Morgunblaðið - 13.04.2019, Síða 31

Morgunblaðið - 13.04.2019, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019 unglingsár var ég í sveit í Segl- búðum. Fyrstu árin var Gyðríður amma húsmóðir, en síðari árin var Dúna, hans góða kona, komin í stólinn. Alltaf var fjölmennt við matarborðið í Seglbúðum. Allur viðurgjörningur var eins og best var á kosið. Ferskt heimaræktað grænmeti í hvert mál, og ýmsar tegundir af heimabökuðu brauði. Og í kaffitímanum var mikilvægt að byrja á rúgbrauðinu, síðan heilhveitibrauði, þá franskbrauði og að lokum var nýju heimabök- uðu sætabrauði smeygt í gogg. Í Seglbúðum lærði ég að vinna. Við Edda systir vorum þarna saman og skiptumst á að fara í fjósið með Guddu gömlu. Við vor- um í útiverkum með drengjum á sama aldri og unnum sömu verk. Roguðumst með tuttugu lítra steypufötur þegar súrheys- turninn var steyptur. Jón var aldrei með neitt óþarfa málæði, ekki fremur en aðrir Skaftfellingar. Á sveitaárunum var ekki venja að ræða næstu verkefni sem biðu okkar krakk- anna. Á unglingsárum fór Þor- gerður dóttir okkar með honum í bæinn í eitt sinn. Það eina sem Jón sagði alla leiðina til Reykja- víkur var: „Opnaðu hliðið“. Þegar ég lít til baka get ég sagt með vissu að fátt hefur búið mig eins vel undir ævistarf mitt sem vísindamaður og vinnan hjá Jóni í Seglbúðum. Þrautseigja fleytir manni ótrúlega langt, rétt eins og að bera steypuföturnar. Þann 2. apríl varð ég aldurs- forseti afkomenda afa míns og ömmu, Helga Jónssonar og Gyðr- íðar Pálsdóttur í Seglbúðum. Ég þakka frænda mínum samfylgd- ina. Helga Erlendsdóttir. Jón sumarfóstri okkar er dáinn. Maðurinn hennar Dúnu föðursystur, náttúruunnandi sem elskaði eldsveitina sína. Heiðar- leiki, traust og að vera trúr sjálf- um sér voru eiginleikar í fari hans sem við lærðum að tileinka okkur. Það var óhjákvæmilegt að bera virðingu fyrir umhverfi, náttúru og samfélagi af því að umgangast Jón og Dúnu og fjölskyldu þeirra í Seglbúðum. Það var mikið lán að fá að vera þar í sveit sem börn og unglingar á mikilvægustu mótun- arárum ævinnar. Vel var fylgst með landsmálum og pólitík og Tíminn lesinn upp til agna. Bóka- herbergið var fjársjóður og háa- loftið með stöflum af Fálkanum og Úrvali gerði rigningardaga að ævintýri. Skaftfellska var iðkuð af miklum móð og alveg fram í and- látið minnti Jón okkur á rétt tungutak. Við söknum þétta faðmlagsins hans Jóns, væntumþykjunnar og sagna hans af lífinu í sveitinni. Fríða og Bjarney. Rösk fjögur ár skildu okkur frændur að í aldri og þess utan óbrúaðar jökulár og sandar Skaftafellssýslna, sem aldrei voru meiri hindranir í samgöngum en áratugina eftir seinna stríð. Það var á vígsludegi Skeiðarárbrúar 14. júlí 1974 að við Jón hittumst í fyrsta sinn, táknrænt fyrir þýð- ingu þeirra samgöngubóta. Ég var þá í verkum fyrir Náttúru- verndarráð í Skaftafelli en Jón nýkjörinn á þing þar sem hann gegndi störfum samfellt í 21 ár. Brátt bar mig að garði í Seglbúð- um hjá móðursystkinum mínum, Gyðríði og Elíasi, og þeim Jóni og Guðrúnu sem þá voru löngu tekin við búi. Síðan gerðist það flest ár- in að við Kristín litum þar við og Jón fylgdi okkur um