Morgunblaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019 Kringlan 4-12 | s. 577-7040 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Uppsetning á djúpgámum fyrir sorp við Bríetartún 9-11 í Reykjavík var langt komin um hádegisbilið í gær. Eins og ljósmyndin hér til hliðar ber með sér bera gámarnir nafn með rentu. Þeir eru djúpir og langir. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for- maður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, segir þetta meðal fyrstu djúpgámanna í borginni. Þeir fyrstu hafi verið settir upp í grenndarstöð fyrir íbúa við Freyju- torg. Það er að segja á torginu þar sem Freyjugata, Óðinsgata og Bjargarstígur mætast. Því næst hafi fyrstu djúpgámarnir við fjölbýlishús verið settir upp í Jaðarleiti 2-8, sunnan við RÚV-húsið. Ruslatunnurnar á útleið Sigurborg Ósk segir djúpgámana vera framtíðina í sorphirðu. „Á öllum helstu þéttingarreitum stendur til að hafa svona djúpgáma- lausnir fyrir viðkomandi íbúa. Djúpgámarnir í Bríetartúni eru með þeim fyrstu og sennilega eru fáir orðnir meðvitaðir um þá, eða hafa yfir höfuð séð þá,“ segir hún. Spurð hvernig djúpgámar séu tæmdir segir hún sérstaka kranabíla lyfta gámunum hátt upp. Gámarnir nái enda djúpt ofan í jörðina. Spurð um kosti djúpgáma umfram hefðbundnar sorptunnur segir hún að fara þurfi færri ferðir við sorp- hirðuna. Þá nýtist lóðir betur með djúpgámum en með því að koma fyrir sorpgeymslum í kjallara. „Á þessum reitum geta oft verið margar íbúðir og þá er rýmið tak- markað. Þá eru djúpgámar langhent- ugasta lausnin,“ segir Sigurborg Ósk sem telur aðspurð að gömlu sorp- geymslurnar séu á útleið. „Þetta snýst líka um aðgengi. Að sækja tunnur með gömlu aðferðinni er mannfrekt og erfitt fyrir þá sem sækja sorpið,“ segir Sigurborg Ósk. Meðal annarra þéttingarreita þar sem djúpgámar verða settir upp eru reitirnir við Hlíðarenda, Kirkju- sandur og Vesturbugt. Djúpgámarnir taka við mismun- andi sorpi; almennu sorpi, pappír, plasti og öðru sem er flokkað, til dæmis gleri. Með þeim minnkar þörfin fyrir grenndargáma á viðkomandi íbúðasvæðum. Nokkuð er síðan sorprennur voru bannaðar í nýjum fjölbýlishúsum. Djúpgámar koma í stað sorptunna  Fyrstu djúpgámarnir settir upp í Túnunum í Reykjavík  Verða hífðir upp af kranabílum  Formaður skipulagsráðs segir djúpgáma fara betur með rýmið en gömlu sorpgeymslurnar Morgunblaðið/Baldur Nýjung Sorpinu er safnað saman í gámi sem er að mestu neðanjarðar. Langur Hér má sjá hversu lítill hluti gámsins stendur upp úr jörðinni. Bæjarstjórn Vestmannaeyja sam- þykkti samhljóða í bókun á fundi sínum í fyrradag að fara fram á það við Vegagerðina að unnið verði minnisblað þar sem því verði lýst hvernig stofnunin hyggist koma í veg fyrir að þær aðstæður sem nú eru uppi í Landeyjahöfn muni end- urtaka sig næst haust. Ekki verði við það unað að höfnin lokist í jafn langan tíma. „Samgönguyfirvöld í landinu verða að gera sér grein fyrir því hversu grafalvarlegt ástandið er og leita allra leiða til að ráða bót á þessu ófremdarástandi þegar í stað,“ segir í bókuninni. Jafnframt voru rifjuð upp varn- aðarorð bæjaryfirvalda þegar sam- ið var við verktaka um dýpkun, að hann hefði ekki yfir að ráða nauð- synlegum tækjabúnaði til að opna höfnina innan viðunandi tíma- marka. Björgun hefur unnið að dýpkun Landeyjahafnar undanfarnar vik- ur, eftir því sem aðstæður hafa leyft. Veður og sjólag hefur tafið það að hægt hafi verið að ljúka dýpkun. Í bókun bæjarstjórnar kemur fram að fyrirtæki í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum hafi orðið fyrir miklu tjóni vegna þess að ekki hafi verið hægt að nota Landeyjahöfn. helgi@mbl.is Opnað verði fyrr á næsta ári  Fyrirtæki í Eyjum verða fyrir tjóni Morgunblaðið/RAX Landeyjahöfn Ferjan Herjólfur leggst að bryggju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.