Morgunblaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 39
ÍÞRÓTTIR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019
FLJÓTANDI
SMJÖRLÍKI
Í ALLA
MATARGERÐ
Úrslitakeppnirnar í
vetraríþróttunum hafa sannað
sig sem afar skemmtilegt fyrir-
komulag fyrir íþróttaunnendur.
Hvort sem það er í handknatt-
leik, körfuknattleik, blaki eða
íshokkí þá geta rimmurnar orð-
ið mjög spennandi með alls
kyns framlengingum, upp-
hækkunum og vítakeppnum
eins og við höfum séð í gegn-
um árin.
Úrslitakeppnirnar í körf-
unni eru nokkuð langt komnar
en sjálfar úrslitarimmurnar eru
eftir. Þar er enginn hörgull á
óvæntum úrslitum. Hversu
margir fullyrðingaglaðir ætli
hafi brennt sig á því að ganga
út frá því sem gefnu að Njarð-
vík og Tindastóll myndu slá út
ÍR og Þór í 8-liða úrslitum?
Eftir þá mögnuðu atburðarás
hef ég orðið var við að íþrótta-
áhugamenn tóku ÍR og Þór
samt ekki alvarlega. Hversu
margir fullyrðingaglaðir ætli
hafi brennt sig á því að ganga
að sigrum KR og Stjörnunnar
sem vísum í undanúrslitarimm-
unum? Þegar menn hafa bitið í
sig að eitt lið sé sterkara en
annað þá getur tregðan verið
fáránlega mikil að opna augun
fyrir öðrum valmöguleikum.
Fyrir leiki númer tvö í báðum
þessum rimmum átti ég sam-
töl við menn sem hafa miklu,
miklu, miklu meiri þekkingu á
körfuknattleiksíþróttinni en ég.
Þarf nú svo sem ekki mikið til
en þar voru á ferð menn sem
hafa unnið fyrir því að geta
kallast alvöru sérfræðingar.
Ég talaði fyrir frekar daufum
eyrum um að ÍR og Þór ættu
góða möguleika á því að vinna
heimasigra og jafna 1:1. Ég var
svo sem ekki að spá þeim lið-
um sigri í rimmunum en fannst
þau einfaldlega hafa sýnt að
þeim yrði ekki sópað út.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
NBA
Gunnar Valgeirsson
Los Angeles
Úrslitakeppnin í NBA-deildinni
hefst í dag og að venju þykir rétt í
þessum dálkum að rýna í styrkleika
liðanna eftir deildarkeppnina.
Stóra spurningin í þessari úrslita-
keppni er hvort meistarar Golden
State Warriors nái að vinna þriðja
titilinn í röð – þann fjórða á fimm ár-
um – eða hvort kominn sé brestur í
mannskapinn. Á þessum tímum
samfélagsmiðla er minnsti ágrein-
ingur fólks ýktur og þegar svo virtist
í upphafi keppnistímabilsins að per-
sónuágreiningur leikmanna Warri-
ors væri að sundra liðsheildinni
hafði það á endanum lítil áhrif á leik
liðsins og Warriors rúlluðu enn eitt
árið í toppsætið í Vesturdeildinni í
lokin. Leikur meistaranna er eins og
sjálfvirk vél sem rúllar ár eftir ár,
sama hvað setur.
Það hefur ekki ávallt verið auðvelt
fyrir liðið og þjálfarann Steve Kerr í
vetur. „Við töpuðum sumum heima-
leikjum með yfir tuttugu stigum og
þegar það gerðist fyrst reyndi ég að
láta vonbrigði mín í ljós við fréttarit-
arana með því að niðurlægja framlag
þeirra það kvöld. Þetta virkaði ekki
þótt ég hefði verið hreinskilinn. Svo
ég lærði af því og hef reynt að skilja
að í sumum leikjum erum við ekki
andlega tilbúnir. Þetta herjar á öll
lið. Ég hef reynt að leggja áherslu á
að taka töpunum, og minna leik-
menn á árangurinn sem við höfum
náð og hvað er fram undan. Það er
erfitt fyrir aðra að skilja þetta, en ég
gekk í gegnum þetta sem leikmaður
með Chicago þannig að ég skil álagið
á liðinu,“ sagði Kerr fyrr í vikunni.
Við NBA-eðjótar höfum verið í
þessari stöðu áður. Maður man vel
eftir þegar Chicago Bulls höfðu yfir-
burði á tíunda áratugnum, þá voru
árlegar pælingar fólks um að eitt-
hvað myndi fara úrskeiðis hjá liðinu í
úrslitakeppninni. Nái Warriors að
vinna titilinn nú munu leikmenn
þess geta sagt að þeir hafi verið í
einu besta liðinu í sögu deildarinnar.
Það er nokkuð sem liðsmenn
meistaranna geta notað sem hvatn-
ingu.
Uppgjör Golden State og
Houston í annarri umferð?
