Morgunblaðið - 13.04.2019, Qupperneq 22
Fasteignafélagið Reginn hefur und-
anfarið eitt og hálft ár átt í viðræðum
við fulltrúa lúxusvörumerkjanna
Gucci, Louis Vuitton og Prada, um
opnun verslana í húsnæði fasteigna-
félagsins að Hafnartorgi í Reykjavík.
Að sögn Helga S. Gunnarssonar,
forstjóra Regins, taka viðræður við
slíka aðila ávallt langan tíma. Í sam-
tali við Morgunblaðið bendir Helgi á
að viðræður við sænsku verslunina
COS hafi tekið tvö ár. Viðræður við
lúxusvörumerkin munu að sögn
Helga halda áfram á næstu mánuðum
og er von á erlendum ráðgjöfum fast-
eignafélagsins hingað til lands í
næstu viku.
Spyrða sig saman
Fjárfestar tóku nokkuð vel í upp-
gjör Regins sem birt var í fyrradag og
hækkaði gengi bréfa Regins í Kaup-
höll um 1,7% í 392 milljóna króna við-
skiptum, eða mest allra félaga í gær.
„Það er okkar markmið að ná í þessi
þrjú flottu merki sem leiða þennan
hátískubransa, sem eru Gucci, Prada
og Louis Vuitton. Við höfum verið í
viðræðum við þau í eitt og hálft ár,“
segir Helgi og nefnir að sendinefndir
á vegum þessara félaga hafi komið
hingað til lands þrívegis. „Þau hafa
ákveðið að spyrða sig saman, þessi
þrjú merki. Það er sums staðar þann-
ig og auðvitað erum við bara örmark-
aður, hér í Reykjavík, og þau vilja því
frekar vera saman,“ útskýrir Helgi og
nefnir að möguleiki sé á að aðrar
verslanir fylli rýmin sem búið er að
taka frá á meðan.
„Það er í raun búið að semja um allt
við þau og taka frá rými. Búið að
semja um stærðir, verð, og hver gerir
hvað. Það liggur allt fyrir og einnig
þeirra vilji um að koma hingað til Ís-
lands. En það er ekki búið að skrifa
undir samninga um hvenær þau koma
og hvort þau koma,“ segir Helgi.
Líkt og fram kom í ViðskiptaMogg-
anum í vikunni munu ýmsar verslanir
opna á Hafnartorgi á næstunni. Í
kynningu Regins vegna fyrsta árs-
fjórðungs kemur fram að verslanirn-
ar Collections, GK Reykjavík, COS,
Michelsen, Optical Studio og Joe and
the Juice muni opna. peturh@mbl.is
Lúxusvörumerk-
in enn í sigtinu
Samningaviðræður við Gucci, Louis
Vuitton og Prada staðið í eitt og hálft ár
Morgunblaðið/Hari
Verslun Collections, sem er í eigu sömu aðila og reka Herragarðinn, opnaði
verslun sína að Hafnartorgi í gær. Fleiri verslanir munu opna á næstunni.
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019
BAKSVIÐ
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
JetBlue tilkynnti á miðvikudag að
félagið hygðist hefja beint flug frá
New York og Boston til London ár-
ið 2021. Segist félagið miða við að
fleiri ferðir verði daglega frá báðum
borgum og verður flogið með Air-
bus A321LR vélum. Ekki hefur ver-
ið ákveðið til hvaða flugvalla í
London verður flogið. Þá er ekki
ljóst hvaða áhrif þessar flugferðir
lággjaldaflugfélagsins geta haft á
íslenskan markað.
Verðlækkanir
Verði af áformum félagsins fjölg-
ar ferðum milli Ameríku og Evrópu
án viðkomu á Íslandi og vekur at-
hygli að félagið sé lággjaldafélag
sem, að eigin sögn, mun leggja
áherslu á að verða valkostur fyrir
bæði almenna ferðamenn og þá sem
ferðast vegna vinnu. „Vöxtur inn á
evrópskan markað er eðlilegt næsta
skref fyrir JetBlue með hliðsjón af
borgaráætlun félagsins og er Lond-
on stærsti áfangastaðurinn sem
JetBlue hefur til þessa ekki þjón-
ustað,“ segir í tilkynningunni.
