28,7% á seinasta ári samanborið við 25,5% meðaltal meðal allra ríkja í OECD fyrir þennan hóp barnlausra einstaklinga. Barnlaus einstakl- ingur með meðallaun fær því í vas- ann 71,3% af heildarlaununum eftir skatta og önnur gjöld en meðaltalið í ríkjum OECD var 74,5% Skatt- byrði þessara einstaklinga er því nokkru þyngri en að meðaltali í OECD. Í árlegum skattasamanburði OECD eru notaðir ýmsir mæli- kvarðar til að leggja mat á skatt- byrði launafólks. Auk áðurnefndra útreikninga á hreinni skattbyrði launafólks reiknar OECD einnig heildarskattbyrði launa frá sjón- arhóli bæði launamanna og launa- greiðenda og finnur út svonefndan skattfleyg. Hann sýnir hlutfall sam- anlagðra skatta og launatengdra gjalda af launakostnaði atvinnurek- andans vegna starfsmanns og hvað launþeginn ber úr býtum. Hér er þá m.a. tekið tillit til trygginga- gjalds og framlaga til almanna- trygginga. Fleygurinn á að sýna hversu breitt bil er á milli launakostnaðar- ins vegna starfsmanns og þess sem launþeginn fær eftir skatta. Þeim mun hærri sem fleygurinn er því minna fær launþeginn eftir skatta. Skattbyrði sem reiknuð er á þennan mælikvarða var örlítið minni á Íslandi á seinasta ári frá árinu á undan. Hlutfallið hér á landi var 33,2% í fyrra sem setur Ísland í 24. sæti og hafa Íslend- ingar færst niður um eitt sæti á milli ára. Ísland færist niður Ef litið er á samanburð á skattbyrði og skattfleyg sambúðar- fólks með tvö börn á framfæri sínu þar sem fyrirvinnan er ein, kemur í ljós að þessi hópur á Íslandi er með 25. lægsta skattfleyginn innan OECD og er skattbyrðin á þennan mælikvarða 21,5%. Hefur Ísland færst niður um eitt sæti frá árinu á undan samkvæmt umfjöllun OECD. Skattbyrðin léttist lítið eitt á síðasta ári Morgunblaðið/Eggert Skattar Skattfleygurinn sem sýnir skattbyrði launafólks sem hlutfall af launakostnaði fyrirtækja stækkaði um 4,4 prósentustig frá 2000 til 2018. Skattbyrði launþega, meðalskattur 2018 40% 30% 20% 10% 0% Heimild: OECD Taxing Wages B el gí a Þý sk al an d D an m ör k Sl óv en ía U ng ve rja la nd Au st ur rík i Íta lía H ol la nd Fi nn la nd Lú xe m bo rg Fr ak kl an d Ís la nd Le tt la nd Ty rk la nd N or eg ur Po rt úg al G rik kl an d Ír la nd Pó lla nd Sv íþ jó ð Ás tr al ía Té kk la nd Sl óv ak ía B an da rík in B re tla nd Ka na da Ja pa n Li th áe n Sp án n N ýj a- Sj ál an d Ís ra el Sv is s Ei st la nd Kó re a M ex ík ó Sí le OECD meðaltal, sambúðarfólk, 14,2% OECD meðaltal, einstæðingur, 25,5% Barnlaus einstæðingur Sambúðarfólk með 2 börn, ein fyrirvinna Ísland, 28,7% - 16,2%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.