Morgunblaðið - 13.04.2019, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 13.04.2019, Qupperneq 43
Menning MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019 1970 SIGURÐUR MÁR HELGASON Kollinn Fuzzy þekkja margir í dag sem vinsæla ís- lenska hönnunarvöru en hann var hannaður um 1970 af Sigurði Má Helgasyni (1940) húsgagnabólstrara og framleiddur af fyrirtæki hans Módel húsgögnum á ár- unum 1973 - 1974. Kollurinn er hugsaður fyrir ferða- menn að taka með sér frá landinu og pakkast hann hag- anlega í flatar umbúðir með haldi sem Sigurður hannaði sérstaklega fyrir kollinn. Kollurinn er með sútaðri óklipptri lambsgæru og með renndum fótum sem fáanlegir eru í mismunandi viðarteg- undum. Fyrir nokkrum árum var farið að framleiða Fuzzy á ný og hafa þá verið gerðar tilraunir með álfætur og einn- ig fætur úr plexigleri. Fuzzy hefur farið víða um heim á sýningar og í sölu. Íslensk hönnun - Hönnunarsafn Íslands Fuzzy fyrir ferðamenn Ljósmynd/Hönnunarsafn Íslands/ Elísabet V. Ingvarsdóttir skráði Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt íslenskrar menningarsögu sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum 1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda muni, sem margir hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkosturinn fer sístækkandi, enda æ fleiri hönnuðir sem hasla sér völl og koma fram með vandaða gripi sem standast alþjóðlegan samanburð og eru nytjamunir og/eða skrautmunir. Í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands setti safnið upp sýninguna 100ár100hlutir á Instagram þar sem 100 færslur eru birtar á jafnmörgum dögum af hönnunargripum í eigu safnsins frá árunum 1918 til 2018. Þegar barnungur sögumaðurtitilsögu smásagnasafnsinsBrandarar handa byssu-mönnunum missir heyrnar- lausan tvíburabróður sinn, þegar skólabíll sem hann er í verður fyrir sprengjuárás, hættir móðir þeirra að borða en grimmir byssumennirnir – sem berjast í borgarastyrjöldinni sem er sett fram eins og hrottalegt fáránleikaleikhús í sögum bókarinnar – taka að berja föður þeirra dag hvern er hann fer í vinnuna. Þeir níð- ast á þeim sem eiga bágt og sú „staðreynd að hann hafði misst barnið sitt varð til þess að byssu- mennirnir gerðu sér ljóst að hann var ekki bara veiklyndur heldur líka hryggur“. Og þá fara þeir líka að skipa föðurnum að segja sér brandara og hann þarf að finna eða semja nýja til að hafa á takteinum á hverjum einasta degi, ætli hann að lifa af. Heimurinn í þessum 14 mislöngu og laustengdu smásögum í safni Maz- ens Maaroufs er æði grimmur og lýs- ir daglegu lífi almennings á tímum borgarastyrjaldarinar í Líbanon seint á liðinni öld. En sjónarhornið í sög- unum er barna, eða barns, sem er af- ar snjöll leið til að miðla þessum heimi og lífi fólks við þessar að- stæður, en gegnum hina bernsku vit- und, þar sem börnin reyna oft að herma eftir hinum fullorðnu, verður grimmdin og mannvonskan fáránleg og furðulega absúrd. Mazen er palestínskur að ætt og uppruna en fæddist í Beirút. Þar nam hann efnafræði en hefur undanfarin ár starfað við skáldskap, blaða- mennsku og þýðingar. Í Líbanon hafði hann stöðu flóttamanns en kom hingað til lands fyrir átta árum og er nú íslenskur ríkisborgari. Athyglis- verð ljóð eftir hann hafa verið gefin út á bókum hér en það er ekki síður fengur að þessu góða sagnasafni sem hefur fengið afar góðar móttökur síð- an það kom út á ensku og