Fyrir úrslitakeppnina spáði undir-
ritaður Warriors öruggu fyrsta sæt-
inu í Vesturdeildinni – ekki erfið spá
fyrir neinn sem fylgst hefur með
gangi mála í deildinni undanfarin ár
– og að Houston Rockets yrðu eina
liðið sem líklegt væri til að veita
þeim einhverja keppni. Í deilda-
keppninni hefur Denver Nuggets þó
komið á óvart og verið í toppbarátt-
unni vestanmegin í allan vetur.
Þessi þrjú lið virðast líklegust til
að blanda sér í baráttuna um sætið í
lokaúrslitunum, fimm næstu lið hafa
öll of mikla veikleika til að geta
steypt Golden State af toppnum.
Í fyrstu umferð úrslitakeppninar
mæstast þessi lið vestanmegin:
Golden State – LA Clippers
Denver – San Antonio Spurs
Portland – Oklahoma City
Houston Rockets – Utah Jazz
Sem fyrr er nokkuð öruggt að
veðja á Golden State og Houston
hér. Vesturdeildin er mun sterkari
og jafnari en sú austanmegin, þann-
ig að þótt Denver og Portland ættu
að komast áfram er ekki gefið að svo
verði. Vegna lokastöðunnar í deild-
inni gætu Golden State og Houston
því mæst í annarri umferðinni.
Sáu ekki fyrir frammistöðu
Giannis og Bucks
Fyrir deildakeppnina voru flestir
á þeirri skoðun að Boston Celtics
myndi taka toppsætið í Austurdeild-
inni og að Toronto Raptors og Phila-
delphia 76ers myndu fylgja þeim
fast á eftir.
Það sem NBA-skríbentar sáu hins
vegar ekki fyrir var glæsileg
frammistaða Milwaukee Bucks, og
þá sérstaklega þáttur gríska mið-
herjans Giannis Antetokounmpos.
Liðið fór fljótlega á toppinn austan-
megin og hélt henni síðan út deilda-
keppnina. Toronto er eina liðið sem
hefur náð að veita Bucks einhverja
keppni, en Bucks enduðu með besta
árangurinn í deildinni í ár og munu
því fá „heimavallaryfirburðina“ svo-
kölluðu út keppnina.
Þessi tvö lið munu vissulega
blanda sér í slaginn um sigurinn í
Austurdeildinni, en þrátt fyrir að
Philadelphia og Boston hafi tapað
sjö og níu leikjum meira gætu bæði
þessi lið gert toppliðunum tveimur
lífið leitt í sjö leikja rimmum.
Irving er erfiður
Fyrir ákaft stuðningsfólk Boston
hefur deildakeppnin verið erfið, en
liðið hefur ekki náð þeirri samheldni
sem einkenndi leik liðsins síðasta
keppnistímabil. Hluta af því má
rekja til sálarástands Kyries Irv-
ings, leikstjórnanda Celtics. Hann
hefur hegðað sér eins og skapillt
barn – kvartandi og kveinandi um
allt sem kemur upp í huga hans á
milli þess sem hann var að ýta við
þeirri hugmynd að jörðin væri flöt.
Irving er frábær leikmaður, en það
er ekki hægt fyrir nokkurt lið að
treysta á hann sem samherja. Hann
býr í sínum eigin huga.
Úrslitakeppnin í Austurdeildinni
gæti orðið skemmtileg, en þessi lið
mætast í fyrstu umferð:
Milwaukee – Detroit Pistons
Toronto Raptors – Orlando Magic
Philadelphia 76ers – Brooklyn
Boston Celtics – Indiana Pacers
Fyrrnefndu liðin ættu öll að kom-
ast áfram án mikilla erfiðleika.
gval@mbl.is
Sjálfvirka vélin hjá Golden
State rúllar ár eftir ár
Kerr nýtir sér reynsluna frá Chicago-tímanum til að takast á við ósigrana
AFP
Golden State Kevin Durant treður boltanum í körfu mótherjanna. Verða
andstæðingar meistaranna í Golden State alltaf þessu skrefi á eftir þeim?
Knattspyrnumaðurinn Guðjón Pétur Lýðsson er á förum
frá KA en þetta staðfesti félagið í gær. Guðjón samdi við
félagið í nóvember á síðasta ári en af fjölskylduástæðum
sér miðjumaðurinn sér ekki fært að leika með Akureyr-
arliðinu í sumar.
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, staðfesti í
samtali við mbl.is í gær að félagið hefði samþykkt tilboð
Breiðabliks í leikmanninn. Þá hefur eitt annað tilboð
borist í leikmanninn sem var hafnað. KA hefur fengið
nokkrar fyrirspurnir varðandi leikmanninn síðan félag-
ið tilkynnti að hann væri á förum. Guðjón varð Íslands-
meistari með Val, árin 2018 og 2017, en hann gekk til
liðs við KA frá Val.
Guðjón þekkir vel til hjá Breiðabliki en hann lék með liðinu á árunum
2013 til 2015 þar sem hann skoraði 18 mörk í 66 leikjum. Hann hefur spilað
með Val, Breiðabliki og Haukum hér á landi. bjarnih@mbl.is
Tilboð Breiðabliks samþykkt
Guðjón Pétur
Lýðsson