nágrennið, m.a. í Þykkvabæ þar sem enn stendur steinhúsið sem móðurafi okkar og amma, Páll og Margrét, fluttu í úr torfbæ 1917 og er prýði- lega við haldið. Atvikin báru mig 1978 inn á Al- þing þar sem við frændurnir deildum vinnustað í 17 ár, að vísu hvor í sinni þingdeild fram til 1991 að þær voru sameinaðar. Jón var hins vegar forseti Sameinaðs þings fyrstu fimm árin á meðan ég sat í ríkisstjórn en tók síðan við ráðherrastarfi í jafnlangan tíma til ársins 1988. Mér er eftirminni- legast úr þingforsetatíð Jóns þeg- ar hann sat næturlangt yfir langri „álumræðu“ á útmánuðum 1983 og frestaði loks fundi í morguns- ár, varaforsetar löngu farnir að sofa. Var það þingmál þar með úr sögunni og styttist í kosningar. Við frændur vorum hvor í sínum stjórnmálaflokki, en þó styttra á milli sjónarmiða í mörgum málum en ætla mátti. Það átti m.a. við um náttúruverndina, þar sem Jón lagði gott til mála, kom upp Kirkjubæjarstofu heima fyrir og sat um árabil í stjórn Land- verndar eftir að þingstörfum lauk. Hann var í eðli sínu íhugull og seinn til andsvara þótt að honum væri sótt. Þessir og fleiri mann- kostir báru hann í margháttaðar trúnaðarstöður sem hann gegndi af stakri samviskusemi. Helgi faðir Jóns var aðeins hálfsextugur þegar hann féll frá. Það réði örlögum sonarins, sem þá átti ár í stúdentspróf sem hann lauk, en hlaut síðan að taka við búi með móður sinni. Sem þingmaður átti hann nokkur erindi til út- landa. Frændi okkar Sigurður Blöndal sat með Jóni nokkrar vik- ur á þingi Sameinuðu þjóðanna 1975. Sigurður hafði orð á því við mig hversu vel Jón væri að sér í alþjóðamálum og ratvís í stór- borginni. Svipað reyndi ég í sam- eiginlegri ferð okkar Jóns í for- sætisnefnd Alþingis til Japan 1991. Af henni spratt tillaga okkar um íslenskt sendiráð í Tókýó sem varð að veruleika nokkrum árum síðar. Við Kristín litum við hjá Jóni og Guðrúnu í Klausturhólum síð- sumars 2017. Þar nutu þau góðs atlætis. Hugur frænda var kom- inn á aðrar slóðir en góðlátlegt yf- irbragð hans var óbreytt. Ættar- slóðin mun lengi minnast hans með þakklæti fyrir uppbyggi- legan stuðning og samfylgd. Hjörleifur Guttormsson. Elsku Jón. Þegar við hugsum til baka þá rifjast upp svo margar góðar sam- verustundir. Þú varst alltaf svo blíður og yndislegur. Væntum- þykjan og athyglin sem þú sýndir okkur var svo augljós. Bæði með- vitað og ómeðvitað hefur líf þitt, hvernig þú ferðaðist, menntaðist og stækkaðir, mótað okkur á svo margan hátt. Þakklæti er það orð sem er okkur efst í huga þegar við hugs- um til ykkar Dúnu. - Takk fyrir að sýna okkur allt- af endalausan áhuga og virðingu. Takk fyrir alla þá athygli og tíma sem þú gafst okkur þegar við mættum óboðin yfir í kaffi. Takk fyrir öll barnaafmælin, sunnu- dagaskólann og jólaböllin. Takk fyrir að taka á móti okkur á að- fangadag þegar pakkaspenning- urinn var of mikill. Takk fyrir að sýna okkur að sveitastrákur geti orðið forseti Alþingis. Takk fyrir að kenna okkur að tala ekki illa um náungann. Takk fyrir að kenna okkur að maður má vera vel greiddur og í ljósblárri skyrtu í sveitinni. Takk fyrir að kenna okkur umburðarlyndi og náunga- kærleik. Takk fyrir að kenna okk- ur að sjá fegurðina í litlu hlutun- um. Takk fyrir að kenna okkur að Apple er betra en Microsoft. Takk fyrir að kenna okkur að taka ábyrgð á eigin lífi og annarra. Takk fyrir að kenna okkur að súkkulaðirúsínur bæti melt- inguna. Takk fyrir að elska Dúnu. Þið Dúna hafið alltaf átt svo stóran þátt í okkar lífi, þið eruð okkur bæði svo kær. Þið hafið ver- ið okkur sem amma og afi. Guðlaug, Steinn Orri og Leifur Bjarki Erlendarbörn. Þegar ég á kveðjustund hugsa til vinar míns og velgjörðarmanns Jóns Helgasonar koma upp í huga minn orðin hæverskur dreng- skaparmaður. Djúpvitur með ró- legt og yfirvegað fas Skaftfell- ingsins. Traustur og laus við alla yfirboðsmennsku, hreinn í sálinni og samskiptum. Hann var ólíkur mörgum stjórnmálamönnum, laus við drýldni, eða að vera sífellt vekja athygli á störfum sínum. At- hyglisþörf var honum víðs fjarri. Hann var iðinn og tók að sér mörg verkefni sem hann leysti af einurð og vandvirkni. Það var eftirminnilegt og af- drifaríkt símtal sem Jón átti við mig haustið 1994. Hann sagði mér að hann myndi opinbera það síðar þann dag að hann ætlaði að láta af þingmennsku. Hann vildi að ég vissi það fyrstur manna. Fleiri voru þau orð ekki. Mér þótti að vonum vænt um símtalið en í því fólst ákveðin áskorun. Ég hafði fram að þessu ekki tekið þátt í flokkspólitík en vissi þó að erfitt yrði að fylla í hans skarð. Þegar ljóst var að ég yrði þingmannsefni á Suðurlandi fór Jón með unga manninn um kjördæmið til kynn- ingar. Húmorískur Eyjamaður sagði að Jón hefði tekið eitt stórt skerf, meðan frambjóðandinn þurfti að hafa sig allan við að fylgja honum. E.t.v. voru stóru skrefin hans Jóns táknræn fyrir störf hans. Það væri of langt mál um að telja upp öll trúnaðarstörf Jóns. Allt leysti hann af látleysi, festu og framsýni. Hann unni landi og þjóð og var einlægur umhverfis- sinni. Ræturnar voru í Skafta- fellssýslunni, þar vann hann sem og annarsstaðar að mörgum þjóð- þrifamálum. Ég hef oft dáðst af látleysi hans, dugnaði, gáfum og samviskusemi. Hann var bindind- ismaður alla tíð. Ráðherraveislur hans báru vott um það, þar sem veitingar voru af þjóðlegra tagi; mjólk, kleinur og flatkökur og fóru þessar veitingar betur í maga en ýmislegt annað. Að baki góðum leiðtoga er gjarnan traustur og góður maki. Guðrún Þorkelsdóttir, eiginkona Jóns, var stoð og stytta í lífi hans allt til dauðadags. Ég er þeim hjónum afar þakklátur fyrir alúð og vinsemd. Guðrúnu og fjöl- skyldunni allri vottum við Stein- unn dýpstu samúð okkar. Gatan er vörðuð gleði og sorgum, gjöf vort æviskeið. Einn í dag, svo annar á morgun, allir á sömu leið. (P.E.) Að leiðarlokum er ég þess full- viss að ný verkefni bíða Jóns í Austrinu eilífa – skrefin verða enn stærri þegar hann gengur inn um himnahliðið, enda kirkjunnar maður. Ísólfur Gylfi Pálmason. Jón Helgason, fyrrverandi al- þingismaður, ráðherra og forseti sameinaðs Alþingis var einn af eftirminnilegustu þingmönnum sem ég átti samleið með þegar ég sat á Alþingi. Ekki var það fyrir það að hann væri að slá um sig með gífuryrðum eða standa tím- unum saman í ræðustól. Hann var einstaklega traustur maður og mikill