Morgunblaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Trésmiðja með 40 ára rekstrarsögu sem sérhæfir sig í innréttingasmíði fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið er vel tækjum búið og í eigin húsnæði. Velta 130 mkr. • Fyrirtæki sem framleiðir ákveðnar tegundir einfaldra matvæla fyrir aðra aðila á markaði. Töluverð sjálfvirkni þannig að kostnaði er mjög stillt í hóf. Velta 100 mkr. og afkoman sérlega góð. • Lítið ferðaþjónustufyrirtæki í góðum vexti sem býður fjölbreyttar ferðir á Suðurlandi. Eigið húsnæði og góður búnaður. Velta 50mkr. Góður vöxtur. • Heildverslun sem flytur inn ýmsan tæknibúnað til hitunar, kælingar og loftræstingar. Velta yfir 200 mkr. og góð afkoma. • Blikkiðjan ehf. í Garðabæ. Um er að ræða rekstur og fasteign að Iðnbúð 3. Velta um 80 mkr. • Lítil heildverslun með sterkan fókus í árstíðabundinni vöru. Tilvalinn rekstur fyrir einstaklinga eða sem viðbót við aðra heildsölu. Stöðug rekstrarsaga. Velta 45 mkr. • Þjónustufyrirtæki á mjög sérhæfðu sviði sem hefur eftirlit mað hreinlæti á vinnustöðum, gerir tillögur að kerfum og sér um úttektir. Velta 100 mkr. og góð afkoma. • Hádegisverðarþjónusta þar sem bæði er sent í fyrirtæki og neytt á staðnum í hádeginu. Tilvalið fyrir samhenta fjölskyldu og kokka. Velta 100 mkr. Töluverðir möguleikar fyrir duglega aðila að auka veltuna. • Gott fyrirtæki með áratuga sögu sem sérhæfir sig í vélaviðgerðum og sölu varahluta sem það flytur sjálft inn. Velta nokkuð stöðug undanfarin ár og jákvæð afkoma. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Gera má ráð fyrir að barátta Julians Assange fyrir breskum dómstólum gegn framsalskröfu yfirvalda í Bandaríkjunum taki nokkur ár, að sögn breskra lögspekinga. Frétta- veitan AFP hefur eftir þeim að hugsanlega verði málinu að lokum skotið til Evrópudómstólsins. Breski lögmaðurinn Anthony Hanratty, sem hefur sérhæft sig í framsalsmálum, telur að Assange standi frammi fyrir „mjög erfiðri baráttu í ljósi þess hvernig framsals- samningur Bretlands og Bandaríkj- anna er“, að því er breska blaðið The Times hefur eftir honum. Hann segir það einnig geta torveldað baráttu Assange að breskir dómstólar leggi mikið upp úr „trausti og samstarfi milli landanna tveggja“, auk þess sem líklegt sé að bandarísk yfirvöld fylgi framsalskröfunni mjög fast eft- ir. Vegið að fjölmiðlafrelsi? Julian Assange, 47 ára Ástrali sem stofnaði uppljóstrunarvefinn Wiki- Leaks, var handtekinn í sendiráði Ekvadors í London í fyrradag þar sem hann hafði dvalið í tæp sjö ár. Hann var seinna dæmdur í gæslu- varðhald vegna þess að hann var fundinn sekur um að hafa brotið skil- mála sem dómstóll hafði sett fyrir því að hann yrði leystur úr varðhaldi gegn tryggingu árið 2012. Eftir handtökuna birtu bandarísk yfirvöld ákæru á hendur Assange vegna meintrar aðildar hans að inn- brotum í tölvur varnarmálaráðu- neytis Bandaríkjanna í tengslum við mál bandaríska uppljóstrarans Chelsea Manning sem var dæmd í fangelsi árið 2013 fyrir að láta Wiki- Leaks í té hundruð þúsunda banda- rískra leyniskjala sem voru birt á vefnum. Assange á yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi vegna þeirrar ákæru. Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, kveðst óttast að Assange verði ákærður fyrir fleiri lögbrot verði hann framseldur og hann geti því átt yfir höfði sér tugi ára í fang- elsi í Bandaríkjunum. Hermt er að ákæran á hendur Assange hafi verið skráð með leynd hjá alríkisdómstól í Virginíu í fyrra þótt hún hafi ekki verið birt fyrr en en í fyrradag. Í ákæruskjalinu segir að Assange hafi samþykkt að hjálpa Chelsea Manning, fyrrverandi her- manni sem hét þá Bradley Manning, að hakka lykilorð til að komast í tölvukerfi varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna í mars 2011. Mann- ing hafði þá þegar látið WikiLeaks í té leyniskjöl um hernað Bandaríkja- hers í Afganistan og Írak og um fanga í Guantanamo-fangelsinu, að sögn bandarískra saksóknara. Þeir segja að markmiðið með því að hakka lykilorðið hafi verið að gera Manning kleift að stela fleiri tölvu- skjölum án þess að hægt væri að rekja stuldinn til hennar. The Wall Street Journal hefur eft- ir bandarískum saksóknurum að Manning hafi séð Assange fyrir hluta af lykilorði notanda tölvukerf- isins. Assange hafi seinna beðið hana um frekari upplýsingar varðandi lykilorðið og sagt henni að sér hefði ekki enn tekist að hakka það. Nokkrir lagasérfræðingar telja að með ákærunni sé vegið að frelsi fjöl- miðla og fyrsta viðauka stjórnar- skrár Bandaríkjanna sem kveður m.a. á um að þinginu sé óheimilt að setja lög sem skerði prentfrelsi. Yochai Benkler, lagaprófessor við Harvard-háskóla, segir að ákæru- skjalið feli í sér nokkra „mjög alvar- lega þætti sem gætu stefnt umfjöllun fjölmiðla um þjóðaröryggismál í verulega hættu“, að því er breska blaðið The Guardian hefur eftir hon- um. „Ekki blaðamennska, heldur þjófnaður“ Lögmenn Assange segja að hann hafi aðeins hvatt heimildarmann sinn til að veita sér upplýsingar og gert ráðstafanir til að vernda nafnleynd hans. Aðrir lögfræðingar segja hins vegar að með því að hjálpa heim- ildarmanni sínum við að hakka lykil- orð til að brjótast inn í tölvukerfi og stela tölvupóstum hafi Assange farið yfir strikið og það geti ekki talist eðlileg vinnubrögð í blaðamennsku. Lagasérfræðingar segja að banda- rískir dómstólar hafi yfirleitt heimil- að fjölmiðlamönnum að birta upplýs- ingar, sem þeir telji mikilvægar fyrir almannahagsmuni, þótt heimildar- mennirnir hafi brotið lög með því að láta þær í té. Öðru máli gegni hins vegar ef fjölmiðlamaður hvetji heim- ildarmann sinn til að fremja lögbrot í því skyni að afla upplýsinga. Robert Chesney, prófessor í þjóðaröryggislögum við Texas- háskóla, segir að ákæran á hendur Assange geti ekki talist atlaga að fjölmiðla- eða málfrelsi vegna þess að hún snúist um það hvort Assange hafi reynt að hakka lykilorð til að stela gögnum. „Það er ekki blaða- mennska, heldur þjófnaður,“ hefur fréttaveitan Reuters eftir honum. Stofnandi uppljóstrunarvefjarins WikiLeaks var handtekinn í sendiráði Ekvadors í London í fyrradag eftir að hafa dvalið þar í tæp