Morgunblaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019
sp
ör
eh
f.
Sumar 25
Blómlegar sveitir, ótrúlega vel varðveitt miðaldaþorp,
konungshallir, forn klaustur og kastalar eru meðal þess
sem við kynnumst í þessari ferð um Rúmeníu. Við förum
m.a. um Transilvaníu, heimsækjum kastala Drakúla í Bran
og siglum um óshólma Dónár. Endum ferðina á að kynnast
hinni dásamlegu Búdapest og nágrenni hennar.
20. ágúst - 3. september
Fararstjórn: Steingrímur Gunnarsson
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 364.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
ÁDrakúlaslóðum íRúmeníu
Á ársfundi Samtaka fyrirtækja ísjávarútvegi, SFS, sem hald-
inn var í gær, sagði sjávarútvegs-
ráðherra að það
væri „frumskylda
stjórnvalda að
tryggja sem best
stöðugleika í
rekstrarumhverfi
íslensks sjávar-
útvegs til lengri
tíma og búa
greininni
samkeppnishæft
starfsumhverfi.
Tryggja að þau verði ekki undir í
harðri alþjóðlegri samkeppni. Þar
hefur gjaldtaka mikið vægi en
ekki síður þarf að róa að því öllum
árum að útflutningur á sjávaraf-
urðum til Evrópusambandsins og
annarra mikilvægra markaða
verði sem greiðastur og að fullu
tollfrjáls. Sú vinna stendur yfir.“
Rekstrarumhverfi þessararhelstu undirstöðuatvinnu-
greinar landsins er gríðarlega
mikilvægt og ánægjulegt að ráð-
herra nefni sérstaklega að gjald-
taka vegi þar þungt.
Í því sambandi er nauðsynlegtað hafa í huga að íslenskur
sjávarútvegur er í stöðugri og
harðri samkeppni við sjávarútveg
annarra landa.
Og sjávarútvegur annarralanda býr ekki við þær að-
stæður að vera skattlagður sér-
staklega umfram allar aðrar at-
vinnugreinar.
Þvert á móti er sjávarútvegurvíða niðurgreiddur.
Þetta er það starfsumhverfisem íslenskum sjávarútvegi
er búið og það er fjarri því að vera
sanngjarnt.
Kristján Þór
Júlíusson
Ósanngjarnt
starfsumhverfi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Vanmat á aðstæðum var orsök þess
að farþegaskipið Ocean Diamond
rakst utan í endann á Norðurgarði í
innsiglunni til Reykjavíkur í lok maí
á síðasta ári, samkvæmt áliti sigl-
ingasviðs rannsóknanefndar sam-
gönguslysa, en málið var afgreitt
frá nefndinni á mánudag. Skemmd-
ir urðu bæði á garðinum og skipinu.
Áður en siglt var inn á milli garð-
anna hafði skipið verið í vandræð-
um fyrir utan innsiglinguna og lent
of langt suður frá henni. Í skýrslu
nefndarinnar segir að við rannsókn
hafi komið fram að hafnsögumaður
hafi verið um borð. Hann kvað
þetta hafa verið mannleg mistök
sem fólust í því að hafa ekki farið
fjær innsiglingunni áður en siglt var
þar inn.
Í skýrslu skipstjóra kom fram að
vindhviða hefði valdið því að skipið
lenti utan í enda hafnargarðsins í
innsiglingunni. Hann hefði lagt inn í
höfnina vegna ráðlegginga hafn-
sögumanns en taldi það hafa verið
mistök hjá sér.
Fram kom hjá hafnsögumannin-
um að einhver vandræði hefðu verið
með skiptiskrúfuna í fyrri ferðum
skipsins. Hann hafi því orðað það
við skipstjórann hvort búnaðurinn
væri í lagi þegar hann kom um borð
og fengið þær upplýsingar að svo
væri. Þegar skipið var í vandræðum
fyrir utan höfnina fannst honum
það ekki bakka eðlilega.
Þá kemur fram í álitinu að engar
upplýsingar liggi fyrir um vélar-
vandræði, hvorki frá skipstjóra eða
útgerð þrátt fyrir að eftir því væri
leitað. aij@mbl.is
Ljósmynd/Kristján Þór Júlíusson
Ocean Diamond Skipið lenti í vandræðum fyrir utan garðana við innsiglinguna í Reykjavíkurhöfn.
Vanmat á aðstæðum
Skemmdir er farþegaskip rakst utan í hafnargarð fyrir ári
Krónan ehf. hefur áfrýjað til Lands-
réttar dómi Héraðsdóms Suður-
lands frá 4. mars síðastliðnum í máli
sem fyrirtækið höfðaði á hendur
sveitarfélaginu Árborg og Heil-
brigðiseftirliti Suðurlands. Krónan
krafðist þess að ógilt yrði með dómi
stjórnvaldsákvörðun heilbrigðiseft-
irlitsins frá 6. desember 2016 þar
sem kveðið var á um að brauðmeti í
verslun fyrirtæksins á Selfossi
skyldi varið með umbúðum eða með
öðrum hætti sem tryggði að mat-
varan spilltist ekki eða mengaðist.
„Það er mat dómsins að athuga-
semdir og ábendingar stefnda, Heil-
brigðiseftirlits Suðurlands, sem lutu
að meðferð stefnanda á brauðmeti í
verslun sinni, hafi verið réttmætar
þar sem telja verður að augljós og
raunveruleg hætta hafi verið á því að
viðskiptavinir hnerri eða hósti yfir
brauðið eða handfjatli það með ber-
um höndum. Hafa ber í huga að ólíkt
grænmeti verður brauð ekki skolað
fyrir notkun. Verður því að fallast á
að mengunarhætta hafi verið fyrir
hendi og voru athugasemdir stefnda
í samræmi við framangreind laga-
og reglugerðaákvæði,“ segir í dómi
héraðsdóms.
Í dómnum kemur fram að áður en
til þvingunaraðgerða af hálfu eftir-
litsaðila kom hafi Krónan orðið við
kröfum stefnda og breytt innrétt-
ingum í versluninni. Því hafi ekki
verið sýnt fram á að eiginleg stjórn-
sýsluákvörðun hafi verið tekin í mál-
inu og af þeim sökum verði stefndu
sýknaðir af kröfum um ógildingu
stjórnsýsluákvarðana. Krónunni var
gert að greiða hvorum stefnda um
sig eina milljón króna í málskostnað.
hdm@mbl.is
Krónan áfrýjar dómi í brauðmálinu
Raunveruleg hætta talin á að hnerrað væri á brauðið Bíður Landsréttar