öðlingur, og það var ætíð gott að leita til hans og eiga hann að. Jóni var sem vonlegt var falinn mikill trúnaður bæði innan Fram- sóknarflokksins og á landsvísu. Hann var landbúnaðarráðherra á níunda áratug síðustu aldar á tíma sem var umbrotatími í land- búnaði. Eftir það varð hann for- seti Alþingis og naut mikillar virð- ingar í því embætti, enda vildi hann veg Alþingis og virðingu sem mesta. Jón var þrátt fyrir sitt prúða og hægláta fas mikill mála- fylgjumaður, og gafst ekki upp við þau málefni sem hann bar fyrir brjósti. Hann var bóndi og lands- byggðarmaður í húð og hár, en áhugasvið hans voru víða bæði hér innanlands og á erlendum vettvangi. Hann gegndi fjölmörg- um trúnaðarstörfum bæði í heimahéraði, á landsvísu og í er- lendum samskiptum. Eitt var það málefni sem hann lét sig sérstaklega varða, en það voru málefni kirkjunnar. Hann var forseti Kirkjuþings og naut þar sérstaklega mikils álits og virðingar, eins og í öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Það var gott að vinna með Jóni, og á milli okkar var ætíð góð sam- vinna, utan einu sinni að ég varð þess var að hann var ekki ánægð- ur með mig. Það var í því erfiða máli hvort ætti að leyfa innflutn- ing og sölu á áfengum bjór hér á landi. Ég var fylgjandi því og dag- inn eftir atkvæðagreiðsluna tók hann mig tali einslega. Ég fann að mjög þungt var í honum og mér þótti það mjög miður. Það var ljóst að bindindi á áfenga drykki var honum hjartans mál. Ekki hafði þetta þó frekari áhrif á okk- ar samskipti sem voru ávallt góð. Jón og Guðrún Þorkelsdóttir kona hans voru búsett í Seglbúð- um í Landbroti og ók hann löngum hina löngu leið milli Reykjavíkur og heimilis síns með- an hann sat á Alþingi. Síðustu árin dvöldu þau hjónin á hjúkrunarheimilinu á Klaustur- hólum, en Jón var undir það síð- asta farinn að heilsu. Guðrún kona hans var honum stoð og stytta þar, eins og ávallt áður. Henni vottum við Margrét inni- lega samúð og fjölskyldunni þeirra. Jón Kristjánsson. Horfinn er af heimi hollvinur góður og gegn, sannur dreng- skaparmaður sem ágætt var að eiga góð kynni við. Við sátum saman á Alþingi í þrettán ár og prúðmenni sem Jón var þá fór hann fram af festu og ákveðinni kurteisi, átti hlýjan og gaman- saman streng í fórum sínum, sem ég hygg að of fáir hafi fengið að kynnast nógu vel. Hann flutti vel mál sitt rökum reifað og aðeins einu sinni man ég eftir að Jóni hitnaði það rækilega í hamsi að hann brýndi sína annars hægu en ákveðnu skaftfellsku raust. Við vorum saman í forsætisnefnd Al- þingis í fjögur ár þar sem Jón gegndi farsælli forystu sem for- seti Sameinaðs þings og við Sverrir Hermannsson meðreiðar- sveinar hans sem deildarforsetar Neðri og Efri deildar. Samstarf okkar þessi ár var í einu orði sagt framúrskarandi enda var Jón þarna eins og annars staðar mál- efnalegur hið bezta, viljandi leysa öll mál á sem beztan veg. Þar náð- um við vel saman allir þrír svo ólíkir sem við vorum á ýmsan veg og það framar öðru að þakka hóg- værri stjórn Jóns. Við áttum raunar samleið í mörgum málum, málefni landsbyggðar og alveg sér í lagi sveitanna voru báðum af- ar hugleikin. Við Jón