sjö ár JULIAN ASSANGE Ljósmynd AFP: D. Leal-Olivas Júlí 2010 Fjölmiðlar birtu fréttir sem byggðust á 70.000 bandarískum leyniskjölum sem WikiLeaks hafði birt og fjölluðu um aðgerðir Bandaríkjahers í Afganistan Okt. – nóv. WikiLeaks birti 400.000 leyniskjöl um innrás Bandaríkjahers í Írak og 250.000 skjöl úr bandaríska utanríkisráðuneytinu 18. nóv. Yfirvöld í Svíþjóð gáfu út handtökutilskipun á hendur Assange vegna ásakana um kynferðisbrot 7. des. Assange gaf sig fram við bresku lögregluna Febrúar 2011 Breskur dómstóll úrskurðaði að yfirvöldum væri heimilt að framselja Assange til Svíþjóðar 19. júní 2012 Assange leitaði hælis í sendi- ráði Ekvadors Febr. 2016 Nefnd SÞ sagði handtökuna byggjast á geðþóttaákvörðun Maí 2017 Yfirvöld í Svíþjóð féllu frá rannsókn ámáli Assange Des. Fékk ríkis- borgararétt í Ekvador Jan. 2018 Ekvador óskaði eftir því að eitthvert þriðja land annaðist milligöngu um lausn á deilunni Febr. Breskur dómstóll áréttaði úrskurð um handtökutilskipun á hendur Assange Mars Ríkisstjórn Ekvadors ákvað að loka fyrir aðgang Assange að netinu Nóv. Bandarískir saksóknarar skýrðu fyrir slysni frá ákæru gegn Assange sem ekki var birt opinberlega 2. apríl 2019 Ekvadorar sögðu hann hafa margbrotið skil- mála þeirrar ákvörðunar að veita honum hæli 11. apríl Breska lögreglan handtók hann eftir að Ekvadorar sviptu hann pólitísku hæli Spá Assange langri og erfiðri baráttu  Ákærður fyrir að hvetja heimildarmann til lögbrots „Vá maður, ég hef unun af því að lesa WikiLeaks,“ sagði Donald Trump í Ohio í kosningabaráttunni árið 2016. „Þetta WikiLeaks er eins og fundinn fjársjóður,“ sagði hann á öðrum kosningafundi, í Michigan. „WikiLeaks, ég elska WikiLeaks,“ sagði hann í Pennsylvaníu. Uppljóstrunarvefurinn hafði þá birt tölvupósta sem sköðuðu framboð Hillary Clinton, forsetaefnis demó- krata. Leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur sagt að Wiki- Leaks hafi fengið tölvupóstana frá rússneskum hökk- urum sem hafi stolið þeim. Nú þegar Trump er orðinn forseti Bandaríkjanna er komið annað hljóð í strokkinn. „Ég veit ekkert um WikiLeaks,“ sagði forsetinn í fyrradag eftir að skýrt var frá handtöku stofnanda uppljóstrunarvefjarins. „WikiLeaks er ekkert fyrir mig.“ „Ég elska WikiLeaks“ DONALD TRUMP HAFÐI UNUN AF ÞVÍ AÐ LESA WIKILEAKS Donald Trump Nigel Farage hóf í gær kosningabaráttu nýs flokks, Brexitflokksins, fyrir kosningarnar til Evrópuþingsins í maí. Farage er fyrrverandi leiðtogi UKIP, flokks breskra sjálfstæðissinna, og hyggst notfæra sér reiði brexit- sinna vegna þráteflisins á breska þinginu, sem hefur orðið til þess að út- göngu Bretlands úr Evrópusambandinu hefur verið frestað tvisvar og lík- legt er að Bretar þurfi að taka þátt í kosningum til Evrópuþingsins 23. maí, þremur árum eftir að þeir samþykktu úrsögn úr ESB í þjóðararatkvæði. „Ég tel í raun og veru að nú sé svo komið fyrir þessari þjóð að við séum ljón undir stjórn asna,“ sagði hann á fyrsta kosningafundi flokksins í Coventry. „Ljón undir stjórn asna“ AFP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.