arabísku fyrir fjórum árum; hefur það fengið svokölluð Al-Multaqa-verðlaun sem veitt eru fyrir smásögur á arabísku og þá er bókin á svokölluðum langa lista til bresku Booker-verðlaunanna í ár og er aðeins önnur íslenska bókin sem nær svo langt í þeirri keppni en áður hefur skáldsagan Fiskarnir hafa enga fætur eftir Jón Kalman Stefáns- son komist á langa listann. Titilsaga bókarinnar er sú lengsta og jafnframt sú dýpsta; hún slær tón- in hvað varðar söguheiminn og bernska vitundina sem höfundurinn beitir svo vel. Pilturinn leitar leiða til að gera sig merkilegan í þessu karl- rembusamfélagi þar sem þeir sterku sigra og hika ekki við að troða hina veikari í svaðið á þeirri vegferð, en óþroskað barnið sér það ekki endi- lega með þeim hætti – þótt lesandinn sjái það. Flestar hinna sagnanna eru á einhvern hátt tilbrigði við það stef eða fylla upp í annars óræða myndina af þessu samfélagi sem er mótað af átökum og dauða, en jafnframt eru þær allar fallega mennskar og stutt í ljóðrænan en merkingarþrunginn absúrdisma í bland við blóð og grimmd. Gott dæmi um það er sagan frá- bæra „Nautabani“ sem fjallar um frænda sem deyr þrisvar sinnum, sem ætti að vera nógu merkilegt fyrir sögu, en hann dreymir um að verða nautabani og hefur náð að eignast hluta af spænskum nautabanabúningi sem hann klæðist síðan í vinnu í sláturhúsinu, þar sem þessum sadista þykir spennandi að reyna að kyrkja kýr sem leiddar eru til slátrunar. Önnur af bestu sögum bókarinnar, „Bíó“, greinir frá fjölskyldum sem höfðu leitað skjóls fyrir sprengju- regni í kvikmyndahúsi. Eftir að sprengja fellur á fimmta degi inn í bíóið virðist drengurinn sem segir frá vera einn eftir á lífi en þá gengur þar inn kýr sem hermaður einn hefur haft með sér í stríðið. Veruleikinn verður sífellt draumkenndari, og ótrúverð- ugri, en söguvitundin tekur honum sem bláköldum raunveruleika – og er það afar vel gert af höfundarins hálfu. Þá má einnig minnast á söguna „Grammófón“ sem segir af föður sögumannsins en sá vann við að trekkja upp grammófón á bar, þar til handleggirnir voru sprengdir af hon- um og lífi fjölskyldunnar þar með rústað með ömurlegum hætti. Fjórtánda og síðasta saga bókar- innar, „Juan og Ausa“, er sú eina sem gerist ekki í þeim heimi sem lesand- inn skynjar sem Líbanon heldur á Spáni. Það greinir hana nokkuð frá hinum; lesa má þá tilfærslu sem vísun á að það megi finna leið frá hinu stríðshrjáða landi en þótt sögusviðið sé annað tengist frásögnin þó hinum á ýmsan hátt, meðan annars þar sem enn einn nautgripurinn er í óvæntu hlutverki. Sögurnar í safni Mazens, Brand- arar handa byssumönnunum, ná ekki alveg allar jafn miklu flugi en engu að síður er þetta heildstætt og áhrifaríkt verk sem vekur lesandann til um- hugsunar um líf almennings við stríðsátök. Uggi Jónsson þýðir sög- urnar mjög vel; málið er tært og flæðið gott. Sögurnar eru líka afar vel mótaðar, áhugaverðar og birta nýtt sögusvið í íslenskum bókmenntum – og mikið eru lesendur heppnir að þessi vandaði höfundur hafi bæst í hóp íslenskra rithöfunda. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þar sem kýr éta jafnt fótbolta sem lyklakippur Smásögur Brandarar handa byssumönnunum bbbbm Eftir Mazen Maarouf. Uggi Jónsson þýddi. Mál & menning, 2019. Kilja, 147 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Rithöfundur- inn Mazen Maarouf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.