vorum báðir miklir bindindismenn svo og þær eigin- konur okkar beggja, vorum öll fé- lagar í þeirri ágætu stúku Eining- unni númer 14. Einingin þakkar Jóni Helgasyni trausta og farsæla fylgd áranna og biður Guðrúnu hans blessunar. Það er einstak- lega gott til þess að vita að það er sonur þeirra hjóna, Björn Sævar veðurfræðingur sem nú er æðsti maður Bindindissamtakanna á Ís- landi. Jón fylgdi í fótspor Vil- hjálms flokksbróður síns Hjálm- arssonar þegar hann var ráðherra og veitti ekki vín í sínum ráð- herraveizlum og voru það auðvit- að veizlur af bezta tagi. Slíkt var sannarlega fagnaðarefni. Jón Helgason hafði vissulega alla burði til háskólanáms, en hann valdi að taka við búinu í Seglbúðum eftir fráfall föður síns SJÁ SÍÐU 32 HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, TÓMAS ÞÓRIR GARÐARSSON, Heiðargerði 20, Akranesi, lést á sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 2. apríl. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 16. apríl klukkan 13. Lára Valgerður Jóhannesdóttir Róbert Steinar Tómasson Ragna Björg Guðmundsdóttir Jóhannes Ásgeir Eiríksson Garðar Örn Tómasson Berglind Erla Engilbertsdóttir Guðjón Birgir Tómasson Margrét Egilsdóttir Elín Guðrún Tómasdóttir Fannar Þór Eyþórsson og barnabörn Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINGRÍMUR GÍSLASON frá Torfastöðum, lést aðfaranótt mánudagsins 8. apríl á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum Selfossi. Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 16. apríl klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið eða Vinafélag Ljósheima: 0152-26-60860, kt. 690216-0860. Árný V. Steingrímsdóttir Friðgeir Jónsson Jensína Sæunn Steingrd. Ægir Stefán Hilmarsson Aðalh. Jóna Steingrímsdóttir Björn Magnússon Gísli Steingrímsson Ragnheiður Sigmarsdóttir Sigurður Þór Steingrímsson Guðbjörg Bergsveinsdóttir Birgir Árdal Steingrímsson Margrét Jónsdóttir Bergur Geir Guðmundsson Sigrún Óskarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, dóttir mín, móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, tengdadóttir, amma og frænka, ANNA GUÐRÚN GARÐARSDÓTTIR, Krossholti 4, Keflavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja mánudaginn 1. apríl. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 16. apríl klukkan 13. Sigurjón Sveinsson Helga Auðunsdóttir Heiðar Örn Kárason Helga Fjóla Jónsdóttir Theodóra St. Káradóttir Eggert Daði Pálsson Sylvía Rut Káradóttir Eyþór Ingi Einarsson Guðbjörg R. Sigurjónsdóttir Björgvin Guðnason St. Bonnie Lúðvíksdóttir Björgvin Þór Þórhallsson Stefán G. Sigurjónsson Brynja Ýr Baugsdóttir Sveinn Guðnason Ásta Pálsdóttir barnabörn og frændsystkini Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON, Hlaðhömrum 2, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 9. apríl. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 24. apríl klukkan 13. Þorvaldur Björgvinsson Guðmundur Björgvinsson Björgvin Björgvinsson Pirjo Aaltonen Þórir Björgvinsson Unnur Kristjánsdóttir Rúnar Björgvinsson Elín Traustadóttir Hilmar Björgvinsson Sjöfn Marvinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.