„Markaðsaðgangur fyrir minni
flugfélög hefur aldrei verið tak-
markaðri. […] Fáum við tækifæri
til þess að keppa [við stærri félög]
getur JetBlue haft veruleg áhrif á
verðlækkanir og aukið umferð,“ er
haft eftir Joanna Geraghty, rekstr-
arstjóra JetBlue, í tilkynningu fé-
lagsins. Samkvæmt svari JetBlue
við fyrirspurn Morgunblaðsins
hafði þrot WOW ekki áhrif á
ákvörðunina og er tekið fram að
þetta hafi verið til skoðunar í lengri
tíma.
Ben Baldanza hætti í stjórn
WOW air í ágúst eftir að hafa tekið
sæti í stjórn JetBlue og var haft
eftir honum að hann hefði hætt í
þeim tilgangi að forðast hagsmuna-
árekstra, en til skoðunar hefur ver-
ið í lengri tíma hjá JetBlue að hefja
flug til Evrópu í samkeppni við önn-
ur félög sem bjóða tengingar yfir
Atlantshaf.
Miða að öðrum mörkuðum
Spurður hvort áformin geti haft
áhrif á flugmarkað hér á landi, ekki
síst í ljósi þess að Ísland hefur verið
markaðssett sem tengistaður milli
Evrópu og Ameríku, segir Jón Karl
Ólafsson, ráðgjafi og fyrrverandi
forstjóri Icelandair: „Flugmarkað-
urinn hér á landi hefur einblínt á
svæði sem ekki keppa á þessum
stærri áfangastöðum eins og Lond-
on.“ Hann bendir á að þau félög
sem hafa verið að fljúga til og frá
Íslandi hafi fyrst og fremst verið á
mörkuðum þar sem ekki er boðið
upp á beint flug yfir Atlantshaf.
„Hvað verð varðar getur þetta
haft áhrif, framboðsaukning yfir
hafið almennt hefur áhrif og ef verð
verður mjög gott hjá þessum – sem
við vitum ekkert um ennþá – gætu
ferðamenn valið að fara frekar til
London og þaðan inn á einhverja
aðra staði í Evrópu með tengiflugi.
En svona almennt myndu áhrif
verða meiri ef farið væri inn á
markaði sem er verið að sinna frá
Íslandi,“ útskýrir Jón Karl. „Þessi
lággjaldafélög hafa minni yfirburði
á lengri leiðunum eins og kom í ljós
í tilfelli WOW og Norwegian. Þegar
þessi lággjaldafélög fara inn á
þessa lengri markaði er samkeppn-
isstaða þeirra ekki eins afgerandi
góð. Það er sambærileg nýting flug-
véla og flugmanna, það þarf að
stoppa hvort sem er báðum megin
og það er heilmikill kostnaður við
þetta flug í samanburði við styttri
flugferðir,“ bætir hann við.
JetBlue-flug gæti lækkað verð
Lággjaldafélagið áformar beint flug frá Boston og New York til London án viðkomu á Íslandi
Hefur ekki endilega áhrif á samkeppnisstöðu Íslands Gæti leitt til verðlækkana ef boðið er lágt verð
Ljósmynd/Tomás Del Coro
Flugtak Ekki er talið að mikil áhrif verði af flugi JetBlue yfir Atlantshafið í
fyrstu. Horfurnar munu þó velta á því hversu lágt verð félagið mun bjóða.
13. apríl 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.58 120.16 119.87
Sterlingspund 156.51 157.27 156.89
Kanadadalur 89.48 90.0 89.74
Dönsk króna 18.058 18.164 18.111
Norsk króna 14.06 14.142 14.101
Sænsk króna 12.905 12.981 12.943
Svissn. franki 119.31 119.97 119.64
Japanskt jen 1.0757 1.0819 1.0788
SDR 166.1 167.08 166.59
Evra 134.82 135.58 135.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.5852
Hrávöruverð
Gull 1301.85 ($/únsa)
Ál 1851.0 ($/tonn) LME
Hráolía 71.56 ($/fatið) Brent
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk